Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1994, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1994, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994 Neytendur Verðkönnun á bökunarvörum á Norðurlandi eystra: Þingey með lægsta meðalverðið - Matbær fylgir fast á eftir en Búrfell með hæsta meðalverðið Allt aö 135% verömunur getur ver- ið á dökkum súkkulaðihjúp frá Mónu og 106% verðmunur getur veriö á sveskjum frá Hagveri. Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun sem Verka- lýðsfélag Þórshafnar gerði á bökun- arvörum á Noröurlandi eystra. Tekið var niður verð á 36 vöruteg- undum í átta verslunum. Verslanirn- ar voru: Fosshóll, Matbær KÞ, Þing- ey, Búrfell, Bakki (Kópaskeri), Laugaverslun, Kaupf. Langnesinga og Raufarhöfn. Áttu vörutegundim- ar það allar sameiginlegt að vera tengdar jólabakstrinum. Þegar könn- unin var gerð voru sumar stærri verslanirnar byrjaðar með jólatilboð og skýrir það í sumum tilvikum mik- inn verðmun. Kakó, smjörlíki og síróp Svo fleiri dæmi séu tekin en í graf- inu hér á síðunni var 80% verðmun- ur á 400 g af Flóru kakói sem kostaði á bilinu 172-310 kr., 78% verðmunur á hökkuðum möndlum frá Hagveri sem kostuðu á bilinu 63-112 kr., 69% verðmunur á kardimommudropum sem kostuðu á bilinu 39-66 kr. og 70% verðmunur á Lyles sírópi sem kost- aði á bilinu 93-158 kr. Einungis 4% verðmunur var á l kg af Kötlu púðursykri sem kostaði á bilinu 117-122 kr„ og 14% verðmun- ur á hökkuðum heslihnetum frá Hagveri sem kostuðu á bibnu 66-75 kr. 69% verðmunur var á Malterser- kors þurrgeri sem kostaði á bilinu 16-27 kr. og 36% verðmunur á á Flóru smjörlíki sem kostaði á bibnu 99-135 kr. stk. Meðalverð og vöruúrval Samkvæmt útreikningum Sam- keppnisstofnunar er Þingey meö lægsta meðalverðið (82 stig) í þessari verðkönnun og Búrfeb með það hæsta (120 stig). Er þá gert ráö fyrir að 100 stig séu meðalverð. Matbær KÞ kom fast á eftir Þingey með 85,3 stig, Kaupf. Langnesinga í þriðja sæti með 94,3 stig, þá Fosshóll með 103,7 stig, Laugaverslun með 104,3 stig, Bakki með 112,7 stig og Raufar- höfn með 113,8 stig, eða næsthæsta meðalverðið. Hvað vöruúrval snertir stóð Þingey sig best en verslunin bauð upp á 35 vörutegundir af þeim 36 sem kannað- ar voru. Matbær bauð upp á 34 teg- undir, Fosshóll 30 tegundir, Búrfell 27, Kaupf. Langnesinga 26, Bakki og Laugaverslun buðu upp á 20 vöruteg- undir en Raufarhöfn bauð einungis upp á 12 af þeim 36 vörutegundum sem teknar voru í könnuninni. Það getur borgað sig að gera verðkönnun áður en keypt er inn i magni fyrir smákökubaksturinn. Verðmunurinn í þessari könnun ar á bilinu 3-135%. DV-mynd BG drykkir Öbum finnst gaman að fá sér kokkteil til aö gera sér dagamun og því er ekki úr vegi að birta hér nokkrar gamlar verðlaunaupp- skriítir úr samkeppni DV. Engin þebra inniheldur áfengi, enda upplagt að bjóða upp á óáfenga drykki á jólunum svo að börnin geti notið þeirra með okkur. Templar 6 cl Tropicana 2 cl Mai Tai Mix (Holland House) 1 cl pönnukökusíróp fyllt með Seven-Up