Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1995, Side 4
4
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1995'
Fréttir
Ágreiningur var í Súðavík um framgöngu í hreinsunarstarfi:
Vinnuvélaeigendur deildu
við slökkviliðsmennina
- sumir vildu að öll verksummerki eftir snjóflóðið yrðu afmáð, segir í skýrslu slökkviliðsins
„Það var ágreiningur meðal heima-
marnia um framgöngu í hreinsunar-
starfinu. í framhaldi af því fórum við
af staðnum. Við höfðum aðrar hug-
myndir en hluti heimamanna um
það hvemig ætti að standa að þessu,“
segir Gunnar Öm Pétursson, varð-
stjóri hjá Slökkviliðinu í Reykjavík,
sem var í hópi sérþjálfaðra slökkvi-
liðsmanna sem sendir vom til Súða-
víkur eftir snjóflóðin í janúar til að
hafa umsjón með hreinsunarstarf-
inu.
Þaö vekur athygli að í framhaldi
af ágreiningi slökkviiiðsmannanna
og heimamanna fóm slökkviiiös-
mennimir frá Súðavík og hættu þar
með starfi á vettvangi þrátt fyrir að
þeir væm þrautreyndir að vinna
undir þessum kringumstæðum.
í greinargerð slökkviliðsmanna,
sem fóm til Súðavíkur fyrstu dagana
eftir snjóflóðið 16. janúar, kemur
fram að ágreiningur var meðal
nefndarmanna sem stjómuðu
hreinsunarstarfinu um það hvemig
að hreinsun væri staðið. Föstudag-
inn 27. janúar segir í skýrslu
slökkviliðsmannanna: „Ekki var full
samstaða hjá nefndarmönnum um
framhaldið. Sumir vildu að öll verk-
summerki snjóflóðsins yrðu flarlægð
en aðrir vildu aö farið yrði hægar
og heimamenn ynnu verkið aö mest-
um hluta. Ágreiningur þessi leiddi
til þess að vinnuvélaeigendur á
staðnum, sem höfðu hagsmuna að
gæta, héldu því fram að við úr
Reykjavík væmm að ákveða umfang
verksins," ^egir í dagsskýrslu
slökkviliðsmannanna þann 27. jan-
úar 1995.
Gunnar Öm segir að venjan sé þeg-
ar slys verða að reynt sé að koma
af vettvangi fómarlömbum og þeim
sem tengjast atburðum með ein-
i v •« "•m*>»**'%» «• ♦ , »«•«*>♦. i* • - • —
4 f >
’MIV'
■ . s \ \. ♦ . X S , v \\ ' *
rr-i....... V 'r's
5 1
J
E/v
Heimamenn í Súðavik deildu um hreinsunarstarfið og sökuðu sérþjálfaða slökkviliðsmenn frá Reykjavik um aö
taka af þeim völdin. Myndin er frá haugnum sem geymir húsarústir og persónulegar eignir þeirra sem lentu i
snjóflóðinu. . DV-mynd Brynjar Gauti
hverjum hætti. Hann segir slökkvi- utan um þetta. Ástandið á staðnum óskað," segir Gunnar Örn.
liðsmenn vera þrautþjálfaða í að og fólkinu var þvílíkt að við vorum Fórnarlömb Súöavíkurslyssins
vinna við þær kringumstæður sem að reyna að styðja fólk og grípa inn hafa gagnrýnt harkalega það offors
vom í Súðavík. í þar sem þurfti. Við vorum tilbúnir og stjómleysi sem átt hefur sér stað
„Við vorum bara að reyna að halda til að vera áfram hefði þess verið við hreinsunarstarfið og að ekki hafi
verið haft samband við þau áður en
byrjað var að fjarlægja leifar húsa
þeirra og búslóða. Jón Gauti Jónsson
sveitarstjóri og hreinsunarnefndin í
Súðavík hafa gefið út greinargerð þar
sem ásökunum syrgjendanna er vís-
að á bug. Þar segir að haft hafi verið
samband við „eigendur og/eða full-
trúa þeirra sem misstu húsin sín í
flóðinu" fyrir fimmta fund fram-
kvæmdanefndarinnar sem haldinn
var 26 janúar.
Þá segir í greinargerðinni: „undir-
ritaður reiknar með að þessir syrgj-
endur sjái ekki þessa hluti með sömu
augmn og við hin“. Greinargerðin
hefur hleypt illu blóöi í það fólk sem
gagnrýnt hefur framkvæmd yfir-
valda í hreinsunarstarfinu. Beglind
Kristjánsdóttir, sem missti þijú böm
í snjóflóðinu, segir greinilegt að með
þessari greinargerð séu yfirvöld að
þvo hendur sínar á kostnað þess
fólks sem varð harðast úti 1 hamför-
unum.
„Staðreyndirnar um það hvernig
þetta var framkvæmt í Súðavík blasa
alls staðar við ef fólk vill sjá þetta.
Ég vil ekki að þeir þvoi af sér skömm-
ina og klúðrið á okkar kostnaö. Þess-
ir menn eiga einfaldlega að viður-
kenna sín mistök og allt sitt skipu-
lagsleysi," segir Berglind.
Hún segir að í greinargerðinni fel-
ist hrein ósannindi þar sem sagt er
að alls staðar hafi fengist leyfi til aö
fjarlægja hús og eigur. Hún segir
sárt að fólk sem hún þekki og sumt
hafi jafnvel veriö vinir hennar skuli
standa að slíkum óhróðri sem í grein-
argerðinni felst.
„Þetta er allt fólk sem við þekktum
vel. Það hefði vel getaö hringt til
okkar og annarra þeirra sem standa
í svipuðum sporum," segir Berglind.
-rt
AMSUN
BYÐUR TIL
^ífUINDÍMÓK °
í Fjölnishúsinu í Grafarvogi
% flprðlklá lllddiði 17i0§
5lf Úrslit hefjast Id. 14:00 gf
i\ -h
i
■H
i
\
Nýr Mazda 323 verður frumsýndur hjá Ræsi hf. um helgina.
Ræsirhf.:
Nýr Mazda 323 frum-
sýndur um helgina
Nýr Mazda 323 verður frumsýndur
þjá Ræsi hf. nú um helgina. Bíllinn
kemur, líkt og fyrirrennarinn, í
þremur megingerðum, þriggja hurða
hlaöbakur, flögurra hurða stallbak-
ur og fimm hurða F-hlaðbakur.
Þetta er alveg nýr bíll frá grunni.
Útlitið er nýtt og gangverk að nokkru
leyti líka, m.a. tvær nýjar vélar, 1,5
lítra, 88 hestöfl og V6-vél, 24 ventla
og 145 hestöfl.
Þessar nýju gerðir Mazda 323 eru
með mun mýkra útliti en fyrirrenn-
aramir og þá sérstaklega stallbakur-
inn. Hlaöbakurinn er með sportlegu
yfirbragöi og F-gerðin er líkt og eldri
bíllinn nokkuð sérstæð í útliti.
Þriggja hurða hlaðbakurinn er
ódýrastur, kostar frá kr. 1.429.000,
stallbakurinn er á verði frá kr.
1.444.000 og F-gerðin kostar frá kr.
1.767.000.