Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1995, Page 17
16
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER
K I W G A
Aðaltölur:
Vinningstölur r
miðvikudaginn:[
6.9.1995
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
H 6 af 6 1 44.150.000
CJ 5 af 6 CÆ+bónus 0 1.335.036
R1 5 af 6 5 45.990
\ 4 af 6 230 1.590
rM 3 af 6 Bd+bónus 767 200
fjj vinningur fór til Danmerkur
12 14 26
(32) (35) (37)
BÓNUSTÖLUR
Heildampphæð þessa viku:
46.234.086
á fsi.: 2.084.086
UPPLYSINQAR, SÍMSVARI 91-.6815 11
LUKKULINA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
«IRT MEO FYBIRVABA UM PRtNTVIUUR
Auglýsing
Húsnæði óskast
Ríkissjóður leitar eftir kaupum á húsnæði fyrir sam-
býli fatlaðra í Reykjavík. Um er að ræða 200-250 m2
einbýlishús í góðu ásigkomulagi með a.m.k. 5 rúmgóð-
um svefnherbergjum.
Nauðsynlegt er að húsnæðið sé á einni hæð og allt
aðgengi innan dyra sem utan í góðu lagi með tilliti til
fatlaðra.
Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarár og
-efni, herbergjaíjölda, brunabóta- og fasteignamat, af-
hendingartíma og söluverð, sendist eignadeild fjár-
málaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir
15. september 1995.
Fjármálaráðuneytið, 7. september 1995
A
iJ&J
Kópavogsbær
Húsnæðisnefnd
Umsóknir
um almennar kaupleiguíbúðir fyrir aldraða
Auglýst er eftir umsóknum um 5 almennar kaup-
leiguíbúðir. Um er að ræða 2ja og 3ja herbergja
íbúðir í fjölbýlishúsi.
Áætlað er að íbúðirnar verði tilbúnar til afhend-
ingar sumarið 1996.
Ekki eru sett skilyrði um tekjumörk en sýna þarf
fram á greiðslugetu.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Félagsmála-
stofnunar Kópavogs, Fannborg 4, sem er opin frá
kl. 9-15 mánudaga - föstudaga.
Umsóknarfrestur er til 22. september 1995.
Allar frekari upplýsingar veitir öldrunarfulltrúi
eða húsnæðisfulltrúi mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga frá kl. 10-12 í síma 554 5700.
Húsnæðisnefnd Kópavogs
Kópavogsbær
Húsnæðisnefnd
Umsóknir
um félagslegar leiguíbúðir fyrir aldraða
Auglýst er eftir umsóknum um 5 félagslegar leigu-
íbúðir. Um er að ræða 2ja og 3ja herbergja íbúðir
í fjölbýlishúsi.
Áætlað er að íbúðirnar verði tilbúnar til afhend-
ingar sumarið 1996.
Þeir einir koma til greina sem uppfylla eftirfar-
andi skilyrði:
1. Eiga ekki íbúð eða samsvarandi eign.
2. Eru innan tekju- og eignamarka Húsnæðisstofn-
unar ríkisins.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu hús-
næðisnefndar Kópavogs, að Fannborg 4, sem er
opin frá kl. 9-15 mánudaga-föstudaga. Umsóknar-
frestur er til 22. september 1995.
Allar frekari upplýsingar veitir öldrunarfulltrúi
eða húsnæðisfulltrúi, mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga, frá kl. 10-12, í síma 554 5700.
Húsnæðisnefnd Kópavogs
íþróttir_________________
Kvennamótí
handknatffleik
Handknattleiksdeild Hauka
mun um helgina standa fyrir
handknattleiksmóti fyrir meist-
araflokk kvenna. Mótið fer fram
í íþróttahúsinu viö Strandgötu og
taka 6 liö þátt í því. í A-riðli leika
Haukar, KR og FH og í B-riðli
Stjarnan, ÍBV og Valur. Mótið
hefst klukkan 19.30 í kvöld með
leík Hauka og FH og strax á eftir
leika Stjarnan og ÍBV.
