Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Síða 2
/
Fréttir
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995
Þjóðminjaráð fimdar eftir að rannsóknum á Miðhúsasilfrinu er lokið:
Blekkingum ekki beitt
í tengslum við f undinn
- allt silfrið fr á vlkingaöld en einn munanna líklega seinni tíma smíð
Þjóðminjaráð kynnti í gær á blaða-
mannafundi niðurstöður rannsókna
danska þjóðminjasafnsins á rúmlega
40 munum og brotum silfursjóðs,
samtals rúmlega 650 grömm, sem
fannst að Miöhúsum í Egilsstaða-
hreppi. Rannsóknirnar leiddu í ljós
að efnasamsetning silfurs í öllum
sjóðnum á sér hhðstæður í óvefengd-
um silfursjóðum frá víkingaöld. Einn
heillegustu munanna sker sig hins
vegar úr hvað varöar þann stíl og
þá tækni sem beitt var við smíðina.
Um er að ræða silfurhring sem er
tæplega 29 grömm að þyngd. Hring-
urinn, sem er merktur númer 3 viö
rannsóknina, samanstendur af
þremur ofnum silfursnúrum. Hann
er smíöaður úr víkingaaldarsilfri
sem líklega hefur verið brætt upp i
seinni tíð og mótað á ný með nútíma
tækni, tækni sem er fyrst þekkt á 19.
eða 20. öld.
Þrátt fyrir þetta segir í ályktun
þjóðminjaráðs að rannsóknin gefi
ekki tilefni til að álykta að blekking-
um hafi verið beitt í tengslum við
fundinn. Jafnframt sé rannsóknum,
sem ráöinu hafi verið falið að láta
gera, lokið.
Það var Vilhjálmur Örn Vilhjálms-
son, fornleifafræðingur og starfs-
maður Þjóðminjasafnsins, sem upp-
haflega hreyfði við því á árinu 1993
að líkur væru á að hluti sjóðsins
væri nútímasmíð. Breskur prófessor,
James Graham-Campell, var fenginn
til landsins til að rannsaka sjóðinn
og eru megin niðurstöður hans að
hluti Miðhúsasilfursins sé nútíma-
smíö. Segir hann enn fremur í
skýrslu sinni að vísbendingar séu
um að Þjóðminjasafnið hafi þannig
verið beitt blekkingum vísvitandi.
„Að sjálfsögðu er hægt að vera með
margar getgátur í þessu samhengi
sem rannsóknimar segja ekkert til
um. Einn möguleikinn er sá að sjóð-
urinn hafi fundist fyrr en skráð er
og þar á eftir átt við hann, hann
bræddur og unnið úr honum á ný.
Að þessu loknu hefur hann verið
grafrnn í jörðu. Hringur númer 3
getur verið afrakstur þessa. Það er
líklegt að þráðurinn í hring númer 3-
sé smíöaður af manneskju sem hefur
til að bera þekkingu á sviði silfur-
smíði,“ segir í niðurstöðum skýrslu
danska þjóðminjasafnsins.
Lilja Amadóttir, safnstjóri Þjóö-
minjasafnsins, og Helgi Þorláksson
dósent höfðu umsjón með rannsókn-
unum fyrir hönd þjóðminjaráðs.
Unnu þau greinargerð byggöa á
skýrslu danska þjóðminjasafnsins. I
greinargerðinni telja þau ómögulegt
að tímasetja með nákvæmni hvenær
sjóðurinn var lagður í jörðu ásamt
með hring númer 3. í lok skýrslu
sinnar sjá þau ástæðu til að geta þess
að niðurstöðurnar bendi ekki til þess
að sjóöurinn hafi verið lagður í jörðu
sérstaklega í tilefni af komu Kristj-
áns Eldjárns, fyrrverandi forseta ís-
lands og þjóðminjavarðar, til Egils-
staöa en hann var einmitt staddur
þar þegar sjóöurinn fannst að Mið-
húsum31.ágústl980. -pp
Stuttar fréttir
Leitað var að flugvélinni með öllum
tiltækum hjálparsveitum og þyrlu
Landhelgisgæslunnar. Leitin var
erfið vegna þoku á leitarsvæðinu
en hún fór aðallega fram á Krísuvik-
ur- og Bláfjallasvæðinu.
DV-mynd BG
Flugslys viö Kleifarvatn:
Flugmaðurinn
látinn þegar að
var komið
SamiðviðAlusuisse
Ríkisstjóm íslands er reiðubúin
aö skrifa undir samning viö
Alusuisse um stækkun álversins
í Straumsvík um leið og fyrirtæk-
ið tekur ákvörðun um stækkun
eftír tvo mánuði. RÚV sagði frá.
Menningarborg
Ríkisstjómin, fyrir hönd
Reykjavíkur, hefur sótt um að
Reykjavíki verði útnefnd menn-
ingarborg Evrópu árið 2000 eöa
2001 til vara. RÚV sagði frá.
AIHeimsforseti
Eyjólfur Sigurðsson hefur veriö
kosinn heimsforseti Kiwanis-
samtakanna, fyrsti Evrópubúinn
sem þann heiður hlýtur. RÚV
sagði frá.
Daviðáferðogflugi
Davíð Oddsson er á faraldsfæti
þessa dagana. í dag situr hann
fund forsætisráðherra Norður-
landa og Eystrasaltsríkjanna í
Vilníus í Litháen og á þriðjudag
fer hann í opinbera heímsókn til
Namibiu.
Seðiabanki lækkar vexti
Seðlabankinn hefur lækkað
forvexti og vexti í endurhverfum
ríkisvíxlakaupum um 0,3 pró-
sentustig. Lækkunin tekur gildi í
dag og nær til viðskipta Seðla-
bankans við banka og innláns-
stofnanir.
