Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1995, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 1995
9
i> v Stuttar fréttir
Portúgalarrótegir
Portúgalar ætla ekki aö gera
flskveiðideilu ESB við Kanada aö
tvihliða deilu.
Loka herstöðvum
Þjóðverjar ætla að loka nítján
herstöðvum og fækka starfsfólki
á 28 til viðbótar.
Chirac með yfirburði
Jacques
Chirac, borgar-
stjóri I’arísar,
hefur tíu pró-
sentustiga for-
skot á Edouard
Balladur for-
sætisráðherra
fyrir forseta-
kosningarnar, samkvæmt nýrri
skoðanakönnun.
Níuiétust
Níu franskir friðargæsluliðar
fórust í bílslysi nærri Sarajevo í
gær.
Á heimleið
Fjögur hundruð breskir her-
menn eru aö tygja sig til heim-
feröar frá Norður-írlandi. -
Tvísýnthjá Dini
ítalska þingið greiðir atkvæði
um fjárlög Dinis forsætisráö-
herra í dag og er tvísýnt um úr-
sht.
Burtfráþorpum
Mexiókóstjórn ætlar aö draga
hermenn burt úr þorpum á slóð-
um uppreisnarmanna i suöri til
að stuðla aö viöræðum.
Dúdajev vígreif ur
Dúdajev, leiö-
togi uppreisn-
armanna i
Tsjetsjeníu,
hótaði í viðtali
sem birtist í
gær aö gera
árásir á rúss-
neskar borgir
en
rússnesk yflrvöld sögðu hann
vera aö plata einu sinni enn.
Aftökur í Sádi-Arabíu
Þrír hafa veriö teknir af líÐ í
Sádi-Arabíu fyrir morö og brugg.
Múslímarteknir
Franska lögreglan handtók
fjórtán menn sem grunaðir eru
um aö vera herskáir alsírskir
bókstafstrúarmenn.
Krefstfangelsunar
Saksóknari í Frakklandi hefur
krafist fangelsisvistar yfir for-
manni sósíalistaflokksins.
Vændiútlægt
Sænsk nefnd hefur lagt til að
vændi verði gert útlægt.
Castro ánægður
Fidel Castro
Kúbuleiötogi er
ánægöur með
þær konung-
legu viðtökur
sem hann hefur
fengið I fyrstu
opinberu heim-
sókn sinni til
Frakklands en þar eru ekki allir
á einu máli um ágæti heimsókn-
arinnar.
Christopher kátur
Christopher, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, er kátur með að
hafa taliö ísraela og Sýrlendinga
á að ræða saman.
VerkfaN
Verkföll opinberra starfs-
manna í Finnlandi eru aðalum-
ræðuefni fyrir kosningarnar á
SUnnudag. Reuter
Útlönd
Þekktir mafíubófar drepnir á Sikiley 1 gærkvöldi:
Myrtir í fyrirsát
við heimili sitt
Feðgar úr alræmdri glæpafjöl-
skyldu á Sikiley voru vegnir úr
launsátri í gærkvöldi þegar þeir óku
að heimili sínu í bænum Villabate,
skammt frá héraöshöfuðborginni
Palermo. Þá hafa ellefu veriö myrtir
frá því sikileyska mafían hóf víga-
ferli sín að nýju fyrir tæpum þremur
vikum.
Byssumenn létu kúlnahríðina
dynja á bíl þeirra Giuseppes Di Per-
is, 46 ára, og 23 ára sonar hans, Sal-
vatores. Ódæöismennirnir komust
undan á flótta. Eiginkona Di Peris
ók bíl bónda síns, með þeim feögum
sundurskotnum, á sjúkrahús í ör-
væntingarfullri tilraun til að bjarga
lífi þeirra.
Tcdiö er að feðgarnir hafi verið
myrtir í hefndarskyni fyrir mann úr
óvinafjölskyldu þeirra sem var drep-
inn 2. mars.
Giuseppe Di Peri var sonur Gio-
vannis Di Peris mafíuættarhöfðingja
sem var myrtur árið 1981. Á þeim
tíma var fjölskyldan í slagtogi með
hópum sem lutu stjóm æðsta mafíu-
foringjans, Salvatores „Totos“ Riin-
as, sem nú dúsir í ítölsku fangeísi.
Enn einn meðlimur Di Peri-fjöl-
skyldunnar, Sarafino, varð fyrir
einni af fyrstu bílsprengjunum á Sik-
iley áriö 1963. Hann slapp lifandi frá
henni en saklaus vegfarandi týndi
lífinu.
Meö moröunum í gærkvöldi er tala
myrtra komin upp í ellefu frá því
vígaferli mafíunnar hófust aö nýju
eftir um tveggja ára rólegheitatíma-
bil. Að minnsta kosti tvö fórnarlamb-
anna ellefu hafa verið ættingjar upp-
ljóstrara sem hafa átt samvinnu viö
rannsóknardómara. Lögreglan segir
aö tilgangur nýja mafiustríðsins sé
aö styrkja vald ættanna i kjölfar
handtöku Riinas fyrir tveimur árum
og að þagga niður í hugsanlegum
uppljóstrurum.
