Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1994, Side 22
34
FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1994
Afmæli
Ingileif Bryndí s Hallgrímsdóttir
Ingileif Bryndís Hallgrímsdóttir
húsmóðir, Lynghaga 13, Reykjavík,
er sjötíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Ingileif fæddist við Thorvaldsen-
stræti við Austurvöll í Reykjavík.
Hún lauk stúdentsprófi frá MR1938.
Ingileif situr í stjórn H. Benedikts-
son hf., er stjómarformaður Nóa-
Síríus hf., situr í stjórn Ræsis og
stjómHreinshf.
Fjölskylda
Ingileif giftist 22.5.1948 Gunnari
Pálssyni frá Hrísey, f. á Ólafsfirði
28.12.1911, d. 13.11.1976, skrifstofu-
stjóra. Foreldrar Gunnars vom Páll
Bergsson, kaupmaður og útgerðar-
maður á Ólafsfirði og í Hrísey, og
Svanhildur Jörundsdóttir húsmóð-
ir, dóttir Jörundar, hákarlafor-
manns og útvegsb., Jónssonar og
Margrétar Guðmundsdóttur.
Systkini Gunnars voru tólf en á
lífi nú er ein systir hans, Guðrún,
húsmóðir í Reykjavík, ekkja Héðins
Valdimarssonar. Önnur systkini
Gunnars vora Svavar eldri; Eva,
húsmóðir á Akureyri; Hreinn,
óperusöngvari og forstjóri BP; Gest-
ur, lögfræðingur og leikari í Reykja-
vík; Bjami vélstjóri; Margrét, hús-
móðir í Reykjavík; Jörundur, arki-
tekt og listmálari í Reykjavík; Berg-
ur, skipstjóri á Akureyri; Svavar
endurskoðandi og framkvæmda-
stjóri Sementsverksmiðjunnar. Auk
þess létust tvö systkini Gunnars í
bamæsku.
Sonur Gunnars frá því fyrir
hjónaband er Hjálmar, f. 1945,
kvæntur Sjöfn Jóhannsdóttur og
eiga þau þrjú börn, Jóhann, Katrínu
ogMagnús.
Böm Gunnars og Ingileifar eru
Hallgrímur, f. 25.9.1949, rafmagns-
verkfræðingur og forstjóri Ræsis
hf., kvæntur Steinunni Helgu Jóns-
dóttur, f. 12.3.1950, kennara í sænsk-
um bókmenntum, og eiga þau þrjú
börn, Ingileif Bryndísi, f. 6.5.1975,
Sigrúnu, f. 8.12.1981, og Áslaugu, f.
10.8.1984; Páll, f. 20.5.1951, líffræð-
ingur; Gunnar Snorri, f. 13.7.1953,
sendiherra í Genf; Áslaug, f. 19.8.
1959, píanókennari, gift Þór Þorláks-
syni, f. 18.9.1958, hagfræðingi viö
Landsbankann en börn þeirra eru
Ingileif Bryndís, f. 14.1.1985, Gyða
Björg, f. 31.1.1987 og Gunnar Þorlák-
ur,f. 20.10.1992.
Bræður Ingileifar: Bjöm, f. 17.4.
1921, forstjóri H. Benediktsson hf.,
kvæntur Sjöfn Kristinsdóttur, f.
12.8.1927 og eiga þau fjögur börn;
Geir, f. 3.7.1923, d. í nóvember 1924;
Geir, f. 16.12.1925, d. 1.9.1990, for-
sætisráðherra, var kvæntur Ernu
Finnsdóttur, f. 20.3.1924, og era börn
þeirrafjögur.
Böm Bjöms og Sjafnar eru Ás-
laug, f. 28.12.1948, gift Gunnari
Scheving Thorsteinssyni verkfræð-
ingi; Kristinn, f. 17.4.1950, forstjóri
Skeljungs, kvæntur Sólveigu Pét-
ursdóttur, lögfræðingi og alþm.;
Emelía Björg, f. 19.7.1954, blaðaljós-
myndari; Sjöfn, f. 19.6.1957, gift Sig-
urði Sigfússyni, útgerðartækni og
sölustjórahjáSH.
