Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1995, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1995, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995 Spurmngin Hvaða mánuður finnst þér bestur? Magnea Tómasdóttir, vinnur í Happahúsinu: Ágúst, þá er best veður. Hilma Marinósdóttir, vinnur við heimilishjálp: Desember, þá eru jólin. Bóas Ragnar Bóasson, gerir ekk- ert: September, veðrið er svo gott. Egill Árni Pálsson nemi: Júlí, þá er yfirleitt best veður. Þorvaldur Skúli Pálsson við- skiptafræðingur: Júlí, það hefur vanalega verið best veðrið þá en reyndar ekki núna. Áse Guemm Björns hjúkrunar- fræðingur: Maí, allt er að blómstra og vakna til lífsins. Lesendur ísland á erlendum vettvangi: Skortir snjalla samningamenn Stefán Guðmundsson skrifar: Mér hefur fundist bera meira á því nú í seinni tíð hvað við íslend- ingar erum utanveltu í málefnum sem snerta okkur á erlendum vett- vangi. Ég verð nú að segja frá mínu brjósti að einna best hafi Jón Bald- vin formaður Alþýðuflokksins stað- ið sig hvað þetta varðar og hef ég þó aldrei kosið eða stutt hans flokk. En hann var áberandi virkur og með- vitandi um flest mál er að okkur sneri á erlendum vettvangi. Nú kemur hvert málið upp á fæt- ur öðru í viðskiptum okkar við aðr- ar þjóðir og ávallt koma þau okkur gjörsamlega á óvart. Nú síðast má nefna fund Norðmanna og Evrópu- bandalagsins um síldarkvóta úr stofni sem við teljum okkur eiga með Norðmönnum og fleirum. Spyrja má líka hvers vegna við ís- lendingar gátum ekki rétt eins haft frumkvæði að slíkum fundi með Evrópubandalaginu. Sjávarútvegs- ráðherra okkar hafði einmitt ljáð máls á því að nauðsynlegt væri að ræða við Evrópusambandið um þessar veiðar. Ekki skal bregðast að hver sú ákvörðun eða tillaga sem skýtur upp kollinum á erlendum vettvangi og skiptir okkur máli kemur okkur alltaf í opna skjöldu, eins og það er svo faglega orðað af ráðamönnum hér. Maður hefði haldið að sendiráð okkar vítt og breitt um heiminn væru einmitt mönnuð til þess að hafa augun opin, lesa og fylgjast með þarlendum fréttum og gera við- vart um þær hreyfingar sem okkur varða. Satt að segja er ég farinn að trúa Nú voru það þau Emma Bonino frá Evrópubandaiaginu og Jan Olsen sjáv- arútvegsráðherra Noregs sem komu íslendingum á óvart með fundi sínum um síldarkvótann. því að það eina rétta sem við getum gert sé að æskja inngöngu í Evrópu- sambandið hiö fyrsta. Með því móti værum við í samfloti við aðrar þjóð- ir og í nánum tengslum við mikil- væg framkvæmdaratriði sem við þurfum hvort eð er að taka afstöðu til, þótt við séum ekki innan EB. EES-samningurinn virðist ekki vera það fúllkomna haldreipi sem við hefðum þurft og reiknuðum með, því það er hjá EB sem málin ráðast endanlega. Það verður okkur því æ dýrkeyptara sem lengra líður að gerast ekki fullgildir meðlimir EB. - Nema við hefðum lagt áherslu á NAFTA-aðild í byrjun. Það varð hins vegar ekki ofan á að þrýsta á þær dymar. Illu heilli. Það er sífelld kergja í samskiptum okkar við erlend bandalög og við- skiptasambönd og má eflaust rekja hana til þeirrar staðreyndar að við eigum ekki nægilega góðum samn- ingamönnum og sérfræðingum á að skipa sem fýlgjast náið meö þeim hreyfingum sem sifellt eru í gangi á erlendum vettvangi, upplýsa okkur samstundis og vera milliliðalausir ráðgefendur íslenskra ráðamanna. Útvarpsráð og fíklar þess Magnús Sigurðsson skrifar: Ég las stutta ádrepu á Útvarpsráð (best að rita það með stórum staf, þetta er víst sérstakt heiti) í dálkum þessum sl. fimmtudag. Mér fannst ádrepan ágæt og tímabær. Einmitt nú þegar hið opinbera er að basla við að finna feita bita hjá sjálfu sér til niðurskurðar. Af nógu er að taka en það er eins og þau embættin sem hraustast sjúga fé úr ríkissjóði og lengsta hafa armana séu einmitt hin sömu og sárast eru grátin af ráða- mönnum ef minnst er á klippingu eða aflimun. - Þetta á auðvitað við um öfl opinber embætti, stór og smá. Útvarpsráð hefur verið við lýði svo lengi sem ég man. Það er þó næsta víst (eins og einn þekktur starfsmaður RÚV er vanur að segja) að ekki gerir ráð þetta hið minnsta gagn og vinnur því ekki fyrir kaup- inu sínu. Margir hafa hins vegar ánetjast þessu óþurftaráði og afltaf mannar fjórflokkurinn það eftir hverjar kosningar. Þeir eru því orðnir æði margir nefhdafíklamir sem ánetjast hafa Útvarpsráöi gegn- um tíðina. Ég undrast alltaf að flokkur eins og Sjálfstæðisflokkurinn, sem þó hefur haft uppi tilburði, a.m.k. í orði kveðnu, til að fækka í opinbera bákninu, skuli hafa