Alþjóðlega
ralliðum helgina
Alþjóðlega GSM Reykjavíkur-
rallið fer fram viðs vegar um
Suðvesturland og Suðurland um
helgina. Það hefst viö Perluna í
Reykjavík klukkan 15 á morgun,
fóstudag, og lýkur á Austurvelli
um hádegisbilið á sunnudag. Alls
eru 28 bílar skráðir tfl leiks, þar
af fimm skipaðir erlendum
áhöfnum. Þetta er 16. alþjóðlega
rallið hér á landi.
Á fostudag er rallað um Reykja-
nes og endað á tveimur ferðum
um Öskjuhlíðina í Reykjavík sem
hefjast klukkan 20. Á laugardag
er keppt i nágrenni Þingvalla
fyrri part dags en síðdegis i
grennd viö Heklu. Á sunnudag
er að lokum rallað við Geitháls
og Kleifarvatn.
Síðasta
torfæran
Ása Jóhaimsdóttir skriiar:
Á morgun, laugardag, fer fram
síðasta torfærukeppni sumars-
ins, við Hellu, og hefst klukkan
13. í báðum flokkumer um hreina
úrslitakeppni um íslandsmeist-
aratitilinn að ræða.
í götubílaflokki er Siguröur
Jónsson á Lukkutröllinu með
vænlega stöðu og næstur honum
er Gunnar Guðmundsson á Rapp-
aranum með 45 stig.
í flokki sérútbúinna er Gísli G.
Jónsson á Kókómjólkinni efstur
með 50 stig en næstur er Harald-
ur Pétursson á Kjörísbílnum með
44 stig. Aðrir eiga ekki raöguleika
á titli.
Guðbergurog
Garðarunnu
Ása Jóhannsdóttir skri&r
Garöar Þór Hilmarsson er ís-
landsmeistari 1995 í krónuflokki
í rallíkrossi. Garðar kom fyrstur
í mark í síöustu keppni sumars-
ins, 27. ágúst, en Páll Pálsson,
sem einnig átti möguleika á titlin-
um, var dæmdur úr leik og kærði
þann úrskurð. Nokkrum dögum
síðar var kæran afgreidd og var
ekki tekin til greina.
Guðbergur Guöbergsson er ís-
landsmeistarí í rallikrossflokki.
Hann hatði þegar tryggt sér titfl-
inn fyrir síðustu keppnina en
vann hana ekki, eins og sagt var
í DV. Hið rétta er að Högni Gunn-
arsson vann þá keppni en Guð-
bergur komst ekki í mark.
í teppaflokki er enginn íslands-
meistari 1995 þar sem ekki náðist
að keyra löglegan flokk á tímabil-
inu.
Opiðhústil
heiðursTobba
Valsmenn ætla að hafa opiö hús
í Valsheimilinu í dag. Tileíhið er
að Valsmen ætla aö þakka Þor-
bimi Jenssyni fyrir frábært starf
hjá félaginu í gegnum árin en
hann er nú tekinn við starfi
landsliösþjálfara. Húsið verður
öpnað klukkan 20 og þar verður
lauflétt dagskrá og veitingar á
vægu verðí.
Gengi liðanna í sumar
1 -5 umferð
6-10 umferð
11-15 umferð
Gengi liöanna í 1. deildinni:
ÍBV unnið sex leiki í röð
IBV og Valur eru þau lið sem hafa
átt bestu gengi að fagna í 1. deildinni
í knattspyrnu að undanfórnu. ÍBV
hefur unniö síðustu 6 leiki sína og
Valur hefur náð í 10 stig í síðustu
fjórum leikjum sínum.
Á sama tíma hefur FH gengið verst,
liðið hefur tapað flmm leikjum í röð,
og þá hefur leiö Keflavíkur og Leift-
urs legið niður á við að undanfornu.
