Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1995, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1995, Blaðsíða 21
\ \y\, LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1995 21 Hormónamafía sem svífst einskis -belgískur dýralæknir, sem tók stikkprufur, myrtur „Þegar ég var búinn aö ljúka eftirlits- ferð í sláturhús, þar sem ég tók stikkprufur, og fór í frakkann minn fann ég búnt af peningaseðlum í vas- anum. Svo fór ég að fá hótunarbréf, það var hringt í mig um miðja nótt, bíliinn minn var skemmdur og það var ráðist á mig.“ Þetta er frásögn belgísks dýra- læknis af aðferðum hormónamaf- íunnar sem svífst einskis til að vernda markað sinn. Hún hefur meira. að segja framið morð í þeim tilgangi. Karel van Noppen var einn þeirra dýralækna sem taka stikkprufur af nautakjöti í belgískum sláturhúsum. Hann var skotinn til bana í um 200 metra fjarlægð frá heimili sínu. Ein- hver sem villti á sér heimildir hafði hringt í hann og beðiö hann að vitja sjúkra kúa. Ben Johnson-buff Árið 1988 bannaði Evrópusam- bandið notkun vaxtarhormóna við nautgriparækt en bændur í fjölda landa hafa virt banniö aö vettugi. Þegar neytendur standa í þeirri trú að þeir séu að kaupa hreina afurð fá þeir oft Ben Johnson-buff eins og nautakjöt með hormónum í hefur verið kallað. Ben Johnson er sprett- hlauparinn sem setti heimsmet í 100 metra hlaupi meö anabóhska stera í blóðinu. Evrópusambandið safnar niður- stöðum stikkprufa sem gerðar eru í aðildarlöndunum en niðurstöðunum er haldið leyndum. Ástandið verst á Spáni Belgísku neytendasamtökin, Test Achats, gerðu rannsókn í Evrópu- sambandslöndunum á notkun horm- óna við nautgriparækt í fyrra. Ástandið var langverst á Spáni þar sem bændur nota vaxtarhormóna sem eins konar töframeðal. Næst- verst er það í Belgíu. Bændur í Frakklandi, Lúxemborg og Hollandi notuðu einnig talsvert af hormónum. í Danmörku fundust hins vegar eng- in merki um notkun hormóna. Núna fá belgískir bændur um 10 þúsund krónur fyrir nautgrip ef hormónar eru ekki með í spilinu. Ef dýrin eru hins vegar sprautuð með óleyfilegum efnum geta bændumir ! fengið þrefalt hærra verð. Milljarðavelta Giskað er á aö vaxtarhormóna- markaðurinn velti sem samsvarar milljörðum íslenskra króna á ári. Það er áUt lögreglunnar í Belgíu að hormónamir séu framleiddir í Aust- ur-Evrópu og þeim sé síðan smyglað til Belgíu. Nákvæm skipulagning Uggi að baki viðskiptunum sem teygi anga sína til margra starfsgreina. Lögreglan telur að tíu til fimmtán manna hópur nautgriparæktenda og fóðurframleiðenda stjómi dreifing- unni. Tii að fá að kaupa þurfi maður að þekkja mann og næstum ómögu- legt sé að fá menn til að koma upp um aðra í bransanum. í upphafi notuöu belgískir bændur gervihormóna í stórum skömmtum og þá var auðvelt að finna. En á átt- unda áratugnum var breytt um að- ferð og notuð blanda af eftirlíkingum kynhormóna sem erfiðara var aö uppgötva. 300 á sjúkrahús vegna eitrunar í lok níunda áratugarins komst efn- ið clenbuterol í tísku. Undir venju- legum kringumstæðum er efnið not- að við'asma því það slakar á vöðvum í öndunarfærunum. Clenbuterol er einnig sagt breyta efnaskiptunum þannig. að fita breytist í prótín. Vöðvamassinn verður því stærri. Fyrir þremur árum voru 300 Spán- verjar lagðir inn á sjúkrahús vegna eitrunar eftir að hafa borðað kálfalif- ur með clenbuterol-leifum í. Ein- kennin eru breytingar á starfsemi öndunarfæra, órói, kuldahrollur, höfuðverkur og óeðUlega hár hjart- sláttur. Þeir sem eru með veilt hjarta eiga hættu á að fá hjartastopp ef þeir fá of mikið magn af clenbuterol. í dag er clenbuterol það efni sem er mest notað til að auka vöðvamassa í naut- gripum. Herteftirlit í október síðastUðnum voru viður- lög við verslun með óleyfilega vaxt- arhormóna hert. Nú eiga menn á hættu sektir upp á tugi milljóna og aUt að fimm ára fangelsisvist. Nautgriparæktendur og sláturhús verða sjálf að borga andvirði 20 þús- und íslenskra króna fyrir hverja stikkprufu sem dýralæknar taka. Ef aukefni finnast geta yfirvöld ákveðið að láta eyðileggja kjötið eða aflífa dýrið. í kjöUar morðsins á Karel van Noppen hefur heilbrigöisráðherra Belgíu ákveðið að herða eftiriitið. Framvegis munu dýralæknar fá lög- reglufylgd þegar þeir fara í eftirUts- ferðir. Fram hafa komið tiUögur innan belgíska landbúnaðargeirans að taka upp hormónalöggjöf að hætti Banda- ríkjanna. Þar er leyfilegt að nota þrjá náttúrulega hormóna sem auka þó svo að evrópskir neytendur standi í þeirri trú að þeir séu að kaupa hollt vöxtinn. Endursagt úr Jyllands-Posten og hreint nautakjöt fá þeir oft Ben Johnson-steikur fyrir peninginn. Nautgriparæktendur hafa notað sér- stakan hormónakokkteil sem erfitt er að finna í kjötinu. Þeir hafa einn- ig notað efnið clenbuterol sem und- ir venjulegum kringumstæðum er gefið viö asma. Fyrir þremur árum voru 300 Spánverjar lagðir inn á sjúkrahús vegna eitrunar eftir að hafa borðað kálfalifur með clenbute- rol-leifum. AjLAJ FULLKOMIN SURROUND-HLJÓMTÆKI MX-115 ALVÖRU HLJÓMUR! TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR: • Digital FM/MW/LW útvarp með 20 minnum •140 watta magnari • Surround-hljóðkerfi • Karaoke-kerfi • Tímastilling og vekjari • Geislaspilari m. 30 minnum Tónjafnari m. 5 forstilltum og 3 stillanlegum stillingum Tvöfalt Dolby segulband með síspilun Innstunga fyrir heyrnartól Fullkomin fjarstýring og margt fleira... Dj £tóf®U i? J 'yJJÐSS ÍLöaN SIÐUMULA 2 • SIMI 568 90 90 ^ Alfræði unga fól Handbók heimilannaFERMING. ItHkKWKM 1 - >4; V.' . Wsjjk W-■’/''§ Œ „Ekltert sambærilegt rit er til á íslensku" Örnólfur Thorlacius, rektor GJOF sem fylgir eigandanum fram á fullorðinsár, því efni bókarinnar á sér engin aldurstakmörk. Gagnrýnendur kalla bókina HANDBÓK HEIMILANNA og það eru orð að sönnu. Fæst í næstu bókabúð. Verð far. 8,980,- Bókaklúbburinn Síðumúla 11, sími 581 3999 (áður Örn og Örlygur bókaklúbb
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.