Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1995, Side 32
FRÉTTASKOTIÐ
562*2525
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIÐSLA 0G
ÁSKRIFT ER 0PIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA.
AFGREIÐSLU: 563 2777
KL. 6-8 tAUGARDÁGS-OG manudagsmorgna
MIÐVIKUDAGUR 31. MAl 1995.
Sleipnismenn:
Fengu 25 pró-
sent hækkun
lágmarkslauna
„Það var búið að skáka okkur út í
hom og deilan var komin í það harð-
an hnút að það var ekkert að gera
nema annaðhvort að semja eða búa
okkur undir hörð og langvarandi
átök,“ sagði Þórir Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri Allrahanda rútubíla
og einn samninganefndarmanna í
deilu atvinnurekenda og Sleipnis,
félags rútubílstjóra.
Gengið var frá nýjum kjarasamn-
ingi í morgun og er 10 daga verkfalli
Sleipnismanna því lokið. Samning-
urinn kveður á um 25 prósent hækk-
un lágmarkslauna sem hækka úr 48
þúsund krónum í rúmlega 64 þúsund
krónur á mánuði. Gmnnlaun hækka
úr 48 þúsund krónum í 55 þúsund
eða sem nemur 13 prósentum. Á
rnóti kemur að bílstjórarnir gefa eftir
helgarfrí aðra hverja helgi en taka
frídaga sína út á virkum dögum í
staðinn.
„Ég er sáttur við mína vinnu við
þessa samningsgerð og ég fagna því
að það skuh vera fundin lausn í þess-
ari deilu. Deilan var orðin harkaleg
og komin í harðan hnút þannig að
eg held að þetta sé farsæl lausn,“
segir Óskar Stefánsson, formaöur
Sleipnis, og vitnar þar til þeirra
harkalegu átaka sem uröu milli
verkfallsvarða og meintra verkfalls-
brjóta. Reyndar höfðu bílstjórar orð
á jþvi í morgun að tengdasonum at-
vinnurekenda hefði fjölgað mjög
mikið um verkfallsdagana.
í samningi Sleipnismanna og at-
vinnurekenda er ákvæði þar sem
báðir aðilar samþykkja að falla frá
öllum eftirmálum vegna átakanna
semáttusérstað. -rt
Átök ásatrúarmanna:
Engin kosning
- Tryggvi hættur
„Ég sé ekki annað en að þeir séu
að hætta við kosningu til allsherjar-
goða út af orðhengilshætti. Þessir
menn eru greinilega að vemda ein-
hverja hagsmuni sem ég veit ekki
hverjir eru. Það hggur því beinast
við að ég segi mig nú úr samtökun-
um,“ sagði Tryggvi Gunnar Hansen
ásatrúarmaður í samtali við DV.
Örn Friðrik Clausen, lögsögumað-
ur ásatrúarmanna, sagði við DV í
morgun að hætt hefði verið viö að
kjósa um allsherjargoða eins og ráð
hefði verið fyrir gert. Tryggvi Hans-
en hefði farið fram á meiri kynningu
en lög ásatrúarmanna heimili, hann
hefði sjálfur ságt að framboð hans
yrði ekki gilt væri ekki farið að hans
kröfum - þ ví verði engar kosningar.
Leitaö á fjögur böm í Fossvogsdal undanfama mánuði:
Rannsóknarlögregla ríkisins
rannsakar nú þijú mál sem varða
likamlegt og kynferðíslegt ofbeldí
gagnvart ungum bömum í Foss-
vogi. Ungur piltur er grunaður um
að eiga hlut að máli og er mál hans
til meðferðar hjá barnaverndaryf-
irvöldum.
Samkvæmt upplýsingum DV
kom fyrsta máhð sem er til rann-
sóknar upp í nóvember en þá mun
hafa veriö leitaö á fjögurra ára
dreng í Fossvoginum. Sá semgrun-
aður er um verknaðinn er barn
sjálfur, einungis 12 til 13 ára. Ann-
að atvik kom upp í aprfl en það var
af svipuðum toga, á svipuðum slóð-
um og var fómarlambið einnig
Qögurra ára gamall drengur. Sami
piltur er grunaður um að hafa ver-
ið að verki í það skipti.
