Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1995, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1995, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995 15 Reisn og raunsæi í varnarmálum Ekki deila menn um gömlu kenninguna, aö diplómatíið hefjist þegar stríði lýkur en endi þegar stríð hefst. Málið er að vísu ekki alveg svona einfalt. Kenningin nægir þó til að einkenna meginatriði tveggja aðferða við að gæta örygg- is, fullveldis og sjálfstæðis í sam- skiptum ríkja. Á eina hlið er hin hernaðarlega aðferð. Byggður er upp nægjanlegur herstyrkur til þess að fæla aðra frá árás eða veijast árás. Viðauki við þessa aðferð er aðild að vamar- eða öryggisbandalagi eins og t.d. Nato. Hin er aðferð diplómatísins. Þá er öryggis gætt með því að efna til friðsamlegra og vinsamlegra sam- skipta og þeim viðhaldið við önn- ur ríki og ríkjasamtök með utan- ríkisþjónustu. Komi til hagsmuna- árekstra eru þeir leystir friðsam- lega með samningum, ekki vopna- viðskiptum. Öryggi íslands Eraman af öldum tryggði hnatt- ræn lega og einangrun öryggi ís- lands. Tvær síðustu aldirnar vor- um við á öryggissvæði breska flot- ans, án þess við fyndum mikið fyr- ir þvf. Með þríhliða samningi okk- ar, Bandaríkjamanna og Breta 1941 fluttumst við af bresk/evr- ópsku yfir á bandarískt öryggis- svæði. Þar höfum við verið síðan. Ekki er líklegt að á því verði breyting í bráð. Viðurkennt er að við gæslu eig- Kjallarinn Dr. Hannes Jónsson fv. sendiherra in öryggis þurfi ríki að taka tillit til öryggis nágranna sinna. Þess vegna gerðumst við stofnaðilar að Nato 1949 og gerðum varnarsamn- inginn við Bandaríkin 1951. Síðan höfum við fylgt tveggja stoða ör- yggisstefnu: aðild að Nato og varn- arsamstarfi við Bandaríkin. Aðlögun að breyttum aðstæðum Tveggja stoða öryggisstefna okk- ar er skynsamleg. Við þurfum þó ekki að frjósa fastir í gömlum formum. Nato er í þróun og mun breytast, framkvæmd varnar- samningsins einnig. „í endurskoðunarviðræðum samningsins frá 1994 gætum við boðið að allt varnar- liðið hverfi úr landi. Við tækjum að okk- ur gæslu og rekstur varnarmannvirkj- anna í viðbragðsstöðu fyrir Bandaríkja- menn.“ Með þríhliða samningi okkar, Bandaríkjamanna og Breta 1941 fluttumst við af bresk/evrópsku yfir á bandarískt öryggissvæði. í friðsælum heimi nægir að byggja öryggi okkar á diplómat- ísku aðferðinni, alþjóðalögum og Nato-aðild án hersetu. En vegna öryggishagsmuna Bandaríkjanna gætum við haldið varnarstöðvun- um í viðbragðsstöðu með þeirra tækjum og á þeirra kostnað. Þannig mættum við óskum þeirra um sparnað en nægjanlegum ör- yggisviðbúnaði. í endurskoðunarviðræðum samningsins frá 1994 gætum við boðið að allt varnarliðið hverfi úr landi. Við tækjum að okkur gæslu og rekstur vamarmannvirkjanna í viðbragðsstöðu fyrir Bandaríkja- menn með 60-100 manna sér- þjálfaðri landhelgisgæslu - vík- ingasveit. Einn íslenskur sjóliös- foringi, annar bandarískur og einn bandarískur herforingi land- gönguliðs flotans hefðu yfirstjórn á vamarsvæðinu. Á vellinum væri flaggað íslenskum-, bandarískum- og Nato-fána. Varaliðssveitir „Northern Viking“ kæmu hingað til heræfinga árlega. Skapist hættuástand á það sér nokkurn að- draganda. Þann tíma mætti nota til að endurmanna