Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1995, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995
11
Afmæli Dagblaðsins
Lesa má margt um tíðarandann hverju sinni í smáauglýsingum DV:
Um tvær milljónir smá-
auglýsinga á 20 árum
- oft skila fyndnustu og óhefðbundnustu auglýsingamar bestum árangri
Síðdegisblöðin hér á landi; Vísir, DB
og seinna DV, hafa alla tíð verið ráð-
andi á smáauglýsingamarkaðnum.
Ætla má að um tvær milljónir smá-
auglýsinga hafi birst á seinustu 20
árum í DB og DV. Reyndar hafa
smáauglýsingar alla tið verið ein af
skrautfjöðrum DV og forvera þess.
Nú birtast 400 til 800 auglýsingar
daglega eða aö jafnaði vel á annaö
hundrað þúsund smáauglýsingar ár-
lega. Ef htið er á DB og DV frá fyrri
tíð má lesa úr smáauglýsingunum
mörg merki tíðarandans hverju
sinni. Þær eru þannig miklu meira
en auglýsingar. Þar má einnig lesa
um þjóðfélagsástand hverju sinni -
ástand á vinnumarkaði, framboð og
eftirspurn eftir leiguhúsnæði, þar
má telja þær íjölskyldur sem eru aö
ílytjast búferlum til annarra landa
og umhyggju landans fyrir gæludýr-
um. Þar má aukinheldur sjá áræði
fólks sem af ótal ástæðum hefur ein-
angrast einhvern tíma á sínum lífs-
ferli og leitar félaga og vináttu við
annað fólk.
Fyrir 15 árum var sagt um smáaug-
lýsingarnar að þær væru langt frá
því ómerkilegt lesefni. „Þær segja
jafnvel stundum betur en margar
fréttir blaðanna samanlagt hvernig
kaupin gerast á eyrinni. Hreyfingar
og hræringar í þjóðlífmu þótt ekki
beri þær eyrnamerki stóru karlanna
í viðskiptaheiminum.“ Þótt tímarnir
hafi breyst á margt af þessu senni-
lega enn við.
Skipti á konu og bíl
í dag starfa 9 manns á Smáauglýs-
ingadeild DV. Hægt er að auglýsa
í dag starfa 9 manns á Smáauglýsingadeild DV. Hægt er að auglýsa undir
þáttur í DV bitið af sér marga samkeppnina i gegnum tiðina.
undir hundrað efnistlokkum og hef-
ur þessi þáttur í DV bitið af sér marga
samkeppnina í gegnum tíðina. Hefur
það jafnan verið svo að í hvert skipti
sem samkeppnin harðnar og atlaga
er gerð að smáauglýsingunum í DV
þá fylkja viðskiptavinir blaðsins sér
um það og smáauglýsingum fjölgar.
Auglýsendur eru með sanni þver-
skurður þjóðfélagsins og oft má lesa
spaugilegar auglýsingar á smáaug-
lýsingasíðunum. Þannig hefur verið
hundrað efnisflokkum og hefur þessi
DV-mynd ÞÖK
auglýst eftir töpuðum tanngómum
og einn auglýsandi vildi skipta á eig-
inkonu sinni og notuðum bil. Aö visu
hringdi eiginkonan seinna og afpant-
aði auglýsinguna. Margur hagyrð-
ingurinn hefur fundið sinn vettvang
í smáauglýsingum en auglýsingar í
bundnu máli eða í léttari kantinum
hafa oft selt betur en aðrar. Þekkt
dæmi er af manni í atvinnuleit sem
var frekar formfastur í sinni fyrstu
auglýsingu og fékk litla svörun. Viku
seinna auglýsti hann að latur, illa
lyktandi og fávís maður væri í leit
að vinnu. Sjaldan hafa viðbrögð ver-
iðjafnmikil við einni smáauglýsingu.
Maöurinn fékk fjölda atvinnutilboða
og var boðaður í útvarpsviðtal að
auki.
Gamla kerfið sprakk
Fyrir hálfu öðru ári var álagið orð-
ið það mikið að starfsmenn smáaug-
lýsinga höfðu ekki undan á álagstím-
um. Þá var tekin í notkun tölva og
nú geta auglýsendur og þeir sem
svara auglýsingum hringt á hvaða
tíma sólarhrings sem er, jafnt virka
daga sem helgar, til að nýta sér svar-
þjónustu DV. Það er auglýsandinn
sjálfur sem ákveður hvort hann vill
nota sjálfvirku svarþjónustuna.
Sjálfvirka svarþjónustan gefur aug-
lýsendum þann möguleika að bæta
við auglýsingu sína upplýsingum
sem þeir tala inn á tölvuna. Auglýs-
ingin er birt í blaðinu með ákveðnu
tilvísunarnúmeri sem notað er til að
heyraauglýsinguna. -pp
Hefur auglýst í Vísi frá 1952 og DB og DV frá upphafi:
DV hef ur alltaf
gef ist okkur best
Bílar, húsnæði og
atvinna vinsælast
í gegnum tíðina hafa vinsælustu
flokkar smáauglýsinga verið bílar,
húsnæði, atvinna og alltaf eru
einkamálin jafnvinsæl. Smáaug-
lýsingadeildin býður upp á ókeypis
myndatökur afbflum ogmótorhjól-
um sem ætlað er að auglýsa til sölu.
