Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1995, Qupperneq 40
52
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1995
Skák
Jóhann átti í fullu
tré við Kasparov
- Noröurlanda- og svæðamótinu lýkur um helgina
Garrí Kasparov, heimsmeistari og
að margra dómi sterkasti skákmaður
allra tíma, lék á als oddi í heimsókn
sinni hingað til lands um síðustu
helgi. Kasparov kom hingað á vegum
Sjónvarpsins, að undirlagi Her-
manns Gunnarssonar og Helga Ól-
afssonar, sem lagt hafa snörur fyrir
helstu stórmenni skáklistarinnar:
Fyrst Judit Polgar, svo Anatoly
Karpov og nú Kasparov.
Kasparov gerði hér stuttan stans
en kom þó víða við. Heimsókn hans
í Bláa lónið og til Hveragerðis nægði
honum til þess að hrífast svo af land-
inu að hann hyggst koma aftur í júní-
mánuði óg njóta daganna. Hann
heilsaði upp á börn og unghnga í
Taflfélagi Reykjavíkur og sá mikli
flöldi sem þar hyllti meistarann kom
honum í opna skjöldu. Raunar var
Kasparov sem steini lostinn yfir þvi
mikla skáklífi sem hvarvetna blasti
við; börnin og unglingamir, svæða-
mót á Hótel Loftleiðum og ekki síst
- hann sjálfur í heimsókn.
Áður en að Sjónvarpsmótinu kom,
sem fram fór í beinni útsendingu á
Jóhann Hjartarson átti í fullu tré við Kasparov heimsmeistara.
sunnudagskvöldið, tefldi Kasparov
harla óvenjulega einvígisskák við
Helga Áss Grétarsson, heimsmeist-
ara unglinga. Þeir tefldu blindskák
Ert þú í meðferð
hjá sérfræðilækni?
V insamlega athugaðu að frá og með 1. maí 1995
þarft þú tilvísun frá heilsugæslulækni eða heimilislækni
til að sjúkrartryggingar haldi áfram að taka þátt í
kostnaði við meðferðina. Hins vegar þarftu ekki
tilvísun til að fara til augnlæknis.
érfræðilæknar, sem stunda sjúklinga í
langtímameðferð, eiga samkvæmt reglugerð að skrifa
heilsugæslulækni eða heimilislækni sjúklings og gera
grein fyrir þeirri meðferð sem veitt er. Jafnframt eiga
þeir að gera tillögu um útgáfu tilvísunar, óski
sjúklingurinn eftir því.
t llar frekari upplýsingar um þessa nýju tilhögun
eru fúslega veittar á næstu heilsugæslustöð og í
nýútkomnum bæklingi, Spurt og svarað
um
tilvísanakerfið, sem dreift er til lækna, lyfjaverslana,
heilsugæslustöðva og samtaka sjúklinga.
iM,
pn; HEILBRIGÐIS- OG
l 'A TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
TRYGGINGASTOFNUN
5J7 RÍKISINS
Nú verður ekki við neitt ráðið en
gaman er að sjá hvernig Kasparov
vinnur úr stöðunni.
26. Hael f4 27. Dh3 Dc4! 28. Bb6 Hf8
29. Rgl e4 30. Hdl Hf7 31. Bd4 Bxd4
32. cxd4 f3! 33. gxfi exf3 34. Hf2 Bd5
35. Dg3 Dxb4 36. Rh3 He8 37. Hdfl Hel
38. Rf4
fyrir framan sjónvarpsvélarnar; sátu
sem sagt hvor á móti öðrum, án þess
að hafa tafl á milli sín, og þuldu leik-
ina upp úr sér. Þetta hefur Kasparov
aldrei fyrr gert opinberlega og hann
féllst þar að auki á að allur ágóði af
keppninni rynni til Blindrafélagsins.
Skákin var ævintýraleg og einstak-
lega spennandi en meira segi ég ekki.
Stefnt er að því að skákunnendur fái
að sjá afraksturinn í Sjónvarpinu um
páskana.
Andstæðingar Kasparovs á sunnu-
dagskvöldið voru stórmeistaramir
Jóhann Hjartarson, Hannes Hlífar
Stefánsson og Helgi Ólafsson. Kas-
parov hafði svart gegn Hannesi og
Helga og vann þá báða nokkuð ör-
ugglega en komst hins vegar ekkert
áleiðis með hvítu gegn Jóhanni. í
miðtaflinu náði Jóhann meira að
segja undirtökunum og mátti Kas-
parov prísa sig sælan að sleppa með
jafntefli. Jóhann vann bæði Helga og
Hannes og þar með urðu þeir Kas-
parov jafnir með 3,5 vinninga hvor.
