Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1994, Side 12
12
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994
Spumingin
Hvað finnst þér
skemmtilegast við þennan
árstíma?
Jón Hafsteinn Jónsson: Mér fmnst
allur árstími álíka skemmtilegur.
Guðmundur Brynjólfsson: Maður
þarf ekki að vinna, ég er nefnilega í
skóla.
Þórir Gíslason: Það er ekkert
skemmtilegt við þennan árstíma.
Högni Högnason: Veðrið.
Erna Otterstedt: Mér flirnst ekkert,
skemmtilegt við hann.
Lesendur
Um „Premiere" og
önnur kartöf luaf brigði
Kaupa íslenskir neytendur kartöflur einungis eftir útliti?
Sigurgeir Ólafsson, deildarstjóri
Plöntusjúkdómad. >RALA, skrifar:
Mánud. 7. nóv. sl. birtist í DV les-
endabréf frá Brynjólfi Brynjólfssyni
á Akureyri, þar sem hann hallmælir
kartöfluafbrigðinu „Premiere". Þar
sem ég á nokkurn þátt í að farið var
að rækta þetta afbrigði hér á landi
tel ég mér skylt að svara fyrir þess
hönd. - Gengur Brynjólfur hér að
mínu mati of langt, en sem betur fer
missa svo öfgakennd skrif oft marks.
Helsta vandamál við ræktun kart-
aflna hér á landi er hversu stuttur
og kaldur vaxtartíminn er að jafn-
aði, og hve sveiflukennd vaxtarskil-
yrðin eru frá einu ári til annars. Það
er mjög erfitt að fmna kartöfluaf-
brigði sem verða nægilega þurrefnis-
rík við svo stuttan vaxtartíma, en
náið samhengi er milli þurrefnisinni-
haids og bragðgæða. Það er engin
tilviljun að við ræktum enn í miklum
mæli afbrigði sem hafa verið hér í
yfir 60 ár eins og Gullauga eða yfir
200 ára eins og Rauðar íslenskar.
Premiere hefur sína kosti og galla.
Sérstaða þess felst einkum í því að
það þarf ótrúlega stuttan vaxtartíma
til að mynda stórar kartöflur með
góðu þurrefnismagni. Premiere
myndar að jafnaði fáar og stórar
kartöflur sem henta vel í bökun. Ég
tel Premiere ágæta matarkartöflu,
en jafnframt þó síðri en Gullauga,
Helgu og Rauðar íslenskar.
Því miður kaupa íslenskir neytend-
ur kartöflur eftir útliti þeirra. Hýðis-
sjúkdómur sem kallaður er blöðru-
kláöi hefur um árabil þjakað Gull-
auga. í litlum mæli spillir blöðru-
kláði ekki matargæðum en einungis
úthti. Eftir að farið var að þvo kart-
öflur og pakka í plastpoka kaus neyt-
andinn fremur faUega útlítandi kart-
öflur eins og Premiere, Amazone,
o.fl., en Gullauga með úthtsgalla. Það
er því ekki óeðlilegt að kartöflu-
bændur hafi aukið ræktun á slíkum
afbrigðum á kostnað Guhauga. •
Það er rétt hjá Brynjólfi, að Bintje
hentar betur en Premiere í franskar
kartöflur. Hún er fallegri en Premi-
ere á diski eftir suðu, en Bintje er
yfirleitt með lægra þurrefnisinni-
hald. Hún er erfið í ræktun vegna
næmi fyrir ýmsum sjúkdómum en
einnig fyrir ýmsum göllum sem vaxt-
arskilyrðin hafa áhrif á, svo sem
vaxtarssprungum og hrjúfu hýði.
Premiere er enginn „markaðsskað-
valdur“ eins og Brynjólfur fullyrðir.
