Þjóðviljinn - 24.12.1958, Blaðsíða 27
2E) JOLABLAÐ bJOÐVILJANS 1958
JOLABLAÐ ÞJOÐVILJANS 1958 (27
BÓLIVÍA — Fausto Aoiz: Fjölskyltla af aimara-cettkvísl.
CHILE
— José Ventnfelli: Vinnmnenn t sveit.
s
vartliHlf
ARGENTÍNA — José C. Arcidiacono: Bóndi frá Catamarca.
Suður-Ameríku
Við höfum áður í jólablöð-
um Þjóðviljans birt sýnis-
horn af svartlist frá Mexíkó, .
én á okkar dögum hefur sú
listgrein staðið með meiri
blóma þar en í nokkru öðru
landi. Á þessum siðum er
hins vegar engin mynd eftir
hina frægu listamenn Mexí-
kó, þótt engum geti dulizt
að þær sem hér birtast bera
svip af myndum þeirra.
Enda þarf það ekki að koma
á óvart, myndimar hér á
síðunni eru allar frá Suður-
Ameríku, menningar- og
ættartengsl við Mexíkó eru
náin, aðstæður svipaðar.
Svartlistin stendur nú í
miklum blóma um alla Suð-
urAmeríku.
Einn af listamönnum
heimsálfunnar hefur sagt að
skýringar á þessu blóma-
skeiði svartlistarinnar þar sé
að leita í ótrúlegri fátækt í-
búanna, sem fæstir eru læsir.
Til að vekja þetta fólk af
dvala sínum, fá það til að
skynja mátt sinn, opna augu
þess, hefur myndin komið í
stað hins ritaða máls. Og
þar varð svartlistin lausnin,
og þó einkum tréskurðar-
myndin.
Svartlistin er órðinn snar
þáttur í lífi alþýðunnar í
þessum löndum. Listamenn-
irnir eru ekki háðir fáum
auðugum söfnurum, eins og
víða annars staðar, þeim er
ekki hagur í að takmarka
upplög myndanna, þvert á
móti er svartiistin notuð í
samræmi við eðli sitt, bætt
við upplag hverrar myndar
meðan einhver vill þiggja.
Það eru verkamenn borg-
anna sem safna þeim, klippa
þær út úr blöðum og verka-
lýðsritum, hinir örsnauðu
bændur sveitanna sem kaupa
þær fyrir lítinn skilding á
ÚRÚGUAY — Eduardo Vemazza: Höfnin.
mörkuðunum og hengja upp
í kofum sínum þegar heim er
komið. Skemmist ein myndin
skiptir það ekki miklu máli,
það má alltaf fá nýja.
Enginn vafi er á því að
rekja má þá vakningaröldu
sem nú gengur yfir Suður-
Ameríku að verulegu leyti
til svartlistarvinnustofanna
sem komið hefur verið upp
víða í heimsálfunni að mexí-
kanskri fyrirmynd. Að sjálf-
sögðu eru gæði myndanna
mjög misjöfn, en bæði lista-
mennirnir sjálfir og þær
milljónir sem listin er gerð
fyrir eru þeirrar skoðunar
að listgildi myndar og boð-
skapur sá sem hún 'hefur að
færa verði ekki aðskilin.
BRASILÍA — Vasco Prado: Kúrekar.
PERÚ — Camilo Blas: Á hásléttunni.
BRASILÍA — Sapateiro: Skósmiðurinn.
HAÍTÍ — Petion Savian: Jólabaðið.
BRASILÍA -— Edgar Koetz: Þvottadagnr.
BRASILÍA — Danubio Villamil Goncalves: í skólanum.