Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Qupperneq 10
10
LAUGARDAGUR 1. JULI 1995
Aldarfjórðungur frá andláti eins áhrifamesta stjómmálamanns íslendinga á 20. öld:
Stjómskörungur
sem allir treystu
- segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson sem gert hefur sjónvarpsþátt um Bjama Benediktsson
„Bjami Benediktsson var einn
áhrifamesti stjórnmálamaöur ís-
lendinga á 20. öld. Hann er maður
sem ég og flestir aðrir bera mikla
virðingu fyrir vegna forystuhæfi-
leika hans og þáttar hans í því að
leiða rök að stofnun lýðveldis og
marka utanríkisstefnuna eftir stríð.
Síðan stýrði hann þjóðarskútunni í
misjöfnu veðri á síðari hluta Við-
reisnartímabilsins. Þá skiptir það
líka nokkru máli að nú eru 25 ár lið-
in frá fráfalli Bjarna Benediktsson-
ar,“ segir Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson, lektor í stjórnmálafræði við
Háskóla íslands og höfundur hand-
rits aö nýjum sjónvarpsþætti um
Bjarna Benediktsson, forsætisráð-
herra í tíð Viðreisnarstjómarinnar,
sem frumsýndur verður annað kvöld
í Sjónvarpinu.
Seinustu daga hefur Hannes verið
að leggja lokahönd á þáttinn ásamt
framleiðandanum, Jónasi Sigur-
geirssyni sagnfræðingi.
Lífi blásið í söguna
„Það þarf að gera íslandssöguna
lifandi fyrir hugskotssjónum nýrrar
kynslóðar sem hefur vanist mynd-
segulböndum og hlýtur sinn fróðleik
og sína skemmtun af sjónvarps-
skjánum en ekki af vörum ömmu
gömlu eða úr bókum, blöðum og
tímaritum. Þess vegna hef ég lagt það
fyrir mig síðustu árin að gera sjón-
varpsefni sem ég hef áhuga á og sem
Hannes telur að Bjarna verði aðallega minnst fyrir þá forystu sem hann tók um að íslendingar gerðust aðilar
að vestrænu varnarsamstarfi. Einnig verði hans minnst fyrir forsæti hans í Viðreisnarstjórninni i sjö ár. Hér er
Bjarni á leið á kjörstað i borgarstjórnarkosningunum árið 1970 ásamt konu sinni, frú Sigríði Björnsdóttur.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
ég vona að aörir hafi líka áhuga á -
sögulegt efni tengt íslandi og íslensk-
um stjórnmálum."
Hann segir að i þessum þætti reyni
hann að sýna persónuna' Bjarna
Benediktsson. Hann segist þó hafa
þurft aö gæta sín á að fara ekki of
langt í því til að lenda ekki í þeirri
gildru aö fella huglæga dóma.
„Ég fór mjög varlega í að fella dóma
eða leggja huglægt mat á persónuna
Bjarna Benediktsson heldur rakti
frekar á annálskenndan hátt helstu
atvik í lífi hans og vildi frekar sýna
ævi hans en að segja hana.“
Bylgjan brotnaöi
á Bjarna
Líklega verður Bjarna aðallega
SumcTJít
Sumarblóm 20-50% afsláttur
Trjáplöntur 20-40% afsláttur
Rósir og fjölær blóm 20% afsl.4
Blómaker 20-50% afsláttur
8 rósir í búnti a
Opið alia daga
10-22
1 ''
minnst fyrir tvennt. Telur Hannes
að það sé í fyrsta lagi það forystu-
hlutverk sem Bjarni gegndi er ís-
lendingar gerðust aðilar að vestrænu
varnarsamstarfi.
„Þetta gerði hann vitaskuld í góðri
samvinnu við marga aðra. Bjarni var
hins vegar sá sem rökstuddi þetta
frekast. Við megum ekki gleyma því
núna að þetta var mjög mikið ágrein-
ingsefni og þar brotnaði bylgjan á
Bjarna Benediktssyni. í ööru lagi tel
ég að Bjarna verði minnst fyrir for-
sæti hans í Viðreisnarstjórninni í sjö
ár. Viðreisnarstjórnin beitti sér fyrir
afnámi hafta, einfóldun gjaldeyris-
mála, fyrir festu og frjálsræði í
stjórnarfari og fyrir stóriöju og stór-
virkjunum. Seinna, þegar mikil efna-
hagsáfoll urðu á síðari hluta Við-
reisnartímans, tókst Bjarna með
samráöi og samvinnu viö verkalýðs-
leiðtoga, atvinnurekendur og stjórn-
arandstöðu að sigla þjóðarskútunni
tiltölulega óskaddaðri í gegnum þann
mikla ólgusjó. Auðvitað verður
Bjarna líka minnst fyrir þau rök sem
hann færði fyrir því að við hefðum
öölast fullan rétt tfi sambandsslita
við Dani og til þess að stofna lýð-
veldi.“
Auk myndefnis af Bjarna segir
Hannes að reynt sé að nota annað
efni til að ná tíðarandanum á þeim
tímaskeiðum sem fjallað er um
hverju sinni í þættinum. Hins vegar
sé aðalatriðið vitaskuld ævi og starf
Bjarna sem stjórnmálaleiðtoga.
Þátturinn er ávöxtur margra ára
rannsókna Hannesar á tiltæku
myndefni um íslenska stjórnmála-
menn. Hann hefur samhíiöa þeim
unnið að gerð gagnagrunns um hvar
heimildir er að finna um stjórnmála-
foringja eins og Stefán Jóhann Stef-
ánsson, Ólaf Thors, Hermann Jónas-
son og Jón Þorláksson - allt menn
sem Hannes hyggst gera þætti um.
Reyndar hefur hann þegar hafist
handa við að safna myndefni í fyrsta
þáttinn sem fjalla á um Ólaf Thors.
Vísir að þroskasögu
„Eg held að þeir sem horfa á þenn-
an þátt sjái vísi að þroskasögu í hon-
um - þegar hinn ungi Bjarni Bene-
diktsson, sem er feitlaginn og heldur
kauðskur í hreyfingum, breytist
smám saman í stjórnskörung sem
stígur þungt og þétt og örugglega til
jarðar, er orðinn mikill af sjálfum sér
og er gæddur ákveðnum styrk sem
kemur fram á síðustu áratugum ævi
Bjarna. Þá er hann búinn að ná full-
komnum tökum á sjálfum sér og
umhverfinu. Þetta held ég að menn
sjái þegar ég sýni þessa atburðarás.
Þarna hefur maöur breyst úr stórgáf-
uðum og harðduglegum baráttujaxli
í vitran stjórnskörung sem stuðn-
ingsmenn jafnt sem andstæðingar
treystu.“
-PP
• Móttaka fyrir allt brotajárn •
• Kaupum alla málma •
Utvegum hagstæóa flutninga
MHRINGRAS HF.
ENDURVfNNSLA
I
j
I
i
4
i
m
•I
m
•i
saMlSSífe,
Sími: 581 4757 • Sundahöfn