Auk þess liggja afsöl, sölutilkynn-
ingar og húsaleigusamningar
frammi í afgreiðslu DV. Loks er í
boði bírtingarafsláttur, 15 prósent
staðgreiðsluafsláttur og áskrifend-
ur DV fá 10 prósent afslátt af smá-
auglýsingum.
Smáauglýsingadeild DV er opin
virka daga frá 9 til 22, laugardaga
9 til 14 og sunnudaga 16 til 22.
- segir Ólafur Hólm hjá Hólmbræðrum
„Ég hef auglýst í smáauglýsingum
DB og seinna DV frá upphafi. Ekki
nóg með það heldur auglýsti ég í
Vísi frá 1952 þegar við bræðumir
stofnuðum okkar fyrirtæki. Þetta
hefur gefist mjög vel og þetta eru lík-
lega einu dagblaðaauglýsingarnar
sem við birtum. Við notuðumst um
tíma við Morgunblaðið en þá rauk
kostnaðurinn upp úr öllu valdi án
þess að meira yrði að gera. DV hefur
alltaf gefist okkur best og verið ódýr-
asti kosturinn," segir Ólafur Hólm,
einn eigenda Hólmbræðra, fyrirtæk-
is sem sérhæfir sig í alhliða hrein-
gerningum.
Bræðumir stofnuðu fyrirtækið
eins og fyrr sagði árið 1952. Ólafur
segir þó þann tíma kominn að börn
hans og bræðra hans séu komin
meira inn í reksturinn. Hann segir
verkefni í þessu fagi mikiö til árstíða-
bundin. Jólin séu vertíð fyrir hann
og bræður hans. Hann segir að verk-
efni hafa borist nokkuð jafnt í gegn-
um árin en þó verði þeir sérstaklega
varir við sveiflur í efnahagslífmu.
Þegar skórinn kreppi að sjái þeir það
„Þetta kostaði okkur tvöfaldar aug-
lýsingar. Við þurftum að auglýsa i
DB og Visi um tíma. Við vorum því
fegnastir þegar blöðin sameinuð-
ust,“ segir Ólafur Hólm.
DV-mynd Sveinn
fljótt á verkefnunum.
Hann segir að neyðin hafl rekið þá
til að byrja aö auglýsa í DB. Fram til
ársins 1975 hafi þeir einungis auglýst
í Vísi en eftir það í báðum blöðum.
„Þetta kostaði okkur tvöfaldar aug-
lýsingar. Við þurftum að auglýsa í
DB og Vísi um tíma. Við vorum því
fegnastir þegar blöðin sameinuðust. “
Ólafur segist vel muna þann tíma
þegar DB hóf göngu sína. Hann segir
að þótt hann hafi aldrei verið póli-
tískur þá hafi hann tekið eftir því að
DB hafi verið ákafiega hlutlaust blað
og DV þegar það tók við.
„Það hafa mörg skondin tilvik
komið upp í gegnum smáauglýsing-
amar. Ég man eftir þvi að einu sinni
auglýstum við; Þrífum hvað sem er,
hvar sem er og hvenær sem. Þá
hringdi fólk í okkur og bauð okkur
í partí til að þrífa eftir þau, við vorum
beðnir að þrífa eitt salemi og einn
símástaur. Það voru engin takmörk
fyrir því sem við vomm beðnir að
þrífa. Við breyttum þessari auglýs-
ingu fljótlega þótt þetta vekti
kátínu." -pp
I dag breytist símanúmer DV - 550-5000:
Fjórar línur í skiptiborð-
inu fyrir tuttugu árum
- línurnar eru sextíu í dag
I dag breytist aðalsimanumer DV
í 550-5000. Til að koma til móts við
viðskiptavini blaðsins verður til ára-
móta hægt aö hringja í 563-2700 sam-
hliða nýja númerinu.
í gegnum árin hafa orðið breyting-
ar á númeri blaðsins. Við stofnun
DB var til dæmis númerið 83322. Þá
mátti lesa um meiri háttar uppákom-
ur vegna númersins.
„Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins hefur verið meira og minna sam-
bandslaus við umheiminn undan-
fama daga. Ástæðan er DAGBLAÐ-
IÐ.
Súmanúmer þessara tveggja stofn-
ana eru mjög lík. Sími DAGBLAÐS-
INS er 83322 en Rannsóknastofnunar
83320,“ sagði í DB fyrir tuttugu áram.
Símastúlka hjá stofnuninni sagði í
samtali við blaðið að „allar símalínur
hefðu verið rauðglóandi,“ svo hún
hefði í raun ekki annað öðru en að
vísa viðskiptavinum DB á rétt núm-
er. Um leið og blaöið bað lesendur
sína afsökunar voru þeir beðnir að
sýna biölund og athygli vakin á nýj-
um númerum.
Viku síðar var enn beðið afsökunar
á hve erfitt reyndist að ná sambandi
við blaðið. Var bent á að ekki hefði
verið hægt að fá stærra skiptiborð
en fjórar línur og var því enn fleiri
númerum bætt við hjá blaðinu.
í dag era 60 símalínur inn í hús
DV. 30 era ætlaðar til innhringinga
en 30 eru fráteknar til úthringinga.
Það eina sem breytist með tilkomu
nýja númersins er aukin þjónusta
viö lesendur og aðra viðskiptavini