Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1995, Blaðsíða 14
14
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1995
NÝlistamenn glenntu bakhlutann í áhorfendur og gerðu allt vitlaust:
Séníið étur ekki annað en
hverabakaðan þrumara
-sagði í Vísi fyrir30 árum-ætlunin að víkka sjóndeildarhring landans, segir Atli Heimir
„Markmiöiö var aö koma Islend-
ingum í samband viö erlenda
strauma. Láta þá sem upplifðu þess-
ar uppákomur fmnast þeir ekki sam-
ir og jafnir á eftir. Fá þá til aö líta
heiminn dálítiö nýjum augum, sjá
hann í nýju samhengi. Það má segja
aö þaö hafi eiginlega veriö markmið-
ið hjá öllu þessu flúxus- og happen-
ings-liöi þessara ára,“ segir Atli
Heimir Sveinsson tónskáld um komu
tveggja nýtónlistarmanna, Charlotte
Moorman frá Bandaríkjunum og
Nam June Paik frá Kóreu, hingað til
-lands fyrir rétt tæpum 30 árum.
Öskuhaugamúsík og
strip-tease-sýmng
Paik og Moorman voru meö uppá-
komu í Lindarbæ á vegum Musica
nova og var þaö Atli Heimir sem stóö
fyrir komu þeirra hingaö til lands.
Mikið var fiallaö um tónleikana, eins
og þeir voru kallaðir í blöðum. Vöktu
þeir mikla hneykslan almennings og
fiölmiðla, sem töluöu ýmist um ösku-
haugamúsík, „strip-tease“-sýningu
eða skripaleik enda gekk fiöldi fólks
út af listviðburöinum þetta maíkvöld
árið 1965. Talaöi dagblaðiö Tíminn
um aö áheyrendum, um 80 talsins,
heföu þótt öll met verið slegin í tón-
listarflutningi, „þar sem leikið var
jöfnum höndum á nakið hold, lög-
reglublístru og selló meö bundna
strengi."
Tonlistargagnrýnendur, blaða-
menn og lesendur fiölmiðlanna lágu
ekki á áhti sínu og var niðurstaða
þeirra á einn veg.
„Tónsmiöurinn Paik er orðaður viö
píanóleik og Charlotte Moorman er
séllóleikari, en umrædd hljóðfæri
komu næsta lítið viö sögu þetta
kvöld. Paik gekk t.d. nokkum sinnum
aö píanóinu og sló svo sem eina nótu,
labbaði sig síðan út í sal, settist þar
og beið drykklanga stund. Hins vegar
gerði hann ýmislegt annað. Spraut-
aði yfir sig raksápu og stráði þvotta-
dufti yfir, stakk síðan höfðinu niður
í þvottabala. Ennfremur henti hann
baunum yfir tiltölulega saklausa
áhorfendur. En líklega verður það
tiltæki Paiks lengst í minnum haft,
að hann leysti brækur sínar og sat í
svo hæpnu ástandi nokkrar mínútur
með bakhlutann að áhorfendum,"
sagði í Þjóðviljanum.
Atli hafði kynnst Paik þegar hann
var við nám í Köln árið áður. Paik
var meðlimur í svokölluðum Flúx-
us-hópi, ásamt fiölda annarra ein-
staklinga eins og Yoko Ono, Thoschi
Ischinagi, Stockhausen, Maurichio
Kakel og fleiri. Eftir að Atli kom heim
voru nokkur verk eða gjörningar,
sem þóttu nokkuð umdeildir, fiutt
eftir hann. Kom að því aö Atli var
beðinn að skipuleggja einhverja tón-
leika fyrir Musica nova.
Lófaskellir
á beran bjórinn
„Það varð úr að ég skrifaði Paik
og fékk hann til að koma hingað á
vegum Musica nova, þeir hefðu nú
geta,ð sleppt þessu „nova“, því þetta
reyndust bara íslenskir smáborgara-
drengir þegar upp var staðið. En þau
komu sem sagt hingaö þrjú, Paik,
Charlotte Moorman sellóleikari, sem
oft var kölluð Jóhanna af Örk, nýju
tónlistarinnar, og fiarstýrði róbót-
inn,“ segir Atli.
Þátt Moorman var ekki síður fiall-
að um í fiölmiðlum en þátt Paik. I
fiölmiðlum segir að „valkyrjan" Mo-
orman hafi komið fram á sviðið en
bundið saman strengina á knéfiðlu
sinni áður og ýmist strokið þá eða
barið. Á meðan stóð Paik yfir henni
og fækkaði fotum niður að beltisstað,
„en kvenmaðurinn gaf honum öðru
hverju vel úti látinn lófaskell á beran
bjórinn, og var það vitanlega atriði í
tónlistinni."
Penissinfónía
í lOþáttum
Atli segir að Paik hafi sett hluti í
undarlegt samhengi. „Hann spilaði
til dæmis Tunglskinssónötuna á
píanóiö og leysti niður um sig þannig
að það sást í þennan gula bossa.
Hann átti til að vera svolítið klám-
fenginn. Gerði penissinfóníu í 10
þáttum. Þau gerðu í því að ganga
nærri fólki en mér fannst margt af
því sem þau gerðu ákaflega innilegt
og fallegt þótt ég hafi aldrei séð það
sem hlutverk þessa listforms að
ganga nærri fólki.“'
Um annað atriði Moormans á
uppákomunni sagði í Þjóðviljanum.
„Einnig verður að geta þess, að litlu
síðar kom daman inn á sviðið í nátt-
kjólnum sínum, prílaði upp í stiga
Paik og Moorman hafa skilið eftir sig merkileg spor. Menn líta svolítið öðruvísi á þetta allt saman.
DV-mynd GVA
Kvenróbót
semskeitbaunum
Vísir gerði hins vegar stólpagrín
að öllu saman. Sagði að fyrir mistök
hefði óvart ekki komið neitt hljóð
þegar Paik beraði afturendann.
„Undir næstu hljómleika verður úr
þessu bætt, séníið étur nú ekki annað
en hverabakaðan þrumara og ætti
sá aftur parti túr að geta oröiö ein-
stæður í ný-íslensku tónlistarlífi og
ógleymanleg nautn þeim - því miður
allt of fáu - sem dá músíkk morgun-
dagsins..."
Annars hafði Paik tekið á móti
gestum, sitjandi á gólfinu í anddyri
Lindarbæjar leikandi sér aö eins
konar músíkvélmenni, fiarstýrðu.
Um vélmennið, sem í fiölmiðlum var
kallaö blikkstrákur þessa tríós, segir
Atli að það hafi verið eins konar
kvenróbót með brjóst „sem gat skitið
baunum aftur fyrir sig“.
í beinu sambandi
allan sólarhringinn
9*99*5697099
Aðeins 25 kr. mínútan. Sama verð fyrir alla landsmenn.
Svarþjónusta DV leiðir þig áfram
Þú hringir í síma 99-56-70 og velur eftirfarandi:
1 til þess aö svara auglýsingu
2 til þess aö hlusta á svar auglýsandans
^^1 (ath.I á eingöngu viö um atvinnuauglýsingar)
3 ef þú ert auglýsandi og vilt ná í svör
—• eða tala inn á skilaboöahólfiö þitt
4 sýnishorn af svari
»j>41 til þess aö fara til baka, áfram
eöa hætta aögerð