Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1995, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1995, Side 8
8 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1995 BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR Borgartúni 3 -105 Reykjavík - Simi 91-632340 - Myndsendir 91-623219 íbúar í Þingholtum Boðað er til kynningar- og umræðufundar í Ráðhúsi Reykjavíkur (Tjarnarsal) þriðjudaginn 4. apríl nk. kl. 17.00. Þar verður kynnt umferðarskipulag í Þingholt- um og tillögur um útfærslu á gatnamótum Skothús- vegar-Laufásvegar-Þingholtsstrætis og Hellusunds. Borgarskipulag Reykjavíkur Orðsending frá menntamálaráðuneytinu varðandi iðnréttindi í símsmíði Þeir sem vilja afla sér iðnréttinda í símsmíði skulu sækja um þau til menntamálaráðuneytisins. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá mennta- málaráðuneytinu, sími 560 95 60, Félagi íslenskra síma- manna, sími 563 65 61, og Félagi tæknifólks í rafiðn- aði, sími 568 14 33. r7 Hveragerði S 117 m2 og 45 m2 bílskúr á rólegum stað í Hveragerði til sölu. Gott verð ef samið er strax. \UppL síma 98-31491 eða vs. 98-31451 (símsvari). OVERSEAS JOB OPPORTUNITIES PARC Technical Servtces is an international project management company with projects in nearly 30 countries worldwide. We now have an immediate requirement for personnel in the following category for our project in the former Yugoslavia. ENGINEERING MATERIALS OFFICER, WITH A RELEVANT DEGREE LEVEL QUALIFICATION AND A MINIMUM OF 8 YEARS EXPERIENCE IN THE ESTABLISHMENT AND MAIN- TENANCE OF MATERIALS STORES FACILITIES (IDEALLY COMPUTERISED SYSTEMS) RELATED TO BUILDING MAIN- TENANCE/CONSTRUCTION. The appointment will be on a 12 month contract, renewable, offering attractive overseas salaries, paid in US dollars, free accommodation, food and flights. Detailed CVs, to include a daytime phone contact and complete postal address, should be sent by FAX: (353) 1 842 9259 (Ire- land) OR call us at: (353) 1 842 9933. UPPBOÐ Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp að Dalvegi 7, (áhaldahúsi Kópavogs- kaupstaðar), laugardaginn 8. apríl 1995 kl. 13.30: AD-693 ES-664 FM-033 GG-364 GL-451 GS-910 GÖ-928 HF-977 HK-075 HP-299 HV-256 IB-121 IF-058 IP-825 IÖ-888 JK-076 JT-385 KE-629 KV-016 U-373 MR-327 OA-093 RT-470 SZ-815 YE-818 AU-704 ET-846 FU-579 GH-907 GL-861 GZ-048 HA-140 HG-358 HK-984 HR-411 HY-289 IC-490 IH-126 IP-952 JA-453 JL-860 JV-108 KF-175 KY-067 MA-283 MS-596 OA-115 RX-858 TG-345 YR-920 BF-692 EV-287 FU-913 GI-081 GL-953 GZ-593 HA-511 HH-130 HN-366 HR-778 HY-475 IC-693 IH-742 IR-015 JA-714 JM-446 JX-961 KF-339 LA-228 MA-883 MU-891 OP-888 RX-975 TY-968 ZY-733 BY-726 EÖ-712 FX-485 GI-090 GM-682 GZ-619 HB-857 HH-194 HN-707 HS-123 HÞ-969 ID-105 IK-009 IR-725 JB-511 JM-943 JÖ-633 KR-209 LB-248 MA-935 MY-471 OS-938 RY-540 UB-714 DV-749 FA-493 FY-041 GK-063 GO-783 GÞ-037 HD-389 HH-533 HO-445 HS-222 HÖ-799 ID-443 IN-477 IS-910 JB-512 JO-993 KD-139 KS-964 LF-520 MB-662 NH-391 PT-074 SB-059 UI-200 ER-744 FE-386 GA-981 GK-069 GR-056 GÞ-182 HD-750 HJ-456 HO-478 HS-304 IA-757 ID-584 IO-775 IV-530 JH-668 JP-771 KD-517 KT-489 LF-956 MC-210 NK-206 RH-142 SJ-818 VR-307 ES-399 FI-443 GE-038 GL-291 GS-269 GÞ-579 HD-928 HJ-853 HP-065 HT-161 IA-932 IE-019 IP-175 IZ-442 JI-429 JP-879 KD-871 KT-900 LG-047 MG-922 NT-597 RM-856 SV-742 YB-700 