Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1994, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994
Fréttir
Hef ur selt dósir fyr-
ir milljón á 5 árum
Ægii Már Kárason, DV, Suðumesjum;
„Ég hef fjármagnað utanlands-
ferðir mínar síðustu árin með þvi
að tína upp dósir og selt þær End-
urvinnslunni. Ég hef farið í heilsu-
bótargöngu og hirt dósir um leið.
Ég hef svo gaman af þessu að þetta
.er orðið að áhugamáli. Ætli ég
stundi þetta ekki meðan fæturnir
endast. Hingað til hef ég ekki þurft
að kvarta og varla væri heilsan
eins góð og hún er nú ef ég heíði
ekki hreyft mig í þessi ár,“ sagði
Sigurgeir Þorvaldsson, fyrrum lög-
reglumaður á Keflavíkurflugvelli í
39 ár, í samtali viö DV.
Sigurgeir hefur hirt dósir og selt
síðustu fimm árin og fengið fyrir
þær eina milljón króna. Hann hætti
sem lögreglumaöur í fyrra vegna
aldurs, varð þá 70 ára. Sigurgeir fer
um öll Suðumes við tínsluna og
reynir að vera að fjóra tíma á dag.
Skilagjald fyrir dós er 7 krónur.
Hann heldur bókhald yfir allar
dósir sem hann hefur selt - lagði
fyrir fyrstu árin til að geta keypt
sér tölvu meö öllu. Sjónvarp og
geislaspilara keypti hann fyrir
skömmu á 70 þúsund krónur. Það
tók hann 3 mánuði að safna dósum
fyrir þeirri upphæð.
„Ég þarf ekki að gera þetta pen-
inganna vegna en ég hef áhuga á
að hreyfa mig og hef gaman af að
hirða upp verðmæti sem liggja fyr-
ir fótum manns á jörðinni. Ég fer
alltaf með fullan bíl til Reykjavíkur
þegar ég sel dósimar. Það gerist
oft aö ég stansa í höfuðborginni og
tíni dósir upp í bensínkostnaðinn
við aksturinn til Reykjavíkur og
vel það.“
Að lokum sagði Sigurgeir að eig-
inkona sín hefði ekki verið hrifin
af þessu framtaki hans í byrjun en
væri nú farin að sætta sig viö það.
Stuttar fréttir
Vilja href nuveiðar
Sveitarstjórn Vesturbyggðar
sendi ríkisstjóminni áskomn í
gær um að hún tæki nú þegar
ákvörðun um að hefja hrefnu-
veiöar. Þetta kom fram á RÚV.
Risavaxin f isk verkun
Fyrirtækið IceMac í Reykjavík
er með áform um að reisa risa-
vaxiö fiskverkunarhús á Austur-
landi sem myndi tvöfalda fram-
leiðslugetu íjórðungsins. Sam-
kvæmt Stöð 2 yrði stofhkostnað-
ur 2,5 milljarðar.
Vinsælhlutabréf
Hátt í eitt þúsund manns
keyptu hlutabréf i gær í Lyfja-
verslun íslands fyrir um 200
milljónir króna. Margir nýttu sér
boð um vaxtalaust lán frá ríkinu.
12einkavæðingar
Á yfirstandandi kjörtímabili
hefur ríkisstjóm Davíðs Odds-
sonar einkavætt 12 ríkisfyrirtæki
sem er heldur minna en áætlanir
geröu ráð fyrir.
Oftastibíó
íslendingar fara oftast í bíó af
öllum Evrópubúum, eða yfir
fimm sinnum á ári. Það er tvisvar
sinnura oftar en írar sem koma í
öðru sæti. RÚV greindi frá þessu.
Lausnar krafist
Atvinnumálanefnd Mosfells-
bæjar hefur sent frá sér ályktun
þar sem deiiuaðilar í flugmanna-
defiunni, FÍA og Atlanta flugfé-
lagið, em hvattir til að setjast aö
samningaborðL
Sveitarstjóm í Homafirði hefur
ákveðið aö setja fjórar milljónir
króna í aukið hlutafé í Eöal-ís.