Á meðfylgjandi grafl sést gengi 1
deildar liðanna í sumar á þremui
tímabilum, fyrstu fimm leikjunum
næstu fimm, og svo síðustu fimm o;
það segir meira en mörg orð um þaí
hvernig sumarið hefur þróast hjá l
deildar liðunum tíu.
Jón Arnar yf ir 5 metrana
Jón Amar Magnússon tugþraut-
armaður stökk í fyrsta skipti yfir 5
metra í stangarstökki á frjáls-
íþróttamóti hjá UMSS sem fram fór
á Sauðárkróki í fyrrakvöld. Hann
er aðeins þriðji íslendingurinn frá
upphafi sem kemst yfir fimm metr-
ana en hinir tveir eru Sigurður T.
Sigurðsson og Kristján Gissurar-
son.
Jón Arnar er greinilega í góðu
formi þessa dagana því að á dögun-
um hljóp hann 100 metra á 10,2
sekúndum, með handtímatöku, á
móti á Laugarvatni. Jón Arnar fer
til Frakklands í næstu viku og
keppir þar á boðsmóti í tugþraut
en þar etja kappi 16 bestu tugþraut-
armenn heims.
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1995
25
1
Körfuknattleikur:
Rondey kemur ekki
Bandaríkjamaðurinn Rondey Robin-
son, sem leikið hefur með íslandsmeist-
umm Njarðvíkinga í körfuknattleik
undanfarin ár, .mun að öllum líkindum
ekki leika með liðinu í vetur.
„Það er af persónulegum ástæðum sem
hann kemur ekki og við fréttum þetta
fyrst í gærkvöldi. Við göngum út frá því
að hann komi ekki til okkar og við ætlum
að gefa okkur tíma í að fá staðgengil,"
sagði Hrannar Hólm, þjálfari Njarðvík-
inga, við DV í gærkvöldi.
Það er engum blöðum um það að fletta
að þessi tíðindi er slæm fyrir meistarana
en Rondey hefur leikið stórt hlutverk
með liðinu þau ár sem hann hefur leikið
hér á landi.
Kúbumaðurinn Julian Durandona lék vel með KA gegn Haukum í gær á opna Reykjavikurmótinu í handknattleik. Hann skoraði
3 mörk i leiknum, lék mjög góða vörn og átti margar stoðsendingar. Hér reyna Petr Baumruk og Halldór Ingólfsson að
stöðva Kúbumanninn. DV-mynd ÞÖK
Fram ■ vanda
- „Þurfum 9 stig til að eiga möguleika,“ segir Steinar Guðgeirsson, fyrirliði Fram
Fram, sigursælasta knattspyrnufélag
landsins á árunum 1985-1990, á fyrir
höndum erfiða baráttu fyrir lífi sínu í
1. deildinni í lokaumferðunum. Framar-
ar eru fimm stigum á eftir næsta liði,
Val, og mæta sjálfum íslandsmeisturum
Skagamanna á Laugardalsvellinum í
kvöld. Tap eða jafntefli í þeim leik getur
þýtt að Fram falli í 2. deildina á morgun
ef önnur úrslit verða félaginu óhagstæð.
Steinar Guðgeirsson, fyrirliði Fram,
segir að ÍA sé ekki óskamótherjinn í
svona stöðu. „Við hefðum getað verið
heppnari með andstæðinga í svona þýð-
ingarmiklum leik en við þurfum virki-
lega á sigri að halda og verðum einfald-
lega að vinna. Helst þurfum við að ná í
níu stig í þeim þremur leikjum sem eftir
eru til að halda okkur uppi,“ sagði Stein-
ar í spjalli við DV.
