Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1995, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1995, Qupperneq 34
46 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1995 Sérstæð sakamál Enska stúlkan Judith Berry varð að viðurkenna að hún vissi ekki alveg hvað það var í fari íranska liðsforingjans sem heillaði hana. Ef til vill var það einkennisbúning- urinn. En það gat líka verið eftir- vænting því að hún vissi að yrði hún hans myndi hún búa á fjarlæg- um stað sem væri í flestu ólíkur heimahögum hennar. Hún yrði húsmóðir í Teheran í íran. íranski Uðsforinginn Khosrow Behzadi Nejad varð afarhrifinn af Judy við fyrstu sýn. íranski herinn hafði sent hann á námskeið í Sand- hurst-herskólanum í Englandi. Judith vann á litlu veitingahúsi skammt frá skólanum og þar kynntust þau. Þegar námskeiðinu var að ljúka og hann á forum heim aftur spurði hann hvort hún vildi giftast sér og hún tók bónorðinu. Þetta var árið 1950. Ekki var hægt að gefa þau saman að múslímskum sið á Englandi og því gengu þau í borgaralegt hjóna- band. Var ætlunin að þau giftu sig síðar í Teheran að hætti rétttrú- aðra þar. Unnustan beið heima Ýmis vandamál áttu eftir að verða á vegi ungu hjónanna. Khosrow hafði leynt Judith því aö hann var trúlofaður í Teheran. Að þarlendum sið höfðu foreldrar hans og ungrar stúlku ákveðið að þau myndu giftast. Þá var Khosrow tólf ára en eiginkonan verðandi ell- efu ára. Þegar Judith og Khosrow komu til Teheran lýsti faðir hans, majór í íranska hemum, yfir því að hjónabandið með ensku stúlkunni væri ógilt. Khosrow bæri að virða það samkomulag sem gert hefði verið við fjölskyldu írönsku stúlk- unnar. Judith yrði að fara heim til Englands. Khosrow neitaði að fara að vilja fóður síns og þótt hjónaband hans væru ólöglegt að íslömskum sið stofnaði hann heimili meö Judith. Heimsóknin Dag einn komu móðir Khosrows og amma stúlkunnar sem honum hafði verið valin í heimsókn. Þær reyndu að skýra fyrir honum að samkomulagið sem gert hafði verið forðum yrði að standa en þeim tókst ekki að vinna Khosrow á sitt band. Þá stóð amma stúlkunnar á fæt- ur, leit á Judith og sagði. „Þú verð- ur aldrei hamingjusöm. Þú munt ala son en hann mun aðeins færa þér sorg. Þar kemur að hann mun standa fyrir framan dómara og verða refsað fyrir synd föður síns. Þið Khosrow munuð skilja og hvor- ugt ykkar finna hamingjuna því að hún getur ekki hvílt á sorg annarr- ar manneskju. Svona verður það.“ Nokkru síðar varð Judith ólétt. Fóru aöstæður hennar nú síversn- andi. í heimalandi sínu hafði hún vanist frelsi en nú naut hún engra réttinda. Tengdamóðir hennar gaf henni stöðugt skipanir. Þegar hún varð léttari ól hún son en þá var henni sagt að hann yrði alinn upp í múslímskum sið. Heimferðin Khosrow fékk stöðugt að kenna á því að hann hafði brotið siðaregl- ur samfélagsins. Honum var neitað um stöðuhækkanir í hemum og brátt fóru að koma brestir í hjóna- bandið. Rifrildi urðu daglegt brauð og þegar Judith gat ekki þolaö ástandið lengur vildi hún fara heim til Englands með son sinn. Hún reyndi að fá Khosrow til að Garland d'Olivieras. Ragahem Stevens, Moosa Moses og George Glen. Þessir menn höfðu þá sérstakan áhuga á töflum sem gengu undir nafninu Mandrax. Lágmarksrefsing við að versla með þær var fimm ára fangelsi. Jafnframt því að kaupa og selja töflur og aðra vímugjafa setti Be- hrooz á stofn skóla í sjálfsvarnar- Ust, einkum karate, sem hann hafði lært í herskólanum í íran. Honum sást hins vegar yfir þá staðreynd að enginn grundvöllur var fyrir rekstri skólans því fjöldinn allur af ungum mönum í Suður-Afríku fékk kennslu í þeim íþróttum án endurgjalds. Behrooz varð að loka skólanum en þá var hann orðinn skuldugur og fjárþörfin meiri en áður. Hagnaðaráætlunin Árið 1978 hafði Behrooz gert áætl- un sem átti að færa honum skyndi- hagnað og gera honum kleift að komast til Englands með Garland. Hann hafði samband við Stevens, Moses og Glen og sagðist geta út- vegað þeim 20.000 Mandrax-töflur. Verðið skyldi vera 20.000 rands. Khosrow Behzadi Nejad. Behrooz. koma með sér en hann vildi það ekki. Þá varð henni fljótlega ljóst að soninn fengi hún ekki að taka með sér. Að lokum fór svo að hún sá að ekki var um annað að gera en halda ein heim. Hún fékk þó leyfi til að skrifast á við son sinn en bréfin voru ritskoðuð. Þá var henni gerð grein fyrir því að hún myndi aldrei fá aö sjá hann. Sonurinn, Behrooz, og hún hitt- ust þó síðar. Það gerðist árið 1972. Eins og faðir hans og afi hafði hann gengið í íranska herinn. En hann hafði tekið þátt í samsæri til að steypa keisaranum og varð að flýja land. Hann ætlaði sér til Suður- Afríku en þar eö leiöin lá um Lon- don hafði hann samband við móður sína. Erfiðleikar í nýja landinu „Ég sagði honum ekki frá spá- dómnum," sagði Judith síðar um þennan fund þeirra. Ástæðan var aö hluta til sú að ég vildi ekki valda honum áhyggjum og hins vegar sú að ég trúði ekki á slíkt.