Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1994, Side 11
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994
11
DV
Ólafsflörður:
Bærinn kaupir kera-
mikf yrirtækið Glit
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Ólafsfjaröarbær hefur fest kaup á
keramikfyrirtækinu Glit hf. í
Reykjavík og þessa dagana eru Ml-
trúar bæjarins erlendis að ganga frá
sölumálum við stórverslanir í Bret-
landi og Svíþjóö sem keypt hafa tals-
vert af framleiðsluvörum Glits und-
anfarin ár.
Jónína Óskarsdóttir, bæjarfulltrúi
á Ólafsfirði, segir að ekki sé ætlunin
að bærinn standi lengi í rekstri fyrir-
tækisins þótt bæjarfélagið hafi for-
göngu um kaupin, heldur sé hug-
myndin að stofna almenningshluta-
félag um reksturinn sem fyrst.
Fyrirtækið mun veita 10-12 manns
atvinnu, en þessa dagana er verið að
athuga með staðsetningu fyrirtækis-
ins og koma tveir staðir til greina í
því sambandi. Ólafsijarðarbær greið-
ir 7 milljónir króna fyrir tæki, vélar
og áhöld fyrirtækisins og einnig
kaupir bærinn lager sem er í eigu
Öryrkjabandalagsins sem rak Glit
um tíma. Smásöluverð lagersins
mun vera um 14 milijónir króna en
hann fæst keyptur á heildsöluverði
sem lætur nærri að sé helmingur af
þeirri upphæð að sögn Jónínu Ósk-
arsdóttur.
Glit hf. var stofnað fyrir um 35
árum og hefur lengst af verið rekið
af Orra Vigfússyni og fjölskyldu
hans, en Öryrkjabandalagið rak fyr-
irtækið um tima á þessum áratug.
Þótt framleiðsla fyrirtækisins hafi
fram til þessa aðallega verið seld inn-
anlands til erlendra'ferðamanna er
framtíð fyrirtækisins ekki síst talin
liggja í sölu á erlenda markaði og eru
Hálfdán Kristjánsson bæjarstjóri og
Þorsteinn Ásgeirsson, forseti bæjar-
stjórnar, erlendis þessa dagana að
vinna að markaðsmálum.
Það er líf og fjör i fríminútunum hjá krökkunum i Grunnskóla Ólafsfjarðar.
Þegar DV var þar á ferð voru „löngu frímínútur" og krakkarnir klifruðu af
mikilli fimi í leiktækjum á skólalóðinni. DV-mynd gk
Aðkomufólk gefst upp á botnlausri vinnu á Djúpavogi:
Ekki miklir bógar af
höfuðborgarsvæðinu
- segir framkvæmdastjóri Búlandstinds
„Það er mikil vinna hér en mér
vitanlega engin óánægja. Það eru
auðvitað margir orðnir þreyttir og
ég veit til þess að þaö hafa komið hér
menn til vinnu sem gefist hafa upp
og farið. Það hafa þá verið menn sem
eru óvanir erfiðisvinnu og þeir hafa
kannski verið um lengri eða
skemmri tíma á atvinnuleysisbótum.
Þetta er erfið vinna og langur vinnu-
dagur,“ segir ívar Björgvinsson,
formaður Verkalýðs- og sjómannafé-
lags Djúpavogs.
Eins og fram hefur komið í DV er
mikil vinna hjá Búlandstindi hf. á
Djúpavogi og er unnið þar 13 tíma á
dag. Jóhann Þór Halldórsson fram-
kvæmdastjóri segir að það sé unnið
eftir þörfum og ef með þarf alla daga
vikunnar. Hann segir að það hafi
gerst að fólk hafi hætt og farið eftir
skamman tíma.
„Það er því miður þannig að fólk
sem kemur af höfuðborgarsvæðinu
og er að leita út á land er oft ekki
miklir bógar. Síldarvinna er geysi-
lega erfið vinna, þetta er svo mikið
magn sem er í þessu. Það er búið aö
framleiða núna á stuttum tíma 1616
tonn af vöru, frosinni og saltaðri,"
segir Jóhann.