Snúningspunkturinn
hefur aldrei komið
Margir áttu von á
því að Fram yrði
ofarlega í deild-
inni í sumar því
leikmannahópur-
inn er nokkuð
breiður og sterk-
ur. „Þetta hefur
ekki gengið upp, stundum hefur mér
fundist þetta hafa verið að smella saman
en hann hefur aldrei komið þessi snún-
ingspunktur, þessi stórleikur sem oft
þarf til að snúa hlutunum við. Ég er þó
að mörgu leyti ánægður með leikinn
okkar í Keflavík á dögunum, þar gerðum
viö meira en í flestum leikjum í sumar,
fengum eflaust fleiri marktækifæri en í
síðustu 10 leikjum til samans og þaö er
jákvætt þó leikurinn hafi endað með
jafntefli."
Nú er ekki hægt
að bíða lengur
„Það sem helst hefur vantað hjá okkur
er að menn ynnu betur saman inni á
vellinum. Einn og einn og tveir og tveir
hafa verið að ná saman en liðsheildina
hefur vantað. Leikmennimir hafa líka
verið að koma hver úr sinni áttinni, við
erum aðeins þrír sem höfum spilað nán-
ast alla leiki undanfarin þrjú ár og það
er eflaust hluti af skýringunni. En nú
er ekki hægt að bíða lengur eftir því að
þetta smelli saman, í þessum leik veröa
allir að fóma sér,“ sagði Steinar Guð-
geirsson.
Drengjalandsliðið 1 knattspyrnu:
Baldur Bett er
Baldur Bett, sonur hins góðkunna fióra leikina á Norðurlandamótínu,“ ingu, Símon Símonarson, Eggert Stef-
skoska knattspyrnumanns James sagði Gústaf í spjalli viö DV í gær. ánsson og Bjarni Þór Pétursson úr
Bett, er í drengjalandsliðshópnum sera James Bett, faöir Baldurs, leikur nú Fram, Björgvin Vilhjálmsson, KR,
Gústaf A. Björnsson hefur valið fyrir meö skoska úrvalsdeildarliðinu Hearts Harald Haraldsson, Fjölni, Hans Sæv-
leiki í Evrópukeppninni í haust. Bald- en eiginkona hans er íslensk og eins arsson og Jens Sævarsson, úr Þrótti,
ur leikur með unglingaliði Aberdeen og menn muna spilaði hann meö KR í R., Jóhann Hreiðarsson og Agúst Guð-
en hann spilaði með drengjalandslið- fyrra og hóf feril sinn hjá Val fyrir mundsson úr Val, Tryggvi Björnsson
inu á Noröurlandamótinu i Svíþjóð í tæpum tveimur áratugum. úrVíkingi,BjamiHallúrGróttu,Guð-
síðasta mánuði og fyrsti landsleikur „Strákurinn er geysilega likur fóður mundur Steinarsson og Þórarinn
hans var einmitt gegn Skotum. sínum sem knattspymumaður, hann Kristjánsson frá Keflavík, Reynir
„Pabbi hans haföi samband við okk- er tengiliður og nánast „mini-útgáfa“ Leósson úr IA, Þorleifur Arnason úr
ur í gegnum KR-ingana og lét vita af af honum! Baldur hefur staðið sig það KA, Ingi Heitnisson og Jóhaim Þór-
því að strákurinn heíði áhuga á að vel að hann er áfram inni í myndinni hallsson úr Þór og Stefán Gíslason úr
leika fyrir íslands hönd, ef not væru hjáokkur,“ sagöíGústaf A.Björnsson. Austra,
fyrir hann. Hann kom til okkar í æf- Aðrir í hópnum hjá Gústaí' eru Konr- Endanlegur 16 manna hopur verður
ingabúðir í júní og var valinn í dren- áð Konráösson, ÍR, Magnús Pétursson, tilkynntur 18. september.
gjalandsliðið í kjölfar þess og lék alla Stjörnunni, Níels Reynisson, Aftureld-
Handknattleikur
Úrslitin á opna Reykjavíkur-
mótinu í handknattleik í gær:
A-riðill:
Valur - Grótta...........28-19
Davíð Ólafsson 6, Ólafur Stefáns-
son 5, Jón Kristjánsson 5 - Jurí
Sadorski 7, Davíð Gíslason 5.
