Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1995, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1995, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995 Afmæli DV Axelína Geirsdóttir Axelína Geirsdóttir húsfreyja, Smáratúni 1, Svalbarðseyri, er ní- ræöídag. Starfsferill Axelína fæddist á Veigastöðum í Svalbarðsstrandarhreppi og ólst þar upp við öll almenn sveitastörf. Eftir að hún gifti sig var hún húsfreyja í Sveinbjarnargerði á Svalbarðs- strönd í rúm þrjátíu ár. Fjölskylda Axelína giftist 1.7.1935 Halldóri Jóhannessyni, f. 22.9.1904, nú lát- inn, bónda í Sveinbjarnargerði. Hann var sonur Jóhannesar Hall- dórssonar, bónda í Sveinbjarnar- gerði, og Kristjönu Jónsdóttur hús- freyju. Börn Axelínu og Halldórs eru Jón- as Eiríkur Halldórsson, f. 29.8.1936, alifuglabóndi í Sveinbjamargerði, kvæntur Annýju Lárusdóttur og er sonur þeirra Jónas Halldór Jónas- son, f. 26.1.1970; Jóhannes Geir Halldórsson, f. 26.8.1940, verkstjóri í Sveinbjamargerði, kvæntur Her- dísi Jónsdóttur og eiga þau tvö börn, Halldór Jóhannesson og Ingibjörgu Jóhannesdóttur; Haukur Halldórs- son, f. 25.1.1945, fyrrv. formaður hinná sameinuðu bændasamtaka Búnaðarfélags íslands og Stéttar- sambands bænda, kvæntur Bjar- neyju Bjarnadóttur og em börn þeirra Heiða Hauksdóttir, f. 12.12. 1971, Eiríkur Haukur Hauksson, f. 31.7.1973 og Halldóra Kristín Hauksdóttir, f. 14.8.1982; Vigdís Halldórsdóttir, f. 15.8.1946, bóndi, búsett í Noregi og á hún flmm böm, Axelínu Kjartansdóttur, Anne Horne, Hildi Home, Knút Home og HalldórHome. Axelína er elst flmm systkina en hin systkin era látin. Þau voru Elín- björg Geirsdóttir, f. 23.4.1908, var gift Pétri Jóranssyni, sjómanni úr Keflavík, og eignuðust þau þijú börn; Eiríkur Geirsson, f. 19.9.1911, var bóndi á Veigastöðum; Halldóra Geirsdóttir, f. 22.5.1915, bjó á Veiga- stöðum og síðan í Smáratúni I á Svalbarðseyri; Ragnar Geirsson, f. 7.11.1922, bjó á Veigastöðum og síð- ar í í Smáratúni I á Svalbarðseyri. Foreldrar Axelínu voru Jóhann Geir Jóhannsson, f. 17.2.1882, d. 2.1. 1962, bóndi á Veigastöðum, og k.h., KristjanaHalldórsdóttir, f. 7.3.1876, d. 12.6.1953, húsfreyja. Ætt Jóhann Geir var sonur Jóhanns, b. á Parti í Reykjadal í Suður-Þing- eyjarsýslu, Jóhannssonar. Móðir Jóhanns var Sesselía Finnbogadótt- ir Sveinssonar, b. í Garðs-vík, Brandssonar. Móðir Jóhanns Geirs var Guðbjörg Eiríksdóttir, móðir Jóns, afa Guðmundar Bjarnasonar heilbrigðisráðherra og langafa Pét- urs, fóður Lindu sem var ungfrú heimur 1988. Kristjana var dóttir Halldórs, b. á Veigastöðum, bróður Sesselju, ömmu Jóns Benediktssonar, fyrrv. yfirlögregluþjóns á Akureyri. Hall- dór var sonur Eiríks, b. í Mógili, Halldórssonar og konu hans, Ses- selju Hrólfsdóttur, b. og hreppstjóra á Þórisstöðum, Þórðarsonar. Móðir Sesselju Hrólfsdóttur var Sessilía Þorláksdóttir, systir ÞorlákS, lang- afa Þórarins, fóður Vilhjálms Þórs, forstjóra SÍS. Móðir Kristjönu var Elín Jóakimsdóttir, b. í Fífilgerði, Axelína Geirsdóttir. Þorsteinssonar, b. á Jarlsstöðum, Þorsteinssonar. Ásta Sigrún Guðjónsdóttir Ásta Sigrún Guðjónsdóttir hús- móðir, Eyjahrauni 1, Vestmanna- eyjum, er níræð í dag. Starfsferill Ásta Sigrún fæddist í Varmadal á Rangárvöllum en ólst upp hjá fóst- urforeldrum, Jóni Jónssyni bónda 5. september 90 ára Daníel Guðjórisson, Norðurgötu 39b, Akureyri. tekur á móti gestum í Fóstbræðra- heimilinu þann 8.9. nk. kl. 20.00. Einar Þór Guðmundsson, Yrsufelli 13, Reykjavík. Katrín Magnúsdóttir, Munaðarnesi, Borgarbyggð. 