Ég skal hins vegar fallast á að meira
megi rækta af Guhauga, Helgu og
Rauðum íslenskum og minna af
Premiere. Það hlýtur þó fyrst og síð-
ast að vera kaupandinn sem á að
ráða því hver hlutdeild hinna ýmsu
afbrigða á að vera í ræktuninni. Þá
verður að gera þá lágmarkskröfu að
allar matarkartöflur séu merktar
með réttu afbrigðaheiti, hvort sem
um innlendar eða innfluttar kartöfl-
ur er að ræða. Þá getur neytandinn
valið þær kartöflur sem honum hkar
best. Ég hef hins vegar meiri áhyggj-
ur af ýmsum öðrum afbrigðum sem
flutt hafa verið inn á undanfornum
árum og sem seld eru undir safnheit-
inu „Gular kartöflur", „íslenskar
kartöflur" eða jafnvel ómerkt. - Þar
er ég hræddur um að geti leynst
markaðsskaðvaldar.
íhald og allaballar í Haf narf irði
Jón Hannesson skrifar:
Það var stórmerkilegt viðtal við
einn bæjarfulltrúa Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði í einu bæjarblaðanna
þar nýlega. Þar lýsti hann á raunsæj-
an hátt vinnubrögðum núverandi
meirihluta, þvargi hans um einstök
mál og sviðsetningu fyrir fjölmiðla,
án annars sýnilegs tilgangs en að
hefna sín persónulega á fuhtrúum
fyrrverandi meirihluta í bæjarstjóm.
Hann hafði efasemdir um að nú-
verandi valdhafar gætu yfirleitt
stjómað bæjarfélaginu þar sem ekk-
ert hefði komið fram um eiginleg
stefnumið hans til næstu framtíðar.
Meirihlutinn virtist enn í skotgröf-
unum og kynni ekki annað en að
vera í stjórnarandstöðu. - Það er
áreiðanlega margt til í þessum orð-
um og því full ástæða fyrir aðra
bæjarbúa að hafa áhyggjur af gangi
mála í bænum.
Ónefndur embættismaður hjá
Hafnarflarðarbæ staðfesti þessi orð
fyrir mér nýlega. - Hann sagðist hafa
miklar áhyggjur af þessum málum.
Engin stefna virtist vera fyrir hendi
hjá meirihlutanum, stjómun væri í
algeru lágmarki, starfsfólkið héngi
eins og í lausu lofti og látjð væri reka
á reiðanum frá degi til dags.
Nú hefði verið tekið 1300 milljóna
króna lán, hluti af því verið settur
til að mæta tilbúnum afskriftum og
300 milljónir lagðar inn á banka með
hæstu vöxtum. Tilgangurinn væri
að taka þetta háa lán á fjárhagstíma-
bili fyrrverandi meirihluta, geyma
hluta upphæðarinnar á vöxtum og
nota hana síðar til að greiða niður
skuldir á næsta kjörtímabili svo sýna
mætti þá fram á árangur við að
greiða niður skuldir. - Ef þetta er
ekki svínarí, þá veit ég ekki hvað það
er.
Heilbrigðiskerf i til f yrirmyndar
Þorsteinn Einarsson skrifar:
Ég get ekki verið sammála þeim
sem sífellt úthúða heilbrigðiskerf-
inu. Ég tel það vera með því full-
komnasta sem gerist á Vesturlönd-
um og er það þó víða ágætt, svo sem
í Sviss, Hollandi, Lúxemborg og við-
ar.
Ég tek ekki mark á einstaklingum
sem sífellt eru að væla í Þjóðarsál
eða annars staðar öafnvel í lesenda-
bréfum, eða þar sem þeir koma því
viö) um einhveija misfellu sem skipt-
ir heildarkerflð ekki nokkru máli.
Tökum t.d. manninn sem var í frétt-
um DV nýlega og kvartaði yfir því
að slysadeild Borgarspítalans krafði
Heilbrigðiskerfi sem við getum státað af, segir m.a. í bréfinu.
Hringið í síma
63 27 OO
- eöa skriiið
Nafnossímanr. verftur að fylsia bréfum
hann um 1.600 krónur fyrir hækjur!
- Er þetta eitthvað óeðlilegt?
Ég held að segja megi krötum til
hróss, þrátt fyrir allt og allt, að þeirra
flokkur hefur haldið afar vel á mál-
um í heilbrigðiskerfmu, og ráðherrar
þeirra hafa verið farsæhr og komið
miklu í framkvæmd að öðru jöfnu.
