Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1995, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995
Lokað um helgina v/breytinga. Fylgist
með augíýsingum í næstu viku.
Góða helgi.
CAFÉ BÓHEM
Vitastíg 3 - sími 626290
Útskriftarmen
fyrir herra
Mennt er máttur úr silfri
Fæst í næstu skartgripaverslun.
Framleiðendur
Útlönd_______________________________________pv
Fundað um rannsókn færeyska bankamálsins fram á nótt:
Samkomulag náðist
loks um rannsóknina
Naumur meirihluti fékkst fyrir því
í færeyska lögþinginu í nótt að nefnd
sérfræðinga rannsakaði svonefnt
bankamál. Málið snýst um yfirtöku
landstjórnarinnar á hlutabréfum í
Færeyjabanka frá Den Danske Bank
og sameiningu Færeyjabankans og
Sjóvinnubankans en hlutabréf þess
fyrrnefnda voru verðlaus.
Eftir að dómsrannsókn hafði verið
hafnaö kom danska ríkisstjórnin
með tillögu um að nefnd sérfræðinga
sæi um rannsókn málsins. Réttar-
nefnd færeyska lögþingsins vildi
ekki samþykkja þá tillögu nema að
undangengnum verulegum breyt-
ingum á reglum um starfshætti
nefndarinnar. Eftir langa og stranga
samningafundi síðustu daga náðist
loks samkomulag í málinu, með
naumum meirihluta þó.
Þau atriöi sem Færeyingar lögðu
meigináherslu á og fengu í gegn voru
þessi: Danska dómsmálaráðuneytið
og færesyka landstjómin munu
skipa rannsóknarnefndina í samein-
ingu. Lögmaður mun sjá um yfir-
heyrslur og rannsóknartíminn
verður lengdur. Aðilar málsins verða
skyldaðir til að láta allar upplýsingar
af hendi. Nefndin ákveður sjálf hvort
yfirheyrslur verða munnlegar eða
skriflegar. Sérstök nefnd stjórnar og
stjórnarandstöðu í Færeyjum fær aö
vera viöstödd rannsóknina og fær
aðgang að öllum gögnum. Formaður
rannsóknarnefndarinnar gefur
reglulega skýrlsu um framgang
málsins. RB
Skólagarðar Reykjavíkur
Skólagarðar borgarinnar starfa á sjö stöðum í borg-
inni: við Holtaveg í Laugardal, í Árbæ vestan Ábæj-
arsafns, við Ásenda sunnan Miklubrautar, við Jað-
arsel og Stekkjabakka í Breiðholti, í Skildinganesi
við Skerjafjörð og í Foldahverfi (Kotmýri) fyrir
austan Logafold.
Skólagarðarnir eru ætlaðir börnum, 8 til 12 ára,
fæddum árin 1983 til 1987.
Innritun verður dagana 1. og 2. júní og hefst klukk-
an 8.00 í hverjum garði fyrir sig. Eldri borgarar
innritað sig 8. júní í þeim görðum sem rými
leyfir. Innritunargjald er kr. 600.
Auglýsing
^Sli^ írá menntamálaráðuneytinu
Innritun nemenda í framhaldsskóla í Reykjavík
fer fram í Miðbæjarskólanum við Fríkirkjuveg dagana
6. og 7. júní, frá kl. 9.00-18.00.
Umsóknum fylgi Ijósrit af prófskírteini (skólaein-
kunnum). Nemendur skulu senda viðkomandi skól-
um staðfest afrit einkunna úr samræmdum prófum
strax og þær liggja fyrir.
Námsráðgjafar verða til viðtals í Miðbæjarskólanum
innritunardagana.
Húsnæðisnefnd Kópavogs
Umsóknir
Húsnæðisnefnd Kópavogs vekur athygli á að um-
sóknarfrestur um félagslegar eigna- og kaupleigu-
íbúðir rennur út þann 5. júní nk.
Þeir einir koma til greina sem uppfylla eftirfar-
andi skilyrði:
1. Eiga ekki íbúð eða samsvarandi eign.
2. Eru innan eigna- og tekjumarka sem Húsnæðis-
stofnun ríkisins setur.