85 ára Anne Marte H. Lamb, Túngötu 33, Reykjavík. 80 ára Lúðvík Guðjónsson, Hraunbæ 54, Reykjavík. Friðflnnur S. Árnason, Aðalstræti 13, Akureyri. Kristjana Sigurðardóttir, Hásteinsvegi 48, Vestmannaeyjum. 75 ára Karl Ottó Karlsson, Drápuhlíö 2, Reykjavík. Hrafnhildur Aðalsteinsdóttir, Norðurgötu 34, Akureyri. Haukur Hallgrímsson, Vogalandi 2, Reykjavík. Vilmar Magnússon, Kópavogsbraut 5, Kópavogi. Guðríður Þorsteinsdóttir, Lönguhlíö 5f, Akureyri. Guörún Leifsdóttir, Fögruhlíð 2, Eskifirði. Margrímur Haraldsson, Gunnarsbraut 36, Reykjavík. Margrímur tekur á móti gestum í Rafstöðvarheimilinu i dagfrákl, 18.30. Sigríður Sveinsdóttir, Hamrabergi2l, Reykjavík. Björg Ragnarsdóttir, Miklubraut 50, Reykjavík. Ólafur Hannes Kornelíusson, Orrahólum 3, Reykjavík. Þóroddur Hjálmar Gunnarsson, Efra-Seli, Stokkseyrarhreppi. ína IHugadóttir, Langeyrarvegi 13, Hafnarfiröi. Súsanna Sigurðardóttir, Jöklaseli 27, Reykjavík. 40ára Hróðmar Margeirsson, Ögmundarstöðum, Staöarhreppi. Sigurður Haraldsson, Hrafnagilsstræti 9, Akurey ri. Gíslína Jónasina Jónsdóttir, Gnoðarvogi 28, Reykjavík. Birgir Lúðvíksson, Litlahvammi 4, Húsavík. 60 ára Gunnar Yngvi Tómasson, múrara- meistari, Álftamýri52, Reykjavík. Éiginkonahans erAnnaS. Steingrímsdótt- ir. GunnarYngvi Gísli Gunnlaugsson, Þingvallastræti 2, Akureyri. Einar Jónsson, HjarðarhvolfHjaltastaðahreppi. Sigfríður Fanney Úlfljótsdóttir, Otrateigi 54, Reykjavík. Kristjana Guðjónsdóttir, Kirkjulundi 6, Garðabæ. Sigurður Torfi Jónsson, Reykjum I, Lýtingsstaðahreppi. Sólrún Una Júlíusdóttir, Ásklifi 14, Stykkishólmi. Þorgerður Sigurðardóttir, Austurbyggð 4, Akureyri. Bergþóra Berta Guðjónsdóttir, Brekkustíg 35c, Njarðvik. Hitmar Þröstur Sturluson, Móabarði 24, Hafnarfirði. Helga Kristín Claessen, Kleifarseli 1, Reykjavík. og Helgu Runólfsdóttur, húsfreyju í Króktúni í Hvolhreppi. Ásta Sigrún flutti til Reykjavíkur 1923 og var þar einn vetur vinnu- kona en flutti síðan til Vestmanna- eyja þar sem hún hefur átt heima síðan. Ásta Sigrún var vinnukona í Eyjum tvo vetur áður en hún fór sjálfaðbúa. Fjölskylda Ásta Sigrún giftist 1.11.1929 Valtý Brandssyni, f. 3.6.1901, d. 1.4.1929, verkamanni og sjómanni. Hann var sonur Brands Ingimundarsonar og Jóhönnu Jónsdóttur verkafólks. Börn Ástu Sigrúnar og Valtýs eru Helga, f. 21.6. 1928, húsmóðir og póstur í Garðabæ, gift Birni Björns- syni og eiga þau tvær dætur; Jó- hanna, f. 17.6. 1930, húsmóðir og fiskverkakona í Keflavík, gift Brynjari Þórarinsdóttur og eiga þau sex börn; óskírð dóttir, f. 1931, d. í júlí s.á.; Ása, f. 7.8.1933, d. 24.4. 1981, húsmóðir í Vestmannaeyjum, gift Georg Sigurðssyni og eiga þau fjögur börn; Vilborg, f. í mars 1936, d. 1938; Sveinn, f. 4.4. 1937, mat- reiðslumaður í Hafnarfirði, kvænt- ur Sigurrós Jónasdóttur; Guð- brandur, f. 5.8. 1939, skipstjóri og nú starfsmaður við Keflavíkurflug- völl, búsettur í Njarðvík, kvæntur Hrefnu Jónsdóttur og eiga þau tvö börn; Ástvaldur, f. 5.2. 1941, fisk- verkandi í Vestmannaeyjum, kvæntur Halldóru Sigurðardóttur og eiga þau þrjár dætur; Auðberg Óli, f. 15.12. 1944, d. 5.6. 1994, var verkamaður við Áhaldahús Vest- mannaeyja, var kvæntur Margréti Óskarsdóttur og eignuðust þau þrjú börn en tvö þeirra eru á lífi; Kristín, f. 22.9. 