Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1995, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1995, Blaðsíða 37
49 LAUGARDAGUR 1. APRÍL.1995 Fordkeppnin: Yfir hundrað sendu myndir í keppnina Eitt hundrað og tíu stúlkur hafa sent myndir af sér í Fordkeppnina. Áhuginn er þvi jafn mikill og áður hvað fyrirsætustörf varðar. A und- anfómum árum hefur áhugi á fyrir- sætustörfum vaxið gríðarlega mikið hér á landi og á hverju ári senda um og yfir hundrað stúikur myndir af sér í keppnina. Myndirnar hafa nú verið sendar til Ford Models í New York þar sem valdar verða tíu til tólf stúlkur í úrslit. Úrslitakeppnin verður haldin á Hótel Borg 20. apríl. Áður en aö því kemur verða stúlkumar kynntar í helgarblaði DV. Þær munu fá nám- skeið í framkomu hjá Jónu Láms- dóttur í Módel 79 og á úrslitakvöld- inu munu þær sýna á tískusýningu. Sú stúlka sem sigrar í Fordkeppn- inni að þessu sinni hlýtur í verðlaun ferð til Parísar þar sem hún verður mynduð af tískuljósmyndara. Þær myndir munu skera úr um hvort hún tekur þátt í keppninni Supermodel of the World sem fram fer í sumar. Elísabet Daviðsdóttir, Fordstúlkan 1994, fékk samning við Ford Models í París þegar hún fór þangað í myndatöku fyrir ári. Hún starfaði í fyrrasumar í París en nú er hún í Mílanó á vegum Ford og gengur mjög vel. Elisabet Daviðsdóttir er Fordstúlkan 1994. DV-mynd Brynjar Gauti Þaö sem bfómin þatfnast Birna Willardsdóttir, Fordstúlkan 1993: Andlit íslenska vatnsins erlendis „Það hefur verið heilmikið að ger- ast hjá mér á undanfomum mánuð- um. Mér bauðst vinna í Lúxemborg í júní í fyrra og var þar fram að jólum við ýmis kynningarstörf. Maður að nafni Thomas, sem starfaði lengi hjá Valgeiri Sigurðssyni í Lúxemborg og tók síðan við rekstri hans á Black Death og fleiri vöram, bauð mér að gerast andlit fyrirtækisins. Hann sendi mig fyrst í skóla í London sem ég kalla nú bara mannasiðaskóla. Þar lærði ég að koma fram og tjá mig. Ég dvaldi þar í mánuð og það var mjög gaman. Eftir dvölina í Lon- don fór ég til Lúxemborgar þar sem ég starfaði síðan hjá Thomasi. Hann flytur út íslenskt vatn, vodka og margt fleira undir nafninu Ursus of Iceland," sagði Birna Willardsdóttir frá Dalvík sem var valin Fordstúlkan 1993. Bima hefur átt ævintýraríkt ár í útlöndum en er nú heima í fríi. Hún hefur ferðast víða, t.d. til Rússlands, Tékklands og fleiri austantjalds- landa. Fyrirtækið sem Birna hefur starfað hjá er að færa út kvíamar og er m.a. að byrja með matarkeðju og fatnað. Þá hefur fyrirtækið gert út tvo kappakstursbíla í keppninni Formula 1. „Ég hef farið á flesta þessa kapp- akstursleiki sem andlit þessa fyrir- tækis og dreifi m.a. auglýsingum. Einnig skreyti ég auglýsingar sem farið hafa á Rússlandsmarkað. Þetta hefur verið meiri háttar garnan," sagði Birna. Ákappaksturs- leikjum Flestir íslendingar kannast við Valgeir Sigurðsson sem rak eigið fyr- irtæki í Lúxemborg í áraraðir. Val- geir er nú að mestu fluttur til íslands en Thomas hefur tekið við rekstri fyrirtækisins. „Þetta er ekta kaup- sýslumaöur sem er með puttana í öllu,“ sagði Bima. „Hann hefur náð mjög góðum samningum við lönd í Austur-Evrópu og Japan.“ Bima býst viö að fara aftur til Lúx- emborgar en það starf verður þó ekki full vinna þannig aö hana langar jafnframt til að reyna fyrir sér á fyr- irsætumarkaðnum í London. „Starf- ið í Lúxemborg er aðeins nokkrir dagar í mánuöi hveijum. Hins vegar kynntist ég stúlku í London sem er tilbúin til að leigja með mér íbúð og þá langar mig að vera þar. Þijár umboðsskrifstofur í London era með myndir af mér og þær hafa allar tek- ið vel á móti mér. Síðan ætla ég bara að sjá til hvað úr verður," sagði Bima Willardsdóttir. Birna Willardsdóttir, Fordstúlkan 1993, hefur starfað í Lúxemborg undanfarin ár. DV-mynd ÞÖK taka sér tak. Vigdís Másdóttir, Fordstúlkan 1992: í fríi frá fyrirsaetustörfum Úrvals blómanæring fyrir allar plöntur POKON BLOMAÁBURÐUR „Það hefur lítið verið að gerast hjá mér að undanfomu. Ég hef verið í verkfalli en ég er nemandi í mennta- skólanum við Hamrahlíð," sagði Vig- dís Másdóttir, Fordstúlkan 1992, er DV hafði samband við hana. Vigdís, sem er að verða sautján ára, vakti mikla athygli þegar hún var valin Fordstúlka vegna ungs aldurs. Eftir keppnina og allt fram á síð- asta haust var Vigdís við fyrirsætu- störf hér heima en nú hefur hún tek- ið sér frí frá þeim. „Ég hef engan áhuga á fyrirsætustörfum eins og er,“ sagði hún. Vigdís hafði hugsað sér jafhvel að fara utan í sumar og starfa sem fyrirsæta en hún segist vera hætt við það. Hins vegar hefúr systir hennar, Heiðrún Anna Bjöms- dóttir, verið við fyrirsætustörf á ítal- íu og gengið mjög vel. „Ég held ég bíði þar fil ég verö svolítiö eldri,“ sagði Vigdis. <Ali: ItOllLM Vitaslíg 3 - Sími 626290 Opið miðvikudags- sunnudagskvölds Nektardans af bestu gerð öll kvöld. Nýjar dansmeyjar komnar! Ekki vera feiminn. Láttu sjá þig!!! Aðgangseyrir kr. 1.000. Drykkur innifalinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.