Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1995, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1995
Fréttir__________________________________________________________
Krabbameinssjúklingur á hrakhólum með barn og hund í Heiðmörk:
Sofa slypp og snauð
á hörðu bílgólfinu
Vilhelmína Ragnarsdóttir með níu ára syni sínum, Arnari Örvari Blomster-
berg, og varðhundinum Bell í skottinu á bílnum sem þau hafa sofið i síð-
ustu þrjár vikurnar. DV-mynd GVA
„Sambýlismaður minn, pabbi
stráksins, kastaði okkur út fyrir ári
og ég fékk ekki einu sinni sæng fyrir
strákinn. Pabbi hans hefur margoft
hótað okkur og í vetur ætlaði hann
að brjótast inn í bílinn hjá okkur.
Ég kærði hann í desember og þá feng-
um við lögregluvernd í viku. Allar
eignir eru skráðar á hans nafn og
hann neitar að láta okkur fá það sem
viö eigum. Ég fékk.sumarbústað við
Langavatn í móöurarf en hann neitar
aö láta okkur fá hann. Ég fæ ekki
einu sinni myndir af börnunum mín-
um,“ segir Vilhelmína Ragnarsdótt-
ir, krabbameinssjúklingur og starfs-
maöur hjá hinu opinbera.
Vilhelmína og níu ára sonur henn-
ar, Arnar Örvar Blomsterberg, hafa
ekki haft neitt þak yfir höfuðið und-
anfarnar þijár vikur eftir að þau
misstu leiguhúsnæði sem þau höfðu
fyrir nokkrum vikum. Þeim hefur
ekki tekist að fá aðra íbúð á leigu
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og því
hafa þau neyðst til að sofa í bíl sínum
á nóttunni síðustu vikumar. Mæðg-
inin hafa sofið í svefnpokum með
kodda undir höfðinu á hörðu bílgólf-
inu yfir nóttina og ekið kvölds og
morgna til systur Vilhelmínu til að
þvo sér og borða.
Ekkert heimilislíf
„Ég var búin að vera með krabba-
mein í brjósti og hafði látið taka af
mér annað brjóstið. Við vissum af
æxli í hinu brjóstinu og að það þyrfti
að taka það líka. Ég lét græða á mig
nýtt brjóst og þá fannst sambýhs-
manni mínum ég vera kynferðislega
fráhrindandi. Ég veit ekki um neina
aðra ástæðu fyrir því að hann kast-
aði okkur út,“ segir Vilhelmína og
bætir viö að í framhaldi af þessum
veikindum hafi hún átt við kviðslit
að stríða í janúar, febrúar og mars á
þessu ári.
„Þetta tekur rosalega á taugarnar.
Strákurinn er ofvirkur og hefur ver-
ið á lyfjum en þau hjálpa ekki nógu
vel. Hann grét í fyrstu yfir því að
þurfa að sofa í bfinum. Félagsmála-
stofnun útvegaði honum stuðnings-
mann í vetur því að hann var hrædd-
ur við pabba sinn, gat ekki sofið og
vildi ekki hitta hann. Hann fór til
systkina sinna í Svíþjóð í desember
og fer aftur til þeirra á laugardag því
að þetta er svo mikið óöryggi. Við
getum ekki gert neitt annað en að
sofa hér í bílnum en þetta er ekkert
lieimilislíf," segir Vilhelmína.
Varðhundurinn
veitir öryggi
Félagsmálastofnun Reykjavíkur-
borgar hefur auglýst eftir íbúð fyrir
mæðginin en án árangurs. Vilhelm-
ína telur að þau fái ekki húsnæði tfi
leigu því að það valdi tortryggni að
þau séu ekki meö neina búslóð. Börn-
in hennar hafi gefið þeim varöhund-
inn Bell í byijun ársins. Hann veiti
þeim mikið öryggi en auki því miður
ekki möguleikana á að fá íbúð.
„Ég er rikisstarfsmaður með 70
þúsund krónur í mánaðarlaun.
