Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1995, Síða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995
Útlönd dv
Bandaríska forsetafrúin ræðir um heilsugæslu kvenna á kvennaráðstefnu:
Hillary ræðst á stef nu
stjórnvalda í Peking
Hillary Rodham Clinton, forsetafrú i Bandarikjunum, spjallar við eiginkonu Boutros-Ghalis, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, á fundi um heilbrigðismál kvenna á kvennaráðstefnunni i Peking í morgun.
Símamynd Reuter
Færeyingarflýja
himinháa skatta
Þaö er mun erflöara að komast
af á Færeyjum en í Danmörku.
Þetta fullyrðír hópur sérfræöinga
sem hefur veriö að rannsaka
ástæöurnar fyrir stöðugum fólks-
flótta frá eyjunum. Fjármálaráð-
herra Færeyja, Johannes Ei-
desgaard, segir að meginorsök
fólksflóttans sé hinir himinháu
skattar, sérstaklega fyrir fólk
meö meðaltekjur. Við bætist að
ýmsar bótagreiðslur frá hinu op-
inbera séu mun rýrari en í Dan-
mörku, ekkert samræmi sé milli
skattgreiðslna og þess sem Fær-
eyingar fái til baka frá ríkinu.
Þannig sé ekkert um barnabætur
né húsnæöisbætur.
Landstjórnin í Færeyjum og
danska ríkissljómin hittast í
Kaupmannahöfn 27. september.
Fjárlög Færeyinga veröa þar aö-
alumræðuefnið auk himinhárra
skulda þeirra við útlönd. Af hálfn
Færeyinga verður lækkun skatta
aöalmálið, enda forsenda þess að
fólksflóttinn stöðvist.
Öflugur fellibyl-
uríKaríbahafi
Fellibylurinn Louis er nú í
Karíbahafi þar sem búist er viö
að hann valdi miklum usla. Vind-
hraðínn nær allt að 225 km á
klukkustund og vindstrengirnir
ná allt að 200 km út frá miðju
bylsins. Búist er viö aö Louis nái
Jómfrúreyjum og Púertó Ríkó á
morgun og Dóminíska lýðveldinu
á flramtudag.
Dolevillaðeins
kennaensku
Bandaríski öldungadeíldar-
þingmaðurinn Bob Dole, sem ætl-
ar að bjóða sig fram tíl forseta
1996, vill að enska verði eina við-
urkennda opinbera málið í
Bandaríkjunum. Ekki verði
kennt á öðrum málum eins og
gert hefur verið. í ræðu yfir íyrr-
um hermönnum réðst hann á
„fijálslyndar menntaklikur" sem
græfu undan þjóðinni og ógnuðn
hetðbundnu vestrænu gildismati.
BÍitzau/Reuter
Hillary Rodham Clinton, forsetafrú
í Bandaríkjunum, veittist harkalega
aö stefnu kínverskra stjómvalda í
mannfjölgunarmálum í ræðu sem
hún hélt fyrir nokkur hundruð full-
trúa á kvennaráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna í Peking í morgun, án þess
þó að nefna Kína á nafn.
„Konur ættu að hafa rétt til heilsu-
gæslu sem gerir þeim kleift að kom-
ast klakklaust í. gegnum þungunina
og fæðinguna svo að þær geti eignast
heilbrigt barn,“ sagði Hillary Clinton
á fundi um heilsugæslumál kvenna.
Hún sagði að konur og karlar yrðu
að fá að taka ákvarðanir um barn-
eignir án nokkurs utanaðkomandi
þrýstings eða þvingana og nefndi í
því sambandi að konur eru stundum
þvingaðar til að gangast undir fóst-
ureyðingu eða þær eru gerðar ófrjó-
ar.
Hillary, sem hefur leitt baráttu
Clintons forseta fyrir bættri heilsu-
gæslu í Bandaríkjunum, hefur mikið
verið að velta fyrir sér hversu op-
inská hún megi vera í Kína þar sem
samskipti landanna tveggja eru með
erfiðasta móti um þessar mundir.
Hún sagði að Bandaríkin styddu ein-
dregið niðurstöðu mannfjöldaráð-
stefnu SÞ í fyrra þar sem sagði að
hjón og einstaklingar ættu sjálf að
ákveða fjölda barna sinna og hversu
langt væri á milli þeirra.
Kínversk stjórnvöld hafa sett mjög
stran'gar reglur um fjölda barna sem
konur mega eignast og er það háð
því hvort þær búa í borg eða sveit. í
sumum tilvikum eru konur neyddar
til að gangast undir ófrjósemisað-
gerðir.
„Þjóðir og ríkisstjómir eru famar
að átta sig á því að fjárfesting í heilsu
kvenna og stúlkna er jafnmikilvæg
fyrir velsæld þjóðanna og fjárfesting-
ar til að eíla opna markaði og við-
skipti," sagði Hillary.
Bæði mannréttindafrömuðir og
íhaldsmenn hafa gagnrýnt Hillary
Clinton fyrir . Kínaferðina vegna
ástands mannréttindamála þar á bæ.