Við skulum þakka fyrir á meðan við
höfum jafn gott heilbrigðiskerfi og
hér er. Það er ekki öruggt að við
höfum ætíð efni á því.
wiarvöruverðs
K.I.P. hringdi:
Einhver sagði nýlega að besta
ráðiö til aö lækka vöruverð hér á
landi væri það aö kaupa sem
mest hér innanlands. Sem sé;
kaupa íslenskt. - Ég tel þetta ekki
alls kostar sannleikanum sam-
kvæmt. Verslunarferðir íslend-
irtga til útlanda hafa einmitt leitt
til þess að vöruverðið hér heima
hefur sífellt lækkað eftir því sem
ásóknin hefur aukist í erlendar
verslunarferðir. Segja má því að
leiðin til lækkunar vöruverðs hér
hafi að miklu leyti legið gegnum
liinar erlendu verslunarferðir.
Kálfaiif ur í MeBa-
búðinni
Guðmundur Júlíusson kaupmað-
ur hringdi:
Vegna lesendabréfs í DV fyrr í
vikunni, þar sem bréfritari segist
hvergi finna kálfalifur í matvöru-
búðum og óskar upplýsinga um
hvar hún fáist eða hvort hún fá-
ist yfirleitt ekki, vii ég taka fram
eftirfarandi,
Hér í Melabúðinni hef ég lagt
áherslu á að hafa kálfalifur ásamt
öðrum vinsælum innmat ávaUt
til sölu. Kálfalifur er því nokkuð
öruggiega hægt að finna í versl-
uninni. Vinsældir hennar hafa
sífellt aukist, enda ódýrt og prýði-
legt hráefni í dýrindismáltíð ef
hún er rétt matreidd.
Rógsherferð
gegnGuðmundi
Fyrrum alþýðubandaiagsmaður
skrifar:
Sem alþýðubandalagsmaður
skammast ég mín fyrir formann
flokksins og bæjarstjóra Hafnar-
flarðar sem ráðast ásamt fjölm-
iðlum af offorsi gegn einum
manni, Guðmundi Árna Stefáns-
syni. Hann er hvorki verri né
betri en aðrir í pólitíkinni. Að
Pressan fyrrverandi og aðrir
íjölmiðlar skuli nærast á þessu
er forkastanlegt og ég er undr-
andi á því að forseti bæjarstjórn-
ar Hafnarfjarðar skuli taka þátt
í þessum óhróðri. Ég spái því að
fyrr eða síðar muni þeir er
fremstir fóru í rógsherferðinni
gegn Guömundi Árna þurfa að
gleypa þá spýju sem þeir ætluðu
öðrum.
Háu Ijósin hættuleg
K.S. skrifar:
Enn einu sinni vil ég hvetja
ökumenn til að nota ekki háu
ljósin í innanbæjarakstri því það
er mikil hætta á að þau blindi
aðra ökumenn. Og líka eru dæmi
um aö gangandi vegfarendur sjái
ekki fram undan sér við þær að-
stæður. Ég hef skorað á Umferð-
arráð og lögreglu að beita sér
gegn notkun háu ljósanna innan
borgarmarkanna, en án árang-
urs. Ég vil nú einnig skora á ljósa-
skoðunarmenn að beina jeppa-
þósum niður á við því þau eru
stórhættuleg nú í svartasta
skammdeginu.
Frábær þjónusta
Ingvar Reynisson skrifar:
Fyrir nokkru keypti ég mér
sófasett í IKEA. Eg var mjög
ánægður með vöruna og fékk
hana senda heim samdægurs. -
Nema hvað, þegar ég skrúfa fæt-
urna undir ruggar einn stólhnn
ískyggilega. Var þarna augsýni-
lega gaili í framleiðslunni. Morg-
uninn eftir hringi ég í IKEA og
tala við konu, Huldu að nafni,
sem var afar viðmótsþýð. Bjóst
ég nú við að reynt yrði að lagfæra
þetta á staðnum. En ónei, hún
sendi bíl innan tveggja stunda
með nýjan stól og tók þann gall-
aða til baka. - Ég þakka frábæra
þjónustu.