Prentarar, saumavélar, loftpressa, gufupressa, borð, peningakassi, Hyundai netkerfi, skipið Freyr KÓ-1711, vinnuskúr, Hagglund 1/2 snjóbíll, Hamac pökkunarvél, Apple Color & Nicon myndavélar, grillhellur, áleggshnífar, djúpsteikingarpottar, eldavél, kaeliskápar, pitsuofnar, frystikista, frystiskápur, hraðkælir fyrir kjöt, tölvuvog, uppþvottavél, Fiat-Alis hjólaskófla, Pólaris beltabifhjól, skrifborð, Istobal bílalyfta, logsuðutæki, IBM System Unit 9402-F02 ásamt ýmsum hugbúnaði, Caterpillar veghefill, sambyggður skolvaskur og stóll fyrir hárþvott, Linotype Mergenthaler tölvusamsetningar- vél, prentvél og skuldabréf. Eftirtalið lausafé verður boðið upp að Auðbrekku 13, Kópavogi, laugardag- inn 8. apríl 1995 kl. 15.00: Söluskálinn Auðbrekku 13 ásamt öllum áhöld- um, tækjum og innréttingum. Greiðsla við hamarshögg. Ávísanir aðeins teknar gildar með samþykki gjald- kera- SÝSLUMAÐURINN I KÓPAV0GI Matgæðirigiir vikuimar_ d\ Skelfiskbaka Inga Hanna Dagbjartsdóttir, húsmóðir í Reykjavík, sem er matgæðingur vikunnar að þessu sinni, býður upp á skelfískböku. „Þetta hefur verið ákaflega vin- sæll réttur hjá mér,“ tekur Inga Hanna fram. Hún kveðst hafa gaman af að prófa nýjar uppskriftir og þetta er ein af þeim sem slegið hafa í gegn. Uppskriftin er miðuð við 5 til 6 manns. Fyllingin 200 g sveppir 400 g frosnir humarhalar 200-300 g rækjur 3 msk. smjör 2 tsk. karrí 3 dl hvítvín (ekki sætt) eða 3 dl mysa 2 dl rjómi 2 msk. hveiti salt og pipar Botninn 6 dl hveiti 200 g smjör eða smjörlíki 11/2 msk. rjómi 11/2 msk. vatn 1 egg 1 tsk. salt Byrjað er á því að búa til bökudeigið. Smjörið er saxað saman við hveitið og saltið. Vætt í með blöndu af vatni, rjóma og eggi. Hnoðað hratt saman og látið bíða í ísskáp á meðan fyllingin er löguð. Sveppimir eru síðan skornir í sneiðar. Humarinn skorinn í bita og einnig rækjurnar. Humar og sveppir brúnaðir á pönnu í helmingnum af smjörinu og karríi stráð yfir. Þynnt með rjómanum og víninu eða mys- unni og látið malla í nokkrar mínútur á pönnunni. Það sem eftir er af smjörinu er hrært með hveiti og látið í bitum út í jafninginn til að þykkja hann. Síðan er rækjunum bætt út í og jafningurinn kryddaður með salti og pipar. Látið kólna. Deigið er flatt út í tertumót, um það bil 28 til 30 sm í þvermál. Mótið er klætt að innan með helmingnum af deiginu sem er látið ná upp fyrir barmana. Fylling- Inga Hanna Dagbjartsdóttir. in sett á botninn. Það sem eftir er af deiginu er flatt út og sett yfir fylhnguna. Úr afganginum af deiginu er búið til skraut til að setja ofan á bökuna, laufblöð og/eða blóm. Til aö lofta um bökuna er skornar þrjár rifur í hana með hníf. Penslað yflr barmana með eggi og einnig yfir skrautið. Bakað við 200 gráður í um það bil 30 mínútur. Að sögn Ingu Hönnu er hægt að frysta deigið með fyllingunni en þá er bakan höfð lengur í ofninum. Með bökunni ber Inga Hanna fram hrísgrjón og sal- at úr hráu grænmeti. Einnig er gott að hafa heit smá- brauð með. Inga Hanna skorar á Guðrúnu Eggertsdóttur, starfs- mann Sólheima í Grímsnesi, að vera næsti matgæðing- ur: „Maður fær alltaf frábærar veitingar þegar maöur heimsækir hana.