Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1994, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1994, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994 13 + Meiming Stofngjöf Listasafns Islands í tilefni af því að Listasafn íslands er 110 ára um þessar mundir hefur safnið nú opnað sýningu á listaverkagjöf þeirri er markaði stofnun þess. Það var 31 árs lögfræðikandídat í Kaupmannahöfn, Björn Bjarnarson, sem gerði það heyrinkunnugt í október árið 1884 að hann hefði fengiö loforð frá mörgum nafnkunnum dönskum listamönnum um að þeir gæfu verk til stofnunar listaverkasafns á íslandi. Eftir það sendi Björn verkin með skipum frá Danmörku; 11 með fyrstu ferð, þá 2 o.s.frv. Verkin voru til sýnis sumarið 1885 í Barnaskólahúsinu á horni Pósthússtrætis og Hafnar- strætis, en voru um haustið flutt í Alþingishúsið að tillögu Björns. Þar gat almenningur séð þau um helgar og munu þeir Þórarinn B. Þorláks- son, Einar Jónsson og Jón Stefánsson a.m.k. allir hafa séð verkin í Alþing- ishúsinu, en um þær mundir var engum öörum listsýningum til að dreifa í höfuðborginni. Djúptæk áhrif Verkin áttu eftir að hafa djúptæk áhrif á list þeirra Þórarins og Einars og Einar fór síðar lofsamlegum orðum um framtak Björns Bjarnarsonar, þess „stórhuga vormanns hins myndelska íslands". Til stofngjafarinnar teljast einnig þau verk er voru í dánargjöf Edvalds J. Johnsens, læknis í Kaupmannahöfn, er komu til landsins áriö 1895 og gjöf frá Thorvaldsens- safninu í Kaupmannahöfn er innihélt 66 grafísk verk ýmissa listamanna, unnin út frá höggmyndum Thorvaldsens. Alls voru skráö í safninu um aldamót 74 málverk og 2 höggmyndir auk grafískra verka og telst sú eign stofngjöfin. Raunsæi frá Skagen Þekktastir dönsku málaranna voru og eru ugglaust þau Ancherhjón frá Skagen, Anna og Michael, ásamt Peder Severin Kröyer, sem einnig dvaldi oft á Skagen. Þar hófst raunsæið til vegs í dönsku lista- og menningarlífi um þaö leyti er stofngjöfina bar að. „Fisksölustúlka" eftir Önnu Ancher Myndlist Ólafur J. Engilbertsson frá 1886, „Sjómaður" eftir Michael Ancher og „Hjá Jóakim á Skaganum" eftir Peder Severin Kröyer frá 1885 eru tvímælalaust meðal helstu dýr- gripa stofngjafarinnar. Þar fer saman góð tækni þeirra tíma og innsýn í þjóðarsálina dönsku undir lok nítjándu aldar þar sem áherslan var lögð á að fanga hversdaginn og nánasta umhverfi. íslenskt landslag með útlendum augum Ugglaust vekja þó meiri forvitni á sýningunni þau verk hinna erlendu listamanna er sýna íslenskt landslag. Mörg kunna aö koma undarlega fyrir sjónir enda munu flestir málararnir einungis hafa rissað landslagið upp hér á landi en geymt endanlega útfærslu þar til heim kom. Þannig hafa sjónarhorn riðlast líkt og sést á mynd Theodors Kloss, „Við Öx- ará“. Dönsku málararnir höfðu mun meiri áhuga á tign fjallanna en ís- lensku mannlífi eða byggðum bólum og því kemur ekki á óvart að mynd- ir Christians Blache frá Eskifirði og Eyjafirði frá 1881 og 1882 skuli einung- is sýna fjöll og skútur að lóna. Perlurnar meðal þessara mynda hijóta að teljast Geysismynd Emanuels Larsen frá 1847 og Þingvallamynd Aug- usts G. Schiötts frá 1872. Fyrir slíkum myndum liggur að grópast inn í þjóðarvitundina. Sýning Listasafnins er ágætlega uppsett. Rauðbrúni lit- urinn í sal tvö hefur fest sig í sessi og hæfir vel sýningu sem þessari. í raun hefði salur eitt mátt vera meira í þá áttina. Annað er að skrá vant- ar yfir hin upphengdu verk. Sýningarskráin stendur annars vel fyrir sínu sem sjálfstætt rit með fróðlegri grein eftir Beru Nordal um stofngjöfma. Mest seldu amerísku dýnurnar Marco " HUSGAGNAVERSLUN Langholtsvegi 111, sími 680 690. Jólabaksturinn verður að ánægjustundum með góðu hráefni. Ljóma smjörlíki fæst nú i sérstökum jólapakkningum, ^ tvö stykki í pakka. Með Ljóma | jólapakkningu gefst þer tækifæri til að taka þátt i auðveldri getraun. VINNINGARNIR E R U harðduglegar hrærivélar,. liprar eldhúsvogir, Sodastream-tæki og ávaxtasafar i litravís. Dregið verður daglega á Bylgjunni fra Á/\ 1. til 15. desember og JPd 3 riöfn vinningshafa Q -m birt jafnoðum i DV. Gleðileg jói! ljomandi gott

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.