“ Ragahem Stevens. Frá London hélt Behrooz til nýja landsins og fékk starf í Höfðaborg hjá fyrirtæki sem gerði viðskipti við Árabalöndin. En launin voru ekki há svo að hann og konan, sem hann kvæntist þar, Miriam, höfðu sjaldan nokkurt fé handa í milli í mánaðarlok. Árið 1977 urðu þáttaskil í lífi Be- hrooz. Þá kynntist hann Garland d’Olivieras, fyrrverandi fegurðar- drottningu. Þau urðu mjög ástfang- in. Nokkru síðar ákvað Behrooz að fara frá konu sinni og flytjast með Garland til Englands. En honum var vandi á höndum. Hann skorti fé. Behrooz hugðist leysa vandann með því að gerast fíkniefnasali. Hann þekkti áhættuna. Færi á al- versta veg kynni hann að fá lífstíð- ardóm. Rétt væri því að takmarka áhættuna. Og með það í huga gekk hann til verks. En ekki fer allt eins og menn ætla. Enn hallar undan fæti Meðal þeirra sem Behrooz gerði fíkniviðskipti við voru þrír merin, Judith Berry. Spádómur eða. • • • Fíkniefnasalarnir voru mjög ánægðir með tilboðið því verðið var aðeins þriðjungur þess sem þeir myndu geta selt töflurnar á til neyt- enda. Fundur mannanna fjögurra skyldi fara fram um tuttugu kíló- metra utan Höföaborgar aðfaranótt 29. maí. Behrooz haföi sagt Garland að ferðbúast. Var ætlunin að þau færu með flugvél til Englands morgun- inn eftir næturfundinn. En fundur- inn fór ekki eins og Behrooz hafði hugsað sér. Kaupendumir þrír gerðu athugasemdir og töldu varn- inginn vera líkari aspiríntöflum en þeim vímugjöfum sem þeir voru á höttunum eftir. Þeir neituðu því að afhenda töskuna með andvirðinu. Örþrifaráð Behrooz sá að honum tækist ekki að blekkja þremenningana. Hann tók því upp skammbyssu sem hann var með innanklæða og skaut mennina þrjá. Síðan þreif hann töskuna með peningunum og ók í skyndi til Höfðaborgar. Þegar hann opnaði töskuna kom í ljós að um tveir þriðju peninganna voru í seðlum en afgangurinn í mynt. Þar eð hann gæti ekki tekið myntina með sér ákvað hann aö fresta flugferöinni til Englands. Fór allur dagurinn og hluti þess næsta í að skipta myntinni í smáskömmt- um í bankaútibúum. Að morgni þriöja dags eftir at- burðinn utan borgarinnar hélt Be- hrooz út á flugvöll með Garland. En þar beiö hans þá lögreglan. Moosa Moses og George Glen höfðu ekki dáiö í skotárásinni, að- eins særst. Þeir fundust á lífi og gátu sagt hver það var sem myrt hafði Ragahem Stevens og skótið á þá. Fyrir rétti Þann 19. september 1978 stóð Be- hrooz fyrir Eric Grosskopf, dómara í landsréttinum í Höfðaborg. Þá sagði Grosskopf: „Rétturinn telur að þú, Behrooz Behzadi Nejad, hafír farið til fund- arins með mönnunum þremur með það í huga aö ráða þá af dögum ef þeir afhentu þér ekki töskuna með peningunum. Þú hefur gerst sekur um morð að yfirlögðu ráði og tvær morðtilraunir. Fyrir shk afbrot kemur aðeins ein refsing til greina. Þú verður hengdur. Megi Guð vera sálu þinni náöugur." Þrjár konur gengu með tárvot augu úr réttarsalnum Miriam Nejad, kona Behrooz, sagðist ekki skilja hvað gerst hefði. Maður hennar væri að eðlisfari blíður og hefði aldrei gert flugu mein. „Ég hélt ekki að hann myndi svíkja mig,“ sagði hún. „Ég taldi að hjónaband okkar væri gott.“ Garland d’Olivieras sagði. „Ég elska Behrooz. Við erum sköpuð hvort fyrir annað og ég mun fara fram á náðun. Fáist hún mun ég bíða hans þótt það taki hann tutt- ugu ár að fá frelsið.” Þriðja og síðasta konan, Judith Berry, móðir Behrooz, sagði: „Ég er ekki hjátrúarfull. En hvernig gat kóna í Teheran sagt þetta fyrir áður en Behrooz fæddist? Var þetta spá- dómur eða bannfæring sem náði fram aö ganga á hátt sem verður ekki skýrður?" Svo bætti hún viö: „Eitt veit ég þó og það er að hefði maðurinn minn elskað mig í raun og veru hefði hann flust með mér aftur til Englands og þá hefði þetta aldrei gerst."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.