1946, húsmóðir og fiskverkakona í Vestmannaeyjum, gift Gunnari Árnasyni og eiga þau þijú böm; Jón, f. 17.4.1948, verka- maður í Vestmannaeyjum, kvænt- ur Þórhildi Guðmundsdóttur og eiga þau tvo syni; Sigríður, f. í maí 1949, d. 1953; Óskar, f. 7.3. 1951, plötusmiður í Vestmannaeyjum, kvæntur Jóhönnu Þórðardóttur og eiga þau tvo syni. Þá ól Ásta Sigrún upp eina fóstur- Ásta Sigrún Guðjónsdóttir. dóttur, Ástu Maríu, f. 22.10. 1947, fiskverkakonu og húsmóður í Vest- mannaeyjum sem gift er Hallgrími Júlíussyni og eiga þau þrjú börn. Ásta Sigrún á tuttugu og sjö barnabörn, þrjátíu og sex langömmubörn og þrjú langa- langömmubörn. Foreldrar Ástu Sigrúnar vora Guðjón Jónsson og Anna Kristín Jóhannsdóttir. Ásta Sigrún verður að heiman á afmælisdaginn. Kristján Kristjánsson Kristján Kristjáilsson, hljómlistar- maður og verslunarmaður, Laugar- nesvegi 74A, Reykjavík, er sjötugur ídag. Starfsferill Kristján fæddist í Syðstakoti í Miðneshreppi og ólst þar upp hjá móðurforeldrum sínum, Þorbjörgu Benónýsdóttur ljósmóður og Guð- jóni Þorkelssyni útvegsbónda. Að loknu bamaskólanámi í Sandgerði stundaði Kristján nám viö Verslun- arskóla íslands. Hann stundaði síð- an tónlistamám við Juliard School of Music í New York. Kristján stofnaði KK-sextettinn 1947 og stjórnaði honum meðan hann var starfræktur næstu fimmt- án árin. KK-sextettinn varð fijótlega vinsælasta danshljómsveit landsins enda hafði hann ávallt á að skipa snjöllum hljóðfæraleikurum og söngvurum. Frá 1961 hefur Kristján rekið verslunina Verðhstann við Lauga- læk auk þess sem hann hefur starf- rækt innflutningsfyrirtækið Litlu fluguna sem flytur inn fluguhnýt- ingarefni og ýmislegt fleira fyrir lax- og silungsveiðimenn. Fjölskylda Kristján kvæntist 31.7.1949 Erlu Wigelund, f. 31.12.1928, verslunar- manni. Hún er dóttir Peters Wige- lunds, skipasmíðameistara frá Þórs- höfn í Færeyjum, og Vilborgar Júlíu Kristínar Dagbjartsdóttur frá Grindavík. Börn Kristjáns og Erlu eru Þor- björg, f. 7.12.1949, versluparmaður í Reykjavik, og á hún tvær dætur, Erlu Sigurðardóttur kennara og El- ínborgu Sigurðardóttur, stúdent og snyrtifræðinema; Pétur Wigelund, f. 7.1.1952, hljómlistarmaður, kvæntur Önnu Lindu Skúladóttur og eru börn þeirra íris Wigelund, Kristján Karl og Gunnar Gunnars- son (fóstursonur); Sigrún Júlía, f. 4.11.1959, snyrtifræðingur oglög- giltur sjúkranuddari sem rekur snyrti- og nuddstofuna Paradís en hennar maður er Jóhann Ásmunds- son hljómlistarmaður og eru böm þeirra Auður Elísabet, Ásmundur og Ragnar Pétur. Þá á Kristján dótt- Kristján Kristjánsson. ur, Elísabetu, og á hún fjögur böm. Foreldrar Kristjáns eru Kristján Karl Kristjánsson, f. 14.11.1902, d. 25.5.1977, prentari í Reykjavík, frá Álfsnesi á Kjalarnesi, og Sigrúp El- ínborg Guðjónsdóttir, f. 7.10.1904, d. 10.2.1971, húsmóðir. Kristján og Erla era við laxveiðar á afmælisdaginn. Henný Ósk Gunnarsdóttir í afmælisgrein um Hennýju Ósk Gunnarsdóttur sem birtist í laugar- dagsblaðinu 2.9. sl. var þvi ranglega haldið fram að Bjami Þór Finn- - leiðrétting bjömsson nemi væri sonur hennar. Hið rétta er að Bjarni Þór er tengdasonur Hennýjar Óskar. Það er leiðrétt hér með og viðkomandi beðnir velvirðingar á þessari rang- færslu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.