Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1995, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1995, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1995 11 Merming Berglind Sigurðardóttir sýnir í Galleríi Greip: Augnabliksmyndir Berglind Sigurðardóttir lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla ís- lands áriö 1990 en hefur þegar haldið tvær einkasýningar og þessa þá þriðju. Sýningin lætur ekki mikið yfir sér enda er plássið ekki mikið í Greip en smáar myndir Berglindar eru vel ígrundaðar og ná að njóta sín saman. Flestar myndirnar eru úr einni röð, unnar með olíupastel á svartan pappír. Þettar eru í raun frekar teikningar en nokkuð annað, ristar Myndlist Jón Proppé með oddi ofan í þykkan pastellitinn. Teikningin er fínleg útlína og við- fangsefnið er alltaf það sama: nakin kona. Þótt naktar konur séu alls ekki óalgengt viðfangsefni í myndlist og listrýnar því alvanir að virða þær fyrir sér í ólíklegustu stellingum er ekki laust við að maður fari dálítið hjá sér þegar maður skoðar konur Berghndar. Konumar í myndunum eru ekki að sitja fyrir - hafa ekki stillt sér upp fyrir listamanninn og áhorfandann - heldur bera það glögglega með sé að þær eru einar. Þetta eru einkamyndir þeirra, augnablik úr einkalífi þeirra sem áhorfandinn á engan rétt á. Einmitt af þessum sökum verða myndirnar spennandi og munúðarfullar en það er ekki laust við að manni finnist maður vera dálítillpervert fyrir vik- ið. Berghndi tekst hér að gera skemmtilega sýningu með einfóldum og hógværum myndum og það væri gaman að sjá hana glíma viö stærri verkefni. stofnaö 1971 yminty Þrjár myndanna á sýningunni. Rýmingarsala Verslunin flytur úr Kringlunni 15-30% afsláttur af öllum vörum dagana 16.-18. febrúar Antikmunir Kringlunni, 3. hæð, sími 887877 ATH. Rýmingarsalan er eingöngu í Kringlunni Þrjár konur Listaklúbbur Leikhúskjallarans stendur vikulega fyrir margs konar uppákomum og hefur starfsemin mælst vel fyrir. Af því sem þar hefur verið á boðstólum undanfarin mánudagskvöld má nefna söng og hljóð- færaleik af ýmsu tagi, upplestur, lifandi umræður um ýmis málefni tengd hstum, ljóðalestur og leikhst. Það var troðfullt hús í Þjóðleikhúskjallaranum, þegar þrír einþáttungar eftir Ingibjörgu Hjartardóttur voru frumfluttir þar á dögunum og búið er að endurfíytja þá einu sinni síðan. Ingibjörg byggir þættina á viðtölum sínum við þrjár ólíkar konur sem segja sögu sína og velta fyrir sér lífi sínu og tilfinningum. Þessi bakgrunn- ur viröist þó fyrst og fremst notaður sem frumhugmynd því að úrvinnsl- an er persónuleg og viðhorf höfundar skapa ákveðna tengingu á milh Leilist Auður Eyda! þáttanna. Að minnsta kosti eiga söguhetjurnar þrjár æöi margt sameigin- legt í því hvemig þær bregöast viö ágjöfum í lífinu, þó að þær dynji yfir viö mjög óhkar aðstæður. Saga þessara þriggja kvenna kemur í reynd inn á sögu sex kvenna, því að aftur og aftur beinist tal þeirra að mæðrum sínum. Fyrsti einleiksþátt- urinn bar nafnið Saga dóttur minnar og mér fannst sá þáttur best skrifað- ur. Efniviðurinn varð trúverðugur og gaf þegar upp var staðið nokkuð góða augnabhksmynd af viðhorfi dótturinnar til móður sinnar og sam- bandi þeirra frá sjónarhóh dótturinnar séð. Hinir þættimir, Bóndinn og Slaghörpuleikarinn, vora meiri lifsreynslu- sögur. Þær konur sem þar tala reyna að botna í því hvers vegna örlögin hafa leikið þær svo grátt og verður fátt um svör. Sögumar era átakanleg- ar en þrátt fyrir það reyna konurnar eins og konum er tamt að taka á sig byrðarnar, herða sig upp og bera sig mannalega. En það vantar samt einhvern æðaslátt til þess að þær nái alveg til manns. Leiklesturinn var sviðsettur undir stjóm Sigríðar Margrétar Guð- mundsdóttur leikstjóra og var öhu smekklega fyrir komið. Leikkonumar Guðlaug María Bjamadóttir, Guðbjörg Thoroddsen og Ingrid Jónsdóttir fluttu hver sinn einleiksþátt og gerðu það ágætlega, einkum fannst mér Guðlaug María ná að kveikja líf í textanum í fyrsta þættinum. Sviðsettur leiklestur i Listaklúbbi Leikhúskjallarans: Þrir einleiksþættir: Saga dóttur minnar, Bóndinn og Slaghörpuleikarinn Höfundur: Ingibjörg Hjartardóttlr Lelkstjóri: Sigrfður Margrét Guðmundsdóttir SUZUKI SWIFT Verulega góður kostur Suzuki Swift er bíll, sem hefur reynst einstaklega vel við íslenskar aðstæður, eins og mikill fjöldi ánægðra eigenda getur vitnað um. Rekstrarkostnaður er sérstaklega lágur vegna lítillar bilanatíðni og sparneytni er í algjörum sérflokki, frá 4.0 lítrum á hundraðið. Endursöluverð á Suzuki Swift er einnig óvenju hátt. Nú getum við boðið Suzuki Swift á ákaflega hagstæðu verði: Verð: Suzuki Swift, beinskiptur, frá kr. 939.000 Sjálfskiptur frá kl*. 1.029.000 $ SUZUKI ■WM SUZUKIBÍLAR HF SKEIFAN 17, SÍMI 568 5100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.