Rafmagnshagnaður
Hagnaöur af rekstri Rafmagns-
veitu Reykjavíkur nam 342 millj-
ónum króna á síðasta ári og arð-
greiðslur tíl borgarsjóðs voru 415
miUjónir. Þetta kemur fram í
nýlegri ársskýrslu fyrir 1994.
-bjb/-sv
Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði
fann laust eftir klukkan 7 í gærkvöld
tveggja hreyfla flugvél sem saknað
hafði verið frá því klukkan 4 síðdegis
í gær. Flugmaður vélarinnar, sem
var einn um borð og var atvinnuflug-
maður, var látinn þegar að var kom-
ið.
Flugvélin, sem er ítölsk, af gerðinni
Partenavia 68, fannst í Geitahlíð
sunnan Kleifarvatns. Þyrla Land-
helgisgæslunnar flaug á staðinn með
fuUtrúa loftferðaeftirhtsins og rann-
sóknarnefnd flugslysa og rannsök-
uðu þeir vettvang slyssins í gær.
Flugvélin lagði af staö frá Reykja-
vík klukkan 14.10 í gær áleiöis til
Selfoss en hafði síöast samskipti við
flugtum klukkan 14.15, þá yfir Kleif-
arvatni. Þau samskipti voru með
eðhlegum hætti. Þegar flugvélin kom
ekki fram á Selfossi á áætluðum tíma
hófst eftirgrennslan og síðan leit meö
öllum tiltækum hjálparsveitum úr
nágrannabyggðarlögum. Leitin var
erfið vegna þoku á leitarsvæðinu en
hún fór aðallega fram á Krísuvíkur-
ogBláflallasvæöinu. -ÍS/PP
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
* _Ll
Nei _2j
r ö d d
m ■ w wi ■■
FOLKSINS
904-1600
Má yffirmaður Eöðrunga
undirmann sinn?
Alllr I stofræna kurflnu maft tónvalsslma guta nýtt »6r þe»«a þ|6nu$tu.
Ekki vegið að mér
sem fræðimanni
- segir Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
„Ég tel að þarna sé komin óve-
fengjanleg sönnun þess að átt hafl
verið við sjóðinn á ákveðnu tímabiU
en hins vegar er þaö túlkað í fiölmiöl-
um á afar mismunandi hátt. Mér
þykir undarlegt að fremsti sérfræð-
ingur á sviði silfurrannsókna á ís-
landi hafi ekki getað séö þetta árið
1980,“ segir dr. Vilhjálmur Örn Vil-
hjálmsson, fornleifafræðingur á
Þjóðminjasafninu, um niðurstööur
rannsókna á Miðhúsasilfrinu og á
þar við Þór Magnússon þjóðminja-
vörð.
Dr. Vilhjálmur segist alls ekki telja
að vegið sé að sér sem fræöimanni,
þvert á móti. Upphaflega rannsóknin
hafi verið málefnaleg en henni hafi
hins vegar veriö snúið upp í farsa.
Þeir sem stóðu að henni hafi verið
„kriminahseraðir" í umræðunni eft-
ir að þeir komu fram með niöurstöð-
umar. í ljósi yfirlýsinga Miðhúsa-
hjónanna, um að meiöyrðamál verði
höfðað gegn honum, segist Vilhjálm-
ur harma að menn vilji yfirleitt
tengja máUð réttarhöldum.
Aðspurður segir Vilhjálmur að yf-
irmaður sinn, Þór Magnússon, hafi
tjáö sér að nýlega hafi verið rætt um
það á fundi þjóðminjaráðs að staða
hans væri óörugg hjá safninu en VU-
hjálmurtelurþóaðsvoséekki. -pp
Málið til mikilla
vandræða
- segir Sturla Böðvarsson
„Ég tel að þetta umtal og ásakanir
einstakra starfsmanna hafi verið til
mikUla vandræða fyrir safniö satt að
segja og mál er að Unni,“ segir Sturla
Böðvarsson, formaður þjóðminja-
ráðs, um niöurstöður rannsókna á
Miðhúsasilfrinu.
Sturla segist ánægður með að mál-
inu sé lokið og rannsókn Dananna
virðist vera mjög vönduð. Það hafi
ekki verið rætt á fundi þjóöminjaráðs
um aö málið hafi áhrif á starfsframa
einstakra manna innan safnsins
enda sé starfsmönnum gefinn kostur
á að vinna að málum á eigin forsend-
um. Hann segist líta það alvarlegum
augum ef Þjóðminjasafniö verði sótt
til saka af einstökum mönnum í þjóð-
félaginu og vonar að ekki komi tíl
þess. Hins vegar yrði afstaða tekin
tíl þess þegar og ef að því kæmi. -pp
EM í bridge:
Lokaspretturinn
hafinn
íslenska landsliöið var í 7. sæti
Evrópumótsins í bridge með 489 stig
þegar tveimur umferðum var ólokið
á mótinu. Sveit Ítalíu var langefst
með 535,5 stíg, Pólland í öðru með
508, Frakkland með 504 og Holland í
flórða sæti með 502,5 stig. Svíþjóð var
í fimmta sæti mótsins með 500,5 stíg
en ísrael í því sjötta með 493 stig.
Fjórar efstu sveitimar vinna sér rétt
til þáttöku á HM þar sem keppt verð-
ur um Bermúdaskálina í október á
þessu ári.
ísland vann sigur á Tékkum, 17-13,
í fyrsta leik gærdagsins og síðan 17-13
sigur á Austurríkismönnum í öðrum
leik. SíðastiJeikur gærdagsins var
gegn Spánverjum en í dag fer síðasta
umferðin fram en þá spilar liöið gegn
Sviss. _is