Allir hinir myrtu að undanfórnu
hafa verið drepnir í kúlnaregni,
fremur en með hinni hefðbundnu
aðferö ættastríða mafíunnar, „lup-
ara bianca" eða hinni hvítu hagla-
byssu. Þegar þeirri aðferö er beitt
hverfur fólk sporlaust og er þá talið
næsta víst aö mafían hafi drepið það.
Reuter
Fyrsta norska
strútseggið
íheiminn
Gísli Knstjánsson, DV, Ósió:
Fyrsta norska strútseggið er
komið í heiminn en einn af fugl-
um Noregsstrúta hf. í Þrændalög-
um varö léttari i vikunni. Eggiö
er um eitt kíló að þýngd, alveg
heilt og óbrotið.
Bændur í Þrændalögum brydd-
uðu upp á þeirri nýjung í vetur
að flytja inn 44 strúta. Hyggjast
þeir nýta fjaðrir þeirra og egg.
Strútarnir hafa dafnaö vel þrátt
fyrir vetrarkulda. Reiknaö er
með aö fyrstu fjaðrirnar fáist af
strútunum í sumar.
Guðrún Haraldsdóttir læknamiðili
lætur langþráðan draum sinn rætast eftir átján ára starf með
því að opna í þessari viku aðstöðu að Njálsgötu 26. Guðrún
hefur áhuga á að fá með sér samstarfsaðila sem starfar af
sömu hugsjón, að starfa ekki gegn föstu gjaldi heldur af frjáls-
um framlögum. Með þessari nýju aðstöðu getur Guðrún
læknamiðill boðið upp á aðstöðu fyrir fámenna hópa á kvöldin og um helgar.
Guðrún mun þakklát þiggja frjáls framlög til að fullgera húsnæðið. Hún hefur
lagt þessa vinnu á sig til að lifa eftir eigin hugsjón og sannfæringu. Þeir sem
vilja geta lagt frjáls framlög inn á reikn. 1121-26-233 í Sparisj. Hafnarfjarðar,
útibú, Garðatorgi 1, Garðabæ.
Símatimi hjá Guðrúnu læknamiðli er kl. 10-12 og kl. 17-19 í sima 62 30 29.
Þeir sem tilnefndir eru til óskarsverðlauna í ár hittust í málsverði banda-
risku kvikmyndaakademiunnar i gær. Á myndinni eru John Travolta, til-
nefndur fyrir aðalhlutverk i myndinni „Pulp fiction" og Tom Hanks, tilefndur
fyrir aðalhlutverk i „Forrest Gump“, ásamt eiginkonum sínum.
Símamynd Reuter
Óeiröir breiðast út í Tyrklandi:
Blóðug átök við
lögreglu
Bylgja mótmæla og blóöugra átaka
í Tyrklandi náöi til höfuðborgarinn-
ar Ankara og nokkurra borga í vest-
urhluta Tyrklands í gær, eftir tveggja
daga mannskæð átök í Istanbul þar
sem ailt að 20 manns létust, hundruð
særðust og um 100 voru handteknir.
Lögregla beitti í gær kylfum, spraut-
aði vatni og sigaði hundum á mót-
mælagöngu í Ankara sem stefndi á
þinghúsið. Mótmælendur, vopnaðir
bareflum og grjóti, reyndu að brjóta
vegatálma lögreglunnar á bak aftur
og þá sauð upp úr.
Bílsprengja sprakk í Istanbul í gær
og drap eina konu en dagurinn var
tiltölulega rólegur eftir blóöug átök
sem hófust á sunnudag í Gazi, hverfi
í Istanbul þar sem alawite-múslímar
búa, en þeir eru minnihlutahópur í
Tyrklandi. Átökin hófust eftir að
skothríð var beint að kaffihúsum þar
sem einn maður lést. Skotmennirnir
í Ankara
stoppuðu einnig leigubíl og drápu
bílstjórann. í kjölfarið sauð upp úr
með fyrrgreindum afleiðingum.
Fjöldi manns hunsaöi útgöngu-
bann í Istanbul í gærkvöldi en ekki
kom til verulegra átaka. Samninga-
viöræður lögreglu og alawite-mús-
líma, sem enn eru í viðbragðsstöðu
í götuvígjum, báru ekki árangur i
gær.
Alawite-múslímar eru um þriðj-
ungur tyrknesku þjóðarinnar. Þeir
eru andsnúnir þeirri heittrúarstefnu
sem riðið hefur yfír landið undanfar-
in misseri og segja sér vera mismun-
aö af meirihluta sunni-múslíma.
Stjómmálaskýrendur og leiötogar
alawite-múslíma segja átök síðustu
daga bera megnri óánægju vitni og
að fólk hafi misst trúna á núverandi
stjórnvöld undir forystu Tansu Ciller
forsætisráðherra.
Frá menntamálaráðuneytinu
Laus er til umsóknar staða rektors við Mennta-
skólann í Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 5. apríl 1995.
Menntamálaráðuneytið
13. mars 1995
VIÐ VITUM HVAÐ
unolinqarnir viua
Verðdæmí: Skrifborðsstóll nr. 15
kr. 9.740,- án arma
kr. 15.190,- með örmum
Míkið úrval af fermingarhúsgögnum
gb
flúsgagnahölltn
BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 5871199