Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1994, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1994, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994 Spumingin Ætlarðu í jólaglögg á næstunni? Hugrún Harðardóttir: Ég held ekki. Helga Thoroddsen: Nei. Gunnar Egilsson: Já, hjá fyrirtækinu sem ég vinn hjá. Sigurjón Ingi Björgvinsson: Já, á Meleyri á Hvammstanga. Sigrún Davíðsdóttir: Nei, ég geri ekki ráð fyrir því. Ásgeir óskarsson: Það getur vel ver- iö. Lesendur Er framboð Jóhönnu raunverulegt? Konráð Friðfinnsson skrifar: Margt er skrýtið í pólitíska kýr- hausnum. - Og nú spyr ég: Hvernig má það vera að „ílokkur" sem ekki er til sópar að sér fylgi og er að verða einn stærsti „stjórnmálaílokkur“ landsins, samkvæmt skoðanakönn- unum? Eftir þessum könnunum að dæma þá mun flokkur Jóhönnu Sig- urðardóttur koma nokkrum þing- mönnum inn á Alþingi að kosningum loknum? Sem sé; ósýnilegt stjórn- málaafl ber sigurorð af sýnilegum samtökum er starfa á vettvangi stjómmálanna á íslandi. Nú er sannleikurinn einfaldlega sá að Jóhanna hefur ekkert gefið út um það hvort hún muni yfirleitt bjóða fram sérstakan flokk. Samt ræða stjórnmálamenn og almenningur og auðvitaö fjölmiðlar um þennan efnivið líkt og allt sé klappaö og klárt hjá þessari annars ágætu konu. Og formenn sýnilegu flokkanna eru famir að titra. Þeir stappa samt í sig stálinu og segja sem svo: Hún tekur ekkert fylgi úr mínum flokki og ann- að í þeim dúr. En hví hafa menn áhyggjur af því sem kynni að verða einhvem tím- ann? Og því sem enginn veit hvort nokkum tímann veröur? Látum nú áhyggjur dagsins nægja. Morgun- dagurinn er hvort sem er óráðinn. Munum að Jóhanna Siguröardóttir ber fulla ábyrgð á verkum ríkis- stjómarinnar, hvað sem öðru líður. Jóhanna Sigurðardóttir og Guðmundur Árni Stefánsson. Veitir afsögnin þeim brautargengi? Alla vega þar til hún sagöi af sér ráðherradómi. Hinu er ekki að neita að Jóhanna hafði fylgi er náði langt út fyrir raðir Alþýðuflokksins. Hún var enda ágætur stjómmálamaður með hug- sjónir er hún trúir á sjálf. Það verð ég þó að segja henni til lasts - með allri virðingu fyrir henni - að hún hljópst sjálfviljug undan merkjum í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar. Og ef það er leið til að afla sér vinsælda í fallvöltum heimi stjórnmála þá mót- mæli ég slíku verkslagi. Ef allt væri með felldu í þjóðfélag- inu þá ætti svona háttsemi valds- manns að vekja upp urg á meðal fólksins. En það er eins og blessað fólkið sé ávallt í stjórnarandstöðu og líti á réttkjöma valdhafa sem sér- staka óvini sína! - Afsögn Guðmund- ar Árna er af allt öðmm toga. Maður- inn var hreinlega flæmdur úr emb- ætti, nauðugur viljugur, og í raun án sannaðrar sektar. Á þessu tvennu er því talsverður munur. Ferðakostnaður og kvaðir ráðherramaka Hulda Guðmundsdóttir skrifar: Umræða um ferðakostnað maka ráðherra og háttsettra embættis- manna hefur veriö snörp og bein- skeytt. Veitti nokkuð af? Þetta tekur forstjóri ÁTVR óstinnt upp í bréfi til Mbl. 18. nóv. sl. Hann vill sérstaklega þakka mökum hinna opinberu ráðamanna mikil og góð störf fyrir þjóðfélagið og telur það ósvinnu að blanda ferðakostnaði makanna inn í þá spilhngarumræðu sem nú rís í þjóðfélaginu. Víst séu til reglur um utanferðir maka ráðherra á kostnað ríkisins, segir forstjóri ÁTVR, en þeim reglum verði þó aldr- ei beitt eftir talnaformúlu eingöngu því sá sem heimsóttur sé erlendis hafi alltaf áhrif á hverjir verði gestir hans. - Þetta er einkennileg rök- semdafærsla. En látum það nú liggja milh hluta. Hitt vekur meiri athygli mína hvemig forstjóri ÁTVR tínir dæmin til vamar ráðhermm og mökum þeirra. - Og gildir þá einu hvort for- stjórinn kom til starfa í fjármála- ráðuneytinu 1965 og verið þar í rúma tvo áratugi. - Maki ráðherra, sem jafnvíg var sem bílstjóri ráðherra og aöstoðarmaður eða að maki ráö- herra, hafi tekið að sér leiðsögn fyrir maka erlendra ráöherra er sóttu hér fundi og ráðstefnur eða sinntu kvöð- um um aö vera til staðar við ótal tækifæri ásamt ráðherra. Þessi dæmi em af innlendum vettvangi og eiga því vart heima í umræðunni. Eða staðhæfingin um að margar utanferða ráðherra ásamt maka veröi að teljast kvaðir fyrir makana? Sé svo ætti ráðherra að vera það létt ákvörðun að vera einn á ferð eða aö taka ritara sinn með þurfi hann á ferðafélaga að halda. - Eða þá stað- hæfingin um að hafi störfum eða kvöðum eigi verið sinnt í utanlands- feröum þá