Samkvæmt Mbl. áformar Eðal-ís
aö vinna ís úr Vatnajökli og seija
til Bandaríkjanna svo þarlendiir
geti kælt drykki sína.
Frá fundi Félags frjálslyndra jafnaðarmanna á Kornhlöðuloftinu i gærkvöld um deilu Atlanta og Félags íslenskra
atvinnuflugmanna. Fremst situr Þóra Guðmundsdóttir, stjórnarformaður Atlanta, og fylgist grannt með fundinum.
DV-mynd GVA
Siguröur Líndal lagaprófessor um deilu FÍA og Atlanta:
FÍA margbrýtur
mannréttindi
„Félag íslenskra atvinnuflugmanna,
FÍA, lætur sér ekki nægja félags-
nauðung heldur krefst lögsögu yfir
mönnum sem vilja vera utan þess.
Það er mannréttindabrot að skylda
menn til að vera í félagi. Að taka sér
vald til að ráðskast með hagsmuni
manna sem eru utan félaga. Hvað er
það? Ég fæ ekki betur séð en aö það
er mannréttindabrot líka. Til þessara
mannréttindabrota beitir FÍA verl;-
föllum, sviptir fjölda manna vinnu
og fremur annað mannréttindabrot
til viöbótar," sagði Sigurður Líndal
lagaprófessor í samtah við DV en
hann flutti erindi á fundi Félags
NIÐURSTAÐA
Áríkiðaðgreiðaferða- rÁi ucilic
kostnaðmaka ráðherra? rULIVolliO
Já 99-16-00
fijálslyndra jafnaðarmanna í gær-
kvöldi um deflu Atlanta og Félags
íslenskra atvinnuflugmanna.
Sigurður sagðist draga þá ályktun,
og studdist þar við Félagsdóm, að það
væri í fyrsta lagi enginn kjarasamn-
ingur í gildi viö Félag íslenskra at-
vinnuflugmanna, FÍA. Frjálsa flug-
mannafélagið væri löglegt stéttarfé-
lag sem hefði gert löglegan kjara-
sænning við Atlanta. Verkfallsboðun
FÍA væri einungis lögleg gagnvart
félagsmönnum þess.
„Eftir októberlok, samkvæmt mín-
um upplýsingum, þegar verkfall átti
að koma tfl framkvæmda, eru engir
menn úr FÍA starfandi hjá félaginu.
í reynd er því ekkert verkfall hjá
Atlanta. Þetta er nokkurs konar
fræðilegt verkfall. Þar sem ekkert
verkfall er í raun þá fæ ég ekki séð
að hægt sé að boða samúðarverkfall.
Ég fæ ekki séð að FÍA geti beitt verk-
fallsrétti með skírskotun tfl 14. grein-
ar laga um stéttarfélög og vinnudefl-
ur þar sem félögum er heimilt að
fara í verkfóll tfl að verja rétt sinn.
FÍA hefur engan einkarétt tfl að gera
samning fyrir alla flugmenn. Þaö
hefur engan forgangsrétt tfl að gera
samninga umfram löglegt stéttarfé-
lag sem fyrir er. Það hefur engan
rétt til að ryðja löglegu stéttarfélagi
til hhðar og þröngva sínum samning-
um upp á aðra,“ sagði Sigurður.
Þú getur svarað þessari
spurningu með því að
hringja í síma 99-16-00.
39,90 kr. mínútan.
Ef þú stendur meö r-'«
Lindu ýtir þú á
Ef þú stendur meö r„i
lögreglunni ýtir þú á . ZJ
,r ö d d
FOLKSINS
99-16-00
Hvort stendur þú með Lindu
Pétursdóttur eða lögreglunni?
Aftelns þelr sem eru í stafræna kerflnu og eru me6 ténvalssima geta teklft þátt.