FH-ÍH....................25-24
Guðmundur Petersen 6, Siguröur
Sveinsson 5 - Jóhann Ágústsson
9, Ólafur Magnússon 4.
Breiðablik - Valur......21-35
B-riðill:
Fylkir-KR...............19-30
Hjálmar Vilhjálmsson 6, Magnús
Baldvinsson 4 - Sigurpáll Á. Aðal-
steinsson 7, Einar Árnason 6.
Haukar-KA...............28-33
Halldór Ingólfsson 5, Aron Kristj-
ánsson 5, Jón F. Egilsson 5 - Pat-
rekur 12, Jóhann G. Jóhannss 10.
Bf-Fylkir...............25-29
C-riðill:
Víkingur - Fram.........23-21
Birgir Sigurðsson 8, Ámi Friðleifs-
son 5 - Jón A. Finnsson 8, Siggeir
Magnússon 4.
D-riðill:
Afturelding - HK........29-24
Bjarki Sigurðsson 7, Páll Þórólfs-
son 6, Gunnar Andrésson 6 - Sig-
urður Sveinsson 7, Gunnleifur
Gunnleifsson 5.
ÍR-lBV..................27-25
Daði Hafþórsson 6, Magnús M.
Þórðarson 5 - Gunnar B. Viktors-
son 9, Arnar Pétursson 5.
Körfubolti
Njarðvík - Grindavík.....85-99
Teitur Örlygsson 14, Rúnar Árna-
son 13, Kristinn Einarsson 11 -
Hermann Myers 23, Guðmundur
Bragason 23, Helgi Guðfmnsson 21.
Keflavík - Haukar.......92-84
Lenear Bums 27, Guðjón Skúlason
21 - Sigfús Gissurarson 23, Jón A.
Ingvarsson 17.
r
Karl Þórð-
arson, fyrr-
um leik-
maður með
ÍA, landsl-
iðinu og at-
vinnumað-
ur í Belgíu
og Frakklandi, spáir í leiki 16.
umferðar 1. deildarinnar í knatt-
spyrnu. Fram og ÍA leika í kvöld
klukkan 21 og hinir leikimir eru
á morgun, þrír klukkan 14 og
Leiftur - Breiðablik klukkan 16.
Karl, sem lék síðast með Skaga-
mönnum í fyrra, þá 39 ára gam-
all, hafði þetta að segja um leikina
fimm:
Fram-ÍA1-3
Mínir menn eru með bullandi
sjálfstraust og ég hef ekki trú á
að þeir fari með slakan leik sem
fararnesti í Evrópuleikinn í Skot-
landi. Framarar eiga rpjög erfitt
uppdráttar þessa dagana.
Grindavík - Valur 1-2
Kristinn Björnsson virðist vera
búinn að ná góðum anda í Valsl-
iðið. Grindvíkingar eru baráttu-
glaðir en einhvern veginn finnst
mér að Valur hafi þetta.
KR-ÍBV1-2
Ég held að ÍBV sé það lið sem
hefur mestu ánægjuna af því að
spila fótbolta í dag. Það er hægt
að fara ótrúlega langt á leikgleð-
inni og ég tel að Eyjamenn vinni
í Skjólinu.
FH - Keflavík 0-2
Fjórði útisigurinn - það er fall-
draugur að hrjá Hafnarfiarðar-
liðið og svona gengi fer alltaf á
sálina á mönnum. Keflvíkingar
hafa betur þó þeir hafi ekki verið
á sigurbraut undanfarið.