Launin dugðu ekki fyrir neinu því
að leigan var samtals 45 þúsund
krónur. Ég skrifaði Ingibiörgu Sól-
rúnu fyrir hvitasunnu en hef ekki
fengið neitt svar ennþá. Ég hef kraf-
ist þess að fá minn hlut í sameiginleg-
um eignum og málið fer fyrir héraös-
dóm á föstudag. Við getum ekki gert
neitt annað en verið hér þar til viö
höfum fengið úrlausn okkar mála,“
segirhun. -GHS
Stuttar fréttir
Formaður Útvegsmannafélags Norðurlands:
NIÐURSTAÐA
! 1.1111 ■ I...........r d dt d
Hvortfinnst þér betra að rói g/ClMC
hafa cíittaelrr4itð í rwLiiOlllO
hafa símaskrána í
einu bindi eða tveimur
Tvö bindi
Eittbindt
Deilan verður að
leysast í kvöld
Davið Oddsson (orsætisráðherra hitti fulltrúa samningsaðila í sjómannadeil-
unni í gær. Hér tekur hann á móti Guðjóni A. Kristjánssyni, formanni Far-
manna- og fiskimannasambands íslands. DV-mynd BG
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það er alveg skýrt í mínum huga
að þessi deila verður að leysast ekki
síðar en í kvöld i Reykjavík. Ef þaö
tekst ekki hlýtur það að blasa við að
þeir aðilar sem eru í viöræðunum
ráða ekki við lendingu í þessu máli,
og þá flytst þetta heim í héraö,“ segir
Sverrir Leósson, formaður Útvegs-
mannafélags Norðurlands, um stöð-
una í sjómannadeilunni.
Sverrir opnar þannig á möguleika
á viðræðum við sjómannafélögin á
Norðurlandi, jafnvel strax á morgun,
takist samningar í Karphúsinu ekki
í dag. „Ef samninganefndirnar í
Reykjavík ráða ekki við að leysa
þetta fyrir klukkan 8 í kvöld eru þær
ekki starfi sínu vaxnar og vð höfum
þá ekkert við þær að gera,“ segir
Sverrir.
Hann segir alveg Ijóst að eftir að
sjómenn felldu miðlunartillögu
sáttasemjara þurfi þeir „aðeins
meira kjöt á beinin" eins og hann
orðaöi það. Og Sverrir segist ekki
trúa öðru en samið verði í dag.
Konráð Alfreðsson, formaður Sjó-
mannafélags Eyjafiarðar, sagði í gær
að samningaviðræðunum, sem hóf-
ust kl. 10 í morgun, væri ekki hægt
að gefa nema nokkra klukkutíma.
Ef samningar kæmu ekki nánast
strax væri hann tilbúinn að fara
norður og hefia samningaviðræður
þar viö Utvegsmannafélag Norður-
lands.
Ósamþykktafibúðk’
Til vandræða horfir hversu
mikið er af ósamþykktu íbúðar-
húsnæði í iðnaðarhverfum. Sjón-
varpið hafði þetta eftir eldvamar-
fulltrúa eftir eldsvoða í Hafnar-
firði í vikunni.
Mættmeðgjaldtöku
Þingflokkur Þjóövaka vill aö
Alþingi lýsi yfir stuðningi viö
veiðileyfagjald í sjávarútvegi.
LeyfI feltt úr glldi
Umhverfisráðuneytið felldi í
gær úr gildi ákvörðun bygginga-
nefhdar Hafnarfiarðar um að
leyfa byggingu svokallaðs vík-
ingahúss á lóð Fjörukrárinnar
viö Strandgötu. RÚV greindí frá.
Nýrframkæmdastjóri
Hanna Bima Krisfiánsdóttir
sfiómmálafræðingur hefur verið
ráðin framkvæmdasfióri þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins.
Samið viðgoHara
Golfklúbbur Reykjavíkur hefur
samþykkt breytta legu golfbraut-
ar við Korpúlfsstaði. Klúbburinn
fær eina álmu Korpúlfsstaða í
stað lóðar fyrir golfskála. Mbl.
greindifrá. -kaa
Þinglok á morgun?
„Eins og mál standa nú er stefnt
að þinglokum á morgun," sagði Ólaf-
ur G. Einarsson, forseti Alþingis, við
DV. Fáir virðast samt treysta sér til
að fullyrða að það takist. Ljúka átti
þingstörfum í nótt er leið. Það tókst
ekki. Þá var stefnt að því að ljúka
þingstörfum í dag og það tekst ekki.
