Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1994, Page 23
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994
Meiming
31
Jóhanna Jónas og Jakob Þór Einarsson í hlutverkum sinum í Ferðin að miðju jarðar.
Háskólabíó: Ferðin að miðju jarðar og Nifl:
Tvær á þjóðlegum nótum
Ferðin að miðju jarðar og Nifl eru tvær íslenskar
stuttmyndir sem báðar eru rammíslenskar hvað varð-
ar efni en eiga svo ekki mikla samleið þar fyrir utan.
Önnur þeirra, Ferðin að miðju jarðar, sem er fyrri
mynd sýningarinnar, er skólaverkefni og ber það með
sér en verður að teljast nokkuð metnaðarfull sem slík.
Ásgrímur Sverrisson, sem leikstýrir myndinni, kaus
að koma með nokkra skólafélaga sína til íslands og
kvikmynda sögu sem gerist úti á landi í íslensku um-
hverfi og með þjóðlegan söguþráð. Fjallar myndin um
unga leikkonu, Mjöll, sem kemur á heimaslóðir úti á
landi vegna þess að hún heldur að móðir hennar sé
alvarlega veik. Það kemur í ljós að veikindin eru að-
eins átylla til að fá Mjöli heim svo að hún geti tekið
að sér Mutverk fjallkonunnar, sem móðir hennar hef-
ur hingað til leyst af hendi. Hún lætur til leiðast og í
skondnu atriði í hlutverki íjallkonunnar kemur leik-
konan upp í henni þegar textann vantar.
Ferðin að miðju jarðar er nokkuð hrá þegar á heild-
ina er htið og sagan ekki ýkja merkileg en inni á milli
örlar á vinnubrögðum sem lofa góðu um framtíðina
en öruggt er að myndin í því formi sem hún er hefði
notið sín betur í sjónvarpi heldur en í Háskólabíói.
Nifl er mun heÚsteyptari og áhugaverðari. Þar er
farið frjálslega með gamla þjóðsögu og nútímanum og
fortíöinni blandað saman á mjög faglegan máta. Nifl
er spennumynd þar sem áhorfandinn verður að vera
vel með á nótunum um hvað er að gerast. í byrjun er
farið beint í þjóðsöguna á Meðailandssandi og þá at-
buröi sem gerast þegar sjórekið lík fmnst. Skipt er yfir
i nútíðina og beint inn í jeppa af flottustu gerð og við
kynnumst ungum gæsaveiðimanni á leið til veiða.
Hann stöðvar bíl sinn og tekur upp í unga stúlku sem
biður um far. Stúlkan er áhtleg og hann keyrir hana
niður á sandinn. Þegar þangað er komið dregur hún
upp blað og blýant og byrjar að teikna. í gegnum video-
myndatökuvél sér hann sömu stúlkuna en í fötum frá
allt öðrum tíma. Nú hehast yfir hann atburðir sem
hann hafði aldrei órað fyrir að ættu eftir aö henda
hann.
Nifl er spennandi frá upphafi th enda og vel gerð
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
að öllu leyti og er leikur hjá þeim Magnúsi Jónssyni
og Þóreyju Sigþórsdóttur ágætur. Skiptingar á milh
fortíðar og nútíðar eru vel framkvæmdar og dulúðin
sem kemur upp strax í byrjun helst út alla myndina.
Nifl er leikstýrt af Þór Elís Pálssyni en hann á að baki
farsælan feril innan Sjónvarpsins og hefur stjómað
mörgum verkum þar. Greinilegt er að sú reynsla kem-
ur honum til góða og er leikstjóm hans á vandmeð-
förnu efni styrk og kvikmyndun, hljóöi og tónhst allt
fyrsta flokks.
Feröin að miðju jarðar.
Leikstjóri: Ásgrimur Sverrisson.
Handrit; John Milarky og Ásgrímur Sverrisson.
Kvikmyndataka: Nestor Calvo Pichardo.
Tónlist: Hilmar Örn Hilmarsson.
Aöalhlutverk: Jóhanna Jónas og Jakob Þór Einarsson.
Nifl.
Leikstjóri: Þór Elís Pálsson.