Leiftur - Breiðablik 3-1
Ég hef trú á að Leiftur rífi sig upp
eftir tvo tapleiki í röð og vonandi
standa þeir sig vel frændur min-
ir, Þorvaldur Jónsson og Gunnar
Oddsson!
fþróttir
Karateívest-
urbæoghjáHK
Jón Ásgeir Blöndal hefur tekiö
að sér kennslu og umsjón með
barna- og unglingastarfi í karate
hjá tveimur félögum. Karatefélag
vesturbæjar hefur verið endur-
vakið og stofnuð hefur veriö kar-
atedeild hjá HK í Kópavogi og sér
Jón um starfið á báðum stöðum.
Kennsla hefst 11. september hjá
KV í gamla ÍR-húsinu, gegnt
Landakotsspítala, og í Digranesi,
íþróttahúsi HK í Kópavogi. Upp-
lýsingar og skráning fyrir bæði
félögin er í síma 588-2336 frá
klukkan 10 til 22 alla daga.
Áttatíuá
golfmóti ÍFA
Samtökin íþróttir fyrir alla
héldu Eurocárd-golfmótið á velli
Oddfellow i Heiðmörk á fimmtu-
daginn en þar var um sveiía-
keppni að ræða. Þátttakendur
voru um 80 talsins. í karlaflokki
sigraði sveit Landspítalans en
hana skipuðu Óskar Ingason,
Kristinn Jóhannsson, Guðmund-
ur Arason, Þráinn Rósmundsson,
Knútur Björnsson og Einar Odds-
son. I kvennaflokkí sigraði a-sveit
Landsbanka íslands en hana
skipuðu Svala Óskarsdóttir,
Kristín Þorvaldsdóttir, Agnes
Sigurþórsdóttir og Margrét Jóns-
dóttir. Óskar Ingason og Svala
Óskarsdóttir fengu flesta punkta
af einstaklingum og voru verð-
launuð sérstaklega fyrir það.
Andertonseldur?
Darúel Óla&son, DV, Akranea:
Gerry Francis, stjóri Totten-
ham, er tilbúinn að láta Darren
Anderton fara frá félaginu ef
hann fær Ruel Fox frá Newcastle.
Newcastle er tilbúið að láta Fox
fyrir 500 millj ónir en Francis hef-
ur boðið 350 raifijónir í leikmann-
inn. Darren Anderton gerði ný-
lega saraning við Spurs en taiið
er að Manchester United muni
bjóða honum samning því Alex
Ferguson, stjóri United, hefur
mikið dálæti á Anderton.
LeTissierí
landsliðWales?
Bobby Gould, nýráðinn til
velska landsliðsins í knatt-
spyrnu, hefur boðið Matthew Le
Tissier, binum snjaila leikmanni
Southampton, sæti í liðinu. Le
Tissier er af mörgum talinn besti
knattspyrnumaður Englands en
hlýtur samt ekki náð fyrir augum
landsliðseinvaldsins. Tissier hef-
ur aðeins leikið vináttuleiki fyrir
England og yrði því löglegur með
Wales. Hann er frá Ermarsunds-
eynni Guernsey og getur því valið
um með hvaða landsliði á Bret-
landseyjum hann spilar.
KR-Everton
Forsala aðgöngumiða er hafm á
leik KR og Everton sem leikinn
verður fimmtudaginn 14. sept-
emher ' á Laugardalsvellinum.
Forsala er á bensínstöðvum
Skeljungs á Reykjavíkursvæö-
inu, svo og í Spörtu á Laugavegi
og skrifstofu knattspyrnudeildar
KR í KR-heimilinu.
McAteertil
Liverpool
Liverpool gekk í gær frá kaup-
unum á Jason McAteer, írska
landsliðsmanninum í knatt-
spymu, fráBolton fyrir 450 millj-
ónir króna. Hann skrifaði undir
fimm ára samning við félagiö.
Reynir-Grótta
Rejmir og Grótta ieika tíl úrslita
um sigurlaunin í 4. deild karla í
knattspymu á Ásvöllum í Hafn-
arfirðí klukkan 16 á morgun.