Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1995, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1995, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ1995 7 Fréttir Færeyskt nótaskip fann síld sunnan köldu tungunnar: Sfldin á leið á Rauða torgið - stórtíölndi, segir Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar „Við vorum á beinu stími þegar við keyrðum fram á síldartorfu á 64. gráðum og 40 mínútum norður og 9 gráðum vestur. Við köstuðum á hana en rifum illa. Það var spriklandi síld í netinu þannig að það fór ekkert á milli mála að þarna var síld á ferð,“ segir Árni Rogvy, skipstjóri á fær- eyska nótaskipinu Kronborg, sem keyrði fram á síldartorfu inni í ís- lensku lögsögunni um 70 sjómílur frá Rauöa torginu. Hann segir að síldin sé að sínu mati á leið með stefnu á Rauða torg- ið, hinar fornu vetursetustöðvar norsk-íslensku síldarinnar. „Það er mjög mikið af síld komið inn í íslensku lögsöguna en það er mikill straumur á þessum slóðum og erfitt að eiga við veiðarnar. Við reyndum því ekki að kasta aftur en notuðum tímann til aö keyra til skip- anna sem voru að mokfiska norðar," segir Árni. „Þetta eru stórfréttir ef rétt reyn- ist. Ég ætla svo sannarlega að vona að þetta sé raunin," sagði Jakob Jak- obsson, forstjóri Hafrannsóknastofn- unnar, þegar DV bar undir hann tíð- indin um heimkomu norsk-íslensku síldarinnar. Færeysku nótaskipin hafa mok- veitt síldina mun norðar og austar eða á 67. gráðu norður, um 15 sjómíl- ur innan íslensku lögsögunnar. Vegna þessarar miklu veiði hafa skipin ekki hugað að veiðum annars staðar og því hefur enn ekki borist skýr mynd af því hvernig síldin hag- ar sér nákvæmlega á þeim slóðum sem Kronborg kastaði. Þorsteinn Kristjánsson, skipstjóri á Hólmaborg, segir það mikið fagnað- arefni að síldin skuli vera komin suður fyrir köldu tunguna. „Þetta lítur alveg rosalega vel út. Við erum mjög bjartsýnir á fram- haldiö. Það er engin spurning að það er mikið af síld og hún er á réttri leið,“ segir Þorsteinn. Þrjú færeysk skip hafa verið við veiðar á þessum slóöum. Kronborg landaði fullfermi, eða 1500 tonnum, á Eskifirði á sunnudagskvöld. Þessi heimkoma síldarinnar styrk- ir mjög samningsstöðu íslendinga gagnvart Norðmönnum varðandi skiptinguveiðaúrstofninum. -rt Landlæknir um breytingar á áfengislöggjöfinni: Óttast aukna áfengisneyslu „Ef samþykkt þessa frumvarps veröur til þess að auka sölu og að- gengi manna á áfengi þá boðar það aukin heilbrigðisvandamál. Það er margt sem bendir til þess að það verði raunin,“ segir Ólafur Ólafsson landlæknir um afnám einkaréttar ríkisins á innflutningi á áfengi. Ólafur sendi heilbrigðisnefnd Al- þingis umsögn um áfengislagafrum- vörp ríkisstjórnarinnar að ósk nefndarinnar. Þar er lögð áhersla á auknar foryarnir og bent á að áfeng- isneysla á íslandi hafi aukist um 20 prósent á árunum 1980 til 1992, á sama tíma og neysla áfengra drykkja hafi dregist saman um 14 prósent meðal ýmissa Evrópuþjóða. Ólafur bendir á að áfengi sé sam- verkandiþátturíslysum. -kaa 10LITIR AUÐVELD UPPSEl.oiiu BYGGINGAVÖRUR Síðumúla 27, 108 Reykjavík • ® 811544 • Fax 811545 U&Xfið : LaserWriter 16/600PS Geislaprentari fyrir bæði Macíntosh og PC. Ethemet-tengi. Hámark 16 síðuf á mínútu. Grfurlega öflugúr prentari. o u a h J JV*, áu vm kr. jiSr. m. VjIÍ ' Apple-umboðið SKIPHOLTI 21 • SlMI: 511 5111 Heimasíöan: HTTPV/WWW.APPLE.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.