“ Eftir helgina má fá uppskriftina i Símatorgi DV. Símanúmerið er 99 17 00. Hinhliðin Stefni á leiklist - segir Þórunn Lárusdóttir, framkvaemdastjóri Feguróarsamkeppni íslands Fegurðardrottning Reykjavíkur var vahn á fimmtudagskvöldið en fegurðardrottmng íslands verður valin á Hótel íslandi 24. maí. Þór- unn Lárusdóttir er framkvæmda- stjóri keppninnar og hefur haft í nógu að snúast. Hún segir að keppnin um ungfrú ísland verði með talsvert öörum hætti en und- anfarin ár. Góðgerðarstarfsemi verður í kringum keppnina og þátt- takendur munu fá mikla fræðslu um alnæmi. „Þetta verður heilmik- il sýning," segir Þórunn og bætir við að starfið hafi verið mjög skemmtilegt. í haust ætlar Þórunn síðan aö snúa sér að öðrum hlutum því hún hefur fengið inngöngu í þekktan leikhstarskóla í London. Það er Þórunn Lárusdóttir sem sýnir hina hhðina að þessu sinni: Fullt nafn: Þórunn Lárusdóttir. Fæðingardagur og ár: 7. janúar 1973. Maki: Enginn. Börn: Engin. Bifreið: Mazda 323, árgerð 1985. Starf: Fyrirsæta og framkvæmda- stjóri Fegurðarsamkeppni íslands. Laun: Þokkaleg. Áhugamál: Þau eru mörg en ég hef ekki haft tíma til að sinna þeim að undanfomu. Tónhst er þó áhuga- mál mitt númer eitt, tvö og þijú. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Ég vann einu sinni bangsa í happdrætti. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Opna pakka á jólunum. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Vakna snemma á morgnana. Uppáhaldsmatur: Slátur. Uppáhaldsdrykkur: Glenfiddich viskí á ís. Þórunn Lárusdóttir, framkvæmda- stjóri Fegurðarsamkeppni íslands. Hvaða iþróttamaður stendur fremstur í dag? Vinur minn, Magn- ús Scheving. Uppáhaldstímarit: Vikan. Hver er fallegasti karl sem þú hefur séð? Það verður nú fátt um svör þegar stórt er spurt en ætli ég segi ekki pabbi. Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn- inni? Ég kýs að svara því ekki. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Helst hefði ég viljað hitta Gandhi. Uppáhaldsleikari: Daniel Day Lew- is. Uppáhaldsleikkona: Sigríöur Þor- valdsdóttir. Uppáhaldssöngvari: Kristinn Sig- mundsson. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Hann er ekki th. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Homer Simpson. Uppáhaldssjónvarpsefni: Ég hef ekki horft mikið á sjónvarp upp á síðkastið en uppáhaldsbíómyndin mín er Young Frankenstein. Uppáhaldsmatsölustaður: Lækjar- brekka. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Ég er mjög spennt fyrir íslenskum bókmenntum og þótt skrýtið sé hef ég aldrei lesið Sölku Völku. Ég hef lesið allar aðrar bækur Laxness og ætla að drífa mig í Sölku Völku þegar hægist um. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Bylgjan. Uppáhaldsútvarpsmaður: Anna Björk Birgisdóttir. Hvort horfirþú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Eg á ekki afruglara en horfi samt meira á Stöö 2. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sig- mundur Ernir Rúnarsson. Uppáhaldsskemmtistaður: Um þessar mundir stunda ég Skugga- barinn. Uppáhaldsfélag í iþróttum: Aftur- elding er í mínu bæjarfélagi en ég hef aldrei verið harður stuðnings- maður. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Já, ég stefni að heil- miklu. Næsta haust fer ég í leiklist- arskóla i London og ætla mér að verða leikkona í framtíðinni. Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- inu? Skólinn er svo dýr þannig að ég býst við að ég muni reyni að safna peningum. Annars ætla ég aö sofa tvo daga eftir að fegurðar- samkeppnin hefur verið haldin 24. maí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.