Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1995, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1995, Blaðsíða 33
MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1995 Kristín Jónsdóttir frá Munka- þverá sýnir á Kjarvalsstöðum. Tvær sýning- ar á Kjarvals- stöðum Tvær sýningar voru opnaðar á Kjarvalsstöðum um helgina. í miðsal er sýning á verkum Krist- ínar Jónsdóttur frá Munkaþverá og í vestursal gefur að líta stein- þrykksmyndir Bítilsins Johns Lennons. „Kristín hefur markað sér sér- stöðu með veflistinni því hún licfur lcyft sér aö útvíkka mynd- mál veflistarinnar og notar til Sýningar þess tilvísanir í heföbundið letur og setningar sem hún læðir inn í þráðinn," segir Gunnar Kvaran. forstöðumaður Kjárvalsstaöa. Gunnar sagöi einnig að sýnt væri yfirlit yfir teikningar sem John Lennon gerði á 10-15 ára tímabili og aö það riíjaði upp að Lennon ætlaði sér hluti í mynd- listinni áöur en hann byrjaði í tónlistinni. Samfara sýningunni á verkum Lennons er mögulegt að kaupa númeraðar steinþrykksprentanir af myndunum á sýningunni og mun Listasafn Reykjavíkur hafa milligöngu um sölu á þeim. Það er nauðsynlegt að vita hvað timanum liður. Nákvæm klukka Flóknasta og nákvæmasta klukka í heimi (með tannhjóla- verki) er Olsen-klukkan í ráðhús- inu í Kaupmannahöfn. Klukkan var 10 ár í smíðum (fullgerð í desember 1955) og er samsett úr yfir 14.000 hlutum og sýnir tím- ann á 570.000 mismunandi vegu. Olsen-klukkan er 50 sinnum nákvæmari en bestu klukkur sem til voru fyrir og skeikar aö- eins um hálfa sekúndu á 300 árum. Blessuð veröldin Elsta úrið Elsta úr í heimi var járnúr. gert af Peter Henlein í Núrnberg í Þýskalandi u.þ.b. 1540 og er nú geymt í Memorial Hall í Fíladelfíu í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum. Fyrstu armbandsúrin eru frá 1790, gerð í Genf í Sviss. Minnsta úrið Minnsta úr í heimi er framleitt hjá svissneska fyrirtækinu Jaeg- er Le Coultre. Það hefur 15 steina í gangverki sínu, er rúmlega 1,2 sentímetrar á lengd og 0,476 sentí- metrar á breidd. 1 OO 45 Listaklúbbur Leikhúskjallarans: Sænski vísnasöngv- arinn Jan O. Berg í kvöld mun sænski vísnasöngv- arinn Jan O. >Berg koma fram í Listaklúbbi Leikhúskjallarans ásamt gítarleikaranum Erik Möll- erström en þeir flytja ljóð eftir hiö ástsæla þjóðskáld Svía, Carl Mic- hael Bellman og segja frá skáldinu Skemmtaiúr og verkum þess. Jan O. Berg hefur helgað mestan lfiuta lífs síns söng og tónlistar- flutningi en hann starfar einnig sem hagtræðingur. Hann hefur Jan O. Berg. sungið í fjölda kóra, m.a. í Háskóla- kórnum í Stokkhólmi og Uppsölum og Konunglega Óperukórnum. Jan O. Berg hefur einnig starfaö sem höfundur, söngvari og leikari í rev- íuleikhúsi sem á sér langa hefð við Stokkhólmsháskóla. Hin síðari ár hefur hann í æ ríkara mæli lagt áherslu á flutning laga eftir stór- skáldið Bellman og getið sér gott orð á þeim vettvangi. Jan O. Berg og Erik Möllerström, sem kennir við tónlistarskóla í Stokkhólmi og Maríuhöfn og rekur einnig gitarskóla, koma hingað í tengslum við Sólstafi, norrænu menningarhátíðina. Dagskráin í Listaklúbbnum hefst um kl. 20.30. Leið3: Mjódd-Nes Strætisvagnar aka þessa leið á 20 mín. fresti alla virka daga frá kl. 