Þriðja og síðasta tilvikið átti sér
stað fyrir viku. Samkvæmt upplýs-
ingum DV kom umræddur piltur
þá að máli við stúlkubarn á svipuð-
um aldri og drengimir eru. Bað
piiturinn stúlkuna að vísa sér leið-
ina að tilteknum leikskóla í Foss-
voginum þar sem hann áreitti
hana. Þá hefur DV upplýsingar um
fjóröa máliö sem aldrei var tilkynnt
til lögreglu.
Gísli Pálsson, lögreglufulltrúi hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins, stað-
festi, þegar frétt blaösins var borin
undir hann, aö hjá RLR væru til
rannsóknar þrjú mál af þessum
toga sem öh vörðuðu böm og grun-
ur heföi beinst að bamungum
dreng. Hann vildi ekki upplýsa um
stöðu rannsóknarinnar en sagði
hana unna í samvinnu við féiags-
málastofnanir eins og reglur mæltu
fyrir um.
Um það hvort ástæða værí til
þess að vara fólk viö sérstaklega
af þessu tilefni sagði Gísli að alltaf
væri ástæða til þess að foreldrar
og forráðamenn bama og ung-
menna vöruðu þau við ýmsum
hættum sem jafnvel gætu leynst
um bjartan dag og ekki síður á af-
viknum stöðum.
Félag foreldra barna í Fossvogi
beitti sér í máhnu í apríl. Var boðað
til fundar en ekkert varð af honum
þar sem fréttir bárust af því aö pilt-
urinn, sem grunaður er um verkn-
aöinn, væri fundinn en svo var
ekki.
-PP
Samræmdu prófunum lauk i gær og safnaðist fjöldi ungmenna saman í miðbænum til að fagna. Lögreglan þurfti
einungis að hafa afskipti af þremur ölvunartilvikum í miðbænum og lítið sem ekkert var um slagsmál. Svipaða
sögu er að segja um allt land. DV-mynd GVA
Sjómannadeilan:
Hurðum skellt
í Karphúsinu
Samningamál sjómanna og útgerð-
armanna eru eins og púðurtunna eft-
ir samningafund í nótt. Um sexleytið
í morgun hljóp allt í harða hnút og
menn skelltu hurðum í Karphúsinu.
Þá var ekki um annað að gera en
fresta fundi til klukkan 13.30 í dag.
í gærkveldi var uppi ágreiningur
innan samninganefndar sjómanna
milli undirmanna og yfirmanna en
þann ágreining tókst að leysa.
„Það tók í og menn urðu varir við
þegar gengið var um dyrnar," sagði
Guðjón A. Kristjánsson, forseti Far-
mannasamþandsins í morgun.
„Ég lít þannig á máhð nú að annað
hvort fori útgerðarmenn að láta eins
og menn í þessum viðræðum eða að
þeir geta þara átt þetta. Þegar menn
fara á taugum yfir því hvort það taki
einn, tvo eða þrjá tíma að ná ein-
hverju saman í jafn eldfimri deilu er
ekki von á góðu,“ sagði Guðjón.
„Óttinn við aö þetta springi allt í
loft upp og hver fari til síns heima
og reyni samninga í héraði voflr eins
og svipa yfír samningamönnum bæði
sjómanna og útgerðarmanna," sagði
Birgir Björgvinsson, hjá Sjómanna-
félagi Reykjavíkur í morgun.
LOKI
Er ekki bara hægt að „kalla"
allsherjargoða alveg eins og
Hveragerðispresta?
Veðriðámorgun:
Mest
17 stig
Á morgun er gert ráð fyrir að
verði hægviðri um mestaht land-
ið og yfirleitt þurrt. Bjart verður
að mestu sunnanlands og vestan
og allt að 17 stiga hiti um hádag-
inn í innsveitum suðvestanlands.
Víða verður skýjað og svalara á
Norður- og Austurlandi en léttir
þó til sums staðar í innsveitum á
meðan þokuloft verður við sjó-
inn.
Veðrið í dag er á bl$. 44
NSK
kúlulegur
JWfaeaL
Suðuriandsbraut 10. S. 686493.
K I N G A
L#TT#
alltaf á
Miövikudögum