Börn Geirs og Ernu era Hallgrím-
ur, f. 13.7.1949, lögfræðingur og
stjórnarformaður Árvakurs,
kvæntur Aðalbjörgu Jakobsdóttur;
Kristín, f. 19.3.1951, bókasafnsfræð-
ingur, gift Frey Þórarinssyni dr. í
jarðfræði; Finnur, f. 8.6.1953, dr. í
hagfræði og forstjóri Nóa-Síríus,
kvæntur Steinunni Þorvaldsdóttur
kennara; Áslaug, f. 7.10.1955, dr. í
jarðfræði.
Ingileif Bryndís Hallgrímsdóttir.
Foreldrar Ingileifar vora Hall-
grímur Benediktsson, f. 20.7.1885,
d. 26.2.1954, forstjóri H. Benedikts-
son hf„ alþm. og forseti borgar-
stjórnar, og k.h., Áslaug Geirsdóttir
Zoéga, f. 14.8.1895, d. 15.8.1967, hús-
móðir.
Margrét Pálína Gústafsdóttir
Margrét Pálína Gústafsdóttir klæð-
skeri, Suðurgarði24, Keflavík, er
níutíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Margrét fæddist á Stokkseyri og
átti þar heima til sjö ára aldurs en
íluttist þá með foreldrum sínum til
Stykkishólms. Móðir hennar lærði
karlmannafatasaum hjá dönskum
manni sem hingað kom en Margrét
lærði fatasaum hjá móður sinni,
öðlaðist síðar meistararéttindi í
greininni og stundaði fatasaum frá
sautjánáraaldri.
Hún varð ráðskona að Bergvík í
Leiru er hún var nítján ára en hús-
afmælið 10. nóvember
85 ára
Kolbrún Bjömsdóttir,
Geitlandí 4, Reykjavík.
Jensína Andrésdóttir,
Barmahlíð, Reykhólum,
Reykhólahreppi.
50 ára
80ára
Jóhann Jóhannesson,
Bröttugötu 4b, Borgamesi.
Sigríður Sveinsdóttir,
ÁsmundarstööumlV, Ásahreppi.
Fjóla Ingþórsdóttir,
Dalatangal9, Mosfellsbæ.
Sigurbjörg Smith,
Urðarbakka 36, Reykjavík.
70ára
40 ára
Birna Friðriksdóttir,
Eiðsvallagötu 8, Akureyri.
Guðmundur Guðmundsson,
Kvígindisdal, Reykdælahreppi.
60 ára
BjarniJónsson,
Kópsvatni I, Hrunamannahreppi.
Ragnheiður J. Gissurardóttir,
Borgarbraut 25, Borgarnesi.
Þorbjörn Valur Þórðarson,
Víkurtúni 5, Hólmavíkurhreppi.
Dröfo Árnadóttir,
Aðalstræti 125, Patreksfirði.
Jón Friðhólm Friðriksson,
Klapparstig3, Sandgerði.
Bergþóra Stefánsdóttir,
Sæbakka26a, Neskaupstað.
bóndinn þar var þá ekkill með sex
ung börn. Hún giftist húsbóndan-
um þar tveimur árum síðar. Þau
bjuggu fyrstu árin í Bergvík, síðan
í Hrúðunesi í Leiru en fluttu til
Reykjavíkur 1929.
í Reykjavík tók Margrét heima-
saum og 1940 stofnaði hún nærfata-
gerðina Max við Hverfisgötu og síð-
ar kápusaumastofu þar.
Margrét flutti til Bandaríkjanna
1949 þar sem hún vann á ýmsum
saumastofum í New York. Þá að-
stoðaði hún mann við að setja á
stofn prjónastofu þar sem hún bæði
sneiöogsaumaði.
Hún kom til íslands fyrir sjö
áram og dvaldi hjá dóttur sinni,
Monu, og manni hennar, Sigur-
birni, í Keflavík en er nú vistmaður
á öldrunardeildinni Víðihlíð í
Grindavík.
Fjölskylda
Eiginmaður Margrétar var Sím-
on Guðmundsson, f. 11.11.1887, d.
8.10.1977, bóndi og sjómaður, sonur
GuömundarSímonarsonarað ,
Klöpp í Miðnesi og síðar að Mels-
húsi í Leiru, og k.h., Margrétar
Símonardóttur húsmóður. Margrét
og Símon shtu samvistum eftir
tuttugu og sex ára sambúð.