7-19 en á hálftíma fresti eftir þann tima. Á laugardögum er ekið á hálftíma fresti frá kl. 7 en á helgidögum hefst Umhverfi aksturinn kl. 10 en stendur einnig til nfiðnættis eins og alla aðra daga. Farþegum er bent á aö hægt er aö kaupa farmiðaspjöld og gi-æna kortið á Hlemmi, í biðskýlinu á Lækjar- torgi, biðskýlinu við Grensásveg eða i skiptitöðinni í Mjódd. Þá eru far- miðaspjöld einnig seld i afgreiðslum sundstaða borgarinnar og hjá upp- lýsingaþjónustu í Ráðhúsinu. SELTJARNARNES irströnd, afnun fartorg y Hlemmur hlíðar^N^0^^ )) ýiksv® . kEfTI fri ftPom '^MELAR ÞINGHOu Mjódd ~ Nes Frá Suðurströnd - Meistaravt Hlemmur - Efstaleiti - Mjódd Hlemmur - Lækjargata - Mei éjltr -LækjBrtorg - . Mjódd, f ~ Efstaieiti - , í:,:- tímaiöfnun istaravellir - Suðurströnd íslendingur í Kaupmannahöfn Fallega daman á myndinni kom í heiminn 16. janúar kl. 20.18 á Herlev sygehus í Kaupmannahöfn. Stúlkan var 3700 grömm þegar hún Bam dagsins var vigtuð og 53 sentímetrar á lengd. Foreldrar hennar eru María Sigmundsdóttir og Rafn Yngvi Rafnsson en hann er við nám í D.T.U. þar í borg. Þetta er fyrsta bam þeirra hjóna. Myndin gerist á siðasta áratug kalda stríðsins. Barcelona í Regnboganum er nú verið að sýna kvikmyndina Barcelona en hún hefur vakið eftirtekt og feng- ið góða aösókn þrátt fyrir að ekki séu þekktir leikarar til að vekja athygli á myndinni. í Barcelona fylgjumst við með rómantísku og pólitísku ferðalagi tveggja ungra manna á Spáni á síðasta áratug kalda stríösins. Þetta eru dýrðardagar diskóteks- ins en þeir félagar eiga eftir að Kvikmyndir komast að því að Bandaríkja- menn eru óvinsælir, svo ekki sé talað um hermenn í NATO. Leikstjóri myndarinnar, hand- ’ ritshöfundur og framleiðandi er Wilt Stillman en hann á eina mynd að baki, Metropolitan, sem vakti ekki síður athygli fyrir Qór- um árum og hlaut m.a. annars óskarstilnefningu. í Metropolitan léku Taylor Nic- holas og Chris Eigeman en þeir leika félagana tvo í Barcelona. í öðrum stórum hlutverkum eru Tushka Bergen og Mira Sorv ino. Nýjar myndir Háskólabió: Ekkjuhæð Laugarásbíó: Corrina, Corrina Saga-bíó: Leon Bióhöllin: Afhjúpun Stjörnubíó: Á köldum klaka Bíóborgin: Afhjúpun Regnboginn: Barcelona Gengið Almenn gengisskráning LÍ nr. 44. 17. febrúar 1995 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 65,700 65,900 67,440 Pund 104,100 104,420 107,140 Kan. dollar 46,430 46,610 47,750 Dönsk kr. 11,2160 11,2610 11,2820 Norsk kr. 10,0960 10,1370 10,1710 — Sænsk kr. 8,9670 9,0030 9,0710 Fi. mark 14,2270 14,2840 14.2810 Fra. franki 12,7380 12,7890 12,8370 Belg.franki 2,1499 2,1685 2,1614 Sviss. franki 52.4300 52,6400 52,9100 Holl. gyllini 39,5100 39,6700 39,7700 Þýskt mark 44,3300 44.4600 44,5500 It. lira 0,04100 0,04120 0,04218 Aust. sch. 6,2900 6,3210 6,3370 Port. escudo 0,4276 0,4298 0,4311 Spá. peseti 0,6091 0,5117 0,5129 Jap. yen 0,67650 0,67750 0.68240 Irskt pund 103,520 104,040 105,960 SDR 97.69000 98,18000 99,49000 ECU V 83.2100 83,5500 84,1700 Símsvari vegna gengisskráningar 623270. 9 9*1 7*00 Verö aöeins 39,90 mín. Fótboiti Handbolti Körfubolti Enski boltinn ítalski boltinn Þýski boltinn Önnur úrslit NBA-deiidin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.