Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1995, Blaðsíða 27
MÁNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1995
39
Fréttir
Samband sveitarfélaga:
Tilfærsla grunnskólans
kostar sjö milljarða
Keflavlk:
Átökvið
hermenn
Til átaka kom milli tveggja varn-
arliösmanna og íslendings á götum
Keflavíkur um síðustu helgi. Lög-
reglumenn náöu að stilla til friðar
áður en slagsmálamennirnir hlutu
verra af. Þeir fengu þó nokkra
pústra. Að sögn lögreglunnar í Kefla-
vík hefur engin kæra verið lögð fram
og upptök slagsmálanna eru óljós.
-bjb
Öm Þórarinsson, DV, Fljótum;
Ætla má að kostnaður ríkisins
vegna þeirrar starfsemi grunnskól-
ans og tengdra stofnana sem flyst frá
ríkínu til sveitarfélaganna á næsta
ári sé um 7 milljarðar króna. Ef
mæta á öllum kostnaðaraukanum
sem flyst á sveitarfélögin þarf út-
svarsprósentan að hækka um 2,94%.
Þetta kom fram á ársþingi Sambands
sveitarfélaga á Norðurlandi vestra,
SSNV, sem haldið var í síðustu viku.
Búið er að reikna út nvað tilfærsla
grunnskólans kostar einstök sveitar-
félög mikla peninga og er þar veru-
lega mikill munur á þar sem skólar
með fáa nemendur reynast í flestum
tilfellum mun dýrari rekstrareining
á nemanda en þeir fjölmennari. Ljóst
er að reksturskostnaður grunnskóla
í Reykjavík er hvað lægstur á nem-
anda og samkvæmt útreikningi ætti
borginni að duga 2,3 prósentustiga
hækkun útsvars til að mæta kostnaði
við yfirtöku grunnskólans.
Það kom fram þegar málið var
kynnt fyrir sveitarstjórnarmönnum
á Norðuriandi vestra að uppi eru
áform um að veita verulega íjárhæö
(1,6 milljarða) tii jöfnunaraðgerða og
gera þannig sveitarfélögunum kieift
að takast á við rekstur grunnskólans
án þess að sjálf yflrtakan skapi þeim
verulegan útgjaldaauka.
Afskipti af veiðimönnum:
Stórlegaámælis-
verðuryfirgangur
„Ég er undrandi á þessu öllu og
sérstaklega að skálavörður skuli
vera að skipta sér af veiðimönnum
með þessum hætti. Þetta er stórlega
ámæhsverður yfirgangur og óþol-
andi að veiðimenn skuli þurfa að búa
við slíkt. Lögreglan hefur rétt til að
skipta sér af mönnum en að einhver
skálavörður skuli vera að eyöileggja
heilan dag fyrir veiðimönnum er ein-
um of,“ sagði Ólafur Karvel Pálsson,
formaður Skotveiðifélags íslands, en
í frétt í blaðinu í gær var sagt frá
veiðimönnum úr Húnavatnssýslu
sem urðu fyrir ónæði skálavarðar á
Eyvindarstaðaheiði.
„Veiðimönnunum var sagt að
þarna væri bannað að veiða en mér
vitanlega hafa bændur ekki getað
sannað eignarrétt sinn á þessu landi.
Þeim væri nær að taka niður skilti
þar sem meðferð skotvopna er bönn-
uð, og ef ekki þeir þá lögreglan,"
sagöi Ólafur. Hann sagði að svona
mál kæmu alltaf upp við og við en
nú væri óvanalega mikið um að ver-
ið væri að hrella veiðimenn, oft að
ástæðulausu. -sv
Helstu markmið jöfnunaraðgerð-
anna eru:
að jöfnunaraðgerðir hvetji tíl hag-
kvæmni í rekstri.
að sveitarfélög fái fjármagn er
nemur sem næst þeim kostnaði sem
þau yfirtaka.
að jöfnunarframlögin renni til
sveitarfélaganna til að sveitarstjórn-
ir geti sjálfar ákveðið hvernig fjár-
magn sveitarfélagsins er nýtt.
A TA A íl
c_S~? _A _3
RX 590 RÉTT VERD KR. 65.4«
6> O O ®
TÆKNILEGAR UPPLYSINGAR RX 590:
♦ Digital FM/MW/LW útvarp
með 30 miiinum
♦ 152 watta magnari
♦ Surround-hljóðkerfi
♦ Tímastilling og vekjari
♦ 3ja diska geislaspilari með 30 minnum
♦ Superbassa-, bassa- og diskantstilling
♦ TVöfalt Dolby segulband með síspilun
♦ Innstunga fyrir heyrnartól
♦ Fullkomin fjarstýriíng ... og margt fleira.
SIÐUMULA 2 • SIMI 568 9090