Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1995, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1995, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995 Sviðsljós Vilhjálmur litli Englandsprins fer að heiman: Kjólföt í yfirstétt- arskólanum Eton Kaflaskipti verða á miðvikudag í lífi Vilhjálms litia prins, sonar þeirra Karls, ríkisarfa á Bretlandi, og Díönu prinsessu, þegar hann hefur skóla- göngu sína í hinum merkilega heimavistarskóla bresku yfirstéttar- innar, Eton, þar sem nemendur klæðast kjólfótum. Foreldrar litla prinsins, sem nú er orðinn þrettán ára og næstur að ríkiserfðum á eftir foður sínum, vona að við námslok, væntanlega eftir fimm ár, verði hann orðinn að þroskuðum fulltíða manni, hæfum til að stjórna konungdæm- inu. Skólayfirvöld segja að komið verði fram við Vilhjálm eins og hvern nem- anda annan og jafnvel æsifréttablöð- in hafa lofað að láta strákinn í friöi. Svona að mestu leyti. „Við höfum alls ekki í hyggju aö birta neinar fréttir eða myndir sem gætu skaðað prinsinn á meðan hann er í Eton,“ sögðu ritstjórar blaðsins Sun. Díana prinsessa er ósköp ánægð með að sonurinn skuli fara í Eton. Pabbi hennar og bróðir námu þar, auk þess sem skólinn er ekki langt frá Windsor-kastala Elísabetar drottningar og sjálfri höfuðborginni London. Mamma verður því aldrei Vilhjálmur litli prins sem er að verða stór. langt undan ef prinsinum skyldi leið- ast vistin. Karl faðir hans á þá ósk heitasta að námsárin verði auðveldari en þau voru honum á sínum tíma í heima- vistarskólanum í Skotiandi. Karl litli þurfti aö sæta miklu aðkasti af hálfu skólafélaga sinna. „Þetta er algjört helvíti. Ég er hræddur við að fara í rúmið á kvöld- in,“ skrifaði Karl í bréfi til föður síns. Skólabróðir hans var ekki hissa. „Hvernig er hægt að koma eðlilega fram við svona strák þegar mynd af mömmu hans er á peningunum sem maður eyðir í skólasjoppunni?" Astralski leikarinn Mel Gibson leikur aðalhlutverkið í myndinni Braveheart, sem við gætum kallað Djarfhuga á íslensku, skoskan mann fyrr á öldum sem sveið framferði Breta gagnvart Skotum. Bretar réðu Skotlandi á þeim tima, rétt eins og þeir gera nú. En maóur þessi var hreint ekki á því að þola slíkan ójöfnuð af hálfu Breta. Hann blés því til uppreisnar og gott ef honum tókst ekki að stökkva breska hernum á flótta eftir langa, grimmilega og umfram allt blóðuga bardaga. Mel Gibson hefur sagt einhvers staðar að ofbeldið í gömlu myndunum hans um Óða-Max komist ekki í hálfkvisti við það sem er í Braveheart enda menn þar m.a. sundurslitnir af hrossum. Hér hefur Mel komið sér fyrir milli tveggja hraustra Skota, að sjálfsögðu allir i skotapilsum, við frumsýningu myndarinnar í Skotlandi um helgina. símamynd Reuter Gene Hack- man að semja Gene Haekman ætiar ekkert að slá slöku við þótt aldurinn sé far- inn að færast yfir hann. Sá gamli er að ganga frá samningum um aðleika í myndinni The Chamber sem byggð er á samnefndri skáld- sögu eftir hinn sívinsæla John Grisham. Aðdáendur Hackmans ættu annars ekki að missa af hon- um í kafbátatryllinum í bænum. Gekk ekki upp hjá Bette Stórstjörnumar i Hollywood hafa stundum svo mikið að sýsla að þær hafa hreinlega ekki tíma aflögu til að gera ýmislegt sem þær langar þó til. Þannig var það meö hana Bette Midler sem bæði syngur og leikur. Húnhaföi hugs- að sér að vera með í næstu mynd Woodys Allens en því miður var bara ekki hægt að koma því við. Hún er þó að fara að leika í mynd með Whoopi Goldberg og vonandi með Gene Hackman þar á eftir. Whoopi við að fara á taugum Í Holly wood er eftir hermt, held því aldrei linni. Eða hvað? Who- opi Goldberg ætlar að leika í mynd sem áttí aö heita Konur á barmi taugaáfalls, rétt eins og mynd hins spænska Almodovars. Nú er búiö aö breyta titlinum og heitir hún Taugatrekkt. Whoopi kann kvenna best að leika slikar konur. Sá gamalreyndi Herbert Ross sfjórnar. TÓMSTUNDIR /////////////////////////////// 16 síðna aukablað um tómstundir og heilsurækt fylgir DV á morgun. Meðal efnis verður umfjöllun um það sem stendur almenningi til boða í vetur til líkamlegrar heilsubótar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.