Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1995, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1995, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995 Fréttir Álit umboðsmanns Alþingis vegna tjónamáls: Lögreglustjóri braut reglur um þagnarskyldu - Persónulegur sigur, segir Skarphéðinn Einarsson 1 Njarðvík - Tryggingaeftirlitið tekur málið upp „Alit umboðsmanns Alþingis er persónulegur sigur fyrir mig. Brot lögreglustjórans á þagnarskyldunni er búið að kosta mig eina milljón og henni ætla ég að ná aftur þótt það verði ekki fyrr en eftir dóm í Hæsta- rétti,“ segir Skarphéðinn H. Einars- son úr Njarðvík í samtali við DV. Skarphéðinn kærði til umboðs- manns Alþingis að embætti lögreglu- stjórans á Keflavíkurílugvelli lét Tryggingamiðstööinni, tryggingafé- lagi hans, í hendur skýrslur vegna tjóns sem Skarphéðinn varð fyrir á bifreið sinni árið 1993. Átti þar í hlut bifreið frá Varnarliðinu og fjallaði svokölluð skaöabótanefnd á vegum vamarmálaskrifstofu utanríkis- ráðuneytisins um málið. í gögnum um málið var gefið í skyn að Skarp- héðinn væri að gera tilraun til trygg- ingasvika. Þaö var álit umboðsmanns að lög- reglustjórinn á Keflavíkurflugvelli hefði brotið þagnarskyldu opinberra starfsmanna með afhenda Trygging- amiðstöðinni skýrslu Skaðabóta- nefndar um mál Skarphéðins. „Lögreglumenn á Keflavikurflug- velli hafa sagt mér að skýrslan hafi verið mjög undarlega orðuð enda er ég alsaklaus af öllum tilraunum til svika,“ segir Skarphéðinn. Skarphéðinn segir að í fyrstu hafi viðskiptin við tryggingafélagið geng- ið eðlilega fyrir sig og einnig eftir að hann skömmu síðar lenti í öðru slysi og varð óvinnufær. En eftir að hin umdeildu gögn bámst félaginu hafi kveðið við annan tón og þá hafi tekið fyrir allar greiðslur og nær ekkert hafst út úr félaginu enn þrátt fyrir harðar aðgerðir lögfræðings. „Ég hef nú sent utanríkisráðherra símskeyti og tilkynnt honum um málshöfðun vegna þeirra ranginda sem ég var beittur af hálfu Skaða- bótanefndar. Umboðsmaður Alþing- is tekur í áhti sínu af öll tvímæh um að umrædd gögn áttu aldrei að ber- ast tryggingafélaginu þannig að ég tel mig ótvírætt hafa réttinn mín megin," sagði Skarphéðinn. „Við hljótum að skoöa þetta mál mjög alvarlega og kanna hvort ekki er ástæða til að setja skýrar og af- dráttarlausar reglur um samskipti lögreglunnar og tryggingafélag- anna,“ sagði Rúrik Vatnarsson, lög- fræðingur hjá Tryggingaeftirhtinu, um áht umboðsmanns Alþingis. „Mér finnst þetta fáránleg niður- staða. Þar er eins og umferðarslys eigi aö vera einkamál þeirra sem lenda í slysum. Ég skil ekki svona,“ sagði Þorgeir Þorsteinsson, lögreglu- stjóri á Keflavíkurflugvelh, þegar hann var inntur áhts á niðurstöðu umboðsmanns. -GK Stuttar fréttir TvísköttunogKína Friðrik Sophusson átti í gær fund með kollega sínum frá Kína og var helsta viöræðuefiiið samn- ingur milli landanna um að koma í veg fyrir tvísköttun. Tap hjá Flugleiðum Flugleiðir töpuöu 307 mihjón- um króna fyrstu sex mánuðí árs- ins. Þetta er skárri afkoma en á sama tíma í fyrra en þá varð 732 mihjóna tap. PrestiSúðavík Héraðsfundur ísaQarðarpróf- astsdæmis hefur krafist þess að prestur verði skipaður til starfa í Súöavík. Stöð 2 greindi frá þessu. Skiptil loðnuieitar Þrju skip hafa lagt af stað til loðnuleitar fyrir Norðurlandi og Vestíjörðum. Þetta eru Hólma- borgin, Guhbergiö og Börkur. KKfrarartilTíbet Þrír ungir íslenskir flallaklifr- arar eru á leiðinni til Tíbet til að klifa sjötta hæsta tind veraldar, Cho-Oyu. Þetta kom fram í Mbl Örtröð í Leif sstöd Örtröð myndaðist í Leifsstöð síðdegis á sunnudag. Samkvæmt Mbl. voru flórtán innritunarborð Flugleiöa í gangi en aðeins eitt toUhhð. Skilyrði óviðeigandi Vigdís Finnbogadóttir sagði í samtali við Sjónvarpiö aö það væri ekki viðeigandi af þátttak- endum kvennaráöstefnunnar í Kína að setja þarlendum stjóm- völdum einhverja urslitakosti. -bjb Friðrlksmótiö: Hugmyndir