geð í sér til að skipa menn í ráðið. Að ekki sé nú talað um þá flokksmenn sem þar sitja, að segja sig ekki úr ráðinu sjálfviljugir. Með því móti yrði stór- um steini velt til að ryðja brautina til fækkunar ráða og nefnda hjá hinu opinbera. - En pilsfaldur ríkis- ins er þykkur og allir vilja í skjólið. Farþegar með Cargolux frá íslandi Sigurbjöm skrifar: Stórflutninga-flugfélagið Cargolux hefur nú viðkomu hér á landi viku- lega í Ameríkuflugi sínu frá Kefla- vík til New York og Houston í Bandaríkjunum. Með þessu er kom- in á veruleg samkeppni um fragt- flutninga í lofti héðan ffá íslandi. Þetta er okkur nauðsyn því mun betri meðferð er á vörunni með stór- um breiðþotum Cargolux heldur en minni flugvélunum sem héðan fljúga. Flugvélar Cargolux hafa verið út- búnar með farþegarými á efra dekki breiðþotna sinna og hafa m.a. flutt farþega frá Lúxemborg til Hong Kong og annarra staða í Austur- löndum. Er þá ekki eðlilegt að Car- golux bjóði íslenskum farþegum þessi sæti á leiðinni til og frá Bandaríkjunum? Á hverjiun degi verða Flugleiðir að hafna farþegum á þessari leið vegna yfirbókana hjá félaginu og jafnvel greiða erlendum farþegum dvölina hér á landi. Ef Cargolux gæti tekið farþega hér til Bandaríkj- anna minnkaði þörfin að einhverju levti á að kosta erlenda farheea Flugleiða hér végna yfirbókana. - Auk þess sem íslenskir farþegar kynnu að fá eitthváð lægri fargjöld með Cargolux vestur um haf, til samræmis við erlenda farþega Flug- leiða. Hér er eitthvað fyrir yfirvöld samgöngumála hér að pæla í - með hag neytenda fyrir augum, ekki Fluglelða. Þjóðaratkvæði um deilumál G. P.Á. hringdi: Það er orðið tímabært fyrir löggjafann að leiöa þjóðarat- kvæðagreiðslu í lög. Þar má leysa ýmis deilumál og henni yrði þjóðin að hlíta, rétt eins og kosningum til Alþingis. Mörg viðkvæm deilumál verða reynd- ar ekki leyst nema með þjóöarat- kvæöagreiðslu. Ég nefni aðild okkar að Evrópubandalaginu, sölu léttvina og öls í matvöru- mörkuðum, deilumar um fisk- veiðiheimildir og kvótaúthlutun, aðskilnað eða ekki aðskilnað rík- is og kirkju, sölu á ríkisbönkum og margt fleira. Með þessum hætti ynnist líka meiri tími fyrir þau störf á Alþingi sem það á að sinna. Nefnilega lagasetninguna. En hún er unnin í hjáverkum nú um stundir. Bjálfaskot í Bjálfafelli Gísli sknfar: Ég las frétt um að veiðimaður einn hér hefði skotið tarf og kú í einu skoti í Bjálfafelli. Ég hélt satt að segia að ekki væri stund- uð svona skotmennska í landinu. í alvörulöndum er veiðimönnum gert skylt að miða sérstaklega út hvert veiöidýr á landi og skjóta í bóg þess. Þarf ekki að setja skot- mönnum hér strangar reglur um veiðiaðferöir? Skiptir Kína máli? Heimir skrifar: íslenskir fjölmiölar mæra nú mjög Kína, að undanskildu DV, sem hefur, að því mér virðist, sjálfstæða skoðun á hinni oþin- beru heimsókn þangað þessa dagana. Bæði RÚV og t.d. Morg- unblaðið gera því skóna að Kína skipti miklu máli fyrir okkur ís- lendinga viðskiptalega. Þar kunni t.d. að leynast gjöfulir framtíðarmarkaðir fyrir sjávar- afurðir okkar. Þetta eru vita von- lausar vangaveltur. Við höfum meira en nóg af mörkuðum mun nær okkur. Kína skiptir því engu máli fyrir okkur til eða frá. Framleiðslan kostar sitt H. Ó. skrifar: í fréttaauka á laugardegi í júní sl. var fjallað um Eistland. Þar var m.a. sagt að landbúnaður þar nyti engra styrkja eða stuðnings og innflutningur landbúnaðar- vara væri alveg frjáls og óhindr- aöur. Hagur bænda þar væri hins vegar svo bágur að þeir ættu ekki fyrir nauðþurftum. Þetta er nákvæmlega það sem ritstjórar DV og foringjar krata og krataliðið virðist vilja. Þetta „innflutningslið“ sér ekki eða vill eljki heyra að það kosti eitt- hvað að framleiða matvöru og paö telur sig víst of fint til að neyta þess sem er íslenskt. Ekki skerða ellilífeyri Kristinn Sigurðsson skrifar: Nú stendur til að lækka ellilif- eyri eða skerða hann. Ég skora á viðkomandi ráðherra að falla frá þessu því ellilífeyrir er fyrst og fremst allt of lágur og svo.er þetta tiMnningamál gamla fólks- ins. Ég vil benda ráðherra á að bamabætur og bamabótaauka mætti fremur skerða enda þarf meirihluti fólks ekki á þessum bótum að halda. Eðlilegra væri að þær bætur miðuðust við tekj- ur fólks þannig að láglaunafólk fengi óskertar bætur. Einnig mætti benda ríkisstjórninni á að eigendur laxveiðiáa borga litla sem enga skatta en hafa miklar tekjur af erlendum ferðamönn-. um. Látið gamla fólkið i friði, það væri meiri reisn yfir því.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.