Handrit: Jón B. Guðlaugsson og Þór Elis Pálsson.
Kvikmyndataka: Ólafur Rögnvaldsson.
Tónlist: Lárus Grímsson.
Aðalhlutverk: Magnús Jónsson og Þórey Sigþórsdóttir.
Vangaveltur um upphaf alls
Það er ýmislegt sem getur orðið listamönnum thefni
til verka. Sumir mála myndir til að tjá ást sína á elsk-
unni sinni, sumir fjalla helst um hetjur og ævintýri,
aðrir um hið hversdagslega og enn aðrir vinna verk
sín helst út frá fylhríum. En lengi vel hefur eitt tema
veriö hstamönnum örlátust uppspretta viðfangsefna -
það gnægtahom sem flestir hafa sopið af inspírasjón
gegnum tíðina - en það er mystík af ýmsu tagi: goð-
sögulegar útskýringar á óútskýranlegum hlutum,
sagnir af verum sem hafa aldrei verið til, vísindalegar
kenningar um efni sem með réttu koma vísindunum
ekkert við og angistarköst yfir vandamálum sem eng-
um heilbrigðum manni dytti í hug að hafa áhyggjur
af svona hversdags. í langflestum tilfehum skipta þessi
viðfangsefni áhorfendur engu máh og bæta engu við
upplifun þeirra á listaverkunum. Þaö er í rauninni
frekar að það skemmi fyrir þegar hstamenn láta skýr-
ingar fylgja verkum sínum því það fækkar túlkunar-
möguleikunum og þrengir upplifun okkar á verkun-
um. Þetta á sérstaklega við þegar viðfangsefnið er
mystískt, vísindalegt eða biblíulegt því mystík, vísindi
og bibhutextar eru yfirleitt innihaldslaus þvæla.
Daníel hefur nú vahö sér viðfangsefni sem er bæði
biblíu- og vísindalegt og er auk þess ansi mystískt -
verkin fjalla, að sögn Daníels, um upphaf heimsins.
Góðu fréttimar em síðan þær að þess sér engan stað
Myndlist
Jón Proppé
í verkunum sjálfum að shkar pæhngar hafi veriö að
trufla listamanninn meðan hann vann þau. Ef ekki
væri fyrir blaðsnepihnn sem kemur í stað sýningar-
skrár dytti engum í hug að þessi fallegu verk ættu að
túlka einhvern ontogenesis.
Daníel er annars einn sterkasti skúlptúristi borgar-
innar og þessi verk hans em afskaplega góð. Það er
erfitt að lýsa því hvað það er sem helst heillar í mynd-
unum og ýtarleg úthstun verður að bíða betri tíma.
Það er einkum næmi hans fyrir efninu sem gerir verk-
in séstök og honum tekst að vekja dulúð, jafnvel þegar
efniviðurinn er bara krossviður af hversdaglegustu
gerð. í þessum verkum er efnisvahö fjölbreyttara en
oftast áður en þó em þau jafn einfóld og ögrandi og
áður. Þau eru líka algerlega laus við mystík.
Mercedes Benz C-200 dísil Elegance
árg. 1994, ekinn 45 þús. km.
Glæsilegur bíll.
Upplýsingar hjá sölumönnum Ræsis hf., sími 619550.
Hmðbankar
lokaðir
föstudaginn
18. nóvember
klukkan 19:30 - 23:00
Vegna viðhalds tölvukerfa hjá Reiknistofu
bankanna, verða allir hraðbankar lokaðir
á ofangreindum tíma.
Við biðjum viðskiptavini okkar velvirðingar
vegna þeirra óþæginda sem þetta kann
að hafa í fór með sér.
Bankar og Sparisjóðir
__STEINAR WAAGE_
SKÓVERSLUN N
Kuldaskór
Verð kr.
1.995
. 29-3476
Stærðir: 36-41
Litur: Brúnn
Póstsendum srtmdægui's 5% staógreiðsluafsláttui-
Domus Medica, Kringlunni,
Egilsgötu 3, Kringlunni 8-12,
sími 18519 sími 689212
Toppskórinn
Veltusundi,
sími 21212
V
J
c