Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1994, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994
11
DV
Atvinnuástandiö 1 október:
Færri án atvinnu
heidur en í fyrra
- atvinnuleysikarlajókstmeiraenkvenna
í síöasta mánuði voru aö meðal-
tali 4.539 manns á atvinnuvinnu-
leysiskrá, þar af 1.976 karlar og 2.536
konur. Þetta jafngildir því aö 3,4 pró-
sent af áætluðum mannafla á virmu-
markaöinum hafi verið án vinnu í
mánuðinum. Hjá körlum mældist
atvinnuleysið 2,6 prósent en hjá kon-
um 4,7 prósent. Atvinnuleysið í okt-
óber er 0,2 prósentustigum minna en
á sama tíma í fyrra en miðað við
september síðastliðinn jókst at-
vinnuleysið um 0,2 prósentustig.
Síðasta virkan dag októbermánað-
ar voru 5.431 manns á atvinnu-
leysiskrá á landinu öllu en það eru
824 fleiri en í lok septembermánaðar.
Síðastliðna 12 mánuði voru að með-
altali um 6.326 manns atvinnulausir,
eða 4,8 prósent. Árið 1993 voru að
meðaitali um 5.600 manns atvinnu-'
lausir, eða 4,3 prósent.
í október fjölgaði atvinnulausum
um 4,8 prósent miðað við mánuðinn
á undan en fækkaði um 5,2 prósent
miðað við sama tíma í fyrra. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Vinnumála-
skrifstofu félagsmálaráðuneytisins
hefur atvinnuleysi ávallt aukist milli
september og október; að fheðaltab
um 15,5 prósent. Undanfarin ár hefur
hins vegar dregið úr þessum árstíð-
arbundnu sveiflum milli mánað-
anna.
í október jókst atvinnuleysið alls
staðar á landinu nema á Austur-
landi. Atvinnulausum fjölgaði mest
á Suðurnesjum en þar og á Vestur-
landi flölgaði atvinnulausum miðað
við sama tíma í fyrra. Atvinnuleysi
karla jókst alis staðar nema á Aust-
urlandi en atvinnuleysi kvenna
minnkaði lítilega í heild. Að meðal-
tali eru um 63 prósent atvinnulausra
á höfuðborgarsvæðinu og 37 prósent
á landsbyggðinni.
í félagsmálaráðuneytinu er búist
við að atvinnuleysið muni aukast
enn frekar í nóvember og verði á
bilinu 4,2 til 4,5 prósent.
Styrkir til háskólanáms
í Danmörku og Noregi
1. Dönsk stjórnvöld bjóða fram fjóra styrki handa íslend-
ingum til háskólanáms í Danmörku námsárið 1995-96.
Styrkirnir eru ætlaðir þeim sem komnir eru nokkuð áleið-
is í háskólanámi og eru miðaðir við 9 mánaða náms-
dvöl en til greina kemur að skipta þeim ef henta þykir.
Styrkfjárhæðin er 4.140 d.kr. á mánuði.
2. Norsk stjórnvöld bjóða fram einn styrk handa íslenskum
stúdent eða kandídat til háskólanáms í Noregi námsár-
ið 1995-96. Styrktímabilið er níu mánuðir frá haustmiss-
eri 1995. Til greina kemur að skipta styrknum ef henta
þykir. Styrkurinn nemur 5.700 n.kr. á mánuði. Umsækj-
endur skulu að öllu jöfnu vera yngri en 35 ára og hafa
stundað háskólanám í a.m.k. 2 ár.
Umsóknir um styrkina skulu senda menntamálaráðuneyt-
inu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 20. desember nk.
á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Umsóknum fylgi
staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmælum.
Menntamálaráðuneytið,
17. nóvember 1994
Fréttir
Nýr Menningarsjóður útvarpsstöðva stofnaður:
Skuld sjóðsins yf ir
hundrað miljónir
„Menningarsjóðurinn verður lagð-
ur niður í núverandi mynd og nýr
sjóður, dagskrárgerðarsjóður, kem-
ur í hans stað,“ segir Ólafur G. Ein-
arsson menntamálaráðherra í sam-
tali við DV.
Til stendur að Menningarsjóður
útvarpsstöðva verði lagður niður og
dagskrárgerðarsjóður komi í stað
hans. Sjóðnum er fyrst og fremst
ætlað að styrkja innlenda dagskrár-
gerð. Tillaga að sjóðnum var lögð
fram til kynningar á síðastliðnu vori
í útvarpslagafrumvarpi.
Sjóðurinn fær tekjur af aðflutn-
ingsgjöldum sem Ríkisútvarpinu
hafa veriö ætluð til þessa en ekki
runnið til Ríkisútvarpsins.
- engin úthlutun í ár
„Ég kem til með að leggja fram
frumvarpið í sömu mynd og það var
lagt fram í vor. Ég veit ekki hvenær
það veröur því ég held það sé ekki
búið að afgreiða það í þingflokki Al-
þýðuflokksins ennþá,“ segir Ólafur
G. Einarsson.
Sjóðurinn er fyrst og fremst ætlað-
ur til innlendrar dagskrárgerðar.
Það verður ekki úthlutað úr honum
til heimildarmynda. Að sögn Ólafs
er núverandi sjóður ekki tómur en
hann skuldar það sem hann á. Hann
skuldar ríkissjóði töluvert á annað
hundrað milljónir króna. Sjóðurinn
á eitthvað yfir hundraö milljónir og
gerir menntamálaráðherra ráð fyrir
því að það fari til þess að greiða
skuldina við ríkissjóð þannig að ekki
verði um neina úthlutun að ræða á
þessu ári.
„Ég tek skýrt fram að það er búið
að nota alla þessa peninga í það sem
þeir voru raunverulega ætlaðir, til
. innlendrar dagskrárgerðar. Aftur á
móti er búið að eyða fyrirfram úr
sjóðnum en hann hefur ekki verið
skorinn niður eins og kvikmynda-
sjóðurinn. Ekki er gert ráð fyrir að
nýi dagskrársjóðurinn borgi neinn
kostnað við sinfóníuhljómsveitina.
Það þarf að taka til athugunar hvern-
ig sinfóníuhljómsveitin verður flár-
mögnuð," segir Ólafur G.
Ford Mondeo GLXi Wagon, árg. 1994,
ekinn 11000 km, sjálfskiptur, rafdr. rúður, centrallæs-
ing, vökvastýri, air bag þjófavörn, cruisecontrol.
Skipti á ódýrari bíl koma til greina. Uppl. í síma
98-11919
Til sölu
wvvwwwww
ATH.I Smáauglýsing
í helgarblað DV verður
að berast okkur fyrir
kl. 17 á föstudag.
Þverholti 11 - 105 Reykjavík
Sími 91-632700
Atvinnuleysið í okt. 1993 og '94
Vesmröir
Vesturland
Austurlanú
1993
1994
Su&tírfahd
Atvinnuleysið síðustu 13 mánuði á landinu öllu
KRAKKAR!
MUNIÐ EFTIR OKKUR
ATh TANNIOGTÚPA
Öll Lionsdagatöl eru merkt:
Þeim fylgir límmiði með Tanna og Túpu og tannkremstúpa.
Allur hagnaður rennur til líknarmála.