Þjóðviljinn - 24.12.1943, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 24.12.1943, Blaðsíða 8
6 ÞJÓÐVILJINtf Ógnir nútímastyrjalda bitna ekki sizt á börnum og konum. Myndin er úr spcensku borgarastyrjöldinni, tekin cftir eina af loftárásum fasista. Heims um ból helg eru jól. Signuð mær son guðs ól, frelsun mannanna, frelsisins lind, frumglæði ljóssins, en gjervöll mannkind meinvill í myrkrunum lá. Héimi í hátíð er ný. Himneskt ljós lýsir ský. Liggur í jötunni lávarður heims, lifandi brunnur hins andlega seims, konungur lífs vors og ljóss. Lftir ógftir Napóleonsstyrjalda í þýzkum þjóðlönd- Um var loks kominn friður á jörðu, þegar þorpsprest- Uriftn þýzki í Alpadalnum orti þennan jólasálm og söngkennari þorpsins gerði við sálminn hið angursára fagnaðarlag, sem orðið er grunntónn jólahaldsins, for- boði jóla í tilhlökkun barnanna, eftirómur þeirra hjá okkur fullorðnum. En „hið heilaga bandalag" réð álfunni, einhver harð- svíraðasta klíka afturhaldsdrottnara, sem Evrópusag- an greinir, og þá voru reistar svo rammar skorður gegn heilbrigðri uppeldisþróun í ýmsum þýzkum löndum, að enn gjalda menn þess lengi. Sál alþýðu í fjötrum, í meinvillu myrkranna, and- varpar í þessu ljóði og lagi. Og þegar lagið rís að óvörum með afli og sigurvissu í orðunum: „frelsun mannanna, frelsisins lind“, — er það bælda mannrétt- indaþráin sem varpar okinu við „mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum“. Þessa jólanótt var þorpspresturinn sóttur til að skíra nýfætt barn verkamanns, sem hjó viðarkol og sveið þau í skógi og hafði ekki nema hreysið hjá vinnustaðnum yfir f jölskyldu sína. Innan við þröskuld í sótuga bjálkahjallinum birtist prestinum sama sýnin, sem forðum var í Betlehem: mannssonur fæddur og lagður í jötu og móðirin eins og henni væri fæddur frelsari og gefið guðsríki. Áður en næsta dagsól var af himni, var orðið úr sýninni ljóðið og lagið Heims um ból. Með sumarsól ársins, sem fór í hönd, lagði sálmur- inn af stað að vinna heiminn, boða frelsið, ljósið og fyrirheit örsnauða barnsins. Fjögur börn úr einum jAlpadalnum flökkuðu um Þýzkaland og sungu lagið inn i hjörtu fólksins. Sama ár var send út hin illræmda Karlsbadtilskip- un í þýzkum löndum — um hefting málfrelsis og rit- frelsis, — því að alþýðu dreymdi um að varpa okinu. 'Réttri öld eftir, að sálmurinn varð til, hrundu skyndi- lega öll hásæti keisara, konunga og fursta, sem að Karlsbadtilskipun stóðu, óg endurrísa aldrei. Sálm- urinn lifði. Enn er aldarfjórðungur liðinn, og hálfu grimmari höft en Karlsbadtilskipunin ríkja í þýzkum löndum. Sálmurinn lifir. Ef til vill verða ekki önnur jól liðin, þegar nýjasta kúgunarvaldið hrynur í þýzk- um löndum, en sálmurinn og fagnaðarboðskapur lýðs- ins lifir. Sú þjóð, sem á þrár og innblástur þessa ljóðs og ótal slíkra ódauðlegra verka, getur aldrei týnt fyrir- heitinu um barn öreigans: Verið óhræddir, því sjá: Þér munuð finna uftgbarft reifað og liggjandi í jötu. Ciní/íeortri

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.