Hillary flytur ávarp á aðalfundi
kvennaráðstefnunnar í dag og á
morgun flytur hún ræðu á óháðu
kvennaráðstefnunni í Huairou,
norðan við Peking.
Reuter
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirtalinni eign verður háð á henni sjálfri sem hér segir:
Strandgata 68, Eskifirði, þingl. eig. Eljan hf., gerðarbeiðendur Fiskveiðasjóð-
ur Islands og Landsbanki íslands, 8. september 1995 kl. 13.00.
SÝSLUMAÐURINN Á ESKIFIRÐI
SENDLAR
///////////////////////////////
Sendlar óskast á afgreiðslu DV.
Vinnutími frá kl. 13.00-18.00 nokkra daga í viku.
Laus staða rektors við
Menntaskólann við Hamrahlíð
Laus er til umsóknar staða rektors Menntaskólans við
Hamrahlíð. Staðan veitist frá 16. janúar 1996.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4,
150 Reykjavík, fyrir 2. október næstkomandi.
MENNT AMÁL ARÁÐUNE YTIÐ
Mururoa:
Fyrstakjarn-
orkusprengjan
ívikunni
Fyrsta kjarnorkusprengjan af í
allt átta mun springa neðanjarð-
ar á Mururoa-eyjum í Kyrrahafi
i þessari viku. Nýsjálenska út-
varpíð haföi þetta eftir frönskum
fréttum þar sem vitnað var til
yfirmanns Frönsku-Pólinesíu.
Mun hann hafa sagt að fyrsta
sprengingin yrði framkvæmd áð-
ur en hann héldi til Parísar í
vikulokin á fund með Jacques
Chirac forsætisráðherra.
Chirac sagði í júni að Frakkar
ætluðu aö framkvæma allt að sjö
kjarnorkusprengingar á Mururo-
a-eyjum á tímabilinu frá sept-
ember til maí. Kjarnorkutilraun-
ir Frakka hafa vakið öldu mót-
mæla um allan heíra, sérstakiega
i Kyrrahafsríkjum. Hafa Ástralir,
Nýsjálendingar og Japanar verið
fremstir í flokki mótmælenda.
Mótmælin hafa farið fyrir hj artað
á Frökkum. Mótmæltu þeir þann-
ig í gær harðlega þátttöku íjár-
málaráðherra Japans, Masayoshi
Takemura, og menningarmála-
ráðherra Svíþjóðar, Margot
Wailström, í mótmælaaðgerðum
á Tahítí á dögunum. Sögðu
Frakkar þátttöku ráðherranna
óþolandi afskipti af innanríkis-
málum sínum. Japanski fjár-
máiaráðherrann léf sér fátt um
mótmælínfinnast. Reuter
Bosníu-Serbar segjast famlr aö draga sig í hlé:
Saka NATO um
nýjar loftárásir
Bosníu-Serbar sögðu í morgun að
flugvélar Atlantshafsbandalagsins
(NATO) hefðu gert loftárásir á þá
aðeins einni mínútu áður en loka-
fresturinn til að aflétta umsátrinu
um Sarajevo rann út klukkan níu í
gærkvöldi að íslenskum tíma. NATO
og Sameinuðu þjóðirnar vísuðu því
hins vegar alfarið á bug aö gerðar
hefðu verið nokkrar sprengjuárásir.
Við dögun í morgun, sex klukku-
stundum eftir að fresturinn rann út,
gat enginn með vissu sagt til um
hvort Bosníu-Serbar hefðu farið að
kröfum SÞ eða hvort þeir ætluðu sér
að standa uppi í hárinu á þeim.
NATO sagði að fljótlega yrði úr því
skorið með eftirlitsílugi.
Embættismenn NATO sögðu að svo
gæti farið að flugvélar bandalagsins
mundu fljótlega gera nýjar loftárásir
á stöðvar Bosníu-Serba ef ekki væri
greinilegt að þeir færu að kröfum SÞ
um brottílutning þungavopna sinna.
SÞ sögðu í gærkvöldi að svo virtist
sem Serbar væru byrjaðir að ílytja
vopnin burt en mönnum er enn í
fersku minni að Serbar hafa áður
stundað blekkingarleiki.
Richard Holbrooke, sendifulltrúi
Bandaríkjasljórnar, er í Tyrklandi
þar sem hann ræddi við Tansu Ciller
Alija Izetbegovic Bosníuforseti.
Simamynd Reuter
forsætisráðherra í morgun. Búist var
við að Alija Izetbegovic, forseti Bosn-
íu, mundi síðar sitja fund með þeim.
Holbrooke er að kynna tiilögur
stjórnar sinnar til lausnar Bosníu-
stríðinu.
Holbrooke og Izetbegovic ræddust
við í gærkvöldi en vildu ekkert tjá
sig um hvað þeim fór í milli.
„Við erum hvorki bjartsýnir né
svartsýnir," sagði Holbrooke fyrir
fundinnígærkvöldi. Reuter