Salan á G. Ben.-Eddu:
Hlutabréfin
seldábak
við luktar dyr
„Við erum búnir að kaupa flest
hlutabréfin. Prentstofa G. Ben.-
Edda verður hins vegar rekin
áfram sem sjáfstætt fyrirtæki og
á að spjara sig í samkeppni við
okkur og aðra,“ segir Þorgeir
Baldursson, forstjórí Prentsmiðj-
unnar Odda.
í gær eignaðist Prentsmiðjan
Oddi 91,5 prósent hlutabréfa í
Prentstofu G. Ben.-Eddu hf. Sefl-
endur bréfanna voru Iönþróun-
arsjóður, Iönlánasjóður (Stoð hf.)
og Ghtnir hf., en áður höföu þess-
ir sjóðir keypt 45,7 prósent hlut
Jóns Stemgrímssonar (Árstíðirn-
ar hf.) í félaginu. Með kaupunum
hefur Oddi náð tökum á einum
helsta keppinauti sínum og þar
með náð yfirráðum á um 30 pró-
sentum af almenna prentmark-
aöinum hér á landi.
Neita að gefa upp
söluverðið
Hlutabréfln voru ekki auglýst
opinberlega til sölu og hefur mik-
il leynd hvílt yfir sölunni. Starfs-
mönnum Odda var hins vegar tfl-
kynnt um kaupin i gærmorgun.
Upplýsingum um kaupverð var
hins vegar haldið leyndum. „Ég
ætla ekki aö gefa upp neinar tölur
um þetta,“ segir Þorgeir.
Bæði Snorri Pétursson hjá Iðn-
þróunarsjóði og Kristján Óskars-
son hjá Glitni neituðu í gær að
gefa upp söluverð hlutabréfanna
þrátt fyrir aö um ijármuni í
vörslu opinberra sjóða hafi verið
að ræöa. „Það er ekki viðeigandi
að gefa þetta upp,“ segir Kristján.
„Þaö er kaupandans að gefa þetta
upp,“ segir Snorri.
Bragi Hannesson, fram-
kvæmdasfjóri Iönþróunarsjóðs,
neitar einnig að gefa upp sölu-
verðið. Aðspurður kveðst hann
ánægður með söluna. „Með þessu
höfum viö styrkt prentiðnaðinn í
landinu," segir Bragi.
í varðhaldi
vegnafíkniefna
ogfölsunar
Gylfi Kristjánaaon, DV, Akureyri:
Rannsókn á fjársvika- og fikni-
efnamáh sem upp kom á Akur-
eyri i síöustu \dku stendur enn
yíir og tæplega þrítugur karlmað-
ur sem handtekinn var og úr-
skuröaöur í gæsluvarðhald til 22.
nóvember vegna málsins situr
enn í fangageymslu.
Maðurinn mun hafa dreift ein-
hverju magni afinetamíns á Ak-
ureyri og hafa 6 aöilar viður-
kennt að hafa keypt fiknipfnj af
honum. Hinn hluti málsins er
stuldur á fjórum ávísanalieftum
í Reykjavík. Úr ávísanalieftunum
íjórum var falsaður fiöldi ávísana
og mun upphæð þeirra nálgast
hálfa mifljón króna.
Verslun 10-11:
Aðeinseinnrek-
innfyrirþjófnað
í frétt DV á miðvikudag var
greint frá því að þremur starfs-
mönnum í verslunum 10-11 hefði
verið sagt upp vegna þjófnaðar.
Eftir samtöl DV í gær við nokkra
hlutaðeigandi aöfla sgm tengjast
málinu hefur komið í jjós aö ein-
ungis einum starfsmanni var sagt
upp vegna þjófnaöar.
Hinir tveir hættu af öðrum
ástæðum - öðrum þeirra var sagt
upp en hann fær greiddan upp-
sagnarfrest en hinn kveðst hafa
sagt sjálfur upp af persónulegmn
ástæðum. Rekstraraðih verslan-
anna vfldi ekki tjá sig um máhö.