Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1995, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995
Fréttir
Sautján ára piltur kjálkabrotmn 1 miðbænum:
Fékk hogg í andlitið og
slengdist utan í vegg
- segir pilturinn - tveir settir 1 gæsluvarðhaldi
„Ég var nýbúinn aö leggja bílnum
mínum og var aö ganga eftir húsa-
sundi sem liggur á miUi Tryggvagötu
og Hafnarstrætis. Ég mætti þar
þremur eöa fjórum strákum og einn
þeirra segir viö vin sinn eins og hann
þekkti mig: „Ég hata þennan dreng.“
Ég taldi þetta vera grín og hélt aö ég
þekkti hann og lít til hans. Ég man
ekki meira en ég fékk högg í andlitið
og slengdist utanj vegg," segir Elmar
Öm Guðmundsson, 17 ára piltur sem
ráöist var á í miðbænum aðfaranótt
sl. sunnudags.
Elmar Öm fékk opið kjálkabrot viö
árásina og féll í jörðina. Hann segir
þann sem sló sig hafa hreytt í sig:
„Liggðu eftir, helvítiö þitt“ þegar
hann og félagar hans gengu í burtu.
Par sem átti leiö hjá hlúði aö honum
og hjálpaði honum á lögreglustöðina
í Tollstöðvarhúsinu. Hann var flutt-
ur á Borgarspítala þar sem hann
dvaldi enn í gær eftir að hafa gengist
undir aðgerð. Kjálkamir á honum
em víraðir saman og sagðist hann
eiga von á því að þurfa að vera með
búnaðinn upp í sér næsta mánuö.
I kjölfarið vom þrír rúmlega tví-
tugir piltar handteknir. Tveir þeirra
hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarð-
hald til föstudags en einum sleppt.
Grunur leikur á að sömu menn hafi
verið á ferð þegar ráðist var á þrjá
aðra menn á syipuðum slóðum á
svipuðum tima.
Elmar Öm, sem er nemandi í Verzl-
unarskóla íslands og haföi aðeins
unnið eina nótt í bakaríi áður en
ráðist var á hann, segist ekki getað
ímyndað sér tilefni árásarinnar.
Hann hafi verið nýkominn heiman
frá sér þar sem hann var að passa
systkini og ákveðið að labba einn
hring í miðbænum þar sem hann
vissi af félögum sínum.
Vitni vora að árásinni en Elmar
segist ekki vita hvort þau hafi geflð
sig fram. Annars séu það bara hans
orð gegn þeirra sem réðust á hann
nema að þeir viðurkenni að hafa
slegið hann. Hann er dofmn í hök-
unni og segir enn ekki vist hvort
hann fái fulla tilfmningu í hana eða
hvorttaughafiskemmst. -pp
Stuttarfréttir
Leikhússtjórisegirupp
Sigurður Hróarsson, leikhús-
stjóri Borgarleikhússins, hefur
sagt upp starfi sínu vegna fjár-
hagsvanda leikhússins eftir mis-
heppnaðan vetur.
Græntljósálrving
Borgarráð samþykkti í gær
staðsetningu bensínstööva Irving
Oil við Eiðisgranda og Hraunbæ.
Övíst er hvaö veröur um lóö Ir-
ving við Stekkjarbakka.
EimskiptilGrænlands
Eimskip hefur gert samstarfs-
samning við skipafélagið Royal
Arctic Line um flutninga til og fr á
Grænlandi. Samkvæmt fréttatil-
kynningu er Eimskip einnig að
íhuga kaup á þriðungshlut í Roy-
al Arctic Line.
Lyf framleidd i Utiiáen
Lyfjaverksmiðja með þátttöku
íslenskra aðila tekur til starfa í
Litháen í sumar, samkvæmt Mbl.
Kinkeltilíslands
Klaus Kinkel, utanríkisráð-
herra Þýskalands, hefur boðað
komu sína til íslands til að ræða
við stjómvöld ura sjónarmið
þeirra í Evrópusambandsmálum.
Morgunblaðið greindi frá þessu.
Þorskeldi í Grindavík
Tilraunir með þorskeldi fer nú
fram í hraunsprangu við Grinda-
vík. ögtta kom fram á Stöð 2.
Lánsloforð til ísiands
Valur Ingimundarson heldur
þvi fram í ritgerö i tímariti Sögu-
félagsins að lánsloforö Banda-
rikjanna til vinstri stjómarinnar
1956-1958 hafi skipt sköpum um
að ekki hafi veriö farið fram á
brottnám bandariska hersins frá
íslandi.
VerkfalisbrothjáVSÍ
Því er haldið fram í Tímanum
að togari f eigu formanns VSÍ,
Ólafs B. Ólafssonar, hafi framiö
verkfallsbrot með því að senda
skipið á sjó í sjómannaverkfall-
inu.
Reyklngabann í vlnnu
Forráðamenn Húsasmiöjunnar
hafa bannað starfsfólki sinu að
reykja í vinnutíma og segja aö
það geti reykt heima hiá sér á
kvöldin. Tíminn greindi frá
þessu.
