Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1994, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1994
7
Fréttir
Prófkjör og skoðanakannanir valda óróa í flokkunum
Ef i er um allar aðferðir
segir formaður Framsóknarflokksins - Karen Erla og Ásta Ragnheiður áfram 1 flokknum
Eftir prófkjörin um síöustu helgi
er ljóst að enn einu sinni koma upp
mikil sárindi hjá þeim sem ekki ná
þeim sætum sem þeir ætluðu sér.
Ekki síst hefur þetta verið áberandi
í Framsóknarflokkum. Halldór Ás-
grímsson, formaður flokksins, var
spurður hvort enginn efi væri hjá
mönnum um þessa aðferð við að
stilla upp hsta.
„Það er efi hjá mönnum um allar
aðferðir við að stilla upp á Usta. Það
hefur verið sitt á hvað innan Fram-
sóknarflokksins. Það hafa verið opin
prófkjör og einnig atkvæðagreiðslur
meðal félagsbundins fólks. Allt hefur
þetta sína gaha og ég held að við finn-
um aldrei neina leið sem kemur í veg
fyrir einhver átök og sárindi. Það er
ekkert einsdæmi innan Framsóknar-
flokksins að svonalagað komi upp.
Þetta eerist í Drófkjörum hvar sem
þau fara fram. Ég kann enga þá leið
sem leysir öll þessi mál. Ég held að
hún sé ekki til,“ sagði Halldór.
Hann var spurður um úrsagnir
fólks úr Framsóknarflokknum í
kjölfar skoðanakannana flokksins
um síðustu helgi.
„Ég hef rætt við Karenu Erlu og
hún ætlar ekki að ganga úr Fram-
sóknarflokknum. Hún sagði mér þaö.
Ásta Ragnheiður er heldur ekki að
fara úr flokknum. Það er hins vegar
rétt að Helgi Pétursson hefur sagt sig
úr flokknum og ég harma það. Helgi
fór í borgarmálin síðastUðið vor. Mér
þykir það miður að hann skuU segja
sig úr flokknum. Hann ber því meðal
annars við að ekki hafl fengist rætt
um veiðUeyfagjald í Framsóknar-
flokknum. Eg hef nú aldrei orðið var
við það að ekki mætti tala um það.
Hins vegar er alveg ljóst að það er
ekki á stefnuskrá Framsóknarflokks-
ins að leggja sérstakan skatt á sjávar-
útveginn. Mér þykir það hins vegar
einkemúlegt að maður sem er nýbú-
inn að taka að sér trúnaðarstörf á
sviði sveitarstjómarmála fyrir flokk-
inn skuU vUja hætta í þeim af ástæð-
um sem þessari," sagði HaUdór.
Reynsluaktu
RenauW
^ Bílaumboðið hf.
RENAULT Krókhálsi 1 • Sími 876633 • 110 Reykjavík I
o
Verðið á Renault 19 RN
árgerð 1995
er aðeins kr. 1195.000,-
INNIFALIÐ:
Hörkuskemmtileg og sparneytin 1400 vél,
vökvastýri, rafdrifnar rúðuvindur, fjarstýrðar
samlæsingar, útvarp/segulband með fjarstýringu,
styrktarbitar í hurðum, bílbeltastrekkjarar,
málmlitur, ryðvörn, skráning ..
Fallegur fjölskyldubíll á fínu verði.
Hagstæðustu
bílakaup ársins!
pottur
Fálkans
Vikutilb0^
prósenta
afmsliMfsláttut á:
gakpokuni,
svefnpokum.
soumovélum
og
rafmagnsl>and-
Veikfæfum
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 • 108 REYKJAVÍK
SÍMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-81 38 82