Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Page 27
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ1995 27 | 1(1) Bítilæði Sixties | 2(2) Smash Offspring t 3(5) Transdans 4 Ýmsir 4 4(3) Reif í kroppinn Ýmsir t-"'5 ( 8 ) Dookie Green Day t 6 (10) Unplugged inNew York Nirvana | 7(4) Now30 Ymsir t 8 ( -) Stjórnarlögin 1989_1995 Stjómin t 9 (11) PulpFiction Úr kvikmynd t 10 (20) LionKing Ur kvikmynd t 11 (12) Parklife Blur t 12(17) No Needto Argue The Cranbcrries t 13 ( 9 ) Dumb & Dumber Úr kvikmynd $ 14 (14) Dummy Portishead t 15 (15) Maxinquave Tricky | 16 ( 6 ) Nobody else Take That t 17 ( 7 ) Þó líði ár og öld Björgvin Halldórsson t 18 (16) Heyrðu6 Ymsir t 19 (Al) Legend Bob Marley t 20 (Al) Friday Úr kvikmynd Listinn er reiknaður út frá sölu í öllum helstu hljómplötuverslunum í Reykjavík, auk verslana víða um landið. | 1. (1 ) Unchained Melody/White Cliffs... Robson Green & Jerome Flynn t 2. (-) Common People Pulp t 3. ( 2 ) Guaglione Perez ‘Prez' Prado & Orchestra t 4. ( 3 ) Scatman (Ski-Ba-Bop-Ba-Dop-Bob) Scatman John t 5. (- ) I Need Your Loving Baby D t 6. ( 5 ) That Look in Your Eye Ali Campbell $ 7. ( 7 ) Surrender Your Love Nightcrawlers Ft John Reid t 8. (10) Yes McAlmont & Butler t 9 (6) Your Loving Arms Billy Ray Martin t 10. ( 4 ) Droamer Livin' Joy New York (lög) _________________tórijQ^' Hróarskelduhátíð í aldarfj ór ðung Aðstandendur Hróarskelduhátíð- arinnar ætla að hafa hana sérlega glæsilega á þessu sumri í tiiefni þess að hún er nú haldin í tuttugasta og fimmta skipti. Bob Dylan er skraut- fjöðrin á löngum lista flytjenda sem fram koma að þessu sinni. En meðal annarra stórmenna má nefna Jimmy Page og Robert Plant og liðsfólk hljómsveitanna R.E.M., Cure og Cranberries. AIls verða seldir níutíu þúsund að- göngumiðar að Hróarskelduhátíð- inni að þessu sinni. Leif Skov, aðal- skipuleggjandi hátíðarinnar, segir að ekki verði seldur einn miði tíl viðbót- ar. Gesti númer 90.001 verði vísað frá. Ástæðan er sú að þjónustan, sem mótshaldarar verða að bjóða upp á, svo sem salemisaðstaða og þess hátt- ar, ber ekki fleira fólk. Hátíðin hefst formlega að þessu sinni fimmtudaginn 29. júní og stend- ur langt fram á nótt aðfaranótt mánu- dagsins þriðja júlí. Aðgangur að henni kostar sex hundruð danskar krónur, jaöivirði tæplega sjö þúsund íslenskra króna. í síðustu viku var þriðjungur miðanna þegar seldur í forsölu og Leif Skov og samstarfsfólk hans eru sannfærð um að uppselt verði nokkru áður en flautað verður til leiks. Glæsileg dagskrá Alls koma um eitt hundrað og fjörutíu hljómsveitir fram á Hró- arskelduhátíðinni að þessu sinni. Bob Dylan er óumdeilanlega aðal- trompið að mati forsvarsmanna há- tíðarinnar. En þeir eru litlu minna kátir með aö fá R.E.M. Óvíst var um þátttöku þessarar feikivinsælu bandarísku hljómsveitar lengi vel. Ástæðan var sú að trommuleikarinn Bill Berry fékk heilablæðingu á hljómleikum í Sviss fyrsta mars síð- astliðinn. Fyrst í stað var óvíst um líf hans eða hvort hann næði sér and- lega eftir áfallið. En Berry er sestur aftur við settið og hljómsveitin er byrjuð að spila að nýju af sama kraft- inum og fyrr. Af öðrum listamönnum, sem koma fram á þessari mestu rokkhátíð sem haldin er á Norðurlöndum, má nefna bandarísku rokksveitina Van Halen, bresku hljómsveitina Suede og Elvis Costello sem ætlar að halda flögurra klukkustunda konsert í græna tjald- Bob Dylan er hinn merkasti af heiðursgestum Hróarskelduhátíðarinnar að þessu sinni. inu á svæðinu á sunnudagskvöld og bjóða til sín fjölda heimsþekktra gesta sem verða eins konar leynigest- ir hátíðarinnar. Stóraukið umfang í tilefhi aldarfjórðungsafmælisins hefúr fjárveiting til hátíðarinnar ver- ið hækkuð um fjörutíu prósent, upp í ríflega háifan milljarð íslenskra króna. Fénu verður aðallega varið tfl að auka við ýmiss konar útbúnað sem fylgir rokkhátíð af stærstu gerð. Salemum verður fjölgað um helming eða svo. Símaklefar