Sköiabdmfagna
Skólaböm fagna því nú í gríð
og erg að prófunum er lokið.
-bjb
Rúta kyrrsett
Eitt skólaferðalagiö varð endasleppt I gær þegar verkfallsverðir Sleipnis stöðvuöu rútuna sem krakkarnir áttu að
fara með og kyrrsettu hana. DV-myndir GVA
Harka í átökum Sleipnismanna og atvinnurekanda:
Ók vísvitandi yf ir
fótinnámér
- segir Þórir Garðarsson, einn eigenda Allrahanda
„Verkfallsvörðurinn ók vísvitandi
yfir fótinn á mér og það eru vitni að
því. Við óskuðum eftir aðstoö lög-
reglunnar þegar okkur var ljóst í
hvað stefndi en þeir neituðu að koma
fyrr en slys haföi orðið,“ segir Þórir
Garðarsson, einn eigenda AUra-
handa hf., sem rekur rútuþjónustu í
Reykjavík.
Fyrirtæki Þóris haföi tekið að sér
að aka leikskólabömum og fóstrum
og þegar Sleipnismenn komust á
snoðir imi það ákváðu þeir aö grípa
í taumana. Þegar rútan mætti fyrir
utan leikskólann við Eiríksgötu
komu þar verkfallsverðir að og lögðu
bílum sínum framan og aftan við
rútuna. Eftir nokkra stund ætluðu
verkfallsverðimir að skipta út bílum
Þórir Garðarsson, einn eigenda
Allrahanda hf., eftir átökin i gær.
á vaktinni. Þegar bíll verkfallsvarö-
anna haföi ekið frá rútunni og annar
ætlaði að leggja í hans stæði þá stóð
Þórir þar fyrir.
„Það er í mínum huga alveg ljóst
að þessir menn svífast einskis og
hika ekki við að aka yfir fólk. Þegar
fólk áttaði sig á þessu var hætt við
förina," segir Þórir.
Hann ségist ekki hafa ekið rútunni
sjálfur heldur hafi annar bílstjóri
ekið og sá hafi verið í fullum rétti.
„Bílstjórinn á eignarhlut í fyrir-
tækinu og er auk þess ekki félags-
maður í Sleipni heldur í Verkalýðsfé-
laginu Skildi á Flateyri. Hann var
því í fullum rétti að aka þrátt fyrir
verkfallið,“ segir Þórir.
-rt
Ógildingáköllun:
smámunir"
„Við munum að sjálfsögðu hlita
þessum úrskurði ráðuneytisins
og það verða haldnir tveir fundir
í sóknamefhdunum sameigin-
lega á næstunni," segir Guð-
mundur Ingvarsson, formaður
sóknamefndar í Hveragerði,
vegna þess úrskuröar dómsmála-
ráðuneytisins aö köllun prests til
Hveragerðis hafi veriö ólögmæt.
Guðmundur segir að þama hafi
verið um að ræða formgalla.
„Þetta eru algjörir smámunir
og við munum að sjálfsögðu gera
þetta með réttum hætti og fara
fram á það viö biskup að hann
heimili köllun prests. I framhaldi
af því munum við afgreiöa málið
á ný undir stjóm prófasts,f ‘ segir
Guðmundur. -rt
Umboðsmaöur bama:
Kannarkvörtun
vegna sam-
ræmduprófanna
Þórhildur Líndal, umboðsmað-
ur bama, hefur óskað eftir upp-
lýsingum frá Rannsóknastofhun
uppeldis og menntamála um það
hvort kennarar bama í tíunda
bekk semji samræmdu prófin
sem nemendur þeirra taka. Um-
boðsmaður gefur stofhuninni
frest til 8. júní og má búast við
áliti umboðsmanns fyrir 20. j úní.
Það var nemandi í tíunda bekk
í grunnskóla í Reykavík sem
sendi umboðsmanni bama ný-
lega athugasemd um aö óeðliiegt
væri að kennarar bama í tíunda
bekk semdu samræmdu prófin
sem neraendur í tíunda bekk
gangast undir um þessar mundir.
Nemandinn geröi einnig athuga-
semd við að á svarblöðin væri
ritað bæði nafn próftaka og skóli.
-GHS
Skemmdirábfl
Lögreglan í Kópavogi lýsir eftir
vitnum að skemmdarverkum
sem urniin vom á hvítum Ford
Econoline aðfaranótt sunnudags-
ins 21. mai milli klukkan 2.30 og
3. Bíllínn stóð fyrir utan Nýbýla-
veg 32 þegar skemmdimar vom
unnar á honum. Um svipað leyti
sást tU ferða ungs manns sem
gekk vestur Nýbýlaveg og óskar
lögreglan eftir þ ví aö þeir sem sáu
til ferða mannsins eða annarra
grunsamlegra mannaferða á
þessum tíma hringi i síma 560
3030, 560 3039 eða 560 3060.