varnarstöðv- amar eftir þörfum. Finnist Bandaríkjamönnum þetta ekki góður kostur er eðlilegt að hlusta á þeirra tillögur. Annar valkostur væri að bjóða þeim að fara en við létum okkur nægja að gæta okkar öryggis eftir diplómatiskum leiðum og flögguð- um fána íslands og Nato í varnar- stöðvimmn. Dr. Hannes Jónsson Um öryrkjanna skarpa skatt í ágúst koma skattarnir og skelfa menn ýmist eða gleðja og munu þeir síðarnefndu þó máske í minnihluta. Við hjá Öryrkjabandalaginu fáum ærið vel að skyggnast inn í skattaheim okkar skjólstæðinga, framkvæmdastjórinn telur fram fyrir tugi fólks og síðan fáum við kvartanir og kærumál ansi margra inn á borð til okkar. Öllum slíkum marktækum kvörtunum er sinnt eftir föngum og ófá bréf héðan skrifuð til skattayfirvalda með beiðni um mildilegasta miskunn og náð. Reynsla okkar af þeim kvörtunum er mjög góð, skattayfir- völd sem framtalsnefndir mæta sanngjömum óskum öryrkjanna okkar nær undantekningalaust svo að svörin vekja ánægju og end- urgreiðslu. Langt til seilst En margt kemur í hug við kvart- anir þessar. Sjálfsagt gjald allra sem efni hafa á í Framkvæmdasjóð aldraðra er ekki hátt en tekjulitla öryrkja munar þó um þetta gjald því þar er hver þúsundkallinn þess virði. Jafnvel fólk undir skatt- leysismörkum greiðir þetta gjald og þykir okkur þá heldur langt til lokunnar seilst. Gjaldskyldan ætti auðvitað að vera við skattleysis- mörkin eða vel það og víst þætti okkur til athugunar að sleppa ör- Kjallarinn Helgi Seljan félagsmálafulltrúi ÖBÍ yrkjum a.m.k. fyrr við gjaldtöku en öðrum, þ.e. með eitthvað hærri tekjur í Ijósi þess mikla auka- kostnaðar sem öryrkjar hafa oftast af fótlun sinni. En fleiri mál og stærri koma til sögu. Aðstoð félagsmálastofnana, hvers eðlis sem hún kann nú að vera og hvaða orsakir sem 'liggja að baki, er talin fram sem hreinar tekjur, s.s. bætur og laun, og skatt- lögð samkvæmt því. Oft er hér um hreina neyöaraðstoð að ræða vegna áfalla, breyttra aðstæðna, óhjákvæmilegs aukakostnaðar sakir fötlvmar o.s.frv. Engu að síð- ur eru svo eftir á tekin rúm 40% þessarar sértæku neyðaraðstoðar og þykir fólki heldur hart við að búa. Höfnun heimildar Við hér á bæ höfum átt fúndi með fúlltrúum skattayfirvalda og var þar bent á það að 66. grein skattalaga heimilaði lækkun álagningar og um slíka lækkun ættu öryrkjar að sækja. Þar sem við komum nálægt skattaframtöl- um öryrkja og skattakærum nýt- um við þessa ábendingu eðlilega óspart og höfum oftast góðan ár- angur af. Aðeins það að almennt eru öryrkjar ekki meðvitaðir um þessa heimildargrein því þó frá henni sé glögglega greint í leið- beiningum fer hún eðlilega fram hjá mörgum. Eins eru til dæmi um höfnun þessarar heimildar, þó rök séu ærin að okkar dómi, en fátíð eru þau sem betur fer. Nú hygg ég að félagsmálayfir- völd vildu gjarnan fá að gera greinarmun á því um hvers konar aðstoð hafi verið að ræða, hvað að- stoðin gekk út á eða hvaða bak- grunn hún átti. í raun fyndist okk- ur hér sjálfsagt af skattayfirvöld- mn, fyrst þau ríghalda í fulla al- menna skattlagningu þessa, að þau kæmu í einhverju til móts við þá er þurfa að þiggja. Ágæt samskipti Samskipti við skattayfirvöld eru ágæt og ekki kvörtum við en okk- ur hins vegar ljóst að langt er í