3. Sýna fram á greiðslugetu sem miðast við að
greiðslubyrði lána fari ekki yfir 30%.
Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu Hús-
næðisnefndar Kópavogs að Fannborg 4, sem er
opin frá kl. 9-15 alla virka daga.
Athygli er vakin á því að endurnýja þarf eldri
umsóknir og ef fólk óskar eftir að flytja sig innan
kerfisins þarf að leggja inn nýja umsókn.
Nánari upplýsingar veittar hjá Húsnæðisnefnd
Kópavogs, Fannborg 4, eða í síma 45140 frá kl.
11-12 alla virka daga.
Húsnæðisnefnd Kópavogs
Kröftugur fellibylur gekk yfir Massachusetts-fylki í Bandarikjunum í gær og fyrradag. Yfir 100 hús eyðilögðust,
þrír létu lífið og á þriðja tug manna slasaðist. Á myndinni kúrir sjö ára stúlka í örmum föður síns á meðan hann
horfir á afleiðingar hamfaranna. Þakið á húsinu þeirra er horfið og skemmdir verulegar á öðrum hlutum þess.
Símamynd Reuter
Endurteknar árásir auka öryggisráöstafanir viö Hvita húsiö:
Gatan framan við húsið
lokuð fyrir bflaumferð
12. september 1994 hrapaði
Cessna-flugvél í garðinn.
29. október var 30 skotum hleypt
af á húsið af stuttu færi.
19. desember var maóur,
hnífi, skotinn við húsið.
23. maí 1995:
38 áraaamall maður,
vopnadur byssu, fer
yfir giróinguna og
qengur i att aó
núsmu. Hann er
skotinn af öryggis-
veröi.
Umferöarhindranir:
. Hluta af
'Aft,. Pennsylvaria Avenue
\ • hefurverið
V / ;. iokað til að
\/ , vOr. hindra frekari
Clinlon lorseti og /jölskylda
hans voru heima þegar sióasta
allaga vargerð að Hvila húsinu.
Þegar maður vopnaður byssu var
skotinn af öryuggisverði í garði
Hvíta hússins í Washington í síðustu
viku var það í fjórða skipti á níu
mánuðum sem atlaga var gerð að
bústað forsetans. Clinton forseti og
fjölskylda hans voru í húsinu þegar
atvikið átti sér staö en að sögn örygg-
isvarða voru þau aldrei í hættu.
Atvikið þykir þó sýna, svo ekki
veröi um villst, aö forsetinn sé til-
tölulega óvarinn gegn hvers kyns
árásum. Clinton forseti hefur setið
rúmt hálft kjörtímabili í forsetastóli
en hefur engu að síður orðiö fyrir
fleiri morðhótunum en nokkur ann-
ar forseti í sögu Bandaríkjanna. Hót-
animar berast bréf- og símleiðis og
hafa vakið verulegan ugg meðal
leyniþjónustumanna.
I byijun síðustu viku voru öryggis-
ráöstafanir við Hvita húsið hertar.
Var það ekki síst af ótta við að atvik-
ið frá Oklahóma, þar sem margra
tonna þílsprengja sprakk framan við
stjómsýsluhús borgarinnar, gæti
endurtekið sig framan við forsetabú-
staðinn. Meðal annars var Pennsyl-
vania Avenue lokað fyrir bílaumferö
framan við húsið.
Clinton forseti varði þá aðgerð með
þeim orðum að um skynsamlega og
ábyrga öryggisaðgerð væri að ræða
tíl að varðveita frelsiö. Gagnrýnis-
raddir sögðu að lokunin væri enn
eitt dæmið um dýpri gjá milli al-
mennings og forsetans og ætti ekki
aö framkvæma hana nema að undan-
genginni opinberri umræöu. En lok-
unin stendur og þar sem áður var
ein mesta umferðaræð Washington-
borgar verður gerður garður.
Öryggisráöstafanimar hindmöu
þó ekki 38 ára gamlan mann, vopnað-
an þyssu, í að fara yfir girðinguna
við húsið í síðustu viku og ná hálfa
leið að því áður en hann var skotínn.