Hvort það tekst á morgun verður
bara að koma í ljós.
í dag hefst þingfundur klukkan
13.30 og verður sjávarútvegsfrum-
varpið og framvarpið um þróunar-
sjóðinn fyrst á dagskrá.
Jóhann G. Bergþórsson:
Áfram í
flokknum
nemaég
verði rekinn
„Með þessari afgreiðslu var
brotið samkomulag um meiri-
hlutann sem gert var í júní í
fyrra. Það hlýtur að leiða til þess
að meirihlutinn sé fallinn. Þarna
er trúnaðarbrestur og forsendur
meirihlutasamkomulagsins eru
brostnar," segir Jóhann G. Berg-
þórsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins í Hafnarfirði.
Kristhin Ó. Magnússon aðstoð-
arbæjarverkfræðingur var ráö-
inn í stöðu forstöðumanns fram-
kvæmda- og tæknisviðs með
fimm atkvæðum Alþýðuflokks á
bæjarstjórnarfundi í Hafnarfirði
síðdegis í gær. Meirililutinn
studdi Björn Inga Sveinsson með
fiórum atkvæðum Alþýðubanda-
lags og Sjálfstæðisflokks. Jóhann
G. Bergþórsson fékk tvö atkvæði
eftir að hafa kallað Magnús
Kjartansson varabæjarfulltrúa á
fundinn.
„Ég kem til með að halda áfram
fullu starfi innan Sjálfstæðis-
flokksins nema ég verði rekinn.
Ég hafna því að hafa slitið sam-
starfinu. Eg greiddi ekki atkvæði
í andstöðu við skriflegt sam-
komulag meirihlutans," sagði
Jóhannígærkvöldi. -GHS
Magnús Gunnarsson:
Flokkurinn
er klofinn
„Afstaða þessara einstaklinga
veldur mér griöarlegum von-
brigöum. Þaö stendur upp úr.
Auðvitaö er flokkurinn klofinn
að því leyti að það er komin geil
milh bæjarfulltrúanna fiögurra -
ég og Valgerður annars vegar og
Jóhann og Ellert Borgar hins veg-
ar - en ég lít svo á að ég hafi yfir-
gnæfandi stuðning flokksins. Það
er venjan að menn fylgi sinum
flokki og ég get ekki annað séö
en menn dæmi sig frá honum
með svona hegðun,“ segir Magn-
ús Gunnarsson, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í Hafnarfirði.
Sjálfstæðismenn hittast á full-
trúaráðsfundi í Sjálfstæðishúsinu
í Hafiiarfirði í kvöld til að ræða
lok meirihlutasamstarfsins við
Alþýðubandalagið í bæjarstjórn.
Oddviti flokksins hyggst leggja
fram yfirlýsingu um þaö að meiri-
hlutasamstarfinu sé lokiö og er
búist við að fiörugar umræður
verðiáfundinum. -GHS
Tryggvi Harðarson:
Síðurensvo
vantraustá
Jóhann
„Þetta er síður en svo vantraust
á Jóhann. Það var ljóst að þarna
voru margir hæfir umsækjendur
og við völdum þann sem okkur
virtist besti kosturinn. Ef Jóhann
heföi orðið fyrir valinu óttaðist
ég aö viö værum að færa þær
deílur sem hafa einkennt störf
meirihlutans inn . í embættis-
mannakerfið. Það tel ég ekki
heppilegt fyrir Hafnarfiaröarbæ
eins og staðan hefur verið á um-
liðnum vetri,“ segir Tryggvi
Harðarson, bæjarfulltrúi Al-
þýðuflokks.
„Við erum ekkert farnir aö und-
irbúa viðræður við aðra flokka.
Við höfum alltaf lýst yfir aö við
erum tilbúnir að taka að okkur
stjórn bæjarins. Við erum tilbún-
ir að ræða við alla aðila en við
erum ekkert farnir að ræða það
í okkar hópi við hvem verður
rætt fyrst," segir Tryggvi. -GHS