Skreyting: appelsínusneið, anan- asbitar, rautt kirsuber, rauð rör. Ógnvekjandi 3 cl Tropicana 3 cl sítrónusafi 2 cl rjómi 1 cl grenadine 4 pressuö appelsína Skreyting: sitrónusneiö, rauð rör og súkkulaöispænir, Prinsessan 6 cl Egils-appelsínuþy kkni 6 cl Egils Bergvatn 6 cl Tropicana Skreyting: rauð kokkteilber, smásletta af bl. ávaxtasafa. Gubmjólkurdrykkur 1 4 dl mjólk safi úr 4 sítrónu safi úr 4 appelsínu 1 eggjarauða 1 msk. sykur 2 msk. Emmess appelsínu- eða vanibuís Þeytið saman mjólk og eggja- rauðu. Blandið öllu hinu saman við og þeytið. Notið abtaf ískalda mjólk í alla isdrykki. Súkkulaði-mjólkurdrykkur 14 dl tnjólk 4 dl súkkulaðisósa 4 msk. Emmess-súkkulaði-, van- illu- eða dúettís Þeytið allt vel saman og berið fram strax. Banana-mjólkurdrykkur 14 dl mjólk 1 btill banani 14 msk. sítrónusafi 1 msk. sykur 4 msk. Emmess-vanilluís appelsínusneið Merjið bananana með gaífb og þeytið síðan allt saman. Hægt er að fá persónulegt jóla- kort á 44 kr. stk. með umslagi. Ódýrari jólakort Drögum úr hraða -ökum af skynsemi! Einfalt sfldarsalat 9 9*17*00 Verö aöeins 39,90 mín. Vikutilboð stórmarkaöanna Uppskriftir Það er abtaf gott að geta dregið eitt- hvað fram til að bjóða gestum og gangandi yfir hátíðarnar og flestum finnst gott að fá eitthvað brauðkyns til tilbreytingar frá heitum mat og sætindum. Við fengum eftirfarandi uppskrift að sbdarsalati hjá Áslaugu Kristjánsdóttur matráðskonu og get- um fubyrt að það er bæði einfalt og mjög bragögott. Þar sem salatið nýt- ur sín best á rúgbrauði fylgir einnig uppskrift aö þvi. Síldarsalat Áslaugar 1 bolh majónes - upplagt um jólin 4 bolb sýröur rjómi 2 kryddsíldarflök 2 epli 1 dós rauðrófur (200 g) 1 msk. safi af síldinni 1 msk. safí af rauðrófunum Flysjið eplin. Sigtið safann frá rauðrófunum. Saxið epbn, rauðróf- urnar og síldina smátt og blandið því öllu saman viö majónesið og sýrða rjómann ásamt safanum. Þetta er sérlega ljúffengt með rúgbrauöi. Seytt rúgbrauð 5 bollar rúgmjöl 24 bolli hveiti 2 bollar sykur 5 tsk. lyftiduft 1 tsk. salt 1 lítri mjólk Blandiö öllum efnum saman og hnoöið. Bakiö í 13 klst. við 100° hita. Brauðiö þarf aö baka í lokuðu íláti og má t.d. nota Mackintosh-dós eða kökubox úr málmi. Boxið þarf að rúma aðeins meira en deigið því það lyftir sér lítilsháttar. Tveir aðilar hafa haft sam- band við okkur í kjölfar verö- könnunar á persónulegum jóla- kortum. Sigurjón Haraldsson hjá Myndhraöa á Eiðistorgi vildi koma því á framfæri að þeir byðu jólakortin frá 44 kr. stykkið th 6. desember og væru með 13 teg- undir á boðstólum. Eðlilegt verð segir hann vera frá 55 kr. stk. en þá er hann enn undir lægsta verði í könnuninni sem var 59 kr. Einnig hafði Oddur Thoraren- sen, framkvæmdastjóri Regn- bogaframköhunar, samband til að koma því á framfæri aö stykk- ið af persónulegum jólakortum hjá þeim væri á 58 kr. og að hægt væri að velja um 9 tegundir korta. Auk þess býður Regnbogafram- köllun upp á 7 eldri tegundir korta á allt niður í 50 kr. stk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.