Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1994, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1994, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 Fréttir Hef ur selt dósir fyr- ir milljón á 5 árum Ægii Már Kárason, DV, Suðumesjum; „Ég hef fjármagnað utanlands- ferðir mínar síðustu árin með þvi að tína upp dósir og selt þær End- urvinnslunni. Ég hef farið í heilsu- bótargöngu og hirt dósir um leið. Ég hef svo gaman af þessu að þetta .er orðið að áhugamáli. Ætli ég stundi þetta ekki meðan fæturnir endast. Hingað til hef ég ekki þurft að kvarta og varla væri heilsan eins góð og hún er nú ef ég heíði ekki hreyft mig í þessi ár,“ sagði Sigurgeir Þorvaldsson, fyrrum lög- reglumaður á Keflavíkurflugvelli í 39 ár, í samtali viö DV. Sigurgeir hefur hirt dósir og selt síðustu fimm árin og fengið fyrir þær eina milljón króna. Hann hætti sem lögreglumaöur í fyrra vegna aldurs, varð þá 70 ára. Sigurgeir fer um öll Suðumes við tínsluna og reynir að vera að fjóra tíma á dag. Skilagjald fyrir dós er 7 krónur. Hann heldur bókhald yfir allar dósir sem hann hefur selt - lagði fyrir fyrstu árin til að geta keypt sér tölvu meö öllu. Sjónvarp og geislaspilara keypti hann fyrir skömmu á 70 þúsund krónur. Það tók hann 3 mánuði að safna dósum fyrir þeirri upphæð. „Ég þarf ekki að gera þetta pen- inganna vegna en ég hef áhuga á að hreyfa mig og hef gaman af að hirða upp verðmæti sem liggja fyr- ir fótum manns á jörðinni. Ég fer alltaf með fullan bíl til Reykjavíkur þegar ég sel dósimar. Það gerist oft aö ég stansa í höfuðborginni og tíni dósir upp í bensínkostnaðinn við aksturinn til Reykjavíkur og vel það.“ Að lokum sagði Sigurgeir að eig- inkona sín hefði ekki verið hrifin af þessu framtaki hans í byrjun en væri nú farin að sætta sig viö það. Stuttar fréttir Vilja href nuveiðar Sveitarstjórn Vesturbyggðar sendi ríkisstjóminni áskomn í gær um að hún tæki nú þegar ákvörðun um að hefja hrefnu- veiöar. Þetta kom fram á RÚV. Risavaxin f isk verkun Fyrirtækið IceMac í Reykjavík er með áform um að reisa risa- vaxiö fiskverkunarhús á Austur- landi sem myndi tvöfalda fram- leiðslugetu íjórðungsins. Sam- kvæmt Stöð 2 yrði stofhkostnað- ur 2,5 milljarðar. Vinsælhlutabréf Hátt í eitt þúsund manns keyptu hlutabréf i gær í Lyfja- verslun íslands fyrir um 200 milljónir króna. Margir nýttu sér boð um vaxtalaust lán frá ríkinu. 12einkavæðingar Á yfirstandandi kjörtímabili hefur ríkisstjóm Davíðs Odds- sonar einkavætt 12 ríkisfyrirtæki sem er heldur minna en áætlanir geröu ráð fyrir. Oftastibíó íslendingar fara oftast í bíó af öllum Evrópubúum, eða yfir fimm sinnum á ári. Það er tvisvar sinnura oftar en írar sem koma í öðru sæti. RÚV greindi frá þessu. Lausnar krafist Atvinnumálanefnd Mosfells- bæjar hefur sent frá sér ályktun þar sem deiiuaðilar í flugmanna- defiunni, FÍA og Atlanta flugfé- lagið, em hvattir til að setjast aö samningaborðL Sveitarstjóm í Homafirði hefur ákveðið aö setja fjórar milljónir króna í aukið hlutafé í Eöal-ís. Samkvæmt Mbl. áformar Eðal-ís aö vinna ís úr Vatnajökli og seija til Bandaríkjanna svo þarlendiir geti kælt drykki sína. Frá fundi Félags frjálslyndra jafnaðarmanna á Kornhlöðuloftinu i gærkvöld um deilu Atlanta og Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Fremst situr Þóra Guðmundsdóttir, stjórnarformaður Atlanta, og fylgist grannt með fundinum. DV-mynd GVA Siguröur Líndal lagaprófessor um deilu FÍA og Atlanta: FÍA margbrýtur mannréttindi „Félag íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, lætur sér ekki nægja félags- nauðung heldur krefst lögsögu yfir mönnum sem vilja vera utan þess. Það er mannréttindabrot að skylda menn til að vera í félagi. Að taka sér vald til að ráðskast með hagsmuni manna sem eru utan félaga. Hvað er það? Ég fæ ekki betur séð en aö það er mannréttindabrot líka. Til þessara mannréttindabrota beitir FÍA verl;- föllum, sviptir fjölda manna vinnu og fremur annað mannréttindabrot til viöbótar," sagði Sigurður Líndal lagaprófessor í samtah við DV en hann flutti erindi á fundi Félags NIÐURSTAÐA Áríkiðaðgreiðaferða- rÁi ucilic kostnaðmaka ráðherra? rULIVolliO Já 99-16-00 fijálslyndra jafnaðarmanna í gær- kvöldi um deflu Atlanta og Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Sigurður