Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Side 8
I
LAUGARDAGUR 1. JULI 1995
Bridge
íslenska landsliðið í bridge sem nú keppnir á Evrópumótinu.
Hörð átök um
verðlaunasætin
á EM í Portúgal
Þegar þetta er skrifað hefur lands-
lið íslands i opna flokknum náð að
klifra upp úr 22. sæti í 5. sæti sem
verður að teljast töluvert afrek. Sex
umferöir eru eftir og að mínu viti er
4. sætið innan seilingar. Bæði er að
fimm af sex andstæðingunum ættu
að vera auðunnir og úthald okkar
manna ætti að vera betra en hinna.
En þegar þetta er lesið þá ætti að
hafa komið í ljós hversu sannspár
ég hef verið því aðeins er eftir að
spila einn leik og hann við Sviss.
Raunar gæti hann ráðið úrslitum.
Konunum hefur hins vegar vegnað
verr eftir nokkuð góða byrjun. Þegar
þetta er skrifað eru þær í 14. sæti af
22 þjóðum með 243 stig.
Við skulum líta á árangur liðsins í
opna flokknum til þessa:
12 gegn Finnlandi
10 gegn rikklandi
20 gegn Mónakó
19 gegn Slóveníu
25 gegn San Marínó
16 gegn Póllandi
21 gegn Danmörku
8 gegn Svíþjóð
9 gegn Hollandi
13 gegn Frakklandi
15 gegn Bretlandi
25 gegn Rússlandi
21 gegn Litháen
20 gegn Noregi
17 gegn Hvíta-Rússlandi
11 gegn Belgíu
23 gegn Portúgal
17 gegn Þýskalandi
7 gegn Ítalíu
22 gegn Króatíu
17 gegn írlandi
15 gegn Úkraínu
25 gegn Rúmeníu
19 gegn ísrael
20 gegn Ungverjalandi
Eins og sést á þessari upptalningu
hefur sveitin unnið 16 leiki (þar af
13 leiki í röð með einni undantekn-
ingu), tapað sjö og gert jafnt í tveim-
ur. Ef rennslið heldur áfram virðist
leiðin til Peking greið, þ.e. eitt af fjór-
um efstu sætunum.
Við skulum að lokum fylgjast meö
Jóni Baldurssyni og Sævari Þor-
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
björnssyni berja á San Marínómönn-
um.
S/O
♦ D6542
¥ 7432
♦ -
+ DG52
♦ AK8
¥ DG1095
♦ A5
4* 843
N
V A
S
* G97
¥ AK86
♦ D1064
+ 109
Suður Vestur Noröur Austur
ltígull pass 1grand* pass
2hjörtu** pass 3grönd pass
4 tíglar pass 4 spaðar pass
6 tíglar pass pass pass
Laus staða
Laus er til umsóknar staða skólameistara við Menntaskól-
ann á Egiisstöðum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4,
150 Reykjavík, fyrir 20. júlí næstkomandi.
Matgæðingur vikuimar
Saltfiskréttur
með múslíbrauði
- og hvítlaukskjúklingur
„Matreiðsla er mikið- áhugamál
hjá mér. Mér fmnst mjög gaman
að grafa bæði kjöt og físk og að
prófa nýjar uppskriftir, sérstaklega
uppskriftir að saltfiski. Ég er líka
hrifm af skötusel og humrinum
náttúrlega," segir Jóna Ragnars-
dóttir á Reyðarfirðisem um helgar
starfar við matseld á Hótel Eddu á
Hallormsstað. Jóna býður upp á
saltfiskrétt og hvítlaukskjúkling.
Saltfiskréttur
með múslíbrauði
172 kg saltfiskur
300 g hvítar baunir
> 4 msk. hvítlauksmauk
'2 laukar
1 msk. hvítlaukspipar
1/2 msk. pipar
1 msk. edik
1 dl olífuolía
3 egg
10 grænar olífur
Saltfiskinn þarf að útvatna í 12
klukkustundir og skipta um vatn
fjórum sinnum. Baunirnar eru
lagðar í bleyti í 12 klukkustundir
og síðan soðnar í 30 mínútur.
Eggin eru harðsoðin. Fiskurinn
er settur í nýtt vatn og suðan látin
koma upp. Roð og bein fjarlægð.
Hitið olíuna og setjið sneiddan
Jóna Ragnarsdóttir.
DV-mynd Emil Thorarensen.
laukinn, hvítlauksmaukið, kryddið
og sneiddar olífurnar út í og sjóðið
í 2 mínútur. Bætið þá baunum, fiski
og ediki út í og látið malla í 5 til
10 mínútur. Borið fram á fati,
skreyttu niðursneiddu eggi og
smátt skornum hvítlauk.
Múslíbrauð
3 bollar hveiti
1 bolli múslí
1/2 bolli hveitiklíð
1/4 bolli sykur
2 msk. lyftiduft
1 tsk. salt
11/2 bolli súrmjólk
1 bolli mjólk
Öllu hrært vel saman og sett í
brauðform. Bakað í 1 klukkustund
við 190 gráður.
