Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1995, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1995, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1995 13 Fréttir Hörpuskels- vertíð að Ijúka Amlieiður Ólafedóttir, DV, Stykkishólmi; Hörpuskelsvertíöinni í Breiöafirði fer senn að ljúka. Veiðarnar byrja í upphafi kvótaárs 1. september og standa fram í febrúar og eru í mjög föstum skorðum ár eftir ár. Skelbátamir níu í Stykkishólmi róa flmm daga í viku - frá sunnudegi til fimmtudags - og landa fyrirfram ákveðnum afla á hverjum degi. Hörpuskelskvótinn í Breiðafirði er líka svipaður frá ári til árs og er nú Hörpuskelin hreinsuð um borð. DV-myndir Arnheiður Norðurland vestra: Skólameistar* inn leiðir A-listann Öm Þórarinsson, DV, Fljótum; Listi Alþýðuflokksins í Norður- landskjördæmi vestra í komandi al- þingiskosningum hefur verið birtur og skipa eftirtaldir listann. 1. Jón Hjartarson skólameistari, Sauðárkróld. 2. Ólöf Kristjánsdóttir bæjarfulltrúi, Siglufirði. 3. Steindór Haraldsson markaðsstjóri, Skaga- strönd. 4. Sólveig Zóphóníasdóttir leiðbeinandi, Blönduósi. 5. Friðrik Friðriksson skipstjóri, Hvamms- tanga. 6. Gunnar Bjömsson verk- stjóri, Hofsósi. 7. Soffía Amarsdóttir afgreiðslumaður, Siglufirði. 8. Ragna Jóhannsdóttir sjúkraliði, Sauöár- króki. 9. Kristján Möller, forseti bæj- arstjórnar, Siglufirði, og 10. Jón Karlsson, formaður Verkalýðsfélags- ins Fram, Sauðárkróki. Jón Sæmundur Siguijónsson skip- aði efsta sæti listans við tvennar síð- ustu kosningar. Sat á þingi 1986-1990 en náöi ekki kjöri 1990. Vatnsskortur á Flateyri aguijón J. Sgurösson, DV, Flateyri; Mikill vatnsskortur er á Flateyri nú, svo mikill að til vandræða horfir að sögn Kristjáns Jóhannessonar . sveitarstjóra. Farið verður í að bora eftir vatni og vonast er til að þá fáist lausn á vandanum. „Ástæðan fyrir því að við emm að fara út í þessa bomn er sú aö skel- vinnslan þarf svo mikið vatn aö vatnsveitan hefur ekki undan. Vegna frosta og þurrka hefur vatnið í lind- inni minnkað mikið, er aðeins um 30% af því sem venjulegt er, og því getur skelfiskvinnslan ekki farið í gang með eðlilegum afköstum,“ sagði Kristján. 8500 tonn. Það er svipuð tala og verið hefur síðustu árin. Skelbáturinn Ársæll SH 88 úr Stykkishólmi fór í síðasta túr sinn á vertíðinni í síðustu viku og frétta- maður DV var með i ferðinni. Hörpu- skelin er veidd í svokallaða skel- plóga. Sandur og skeljabrot em hreinsuð frá um borð, vöðvinn og stundum hrognin tekin úr og fryst í landi og enda svo á diskum sælkera vestan hafs og austan. Góður afli hjá Arsæli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.