sagðist draga þá ályktun, og studdist þar við Félagsdóm, að það væri í fyrsta lagi enginn kjarasamn- ingur í gildi viö Félag íslenskra at- vinnuflugmanna, FÍA. Frjálsa flug- mannafélagið væri löglegt stéttarfé- lag sem hefði gert löglegan kjara- sænning við Atlanta. Verkfallsboðun FÍA væri einungis lögleg gagnvart félagsmönnum þess. „Eftir októberlok, samkvæmt mín- um upplýsingum, þegar verkfall átti að koma tfl framkvæmda, eru engir menn úr FÍA starfandi hjá félaginu. í reynd er því ekkert verkfall hjá Atlanta. Þetta er nokkurs konar fræðilegt verkfall. Þar sem ekkert verkfall er í raun þá fæ ég ekki séð að hægt sé að boða samúðarverkfall. Ég fæ ekki séð að FÍA geti beitt verk- fallsrétti með skírskotun tfl 14. grein- ar laga um stéttarfélög og vinnudefl- ur þar sem félögum er heimilt að fara í verkfóll tfl að verja rétt sinn. FÍA hefur engan einkarétt tfl að gera samning fyrir alla flugmenn. Þaö hefur engan forgangsrétt tfl að gera samninga umfram löglegt stéttarfé- lag sem fyrir er. Það hefur engan rétt til að ryðja löglegu stéttarfélagi til hhðar og þröngva sínum samning- um upp á aðra,“ sagði Sigurður. Þú getur svarað þessari spurningu með því að hringja í síma 99-16-00. 39,90 kr. mínútan. Ef þú stendur meö r-'« Lindu ýtir þú á Ef þú stendur meö r„i lögreglunni ýtir þú á . ZJ ,r ö d d FOLKSINS 99-16-00 Hvort stendur þú með Lindu Pétursdóttur eða lögreglunni? Aftelns þelr sem eru í stafræna kerflnu og eru me6 ténvalssima geta teklft þátt. Salan á G. Ben.-Eddu: Hlutabréfin seldábak við luktar dyr „Við erum búnir að kaupa flest hlutabréfin. Prentstofa G. Ben.- Edda verður hins vegar rekin áfram sem sjáfstætt fyrirtæki og á að spjara sig í samkeppni við okkur og aðra,“ segir Þorgeir Baldursson, forstjórí Prentsmiðj- unnar Odda. í gær eignaðist Prentsmiðjan Oddi 91,5 prósent hlutabréfa í Prentstofu G. Ben.-Eddu hf. Sefl- endur bréfanna voru Iönþróun- arsjóður, Iönlánasjóður (Stoð hf.) og Ghtnir hf., en áður höföu þess- ir sjóðir keypt 45,7 prósent hlut Jóns Stemgrímssonar (Árstíðirn- ar hf.) í félaginu. Með kaupunum hefur Oddi náð tökum á einum helsta keppinauti sínum og þar með náð yfirráðum á um 30 pró- sentum af almenna prentmark- aöinum hér á landi. Neita að gefa upp söluverðið Hlutabréfln voru ekki auglýst opinberlega til sölu og hefur mik- il leynd hvílt yfir sölunni. Starfs- mönnum Odda var hins vegar tfl- kynnt um kaupin i gærmorgun. Upplýsingum um kaupverð var hins vegar haldið leyndum. „Ég ætla ekki aö gefa upp neinar tölur um þetta,“ segir Þorgeir. Bæði Snorri Pétursson hjá Iðn- þróunarsjóði og Kristján Óskars- son hjá Glitni neituðu í gær að gefa upp söluverð hlutabréfanna þrátt fyrir aö um ijármuni í vörslu opinberra sjóða hafi verið að ræöa. „Það er ekki viðeigandi að gefa þetta upp,“ segir Kristján. „Þaö er kaupandans að gefa þetta upp,“ segir Snorri. Bragi Hannesson, fram- kvæmdasfjóri Iönþróunarsjóðs, neitar einnig að gefa upp sölu- verðið. Aðspurður kveðst hann ánægður með söluna. „Með þessu höfum viö styrkt prentiðnaðinn í landinu," segir Bragi. í varðhaldi vegnafíkniefna ogfölsunar Gylfi Kristjánaaon, DV, Akureyri: Rannsókn á fjársvika- og fikni- efnamáh sem upp kom á Akur- eyri i síöustu \dku stendur enn yíir og tæplega þrítugur karlmað- ur sem handtekinn var og úr- skuröaöur í gæsluvarðhald til 22. nóvember vegna málsins situr enn í fangageymslu. Maðurinn mun hafa dreift ein- hverju magni afinetamíns á Ak- ureyri og hafa 6 aöilar viður- kennt að hafa keypt fiknipfnj af honum. Hinn hluti málsins er stuldur á fjórum ávísanalieftum í Reykjavík. Úr ávísanalieftunum íjórum var falsaður fiöldi ávísana og mun upphæð þeirra nálgast hálfa mifljón króna. Verslun 10-11: Aðeinseinnrek- innfyrirþjófnað í frétt DV á miðvikudag var greint frá því að þremur starfs- mönnum í verslunum 10-11 hefði verið sagt upp vegna þjófnaðar. Eftir samtöl DV í gær við nokkra hlutaðeigandi aöfla sgm tengjast málinu hefur komið í jjós aö ein- ungis einum starfsmanni var sagt upp vegna þjófnaöar. Hinir tveir hættu af öðrum ástæðum - öðrum þeirra var sagt upp en hann fær greiddan upp- sagnarfrest en hinn kveðst hafa sagt sjálfur upp af persónulegmn ástæðum. Rekstraraðih verslan- anna vfldi ekki tjá sig um máhö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.