Hvítlaukskjúklingur
1 kjúklingur
2 msk. all around
3 msk. kjúklingakrydd
5 msk. hvítlauksduft
1 sveppadós
1 peli af rjóma
Sneiðið kjúklinginn í tíu bita og
kryddið með all around kryddi og
kjúklingakryddi. Látið bíða í 20
mínútur. Stráið hvítlauksdufti yfir
bitana og léttsteikið á pönnu. Hellið
úr sveppadósinni og 1 pela af rjóma
yfir og látið malla í 40 mínútur.
Borið fram með sérríkartöflum,
salati, hrísgrjónum og hvítlauks-
brauöi. Sérríkartöflurnar' eru
brúnaðar í sykri, smjörlíki og 1/2
til 1 dl af sérríi.
Jóna skorar á Sigríði Þráinsdótt-
ur, frænku sína og hótelstýru á
Hótel Eddu á Hallormsstað, að vera
næsti matgæðingur. „Hún er lærð-
ur kokkur og mjög frumleg."
Eftir helgina má fá uppskriftina
í Símatorgi DV. Símanúmerið er
904-1700.
Hinhliöin
♦ 103
¥ -
♦ KG98732
+ AK76
Með Sævar og Jón í n-s gengu sagn-
ir þannig eftir Icerelay:
* Geimkrafa og spyr um skiptingu
** 0-1 hjarta og 2-i spaöar
Jón vildi ekki gefa slemmuna eftir
og þótt hann lenti í vondri tromplegu
var útspiliö hagstætt.
Vestur spilaði út hjartaþristi,
drottning, ás og tromp. Síðan tromp
á ás og vestur var ekki með. Nú voru
góð ráð dýr og Jón lá lengi yfir fram-
haldinu. Éf vestur hefur spilað út frá
hjartakóngi þriöja þá má vinna spilið
með því að trompa kónginn niður,
en Jóni þótti ólíklegt að sú staða
væri uppi. Hann spilaöi því hjarta-
gosa og lét hann róa þegar austur
setti lítið. Þar með var spilið unnið
og Jón og Sævar bókuðu 920 í sinn
dálk.
Auðvitað er slemman í harðara lagi
en samt leyndist í henni vinningur,
þrátt fyrir vonda tromplegu, að vísu
eftir hagstætt útspil. Austur gerði
sitt besta með því að setja ásinn í
fyrsta slag en Jón sá við honum.
linford Christie
er sá besti
- segir Geirlaug Geirlaugsdóttir frjálsíþróttakona
„Iþróttirnar taka allan minn tíma
og það gefast ekki mörg tækifæri
til þess að fást við eitthvað ann-
að,“ sagði Geirlaug Björg Geir-
laugsdóttir, frjálsíþróttakona úr
Ármanni, sem sýnir á sér hina hlið-
ina að þessu sinni.
Geirlaug hefur um árabil verið
ein fljótasta hlaupakona á íslandi
en helstu greinar hennar eru 100
og 200 m hlaup.
Fullt nafn: Geirlaug Björg Geir-
laugsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 24. ágúst
1967.
Maki: Hlynur Halldórsson.
Börn: Engin.
Bifreið: Volkswagen Golf 1985.
Starf: íþróttakennari.
Laun: Þau eru lág.
Áhugamál: Það kemst ekkert ann-
aö aö en íþróttimar.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottói?- Einu sinni í HHÍ, lægsta
vinning.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að fara í keppnisferðir til
útlanda.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að keyra um á gömlum og
biluðum bíl.
Uppáhaldsmatur: Pasta.
Uppáhaldsdrvkkur: Egils Kristall.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Linford Christie.
Uppáhaldstímarit: Times Maga-
Geirlaug Björg Geirlaugsdóttir.
zine.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð fyrir utan maka? Páll Steinar,
5 mánaða gamall frændi minn.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn-
inni? Andvíg.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Irenu Privalovu.
Uppáhaldsleikari: Jeff Bridges.
Uppáhaldsleikkona: Holly Hunter.
Uppáhaldssöngvari: Luciano Pavo-
rotti.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Jón
Baldvin Hannibalsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Mikki mús.
Uppáhaldssjónvarpsefni: HM og
ólympíumót í frjálsum íþróttum.
Uppáhaldsmatsölustaður/veitinga-
hús: Samurai, ég er hrifin af jap-
önskum mat.
Hvaða bók langar þig mest til að
lesa? Villta svani eftir Jung Chang.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Bylgjan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Anna
Björk Birgisdóttir.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Sjónvarpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Bryn-
dís Hólm.
Uppáhaldsskemmtistaður/krá:
Kaffi Reykjavík, en ég fer lítið út
að skemmta mér.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Ár-
mann í frjálsum og Akranes í fót-
boltanum.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Að ná íslandsmetinu
í 100 m hlaupi.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
er nýkomin að utan úr fjögurra
landa heimsókn sem var bæöi frí
og keppnisferð.