Norðmanna um að banna veiðar með flottrolli I Smugunni eru tilraun til að stöðva veiðar ísiendinga í Smugunni, segir Guðmundur Kjalar Jónsson, skipstjóri á Málmey. DV-mynd GVA Hannes skaust í efsta sætið , Hannes Hlifar Stefánsson sneri á Jóhann Hjartarson í miðtafhnu í 3. umferð Friðriksmótsinu í skák í gær. Hann vann á svart í 30 leikjum og er nú einn efstur með 2* v. Sofia Polgar lék Larsen grátt og vann í 25 leikjum. Jón L. vann Helga Ólafsson og Margeir vann Helga Áss. Jafntefli varð hjá Friðriki og Smyslov í spennandi skák og einnig hjá Þresti Þórhallssyni og Gligoric. Staðan: Hannes 2* v. Jóhann, Margeir og Polgar 2 v. Jón L„ Ghg- oric og Þröstur 1* v. Helgi Ól., Helgi Áss, Friðrik, Smyslov og Larsen 1 v. Ekki er teflt í dag en 4. umferð verð- ur á miðvikudag og hefst kl. 17. Þú getur svaraö þessari spurningu meO því aO hringja i síma 904-1600. 39,90 kr. mínútan. Já [l| Nei |H r 5 d d 904-1600 Hefur þú trú á að vinstri menn Atvinnu-og ferðamála- stofa Borgaryfirvöld hafa opnað At- vinnu- og ferðamálastofu Reykja- víkurborgar og er hún til húsa í gamla Morgunblaðshúsinu að Aðalstræti 6, annarri hæð. Fastir starfsmenn verða þrír og hefur Róbert Jónsson verið ráðinn M Norðmenn vilja banna flottroll 1 Smugunni: Forsenda þess að ná árangri við veiðarnar - segirskipstjórmnáfrystitogaranimiMálmey SK „Þeir setja þessa kröfu fram ein- ungis tíl þess að reyna að koma í veg fyrir að við náum árangri. Þetta er það nýjasta sem þeir reyna til að stöðva okkur. Flottroll er forsenda þess að aö ná árangri við veiðar í Smugunni," sagði Guðmundur Kjal- ar Jónsson, skipstjóri á Málmey SK, um þá kröfu hagsmunaaðila í norsk- um sjávarútvegi að bannað verði að nota flottroll í Smugunni. Styðjast Norðmenn þar við ákvæði í Alþjóða hafréttarsáttmálanum. Guðmundur Kjalar segir að þetta sé bara bein atlaga að þeim árangri sem íslensku togararnir hafa náð í Smugunni. „Ég vil hins vegar koma því að mér er í sjálfu sér ekkert um þessar Smuguveiðar gefið. Ég vhdi miklu heldur vera á Svalbarðasvæðinu með minni kvóta en með samþykki Norðmanna. Það er siðferðislega ekkert sérlega sterkt fyrir okkur að stunda veiðar þarna með þeim hætti sem við gerum. Þar að auki má benda Norðmönnum á þaö að ef þeir hleyptu okkur inn á Svalbarðasvæð- ið þyrftum við ekki að nota flottroh. Botninn á þeirri slóð er miklu betri og því hægt að nota venjulegt botn- troll,“ sagði Guðmundur Kjalar. Hann sagði ekki ákveðið hvort hann færi með Málmey SK aftur í Smuguna en sem kunnugt er kom Guðmundur Kjalar með metafla og aflaverðmæti að landi úr Smugunni í síðustu viku. Guðmundur sagði skipið halda til veiða næstkomandi fóstudag. Kvennaráðstefnan 1 Kína: Ræða Benazir Bhutto vakti feiknaathygli - segirKristínÁstgeirsdóttir „Þetta byriaði með mikUU hátíðar- sýningu en síðan hófst sjálf kvenna- ráðstefnan seinnipartinn í dag. Þarna voru fluttar flórar opnunar- ræður og flutti Vigdís Finnbogadótt- ur eina þeirra. Hún ræddi um stöðu kvenna í heiminum og nauðsyn þess að bæta réttindi þeirra um ahan heim. En sú ræða sem vakti lang- mesta athygli var ræða Benazir Bhutto, forsætisráðherra Pakistan. Það var ekki hægt að skilja hana öðruvísi en að hún væri að segja bókstafstrúarmönnum stríð á hend- ur varðandi réttindi kvenna um leið og hún gagnrýndi Kínveija án þess við DV eftir fyrsta daginn á kvenna- ráðstefnunni í Peking. Hún sagði að Bhutto heföi sagt að það væri ekkert í íslamstrú eða Kór- amnum sem bannaði réttindi kvenna. „Þá tók hún sérstaklega fyrir rétt- indi stúlkubarna. Nefndi hún þar að í Asíu veldi fólk frekar að eignast son en dóttur og gagnrýndi þetta sjón- armið harðlega. Þama var hún bæði að gagnrýna Kínveria og eigið fólk,“ sagöi Kristin. I dag heflast mikil ræðuhöld en einnig nefndarstörf og sagði Kristín að í nefndunum yrðu eflaust átök um oröalag á ályktunum en allt kæmi þetta í ljós næstu daga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.