frá að við náum því að sinna nema broti af þeim sem þyrftu að fá leið- sögn um leiðréttingu. Við vitum að víða á félagsvett- vangi okkar er unnið gott og gagn- legt starf til aðstoðar okkar fólki en allra best væri þó ef stjórnvöld og löggjafi leyfðu skattayfirvöldum sanngjarnt svigrúm í svona tilvik- um. Það verður aldrei nógu oft ít- rekað að það er til annarra sem á að sækja þá fjármuni, þær fúlgur sem rétt gætu við ríkissjóðshall- ann og að því þarf fyrst og síðast að snúa sér. Það verður aldrei ör- yrkjanna hlutverk. Helgi Seljan „Gjaldskyldan ætti auövitað að vera við skattleysismörkin eða vel það og víst þætti okkur til athugunar að sleppa ör- yrkjum a.m.k. fyrr við gjaldtöku en öðr- um.“ Meö og á móti Á að krefjast greiðslu fyrir björgun? Hvetur fólk tilað tryggja sig Helgi Hallvarðs- son, skipherra hjá Landhelgisgæsl- unni. „Fólk verð- ur að gera sér grein fyrir því að það kostar mikla peninga að halda úti björgunar- þjónustu og björgunar- menn leggja sig oft í mikla hættu. Fyrir þetta er eðli- legt að krefjast greiðslu, sérstak- lega vegna þess að það hvetur fólk til að tryggja sig áður en lagt er upp í ævintýraferðir. Mér virðist sem oft skorti mik- ið á að ferðamenn, einkum ís- lenskir, hugsi um að tryggja sig. Viti menn það fyrirfram að það kostar peninga að láta ná í sig upp á fjöll aukast líkumar á að þeir kaupi sér tryggingu. Erlend- ir ferðamenn em miklu oftar tryggðir fyrir óhöppum en ís- lendingar. í undantekningartilvikum geta aöstæður verið slíkar að ekki er ástæða til að krefjast greiðslu. Það á einkum við um vandræði sem skápast af ófyrir- sjáanlegum ástæðum og trygg- ingar taka ekki til, en það eru imdantekningartilvik. Oftast er það svo að fólk hefur ekki gætt þess að tryggja sig þannig að kostnaðurinn við björgunina fellur á björgunarfé- lögin sjálf. Þetta mun breytast ef farið verður að krefjast greiðslu fyrir björgunarstörf. Eftir að Landhelgisgæslan fékk nýju þyrluna er aukin þörf á að innheimta björgunarlaun vegna þess að hún er dýrt tæki.“ Eðlilegur her- kostnaður Á meðan viö íslending- ar viljum fá 20 milljarða í gjaldeyristekj- ur af ferða- mönnum er það bara eðli- legur her- kostnaður að við greiðum fyrir björgun manha sem lenda í erfiðleikum vegna ófyrirsjáanlegrá hörm- unga. Það væri gríðarlégt áfall fyrir ferðaþjónustua í landinu ef ferðaskrifstofurnar þyrftu ad setja í allar auglýsingar að þeir sem koma til landsins verdði að gera ráð fyrir að greiba milljónir króna í björgunarlaun lendi þeir í náttúruhamiorum sem trygg- ingar ná ekki yfir. Við kynnum ísland sem land ævintýranna og þessara ævin- týra er að leita á stöðum sem stundum geta reynst hættulegir. Ferðamenn koma ekki bara til að sjá Reykjavík út um bílrúðu. Þeir vilja komast í ævintýrin sem viö auglýsum og þeirra er að leita uppi á fjöllum. Auðvitað lenda sumir í ógöng- um vegna óvitaskapar en í þeim tilvikum flestum greiða trygg- ingar hugsanlegan kostnað við björgun. En þegar um ófyrirsjá- anlegar ástæður er að ræöa er eðlilegt að landsmenn greiði kostnaðinn. Að öðrum kosti er hætt við að ferðamenn þori ekki að koma til landsins.“ -GK Helgl Jóhannsson, forstjóri Samvinnu- ferða/Landsýnar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.