Margrétog Símon eignuðust sex
börn og komust fjögur þeirra til
fullorðinsára. Börn þeirra: Einar
Símonarson, f. 6.2.1920, d. samaár;
Einar Símonarson, f. 19.5.1921, d.
12.12.1981, múrari í Reykjavík, en
eftirlifandi kona hans er Jónína
Valdís Eiríksdóttir og eignuðust
þau fimm böm; Gústaf Pálmar
Símonarson, f. 29.10.1922, prentari
í Reykjavík, kvæntur Lilju I. Sigur-
jónsdóttur, og eignuðust þau fimm
börn; Margrét Símonardóttir, f.
12.7.1924, ekkja eftir Viggó Óskar
Sveinsson pípulagningameistara
en þau eignuðust fimm böm og eru
þrjú þeirra á lífi; Jóna Símonar-
dóttir, f. 1926, d. sama ár; Mona
Erla Símonardóttir, f. 24.11.1927,
gift Sigurbimi Reyni Eiríkssyni
húsasmið og eignuðust þau fimm
börn.
Auk sinna eigin barna ólu Mar-
grét og Símon upp að mestu leyti
dótturdóttur Símonar af fyrra
hjónabandi, Emu Þórðardóttur, f.
29.10.1936, sem er gift Hallgrími
Margrét Pálína Gústafsdóttir.
Friðrikssyni, húsasmiði í New
York, og eiga þau fjögur böm.
Margrét átti níu systkin en fimm
þeirra dóu í barnæsku. Þau sem
upp komust: Baldvin, f. 14.9.1888,
látinn; Jóhanna Gústa, f. 29.9.1892,
d. 1.12.1911; Sigríður, f. 14.6.1901,
d. 11.12.1963; Jón, f. 28.1.1903, d.
12.1.1957.
Foreldrar Margrétar voru Gústaf
Ámason, f. 10.3.1857, d. 22.8.1914,
trésmiður í Ártúnum II á Stokks-
eyri, síðar í Stykkishólmi, og k.h.,
Jóhanna Pálína Margrét Magnús-
dóttir, f. 1.9.1862, d. 23.2.1917, hús-
móðir og saumakona.
Jóakim Hjartarson
ÆTTFRÆÐI
Námskeið - ættfræðibækur gamlar og nýjar - sam-
antekt á ættum - ráðgjöf og aðstoð við ættarleit.
Ný ættfræðinámskeið byrja bráðlega (15-21 klst. grunnnám-
skeið; einnig námskeið úti á landi og framhaldsnámskeið).
Lærið að rekja sjálf ættir ykkar og notfærið ykkur frábæra
rannsóknaraðstöðu. Ættfræðiþjónustan tekur að sér gerð ættar-
talna, ráðgjöf o.fl. verkefni og býður upp á vinnuaðstöðu við
ættarleit. Á annað hundrað nýlegra og eldri ættfræði- og
æviskrárrita til sölu, m.a. Bergsætt, Strandamenn, Briems-
ætt, Knudsensætt, Múraratal, Reykjaætt af Skeiðum, Víkings-
lækjarætt, Hallbjamarætt, Vigurætt, Thorarensenætt, Laxdælir,
Svalbarðsstrandarbók, Frá Hvanndölum til Úlfsdala (siglfirzkt),
Önfirðingar, Ölfusingar, Kefivíkingar, Vatnsleysustrandar-
bókin, nafnalyklar við manntöl 1801 og 1845, Ættarbókin
o.m.fl. Ættfræðibók er jólagjöf við hæfi margra. Magn-
afsláttur. Sértilboð til 5. desember. Bóksöluskrá send ókeypis.
Uppl. alla daga í símum 27100 og 22275 kl. 10-17 og 20-22.
VI&A Ættfræðibiónustan.Brautarhoiti 4. s. 27100 EUR.Q
Jóakim Hjartarson, skipstjóri frá
Hnífsdal, nú til heimihs að Hæðar-
garði 29, Reykjavík, er sjötíu og
fimmáraídag.
Starfsferill
Jóakim fæddist í Hnífsdal og átti
þar heima fram á þetta ár. Hann
stundaði nám við Vélskóla íslands
í Reykjavík 1939-40 og Stýrimanna-
skóla Islands 1942^3.
Jóakim hóf sjómennsku um ferm-
ingu. Hann var skipstjóri á ýmsum
bátum á áranum 1943-67, var síðan
verkstjóri hjá Hraðfrystihúsinu hf.
