Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1995, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 1995
7
Fréttir
Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra:
Markaðsvernd minni en áður
- segir skýrslu Hagfræðistofnunar vera marklaust plagg
„Stuðningur viö landbúnaðinn,
mældur á mælikvarða OECD og sem
að verulegu leyti felst í reiknaðri
markaðsvernd, hefur minnkað meir
hér en í nálægum ríkjum síðustu ár
og er nú á svipuðu stigi og í Noregi,
Finnlandi, Sviss og Japan,“ sagði
Halldór Blöndal landbúnaðarráð-
herra við setningu Búnaðarþings á
Raufarhöfh:
Skelfilegt
ástand
hjá trillu-
körlunum
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ástandið hjá trillukörlunum
hér hefur verið mjög erfxtt væg-
ast sagt i vetur og þeir eru ekki
margir dagarnir sem þeir hafa
getað róið síðan í október," segir
Gunnlaugm- Júlíusson, sveitar-
stjóri á Raufarhöfn.
Gunnlaugur segir að tíðarfariö
hafi veriö skelfilegt fyrir trillu-
karlana og svo hafi bæst við að á
banndögunum hafi veriö ágætis
veður en þá hafi þeir orðið að sitja
heima. „Náttúran sjálf er auðvit-
að besti banndagaúthlutarinn
fyrir þessa litlu báta og mér finnst
að þegar svona ótíð er eins og
verið hefur í vetur eigi banndag-
arnir að falla niður," segir Guim-
laugur.
Trillukarlamir vinna jafhan
við loðnubræöslu á veturna en
loðnan hefur brugðist að veru-
legu leyti síðan í haust og lítið
verið að gera í bræðslunni.
Trillukarlarnir hafa því verið á
atvinnuieysisbótum lengst af
vetrar en eru nú farnir aö und-
irbúa grásleppuvertíð sína af full-
um krafti.
mánudaginn og vitnaði til óbirtrar
skýrslu OECD um íslenskan land-
búnað.
Fram kom í máli Halldórs að
skýrslan yrði fyrst gerð opinber í
maí. Engu að síður hélt hann þvi
fram að skýrslan staðfesti málflutn-
ing sinn í deilum um þessi mál fyrir
tveimur árum. Þá andmælti Halldór
þeirri fullyrðingu Hagfræðistofnun-
ar Háskólans að íslenskur landbún-
aður nyti meiri markaðsverndar en
gengur og gerist í heiminum. „Því
er óhætt að stinga undir stól marg-
umræddri skýrslu Hafgfæðistofnun-
ar Háskólans sem marklausu
plaggi," sagði Halldór á þinginu.
Skýrslan sem Halldór vitnaöi til
hefur verið í vinnslu hjá OECD í
París undanfarin misseri. Sam-
kvæmt upplýsingum sem DV aflaði
sér hjá Þjóðhagsstofnun hefur upp-
kast að skýrslunni verið til skoðunar
hjá stofnuninni um nokkurt skeið.
Hjá Hagfræöistofnun vildu menn
ekki tjá sig um ummæli Halldórs þar
sem þau væru pólitísks eðlis. Einn
af hagfræðingum stofnunarinnar
benti þó á að í skýrsludrögum OECD
væri ekki fjallað um skýrslu Hag-
fræðistofnunar. Skýrsla OECD feli
þar aö leiðandi ekki í sér neinn dóm
um útreikninga Hagfræðistofnunar.
-kaa
Nýja flotkvíin sem verið er að smíða fyrir Akureyringa í Litháen er engin smásmíði eins og sjá má á myndinni.
Flotkvíin væntanleg til Akureyrar:
Grafa þarf út um
150 þúsund rúmmetra
Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyri:
„Við erum búnir að bjóða út gröft-
inn fyrir flotkvína en það er mikið
verk því það þarf að grafa út um 150
þúsund rúmmetra,'1 segir Guðmund-
ur Sigurbjörnsson, hafnarstjóri á
Akureyri, en flotkvíin, sem Akur-
eyrarbær hefur keypt frá Litháen,
er væntanleg til landsins í júní.
Vinnan við útgröftinn vegna stað-
setningar kvíarinnar á athafnasvæði
SUppstöðvarinnar Odda verður mik-
il. Grafa þarf niöur á 13 metra dýpi
og kvíin sjálf er engin smásmíði, eða
100 metra löng og ríflega 30 metra
breið.
Þessa dagana eru að berast tilboð
um drátt á kvínni frá Litháen til
Akureyrar en áætlað er að sú ferö
taki allt að tveimur vikum. Guð-
mundur Sigurbjörnsson segir að
reikna megi með að kostnaður viö
það ferðalag muni nema allt að 10
milljónum króna.
Súðavík:
Flutt í 15 bústaði
Heiðar Guðbiandsson, DV, Súðavík:
Súðvíkingar eru fluttir inn í 15 af
18 sumarbústöðum. Búist er viö að
flutt verði inn í síðustu þrjá bústað-
ina á næstu dögum.
Tillögur að nýju aðalskipulagi fyrir
þorpið verða opnaðar í vikunni.
' Nýtt ^
kvöldverðartilboð
10.3-16.3
Kr. 1.950
Nýr, spennandi
sérréttamatseðill
„One for Two“
klúbbfélagar
velkomnir
sunn ud.-föstud.
Opið:
i hádeginu miðvikud.-föstud.
á kvöldin miðvikud.-sunnud.
Laugavegi 178, s. 889967
Þér eru allir vegir ferir með Macintosh Performa 475
iiiwitpyiBiwwffwiiWP
a* ‘V’S m
K ' J . U DJkoHiv*
íýtncnrt'é~~l
.uJ wJ &r. i ir.l 11
miðOheimar
h ttp :!lwww, apyj k:,k! s
Macintosh Performa 475 er öflug einkatölva, sem
hentar sérlega vel hvort heldur er íyrir heimili,
skóla eða fyrirtæki. Hægt er að nota hana fyrir nánast
allt sem viðkemur námi, starfi eða leik.
Svo er hún með íslensku stýrikerfi og fjölmörgum
forritum á íslensku.
Macintosh Performa 475 er með
15" Apple-litaskjá, stóru hnappaborði, mús,
4 Mb vinnsluminni og 250 Mb harðdiski.
Verð aSeins: l»-2ö3( ll
a242,* “
110 000,-
TIL ALLT AÐ 36 MANAÐA g
RAÐGREIÐSLUR
WS4
TÍL ALLT AÐ 24 MANAOA
w
* Upphaeðin er meðaltalsgreiSsla me8 vöxtum, lántökulcostnaði og færslugjaldi. 36 x 4.242,- Irr. = 152.712,- kr.
Apple-umboðið hf.
Skipholti 21, sími: (91) 62 48 00