Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1995, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1995, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 13 Fréttir Guðni Þorsteinsson fiskifræðingur og Gunnar Ásgeirsson, skipstjóri á ÞinganesiSF. DV-myndir Júlía Drasl í trollið Júlía Imsland, DV, Homafirði: Þegar Þinganes SF var á tilrauna- veiðum í Breiðamerkurdýpi á dögun- um kom netatrossa full af drasli í trollið. Þama var margs konar dót, m.a. gleraugu og járnhleri til að sökkva öllu saman. Töldu skipverjar líklegast að þetta væri frá rússnesk- um togara. Guðni Þorsteinsson fiskifræðingur var með Þinganesinu í þessum til- raunaferðum sem einkum voru fam- ar til þess að gera tilraunir með hum- artroll. Trossan með ruslinu sem Þinganesið fékk í trollið. Kennslustundum fjölgað í haust „Fundarmenn voru almennt ánægðir með það sem menntamála- ráðherra hafði að segja. Hann lýsti því yfir að hann vildi eiga gott sam- starf við foreldra," segir Guðbjörg Björnsdóttir, formaður Samfoks, Sambands foreldrafélaga í gmnn- skólum Reykjavíkur. Bjöm Bjarnason menntamálaráð- herra hélt erindi á aðalfundi félags- ins nýverið og ræddi Björn meðal annars um fjölgun kennslustunda í gmnnskólunum sem hann vill að gangi hraðar fyrir sig en í fyrstu var áætlað. Búið var að ákveða að kennslustundunum fjölgaði haustið 1996 en menntamálaráðherra vill líka fjölga kennslustundum um 15 stundir á viku í haust þannig að markmiðið um einsetningu gmnn- skóla geti náðst fyrr, helst fyrir alda- mót eins og stefnt er að samkvæmt nýju grunnskólalögunum. Guðbjörg segir félagsmenn almennt mjög ánægða með þessa yfirlýsingu. Guðbjörg var endurkjörin formað- ur samtakanna á fundinum. Olikar athaf nir hja prestunum Regína Thorarensen, DV, Selfossi: Viö þjónin fómm nýlega í jarðar- för og kveðjuathöfn í Reykjavík. Verið var að jarðsyngja Esther Thorarensen frá Gjögri og fór at- höfnin fram í Fossvogskirkju. Prestur var séra Ámi Bergur Sig- urbjömsson. KMjugestir heyrðu mjög ilia til hans og missti fjöldinn allur af fólki af líkræöunni. Var fólk að vonum sáróánægt og bæði ungir og gamlir höföu sörou sögu aö segja. Söngur- inn var hins vegar frábær. Hálftíma síöar vomm við í kveðjuathöfn um Ágúst Óskar Lýðsson úr Reykjarfirði í Ámes- hreppi. Sú athöfn fór fram f Árbæ- jarkirkju, prestur var séra Guð- mundur Þorsteinsson og organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Þar var frábær prestur sem vel heyrðist í og ræðan var svo góð að það var eins og hann heföi þekkt manninn. Þetta minnti mig á séra Andrés Ólafsson, prest á Hólmavík. Hann var bæði mikill sálusorgari og elskaður og virtur. Ég gæti trúað því að þaö sama ætti við um séra Guðmund. Ég fer fram á það við biskupinn að prestar séu sendir á námskeið til að vel heyrist í þeim. Piltamir, sem réðust á telpu á fóstudag, enn ófundnir: Stendur ekki á sama um sumt semégséhérna - segir móðir stúlkunnar um ástandið í hverfmu Piltamir tveir, sem réðust á ell- éfu ára stúlku við Gyðufell í Reykjavík síðdegis á föstudag með barsmíðum, voru enn ófundnir í gær. Móðir stúlkunnar segir ástandið slæmt í hverfinu, þetta sé ekki í fyrsta skipti sem slíkur at- burður eigi sér stað. Hjólaði telpuna niður Móðirin, Brynja Sigurðardóttir, lýsir atvikinu svo. „Hún var að passa tveggja ára strák og var með hann í kerru þeg- ar hún mætti þessum tveimur strákum. Þeir neituðu að færa sig þegar hún kom að þeim og heföi þurft að beygja út á götu til aö kom- ast leiðar sinnar. Hún er vön að svara fyrir sig og var lamin fyrir það í þetta skipti. Annar strákanna virðist hafa haft sig meira í frammi en hinn sem reyndi að halda aftur af félaga sín- um. Hann hjólaði á hana þannig að hún datt og settist ofan á hana og sló hana í framan og sparkaði í hana. Þegar ég greiddi henni um kvöldið þá fóru heilu flygsumar úr hárinu en strákurinn hafði líka dregið hana niður á hárinu. Ég býð ekki í heföi hún verið ein á ferð með bamið í kerrunni," segir Brynja. Samviskulausir Drengimir fóru á brott þegar fólk kom til hjálpar stúlkunni. Hún var flutt á slysadeild en reyndist óbrot- inn en marin, skrámuð og skelkuð. „Mér stendur ekki á sama um sumt sem ég sé hérna. Sumir krakkar virðast þaö samviskulaus- ir. Þau hafa lent í ýmsu hérna. Ég hef orðið vitni að því að börnum mínum hefur verið ógnað með hníf fyrir að klaga yfir framferði ann- arra bama. Eitt sinn kom dóttir mín með bráðnaða strigaskó heim. Þá höföu einhverjir verið að kveikja bál bak við hús. Hún haföi verið að banna þeim það en þá var hún bara tekin og haldið yfir eldin- um þannig að skórnir bráðnuðu," segir Brynja. -PP Uppsagnir dregnar til baka Daníel Ólafsaon, DV, Akranesi: Aðalfundur Vemdaðs vinnustaðar á Vesturlandi var haldinn nýlega. Þar kom fram að tæplega 3 iftilljóna króna halli varð á rekstrinum á síð- asta ári. Tekjur voru um 14 milljónir. Stjórn Verndaðs vinnustaðar ákvað á fundi sínum að draga allar uppsagnir, sem áttu að koma til framkvæmda 1. júní, til baka. Alls starfa 18 manns á vinnustaðnum. Að sögn Þorvarðs Magnússonar, framkvæmdastjóra vinnustaðarins, vantar 2,4 milljónir upp á aö rekstur- inn standi undir sér á þessu ári en staðurinn fær 4,7 milljónir á fjárlög- um til starfseminnar. „Auðvitað verður maður að vera bjartsýnn á reksturinn þó svo að skilningur ráðamanna sé stundum ansi takmarkaður vegna þess að hagnaður af svona vinnustað er ekki eingöngu peningalegur heldur arð- semi fyrir þá einstakhnga sem njóta þjónustu hans,“ sagði Þorvarður Magnússon. u • . ■ 'liSSlSSÍftilSl! 11........SfeU..:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.