Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1994, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1994, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994 UPPBOÐ Á nauðungarsölu sem fram á að fara við Bílageymsluna, Skemmu v/Flug- vallan/eg, Keflavík, föstudaginn 9. desember 1994, kl. 16.00, hefur að kröfu ýmissa lögmanna og sýslumannsins I Keflavík verið krafist sölu á eftirtöldum bifreiðum og öðru lausafé: A-9153 DA-240 E-2875 EÞ-812 FE-862 FS-677 G-4642 G-5848 GF-742 GH-302 GH-961 GI-371 GJ-045 GP-415 GT-838 GU-010 GU-378 GX-672 GZ-193 HA-659 HB-155 HD-092 HE-183 HE-252 HE-929 HG-415 HH-668 HK-388 HR-167 HR-930 HU-066 HX-406 HZ-239 HZ-314 HÞ-074 HÖ-817 1-3102 IA-908 IC-490 IE-157 IF-215 IG-210 IJ-186 IJ-526 IL-324 10-831 IP-325 IV-930 IX-984 IY-138 IÞ-124 IÖ-845 ÍS-814 JA-763 JB-784 JB-994 JF-109 JJ-578 JP-827 JT-383 JU-105 JÞ-636 KB-617 KB-850 KD-553 KT-270 KU-891 LD-715 LD-733 LH-329 LT-104 LY-269 OD-233 OT-384 PS-514 R-1058 R-18418 R-18588 R-32397 R-3519 R-45003 R-48081 R-52874 R-53858 R-55504 R-62419 R-77834 SD-512 TG-699 TJ-811 U-4996 VS-526 X-7725 Ö-10771 0-1567 0-4776 0-5378 0-6451 Ö-6497 Ö-8514 Greiðsla áskilin við hamarshögg. Ávísanir ekki teknar gildar nema með samþykki gjaldkera. SÝSLUMAÐURINN í KEFLAVÍK Samkeppni um hönnun Engjaskóla Reykjavíkurborg efnir til tveggja þrepa samkeppni um hönnun ca 4.500 ferm. skóla í Engjahverfi í Reykjavík. Fyrra þrep samkeppninnar er opin hugmyndasamkeppni þar sem leitað verður eftir hugmyndum keppenda um ein- setinn, heildstæðan grunnskóla. Sex tillögur verða valdar í síðara þrep samkeppninnar og að samkeppninni lokinni verður samið við höfund (höfunda) þeirrar tillögu sem hlýtur 1. sæti um áframhaldandi hönnun Engjaskóla. Jafn- framt verða á síðari stigum valdir hönnuðir grunnskóla í Víkurhverfi og Borgahverfi úr hópi þeirra höfunda sem keppa í síðara þrepi. Öllum, sem eru félagar í Arkitektafélagi íslands eða hafa réttindi til að leggja aðaluppdrætti fyrir byggingarnefnd Reykjavíkur, er heimil þátttaka í samkeppninni. Keppnisgögn verða afhent þátttakendum hjá trúnaðar- manni dómnefndar, Sigurði Harðarsyni arkitekt, á skrif- stofu Arkitektafélags íslands, Freyjugötu 41 (Ásmundar- sal), Reykjavík, á milli kl. 8 og 12 virka daga frá og með föstudeginum 2. desember og önnur gögn frá þriðjudegin- um 6. desember nk. Skiladagur tillagna í fyrra þrepi er miðvikudagurinn 25. janúar 1995. Dómnefnd Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn auglýsir eftirfarandi stöður lausar til um- sóknar: í aðfangadeild eru lausar 2 stöður deildarstjóra: Staða deildarstjóra sem hefur umsjón með skylduskil- um og sinnir uppbyggingu og umbúnaði íslensks ritakosts. Staða deildarstjóra sem hefur umsjón með almennu tímaritahaldi. í skráningardeild er laus staða deildarstjóra: Staða deildarstjóra sem hefur umsjón með þróun skráningarsniðs (marksniðs) og skráningu erlendra rita. í upplýsingadeild eru lausar 2 stöður deildarstjóra: Staða deildarstjóra sem hefur umsjón með tón- og mynddeild og notendaþjónustu á 4. hæð. Staða