hafi ferðir þessar (þ.e. makanná) verið „eina endurgjald ríkisins fyrir þau mörgu og þýðing- armiklu störf sem makar ráðherra unnu sem sjálfboðaliðar"! - Ekki finnst mér forstjóri ÁTVR, meö bréfi sínu, hafa hreinsað nógu vel úr sári þvi sem enn vellur úr gröfturinn vegna dagpeninga- greiðslna til maka ráðherra, Og best fer auðvitað á þvi eins og hann segir sjálfur að menn haldi ferðakostnaði maka ráðherranna utan við umræðu um spillinguna! - Það er líka bara eftir öðru í þessu „þjóffélagi“. Skipasmíðar erlendis: Ekkert að fela hér á landi? Guðjón Guðmundsson skrifar: Undarlega mildum höndum fara íslenskir íjölmiðlar enn sem komiö er um rannsókn þá sem fram fer í Færeyjum, Grænlandi og í Dan- mörku þessa dagana í tengslum við skipasmíðar í Færeyjum á síðasta áratug. Ekki það að fjölmiðlar hafi sniðgengið fréttina, en engin tilraun er enn gerð til að kanna hvort ekki sé nákvæmlega sama uppi á teningn- um hér á landi. Svindlið í Færeyjum er fólgið í því að skipasmíðastöð og kaupandi gáfu upp hærra verð en hiö raunverulega til þess að fá full lán, því venjulega átti kaupandinn ekkert handbært fé. Það hefur oft komið upp sá kvittur hérlendis að svona viðskipti væru einmitt tengd íslenskum skipakaup- um. Talið er að nú þegar hafi rann- sókn farið fram hér á landi þótt hljótt fari. En við erum svo sem vön ýmsu í þessum efnum og það flokkað undir fyrirgreiðslupólitík. En þessi mál eru fráleitt á þeim meiði. Við erum að sjálfsögðu meö allt á hreinu í okkar skipakaupum. Yngjumuppí Sigurgeir Jónsson skrifar: I opnu prófkjöri Alþýðubanda- lagsins hér í Reykjavík má búast við talsveröri baráttu um efstu sætin. Ég vil eindregið hvetja fé- lagsmenn til þess að hafa í huga að nú er full þörf á að yngja upp eða endurnýja í þingsætum ílokksins. Ég teldi t.d. mikinn feng í því að fá Einar Karl Har- aldsson og annaðhvort Bryndísi Hlöðversdóttur eða Hildi Jóns- dóttur í þingliðið. Ég er ekki að dæma þau Svavar og Guðrúnu úr leik, en það má líka koma inn þriðja manni sem gæti verið ein- hver ofangreindra. Atlantaúr samkeppninni? Haraldur Guðmundsson hringdi: Verkfallsboöun Félags ísl. at- vinnuflugmanna er að mínu mati lævíst bragö til að losna við At- lanta flugfélagið út úr samkeppn- inni við Flugleiðir um íslenska farþega. Allir vita að Atlanta hef- ur höggvið drjúgt í farþegafjölda þann sem annars flygi með Flug- leiðum. En þaö er ekki gæfulegt fyrir verkalýðshreyfinguna ef hún stuðlar að fallí þessa nýja flugfélags eða hrekur það úr landi. Þáð væri líka mikil ógæfa fyrir FÍA ef það léti nota sig til skemmdarstarfsemi. Stjórnlagaþing Jóhönnu Magnús Guðmundsson hringdi: Ég styð heilshugar hugmynd Jóhönnu Sigurðardóttur sem hef- ur farið fram á aö haldið verði stjómlagaþing á næsta ári til að fjalla um kosningalogin, ráð- herraábyrgð, landsdóm og um embættaveitingar í æðstu störf og ráðstöfun fjármuna. - Allt þetta er tímabært og í raun hið mesta hneyksli fyrir Alþingi sjálft að ekki skuli hafa tekist að ganga frá kosningalögum sem þjóna landsmönnum meö réttlát- um hætti. Fyrir þetta eitt myndi ég kjósa framboð Jóhönnu ef af framboði hennar verður. íslensktog erlentsælgæti Svava skrifar: Flestir munu mér sammála um að íslenskt sælgæti er sérlega bragðgott og oftast mun betra en margt það erlenda. En það er einn hængur á; þaö íslenska er oftast mun dýrara en það erlenda. Þess vegna á íslenskt sælgæti undir högg aö sækja hjá neytendum. Ég tek dæmi: Snickers (erlent), 61 gramm að þyngd, kostar 60 kr. - Nizza (íslenskt), 40 gr., kostar 65 kr. - Opal appelsínusúkkulaði (íslenskt) og engin þyngd ti.1- grcind, en liklega um 40 gr„ kost- ar 55 kr. Þessi dæmi eru íslenska sælgætinu í óhag en neytandinn veit alltaf hvað að honum snýr. Vandinn þaroghér Kristján S. Kjartansson skrifar: 1 Bretlandi er stærsta heilbrigð- isvandamálið atvinnuleysi. - Stór hluti af fjárlögum íslenska ríkis- ins fer í heilbrigðiskerfið, ekki síst til geð- og áfengissjúkra. Þetta fólk er með ófullnægðar þarfir sökum atvinnuleysis. Það virðist ríkja andlegt kreppuástand í þjóðfélaginu. Nær væri að vinna að atvinnuupþbyggingu handa fólkinu í staö þess að greiða millj- ónir króna til félagslega og and- lega sjúkra vegna atvinnu- ástandsins. Fjöldi fólks á félags- lega kerfinu lifir við hungur- mörk. Sumir fá meira að segja litla eða enga hjálp. Þvi fylgir mikil ábyrgö að fara með völd svo enginn bíði tjón af.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.