í Hnífsdal en þar starfaði hann til
1993.
Jóakim var einn af stofnendum
Hraðfrystihússins hf. í Hnífsdal
1941, var varamaður í stjórn frá 1951
og sat í aðalstjóm 1967-94. Hann var
einn af stofnendum Miðfells hf. 1964
sem gerir út togarann Pál Pálsson
ÍS-102 og var þar stjómarmaður frá
upphafi til 1994, lengst af stjórnar-
formaður, sat í stjórn Mjölvinnsl-
unnar hf. í Hnífsdal 1970-94, í stjórn
ísfangs hf. á ísafirði 1982-94 og er
einn af stofnendum Slysavarnafé-
lagsins í Hnífsdal 1934.
Fjölskylda
Jóakim kvæntist 9.11.1947 Ólafíu
Gúöfinnu Alfonsdóttur, f. 17.5.1924,
húsmóður. Hún er dóttir Alfons
Gíslasonar, hreppstjóra og sím-
stöðvarstjóra í Hnífsdal, og Helgu
Sigurðardóttur húsmóður.
Börn Jóakims og Ólafíu eru Gréta,
f. 4.9.1948, sérkennari við skóla
heymarskertra í Ósló, gift Odd
Trygve Marvel hagverkfræðingi;
Helga Sigríður, f. 20.10.1949, skrif-
stofumaður hjá Hraðfrystihúsinu
hf. í Hnífsdal, gift Sigurði Borgari
Þórðarsyni, vélstjóra og starfs-
manni hjá Órkubúi Vestfjarða, og
eiga þau þrjú börn, Helgu, Halldór
og Hildi; Jóakim Gunnar, f. 28.5.
1952, viðskiptafræðingur og fram-
kvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar,
kvæntur Sólveigu Þórhallsdóttur,
hjúkrunarfræðingi á Heilsugæslu-
stöðinni á Seltjarnarnesi, og eiga
þau þrjú börn, Dóra, Grétu og
Jóakim Þór; Kristján Guðmundur,
f. 19.2.1958, sjávarútvegsfræðingur
hjá Norðurtanganum á ísafirði,
kvæntur Sigrúnu Sigvaldadóttur,
meinatækni við Sjúkrahúsið á
ísafirði, og eiga þau þrjú böm, Gísla,
Ólafíu og Ingibjörgu; Aðalbjörg, f.
14.11.1959, viðskiptafræðingur og
íjármálastjóri Kjötumboðsins hf. í
Reykjavík og á hún eina dóttur,
Heiðu.
Systkin Jóakims: Margrét Ehsa-
bet, f. 27.4.1917, ekkja eftir Bjarna
Ingimarsson skipstjóra; Kristjana,
f. 1.7.1918, gift Karh Kristjáni Sig-
urðssyni skipstjóra; Ingibjörg Guð-
ríður, f. 20.9.1923, var gift Friðrik
Maríassyni sjómanni sem lést 1966.
Hálfsystkin Jóakims vora Helga,
f. 11.8.1904, d. 10.3.1990, var gift
Halldóri Ingimarssyni skipstjóra;
Jóakim Hjartarson.
Sigríður, f. 12.4.1906, d. 9.9.1986, var
gift Snæbirni Tryggva Ólafssyni
skipstjóra; Jóakim, f. 5.4.1907, d.
11.4.1913; Guðrún, f. 21.5.1908, d.
1.10.1941, var gift Karh Ingimars-
syni; Páh, f. 26.11.1910, d. 5.1.1911;
Aðalbjörg, f. 22.1.1912, ekkja eftir
Geir Ólafsson loftskeytamann; Jó-
hanna Pálína, f. 22.2.1913, d. 16.11.
1913; María, f. 7.5.1914, ekkja eftir
Guðjón Guðjónsson kaupmann sem
lést 1986.
Foreldrar Jóakims vora Hjörtur
Guðmundsson, f. 2.2.1891, d. 4.3.
1967, formaður í Hnífsdal, og Mar-
grét Krisfíana Þorsteinsdóttir, f. 9.4.
1889, d. 2.8.1958, húsmóðir. Mar'grét
var ekkja Jóakims Pálssonar, f. 16.7.
1879, d. 17.12.1914, formanns í
Hnífsdal.