Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1995, Page 18
18
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1995
Dagur í lííl Þorbjamar Jenssonar, þjálfara Valsmanna, íslandsmeistara í handbolta:
Gat engu stjómað
okkur inn á völlinn.
Það var orðið svo troðið í anddyr-
inu fyrir klukkan sjö að ég komst
varla inn í búningsherbergið. Þetta
var auðvitað mjög óvenjulegt hlut-
verk fyrir mig að fá ekki að sitja á
bekknum. Ég þurfti að undirbúa
strákana fyrir það að vera þjálfara-
lausir í salnum og gera þeim grein
fyrir að þetta ætti ekki að skipta
máli. Mér fannst þetta skrýtið og
myndi nú ekki kjósa það aftur að
vera settur af bekknum.
Engin aksjón
Ég fór síðan upp í eldhús og horfði
á sjónvarpið að mestu eöa það sem
ég gat. Mér leið mjög einkennilega
því maður er náttúrlega í fullri ak-
sjón þegar maður er á bekknum.
Þarna gat ég ekkert gert og engu
stjórnað. Þar af leiðandi var þetta
mjög erfitt. Þegar leiknum lauk rétt
fyrir hálfellefu varð gífurleg gleði og
mikið að gerast. Við vorum komnir
í búningsherbergið um hálftóif. Þeg-
ar fólkið var að mestu farið út fórum
við í bað, settumst síðan í heita pott-
inn og spjölluðum saman. Það var
auðvitað skálað í kampavíni og
glaðst mikið. Um hálfeitt fórum við
yfir í sal sem við höfum á Hlíðar-
enda. Þar biðu stuðningsmenn okkar
og við vorum hylltir enn einu sinni.
Við skemmtum okkur saman til
klukkan hálftvö en þá fóru nú flestir
heim. Óneitanlega var erfitt að sofna
þetta kvöld enda spennan enn þá í
loftinu. Á næstu dögum byrja úrslit
í öörum og þriðja flokki sem ég þjálfa
líka þannig að eitt tekur við af öðru.
Nú og svo er það HM þannig að mað-
ur verður í þessu fram á sumar. En
ég var mjög ánægður með þennan
dag og sérstaklega þar sem þetta var
í fyrsta skipti sem við tökum við ís-
landsmeistaratitlinum á Hlíðarenda.
Þetta var því kærkomiö og ánægju-
legt.
Ég vaknaði klukkan sjö eins og
aöra daga en vinnudagur hefst
klukkan átta. Ég starfa á rafmagns-
verkstæði Landspítalans. Eiginkon-
an, Guðrún Kristinsdóttir, fer á fæt-
ur á sama tima en hún vinnur líka
á Landspítalanum. Sonurinn, Fann-
ar Örn, 13 ára, var í verkfalli svo
hann fékk að sofa lengur en dóttir
mín, Kristín Hrönn, sem er í lyfja-
fræði í Háskóla íslands þurfti ekki
að mæta fyrr en klukkan tíu. Ég fékk
mér, eins og venjulega, lýsi og eitt
djúsglas. Það er morgunverður fram
að því að ég fer í morgunkaffi á spít-
alanum.
Strax þegar ég mætti í vinnuna og
hitti vinnufélagana byrjaði umræð-
an um leikinn sem átti að fara fram
um kvöldið. Það vai- erfitt að hafa
hugann við vinnuna en þar sem við
erum að fiytja verkstæðið fór morg-
uninn í að taka til, henda gömlu dóti
og færa annað til. Þannig gekk þetta
til hádegis.
Úrslitahádegisverður
Eins og venjulega þegar úrslitaleik-
ir fara fram fórum við Bjarni Áka-
son, vinur minn, sem vinnur í AKO,
út aö borða í hádeginu. Við forum
alltaf í Pottinn og pönnuna þar sem
boðið er upp á hlaöborð. Við sitjum
ahtaf við sama borðið í úrshtakeppn-
inni og því var ekki breytt í þetta
skiptið.
Fljótlega eftir hádegið mætti ég aft-
ur í vinnuna og þá fór ég að leggja
tölvulagnir fyrir læknaherbergi á
fjórðu hæð. Við vorum að vinna í því
alveg til sex um daginn. Á svona
dögum hittir maöur alltaf margt fólk
og umræðan snýst um handboltann.
Ég fékk spumingar eins og: Hvernig
fer leikurinn? Hvemig getur þú unn-
ið núna? Ertu ekki spenntur? Og
fleira í þeim dúr. Fólk virðist al-
mennt vera sér mjög meðvitandi um
þaö sem er að gerast. Einnig voru
Ánægjulegur dagur var hjá Þorbirni Jenssyni, þjálfara Vals, íslandsmeistaranna í handbolta, á þriðjudag og bik-
arnum hampað að loknum hörkuspennandi leik. DV-mynd Brynjar Gauti
að berast fréttir um ýmislegt eins og
miðasöluna. Það var hringt í mig frá
öllum fjölmiðlum en fréttamenn
vildu vita hvar ég ætlaði að vera um
kvöldið þar sem ég mátti ekki vera í
salnum. Ég gat engu svarað þar sem
ég hafði ekki ákveöið mig með það.
Dagurinn mótaðist því allur af þess-
um leik.
Árúnt-
inum
Klukkan sex var vinnudeginum
lokið og þá kom Guðrún og sótti mig.
Síðan náðum við í dótturina í Vestur-
bæjarlaugina. Við keyrðum aðeins
um vesturbæinn og reyndum að
dreifa huganum. Maður spjallaði
náttúrlega um það sem var fram
undan. Við ókum síðan í áttina að
Valsheimihnu um hálfsjö og sáum
þá að þar var allt að verða fullt þótt
það væru tveir tímar þangað til leik-
urinn átti að byija. Þá ákváðum við
að vera ekkert að þessu hangsi leng-
ur heldur finna bílastæði og drífa
©PIB
tWWHII
Maður sendir strákinn i rándýran einkaskóla og svo fær hann
ritgerðarefnið „Segðu 'frá atvinnu föður þíns“.
Nafn:
Heimlli:........
Vinningshafar fyrir þrjú hundruðustu og fyrstu get-
raun reyndust vera:
1. Hrefna Gunnarsdóttir, 2. Svana Jósepsdóttir,
Lágmóa 17, Áshllð 8,
260 Njarðvik. 603 Akureyri
1. verðlaun:
Zodiac Sigma 300 sími, aö verðmæti kr.
4.950, frá Hljómbæ, Hverflsgötu 103,
Reykjavík.
2. verðlaun:
Örvalsbækur. Bækumar, sem eru í verð-
laun, heita: Líki ofaukiö og Bláhjálmur
úr bókaflokknum Bróðir Cadfael, aö verð-
mæti kr. 1.790. Bækurnar eru gefhar út
af Frjálsii fjötmiðlun.
Vioningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 303
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Finnur þú fimm breytingar? 303
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð
kemur í ljós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum verið
breytt. Finnir þú þessi fimm atriöi
skaltu merkja við þau með krossi
á myndinni til hægri og senda
okkur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurveg-