Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1995, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1995
27
Margot í sjónvarpssambandi við ráðuneytisstarfsmenn sina í Stokkhólmi.
Margot Wallström, menningarmálarádherra Svíþjódar:
Stýrir
ráðuneytinu
heiman frá sér
Á slaginu klukkan tíu á mánu-
dagsmorgnum kviknar rautt ljós í
fundaherbergi í Stokkhólmi og
myndavélar fara í gang. Um leið
birtist andlit menningarmálaráð-
herra Svíþjóðar, Margotar Walls-
tröm, á sjónvarpskjá í fundaher-
berginu. Starfsmenn ráðherrans,
sem hafa safnast saman í fundaher-
berginu, eru orðnir svo vanir því
að hafa samskipti við hana á þenn-
an hátt að þeir gleyma því að hún
er í 300 kílómetra fjarlægð í lítilli
íbúð í Karlstad sem er eins konar
útíbú menningarmálaráðuneytis-
ins.
Þegar morgunfundurinn hefst er
Wallström, sem býr í Hammarö í
um 5 kílómetra íjarlægð frá Karl-
stad, búin að aka níu ára syni sín-
um í skóla og yngri syni sínum, sem
er 16 mánaða, á dagheimili.
Wallström settist í stól menning-
armálaráðherra í október síðastl-
iðnum. Litla „ráðuneytið" hennar
i Karlstad er tilraun til að kanna
hvemig þessi nýjung í stjórnsýsl-
unni, að stýra ráðuneyti frá lands-
byggðinni, reynist. En ástæðan er
líka persónuleg.
Ráðherrann hefur greint frá því
í blaðaviðtali að fyrir þremur árum
hafi hún misst þriggja daga gamlan
son. „Líf okkar hjóna breyttist mik-
ið við þetta. Maður fer að velta því
fyrir sér hvað skipti í raun og veru
máh í lífinu.“
Þegar Wallström var boöinn ráð-
herrastólhnn varð hún að gera upp
við sig hvort hún vhdi sjá fjöl-
skyldu sína bara um helgar eða
rífa alla fjölskylduna upp með rót-
um og flytja til Stokkhólms. Áhugi
hennar á upplýsingatækni og sú
staðreynd að menningarmálaráðu-
neytið er ekki stórt varð til þess
að hún stakk upp á málamiðlun.
Wahström er í Stokkhólmi þrjá
daga vikunnar, þriöjudaga, mið-
vikudaga og fimmtudaga, en hina
dagana er hún á heimaslóðum.
Með þessum nýju stjórnarháttum
hefur ráðuneytið skilað betri ár-
angri og Wallström fullyrðir að
hún „sjái“ fleiri starfsmenn sína
heldur en ef hún væri ahan tímann
í Stokkhólmi því þá væri hún að
tala við þá í innanhússsíma. Með
nýju tækninni komi menn sér einn-
ig fyrr að efninu.
Það eru þó ýmsir sem gagnrýna
nýja fyrirkomulagið, bæði jafnað-
armenn og stjómarandstæðingar.
Gagnrýnendurnir segja það sóun á
almannafé og svo sé Wahström líka
að hugsa um eigin hag. Wallström
svarar gagnrýnendum fullum
hálsi. Haft var eftir henni í viðtali
að gagnrýnendur væru lamaðir af
hræðslu við þá tilhugsun að hægt
sé að stjórna annars staðar en frá
Stokkhólmi. Stjómmálamenn
þurfi hins vegar að fylgjast með
tækninni og þeirri staðreynd að
tæknin getur breytt lífi fólks.
Margot Wallström á heimili sínu ásamt eiginmanni sínum, Hákan Olsson, og yngri syni þeirra, Erik.
góðar óstæóur fyrir því áb velja
Kr. 1.140#W*
HONDA CIVIC
"... ég er nú búinn aö eiga þær þrjár, og þær haf a
reynst þannig aö þaö kemur bara ekkert annaö til
greina..."
"...sonur okkar ráðlagði okkur að kaupa HoncLa og
við ákváöum aö prófa. Og við sjáum svo sannalega
ekki eftir því..."
"...Af þvi aö mér finnst hann fallegur, þægilegur og
á mjög góöu verði..."
Honda á íslandi - Vatnagarðar 24 - S: 568-9900