Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1995, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1995, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1995 Fréttir Forðagæslumaður á Kjalamesi í viðbragðsstöðu: Þrjátíu kindur meðnýborin lömb rekin á Esju - slæmt frá dýravemdarsjónarmiðum, segir forðagæslumaður Um þrjátíu kindur meö a.m.k. jafn- mörg nýborin lömb voru reknar á fjall í Esjunni fyrir um tveimur vik- um, aö sögn Andrésar Svavarssonar í Enni, forðagæslumannsins á Kjal- amesi. Féð heldur sig í Blikdal uppi á vestanverðri Esjunni en þar eru beitilönd takmörkuð nú með hliðsjón af hæð og árferöi. Andrés sagði í samtah við DV að ef beiðni kæmi frá sveitarstjórn eða lögreglu mundi reksturinn verða kærður. „í sjálfu sér gæti ég kært þetta fyr- ir að reka féö á fjall. Það hefur reynd- ar ekkert komið frá sveitarstjóra eða lögreglu um að ganga í máliö. Auð- vitað gerir maður allt ef lögregla eða sýslumaður óska eftir því. Þetta er vissulega óæskilegt. Menn eiga nú að hafa féð hjá sér og jafnvel að gefa með á þessum árstíma. Það er hins vegar tiltölulega grösugt þama uppi og mikil sina og þetta er nánast eina féð hérna í sveitínni. Það er því engin ofbeit í afréttinum. Frá dýraverndarsjónarmiðum er þetta þó heldur slæmt. í sjálfu sér get ég ekki sett út á féð sem er í góðum holdum og tiltölulega frjósamt. Féð hagar sér yfirleitt þannig að þegar ekkert er að hafa þá kemur það niður. Ég á þó ekki von á að það gerist úr þessu. Gróöur- inn er aðeins farinn að taka við sér.“ Andrés sagði að umrætt fé væri frá bænum Króki á Kjalarnesi. Allt féö á bænum hefði ekki verið rekið á fjall heldur hlutí þess.' -Ótt Þessi Skódi kom illa undan vetri á Hvammstanga i vor enda var mikill snjór á staðnum. Og ennþá má finna þar töluverðan snjó. DV-mynd G. Bender Sköttum mótmælt Skattadagurinn var laugardaginn 10. júní síðasthðinn, en það er sá dagur ársins þegar skattborgarar landsins hætta að vinna fyrir hið opinbera. Dagurinn er þannig skilgreindur þar sem liðin eru 43,8 prósent af ár- inu en það er sama hlutfall og út- gjöld hins opinbera og iðgjöld lífeyr- issjóða af vergri landsframleiðslu. í tilefni skattadagsins mótmæltu ungir sjálfstæðismenn háum skött- um og miklum útgjöldum hjá hinu opinberá. Mótmælin voru afhent fjármálaráðherra og borgarstjóra. Samkvæmt útreikningum ungra sjálfstæðismanna er skattadagurinn ívið fyrr á ferðinni í ár heldur en undanfarin ár eða á 161. degi ársins. í fyrra kom skattadagurinn upp á 163. degi ársins. -kaa ^kattadagur Útgjöld hins opinbera og iðgjöld lífeyrissjóða af vergri landsframieiðslu ' - jan. febr. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. ÍPV Baldvln Þorláksson: Krafan er samningur fyrir helgi „Ég vh fá samning og vinnufrið lengur en í eitt og hálft ár. Ég er einn þeirra sem felldu þessa miðlunartil- lögu vegna þess að mér finnst ekki koma tíl greina að málin verði með þessum hættí tekin úr höndum okk- ar sjómanna einu sinni enn,“ segir Baldvin Þorláksson, stýrimaður i Hafnarfiröi, sem var einn þeirra sjó- manna sem felldu miölunartíllögu sáttasemjara í sjómannadeilunni. Hann segir að það hafi hleypt illu blóði í menn að í miðlunartillögunni hafi ekkert verið tekiö á atriðum á borð við olíuverðstengingu, hafn- arfrí, skiptaverð á rækjubátum, upp- sagnarfrest og starfsaldursálag. „Krafan er sú að menn setjist niður og verði komnir með sanngjarnan samning fyrir næstu helgi,“ segir Baldvin. -rt í dag mælir Dagfari Bjargvætturinn að vestan Enn er ekkert lát á ófriðnum í kringum sjávarútvegsmáhn. Sjó- menn fehdu sáttatillöguna og trillukarlar halda áfram að mót- mæla nýjum lögum um krókaveið- ar. Hvort tveggja á rætur sínar að rekja til kvótans fræga, sem hefur hingað tíl