Hannes vann Helga í innbyrðis skák
þeirra.
Úr varð að Kasparov og Jóhann
tækju hraðskák til þess að skera úr
um sigurinn og kom í hlut Jóhanns
aö hafa hvitt. Jóhann lenti í erfiðleik-
um í byijuninni, tókst að klóra sig
út úr þeim en í miklu tímahraki
beggja lék hann af sér manni. Þótt
tíminn væri aö renna út var hand-
bragð Kasparovs afar öruggt og hann
var fUótur að innbyrða vinninginn.
Þetta framtak Sjónvarpsins var af-
ar vel heppnað og er vonandi að hald-
ið verði áfram á sömu braut. Radíó-
búðin var aðalstyrktaraðili mótsins
og fleiri fyrirtæki og velunnarar
skáklistarinnar komu við sögu. Ekki
verður sniUdarinnar notið ókeypis.
Hvítt: Hannes Hlífar Stefánsson
Svart: Garrí Kasparov
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. f4 Dc7 7. Df3 g6 8. Be3
b5 9. Bd3 Rbd7 10. 0-0 Bb7 11. a3 Bg7
12. Khl 0-0 13. Bgl
Eðlilegra er 13. Hael, nú eða í
næsta leik.
13. - Rb6 14. De2 Rfd7 15. a4? b4 16.
Rdl Rc5 17. a5 Rbd7
Framrás a-peðsins leiddi einungis
til þess að tengslin milli hvítu mann-
anna rofhuðu og nú hefur svartur
náð undirtökunum.
18. c3?! Rxd3 19. Dxd3 Rc5 20. De3
Rxe4 21. cxb4 Hfc8 22. Rc3 Rxc3 23.
bxc3 e5! 24. fxe5 dxe5 25. Re2 f5!
38. - Hxf4! 39. Dg5
Ef 39. Dxf4 Hxfl+ 40. Hxfl f2+ og
mát í næsta leik.
39. - Hxfl+ 40. Hxfl Dxd4
- Og Hannes gafst upp.
Umsjón
Jón L. Arnason
CurtHansen
stefnir á sigur
Danski stórmeistarinn Curt Han-
sen er langefstur á Norðurlanda- og
svæðismótinu, sem lýkur á Hótel
Loftleiðum um helgina. Keppninni
er þó fráleitt lokið því að baráttan
um þrjú efstu sætin, sem gefa rétt til
þátttöku á millisvæðamóti, er geysi-
lega spennandi.
Bestu fréttirnar eru þó þær að síð-
ustu umferðimar veröa tefldar uppi
á efri hæðinni þar sem skákáhuga-
menn hafa vanist því að sjá alvöru
taflmennsku. íslensku keppendumir
eru því loks lausir úr „gúanóinu” og
má nærri geta hvílíku fargi er þá af
þeim létt.
Jóhann, Margeir og Helgi em aUir
í baráttunni um sætin þrjú og hafa
Jóhann og Helgi sótt í sig veörið eftir
fremur dapra byrjun. Margeir varð
að sætta sig við jafntefli í vænlegu
tafli gegn Djurhuus í áttundu um-
ferðinni og hafði áður tapað slysa-
lega fyrir Curt. Þresti hefur gengið
miður en á móti sem þessu má ekk-
ert út af bregða.
Staðan var þannig þegar þijár
umferðir vom til loka:
1. Curt Hansen 7 v. af 8 mögulegum.
2. -4. Jóhann Hjartarson, Margeir
Pétursson og Pia Cramling 5 v.
5.-11. Helgi Ólafsson, Agdestein,
Hector, Djurhuus, Gausel, TisdaR og
Sune Berg Hansen 4,5 v.
12.-13. Lars Bo Hansen og Mortensen
4 V.
14.-15. Hannes Hlífar Stefánsson og
Degerman 3,5 v.
16.-18. Þröstur ÞórhaUsson, Ernst og
Manninnen 2,5 v.
19 - 20. Akesson og Sammalvuo 2 v.
Níunda umferð var tefld í gær-
kvöldi, tíunda umferð hefst kl. 16 í
dag, laugardag, og lokaumferðin
hefst kl. 13 á morgun, sunnudag.
Fyrstu tímamörk em eftir fjögurra
stunda taflmennsku.