deildarstjóra sem sinnir m.a. uppbyggingu handbókakosts og hefur umsjón með upplýsinga- borði á aðalhæð safnsins. í útlánadeild eru lausar 2 stöður deildarstjóra: Staða deildarstjóra sem hefur umsjón með náms- bókasafni og notendaþjónustu á 3. hæð. Staða deildarstjóra sem hefur umsjón með millisafna- lánum. Stöðurnar krefjast menntunar í bókasafnsfræði eða annarrar háskólamenntunar. Umsækjendur eru beðnir að láta þess getið ef þeir óska eftir að koma til álita við ráðningu í aðrar af ofangreindum stöð.um en þá sem þeir sækja um sér- staklega. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu sendar Landsbókasafni íslands - Háskóla- bókasafni, merktar landsbókavörður, Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík, fyrir 21. desember 1994. Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn, 30. nóvember 1994. Utlönd Farþegum og áhöfn Achille Lauro bjargað: Örlagaf leyta í Ijósum logum - tveir menn létust í ringulreiðinni Nálægt eitt þúsund manns, farþeg- um og áhöfn ítalska skemmtiferöa- skipsins Achille Lauro, var bjargað í gær en þá var skipið alelda um 100 mílur fyrir utan strönd Sómalíu í Indlandshafi. í morgun var skipið enn ekki sokkið en hallaðist verulega og eldur var enn laus. Eldurinn kom upp í gærmorgun og var strax erfiður viðureignar. Skipið hallaðist þá um tuttugu gráður. Skip- ið lagði úr höfn í Genova á Ítalíu þann 19. nóvember og var á leið til Haifa í ísrael. Orsakir eldsins eru ekki kunnar en talið er líklegt að síg- arettuglóð hafi verið valdurinn. Eld- urinn kom upp í vélarrúminu. 977 manns voru á skipinu og var flestum bjargað um borð í olíuflutn- ingaskip frá Panama sem kom fljót- lega á staðinn. Flestir farþegamir voru ellilífeyrisþegar. Tveir menn létust í ringulreiðinni eftir að eldur- inn kom upp. Skipinu rænt árið 1985 Achille Lauro hefur verið sann- kölluð örlagafleyta. Skipinu var rænt árið 1985 og var það í heimsfréttun- um dag eftir dag. Ríkisstjóm féll vegna málsins og fræg ópera var samin um skipið. í október 1985 var skipinu rænt fyrir utan höfnina í Genova á Ítalíu af fjómm skæruliðum sem voru í flokksbroti Abu Abbas í Frelsissam- tökum Palestínuaraba (PLO). Skipið sigldi í ijóra daga um Miðjarðarhaf- inu áöur en ræningjamir voru þvingaðir til að sigla því til Egypta- lands. Líf farþeganna um borð var algjör martröð meðan á ráninu stóð. Aldr- aður bandrískur gyðingur í hjóla- stól, Leon Klinghofler, var drepinn og líkinu hent í sjóinn og vakti atvik- ið mikla reiði um allan heim. Eftir samningaviðræður náðist samkomulag um að ræningjarnir fiúsund björgu>ust af Achille Lauro Skemmtifenaskipii Achille Lauro fer frá Genova á ítalfu á lei> til Durban i Su>ur-Afríku 19. nóvember ■•jít.’ Haifa ""■y® 23. nóv. Port Saíd % 24. nóv. AFRIKA Tveir farflegar létust í ringulreMnni flegar elds var> vart um bor> i skemmtiferaskipinu. Um 1000 manns neyddust til a> yfirgefa skipi> og var öllum bjarga> Skipi> halla>ist strax mjög miki> vegna vatnsins sem nota> var vi> slökkvi- starfn. Eldurinn vir>ist hafa komi> upp í .vélarrúmi íb skiluðu skipinu og gíslunum en fengju sjálfir að sleppa. Þegar ræn- ingjarnir voru komnir í loftið þving- uðu bandariskar herflugvélar vél þeirra til að lenda aftur og voru þeir handteknir ásamt foringjanum Abu Abbas. ítölsk yfirvöld ákváöu síðan aö sleppa Abu Abbas úr haldi. Vakti það mikla bræði víða um heim og á endanum neyddist ítalska ríkis- stjórnin til að segja af sér vegna málsins. Fræg sjónvarpsmynd var gerð um ránið og ópera samin um dauöa Klinghoffers. Reuter Stuttar fréttir Kona sem kært hefur Clinton fyrir áreitni: Kærir tímarit fyrir birtingu nektarmynda Paula Corbin Jones, sem kærði Bill Clinton forseta nýlega fyrir kyn- ferðislega áreitni þegar hann var rík- isstjóri í Arkansas, hefur nú einnig kært tímaritið Penthouse til að koma í veg fyrir birtingu nektarmynda af sér sem birtast eiga í næstu viku. Birting myndanna hefur verið bönn- uð timabundið. Paula krefst jafnvirðis tveggja milljarða íslenskra króna frá þremur aðilum verði myndirnar birtar. Paula segist aldrei hafa leyft sölu myndanna eða notkun en þær sýna hana mjög lítið klædda í ýmsum stellingum. Fyrrverandi kærasti hennar tók myndirnar og seldi tíma- ritinu. Penthouse-menn hafa lítið geflð út á kæru Paulu en í grein sem birtast á með myndunum er henni lýst sem miklum daðrara og blaöið leggur ekki mikinn trúnað á sögur hennar um kynferðislega áreitni Clintons. Vinir og fjölskylda segja hana laus- láta. Reuter Málaferli um líkamsleifar Jeffreys Dahmers: Ríf ast um ösku mannætu Hin undarlegasta deila er nú upp risin um hvað skal verða af líkams- leifum íjöldamorðingjans illræmda Jeffreys Dahmers sem myrtur var í fangelsi í Milwaukee sl. mánudag. Dahmer myrti á 13 ára tímabili 17 unga menn, flesta homma, á hroða- legan hátt. Dahmer fer fram á þaö í erfðaskrá sinni að lík sitt verði brennt, gröf hans verði ekki merkt og engin jarð- arfór haldin. Líklegast er þó að mannætunni verði ekki að ósk sinni því foreldrar hans, sem eru skilin, deila um hvort þeirra eigi að fá ösk- una. Faðirinn hefur stungiö upp á því að þau skipti öskunni til helm- inga. Hins vegar gæti farið svo að málaferli yröu vegna líkamsleifa mannætunnar. Búast við innrás Í Grosni, höfuðborg Tsjetsjniu, er búist við innrás hers Rússa. Vararviðeinleik Gro Harlem Brundtland, forsætisráð- herra Noregs, hefur varað aöra sfjórn- málaílokka í landinu við að leika einleik til aö afla sér stuðnings eftir þjóðar- atkæðið um ESB. Biðröð eftir Bitlaplötu Aðdáendur Bítlanna stóðu í biðröðum eftir nýju plötunni. Spá GATT-sigri Embættismenn í Hvíta húsínu spá því að öldungadeild Banda- rikjaþings samþykki GATT. AdamstilClintons Gerry Adams, leiötoga Sinn Fein, pólitísks arras IRA, hefur veriö boöið í Hvíta húsiö. Mesta hættan Símon Peres, utanríkisráð- herra ísraels, segir að ísl- amskir heittrú- armenn séu mesta hættan sem steðji að Miö-Austur- löndum og eina lausnin sé að dæla peningum inn á svæöið. Samvlnna endurmetin Leiðtogar Norðurlanda hittast í Kaupmannahöfn í janúar til að ræða norræna samvinnu. Reuter, NTB, TT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.