Djúpavlk:
Samdráttur á hótelinu
Regína Thorarensen, DV, Gjögri:
Að sögn Evu Sigurbjömsdóttur,
hótelstýru á Djúpuvík, var talsvert
minna aö gera í ár en undanfarin ár
á Hótel Djúpuvík. Ferðafólk var í
tjöldum og eldaði mat sinn í hinni
góðu veðráttu og hlýindum sem voru
í sumar. Elstu menn munu ekki eftir
öðru eins sumri hér um slóðir.
Hótelið á Djúpuvík fékk þó talsvert
góða búbót í haust þegar flokkur
vegavinnumanna var þar í fæði og
húsnæði.
Suðurland:
Unnið að sérframboði
- mikiU þrýstingur, segir Eggert Haukdal
„Það hafa mjög margir í kjördæm-
inu haft samband við mig og þrýst á
um að ég bjóði fram sérlista í alþing-
iskosningunum í vor. Og það er verið
að skoða það mál vel,“ sagði Eggert
Haukdal alþingismaður í samtali við
DV.
Orðrómur um aö Eggert og stuðn-
ingsmenn hans í Suðurlandskjör-
dæmi séu með sérframboð í huga er
orðinn sterkur. Eggert missti sem
kunnugt er þriðja sætið á lista Sjálf-
stæðisflokksins til Drífu Hjartardótt-
ur á Keldum í prófkjöri flokksins á
dögunum. Eggert og stuðningsmenn
hans una þeim málalokum illa. Þess
vegna er hugmyndin að sérframboði
Eggerts Haukdals komin fram og
vinnan við það hafin
MEGABUÐ
Skeifunni 7 Sími 811600
Stærsla hugbúnaðarverslun landsins opnar
í Skeifunni 7, laugardaginn 19. nóvember.
Hugbúnaður og fylgihlutir fyrir
aldurshópa.
Pöntunarsími
811600
Verið velkomin!
PC-Rom
leikir
kennsla
PC 3.5
alfræði
alla tónlist
WIN
viöskipti
flug
MAC
iNTERACnVE
entertainment
GÆJAR9ÁRA
20% afsláttur af öllum vörum
17., 18. og 19. nóvember.
Fréttir
Alþýðusamband Vestþarða:
Lægstu laun
farií80þús>
und á mánuði
í ályktun, sem samþykkt var á
þingi Alþýðusambands Vest-
fjarða um síðustu helgi, er þess
krafist að lægstu laun verði ekki
undir 80 þúsund krónum á mán-
uöí fyrir lok næsta samnings-
tímabils. Þá er þess einnig krafist
að persónuafslætti verði breytt
þannig að laun undir 80 þúsund-
um króna á mánuði veröi undan-
þegin tekjuskatti.
Pétur Sigurðsson var endur-
kjörinn formaöur Alþýðusam-
bands Vestfjarða.
Group TEKA AG
Heimilistæki
á kynningarverði
Nú er lag!
Endurnýjaðu gömlu tækin
með glæsilegum og vönduö-
um TEKA heimilistækjum,
meðan þessi hagstæðu kynn-
ingarverö bjóðast.
Innbyggingarofnar, efri
og neðri ofnar.
Litir: hvítt, brúnt eða
burstað stál.
Verð frá 17.950
Helluborð
Litir: hvítt, brúnt eða
burstað stál
með eða án takkaborðs.
Steyptar hellur
verð frá 11.900
Keramik hellur
verð frá 24.350
Litir: hvítt, brúnt eða
burstað stál.
Verð frá 6.890
Stjórnborð
Litir: hvítt eða brúnt
Verð Irá 3.250
Faxafeni 9, s. 887332
Opið: mánud.-föstud. kl. 9-18
laugard. 10-14
Verslun fyrir alla