verið eina haldreipi ís- lendinga til að geta veitt þorsk eða réttara sagt til að koma í veg fyrir að geta veitt þorsk. Nú hefur þessi kvóti náö há- marksárangri með því að koma í veg fyrir að sjómenn sæki sjóinn. Menn ættu ekki að gera htið úr kvótakerfmu, enda hefur Dagfari ahtaf sagt það og segir það enn að án kvótans verða engar þorskveið- ar. Og með kvóta verða engar þors- kveiðar, svo allt ber að sama brunni. Kvótinn blífur. Reyndar voru kjósendur vítt og breitt um landið aö mótmæla kvót- anum fyrir kosningamar í vor og sumir frambjóðendanna tóku und- ir þau mótmæh og lengst gengu frambjóðendur og alþingismenn Sjálfstæðisflokksins á Vestíjörðum sem hótuðu því aö styðja enga þá ríkisstjóm sem héldi sig við kvót- ann. í þessum hópi frambjóðenda var Einar Oddur Kristjánsson, fyrrum bjargvættur vinnuveitenda og gúrú í landsmálum. Þegar mikið lá við í þjóömálunum var gjaman tal- að við Einar vestur á Flateyri og Einar bjargvættur hafði svo mikið að gera við að bjarga þjóðinni og landinu með góðum ráðum og skynsamlegum yfirlýsingum um það hvernig best væri aö stjóma landinu að hann lagði niður allan rekstur sjálfur. Það var heldur ekki hjá því kom- ist að bjóða sig fram til þings og aftur var Einar Oddur kominn í sviðsljósið með yfirlýsingar handa Vestfirðingum um, stríð.gegn kvóf- anum. Svo lauk kosningum ög svo lauk stjórnarmýndun og ekkert bólaði á neinum breytingum á kvótanum og þá sagði Einar Odd- ur, sem er spakur maður, að menn skyldu bara bíða og sjá. Stjórnar- sáttmáh væri bara stjórnarsaátt- máh, en það kæmi í ljós á þingi strax í vor að þá mundi kvótinn fá að kenna á því. Þá væri sér að mæta. Aht leit þetta vel út þangað til ríkisstjórnin lagði fram fmmvarp til laga um skerðingu á krókaveið- um, þar sem trhlukörlum er gefinn kostur á að velja á mhh banndaga- kerfis eða kvótakerfis. Það segja trillukarlar vera dauðadóm yfir veiðiskap sínum og raunar sömu- leiðis útfór á vehlestum byggðar- lögum á Vestfjörðum. Einhverjum varð á að spyrjaEin- ar Odd hvort þetta væri það sem hann meinti með því aö vera á móti kvótanum. Og þá sagði Einar af sinni alkunnu visku og mann- kærleika að frumvarpið stríddi gegn samvisku sinni en hann vhdi hins vegar sýna Þorstein Pálssyni þá tihitssemi að mæla með fmm- varpinu! Já, bjargvætturinn átti svo sann- arlega erindi á þing. Þeir em ekki margir lengur sem sjá ástæðu th að sýna Þorstein Pálssyni tillits- semi. Svo ekki sé nú talaö um þeg- ar Þorsteinn leggur fram frumvarp sem stríöir gegn samviskunni og skynseminni. Þá æsa sig allir og trillukarlar fara í mótmælaherferð th höfuðborgarinnar og Vestfirð- ingar lýsa yfir dauða þeirra sjávar- þorpa sem enn eru i byggð fyrir vestan. Einmitt á svona stundum, þegar allt er að fara til helvítis, er gott að eiga góða menn að. Þá er gott að hafa bjargvætti á þingi sem skilja að orðstír ráðherrans er meira virði heldur en einhveijir geðvondir trihukarlar, svo ekki sé nú talað um kmmmaskuðin fyrir vestan. Fariö hefur fé betra, enda er Einar Oddur kominn suður aftur th að bjarga því bjargað verður af ráðherranum. Það má líka til sanns vegar færa aö kvótinn er að bjarga þorskinum og kvótinn lítur aht öðruvísi út, eftir því hvort maöur skoðar hann frá Alþingshúsinu eða bryggjunum fyrir vestan. Það er líka haft eftir einum trillukarlinum sem hitti Einar Odd fyrir framan Alþingis- húsið að hann, þ.e. trihukarlinn, ætlaði að biðjast opinberlega afsök- unar á því að hafa kosið Einar Odd. Þeir fyrir vestan kjósa ekki þá sem styöja kvóta þótt þeir sjái það eflaust allir að tihitssemi Ein- ars Odds við einn ráðherra er meira virði en tilhtssemin við kjós- endurna. Sérstaklega þegar kvót- inn er í húfi. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.