verða reistir, vatnshanar og fjölmargt fleira. Og þá verður einnig að flölga sviðum hátíð- arinnar tfl að hljómsveitimar hund- rað og fjörutíu, sem ráðnar hafa ver- ið, geti allar komið fram áður en mánudagurinn rennur upp. Eftir að bætt hefur verið við rauðu tjaldi og gulu geta átta hljómsveitir verið á sviði í einu. Það er því ljóst að gest- frnir níutíu þúsund verða að velja og hafiia. Ómögulegt verður að fylgjast með öUu sem gerist. Stórum vid- eoskjá verður komið fyrir við appel- sínugula tjaldið tU að sem flestir geti séð það sem þar fer fram. Þá stendur einnig tU að stórbæta hljómkerfi app- elsínugufa tjaldsins á svipaðan hátt og við hið græna þannig að þeir sem aftastir em geti notið tónlistarinnar tU jafhs við þá sem framar em. Og fleiri betrumbæta þjónustu sína en hljómleikahaldaramir sjálfir. Dönsku ríkisjárnbrautirnar hafa komið upp lítiÚi jámbrautarstöð við hátíðarsvæðið og byggt brú frá henni og yfir á svæðið. Áhersla verður lögð á umhverfis- vernd á Hróarskelduhátíðinni að þessu sinni. Gestir geta tU dæmis fengið keypta svarta plastpoka und- ir msl á tuttugu og fimm kafl en fá 125 krónur tU baka þegar þeir skUa honum fúUum af rusli. MatarUátin, sem seld verða á svæðinu, á að vera hægt að nota oftar en einu sinni og þannig mætti lengi telja. Þótt Hróarskelduhátíðin sé nú orð- in tuttugu og fimm ára ætla aðstand- endur hennar ekki að gefa fortiðar- fíkninni lausan tauminn og fara að drífa á svið fomar hetjur frá fyrri há- tíðum. Þess í stað verður tímamót- anna minnst með því að gefið verð- ur út frímerki, gerð kvikmynd um hátíöina og áttunda júní kemur út sérstök bók um hana eftir danska rokkfræðinginn Andres Rou Jensen. Búist er við því að meirihluti gesta á Hróarskelduhátíðinni komi frá Norðurlöndum. Þeir koma þó áreið- anlega mjög víða að að þessu sinni. í fyrra lögðu tvö þúsund Bandarfkja- menn leið sína gagngert á hátíðina og er búist við enn fleirum að þessu sinni. En þeir sem ekki komast geta séð og heyrt merkustu atburðina í sérstakri dagskrá hjá MTV og einnig sinna fjölmiðlar aiíra Norðurlanda- þjóðanna þessari merkustu rokkhá- tíð Norðurlanda til þessa. ^^retland (piötur/diskaQ*^^ t 1. (- ) Singles Alison Moyet ■ ■ y 4 2. (1 ) Stanley Road Paul Weller t 3. ( 6 ) The Color of My Love Celine Dion : 4 4. ( 2 ) Nobody else Take That t 5. (- ) Natural Mystic Bob Marley & The Wailers t 6. (- ) P.H.U.Q. Wildhearts 4 7. ( 5 ) Picture This WetWetWet t 8. (28) Tuesday Night Music Club Sheryl Crow . 9. ( 3 ) I Should Coco Supergrass 4 10. ( 4 ) The Complete Stone Roses Bandaríkin (piðtur/diskar) • 1. ( 2 ) Cracked Rear View Hootie and The Blowfish t 2. ( 3 ) Throwing Cooper Live 4 3. (1 ) Friday Ur kvikmynd | 4. ( 4 ) Forrest Gump Úr kvikmynd • 5. ( 7 ) Hell Frcezes over The Eagles 4 6. ( 5 ) Me ogainst the World 2Pac 4 7. ( 6 ) John Michael Montgomery John Michael Montgomery t 8. ( 9 ) II Boyz II Men 4 9. ( 8 ) Astro Creep White Zombie tlO. (Al) The Hits Garth Brooks Snoop Doggy Dogg Syrtir í álinn Aliar líkur eru nú á því að rapparinn góðkimni (eða illræmdi eftir smekk) Snoop Doggy Dogg verði ákærður fyrir morð að yfir- lögðu ráði. Málið snýst sem kunnugt er um morð á Philp nokkrum Waldemariam sem skotinn var til bana af Sean Abrams, lífverði rapparans, í ágúst 1993. Abrams skaut Waldemariam út um glugga á jeppa í eigu Snoops og sat rapparinn sjálfur undir stýri. Verjend- ur Snoops hafa að undanfomu barist fyrir því að fá ákærunni breytt á þeim forsendum að Snoop hafi ekki gert sér grein fyrir því að Abrams væri vopnaður en dómari í málinu hefúr látið hafa það eft- ir sér að honum finnist sú vöm haldlítil og ekki trúverðug. Fjöl- mörg vitni bera það neftiilega að bfllinn hafi elt Waldemariam dá- góða shmd og Abrams skotið nokkrum skotum að honum áður en hann felldi hann. Verði Snoop ákærður fyrir morð blásfr við hon- um löng fangelsisvist. -SþS-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.