Þjóðviljinn - 30.07.1972, Page 1
Sunnudagur 30. júli 1972—37. árgangur — 168 tölublað
Alþýðubankinn hf
ykkar hagur
okkar metnaóur
Kanar fara
í austurveg
Þeir sem ferðast austur fyrir
fjall i sumar hafa undrast það hve
algengtþaðer að mæta bifreiðum
merktum j og núll, en þannig eru
bifreiðir Bandarikjamanna i
einkaeign merktar á Keflavikur-
velli. Einkum hefur fólk rekist
mikið á þessa bila á helztu
áningastöðum skemmtiferða-
fólks. Nokkuð er um það að þar
séu á ferð hermenn i borgaraleg-
um klæðum. Hafa þeir verið tfðir
gestir á dansleikjum þar eystra
og virðast engar útivistareglur
virtar úti i dreifbýlinu. Þá eru
gististaðir á þessum slóðum sem
standa þessum aöilum opnir með
fylgdarliði, en að sögn er ekki
allt með feldu um vimugjafa sem
þessir aðilar hafa með höndum og
bjóða á dansleikjum.
Kommimistaflokkiir Frakklands:
Gagnrýnir
réttarhöldin í
T ékkóslav aldu
PARIS 29/8. Kommúnistaflokkur
Frakklands hefur gagnrýnt (með
varfærnu inóti þó) hin pólitisku
réttarhöld sem nú fara fram i
Tékkóslóvakíu. Alls hafa nú 28
manns verið dæmdir i fangelsis-
vist siðan réttarhöld þessi hófust
þar fyrir 12 dögum.
t tilkynningu flokksins segir á
þá leið, að það sé að visu rétt, að
það beri að refsa mönnum að lög-
um sem reyni með ofbeldi og
skemmdarverkum að grafa und-
an sósialisku samfélagi. En ,,þær
upplýsingar sem vér höfum,
benda til þess að þessum réttar-
höldum sé ekki beint gegn slikum
öflum. Þegar um er að ræða póli-
tiska eða hugmyndafræðilega
andstöðu ber að berjast gegn
henni með pólitiskum ráðum”
segir i yfirlýsingunni.
Franski kommúnistaflokkurinn
hefur sýnt mikla varfærni i af-
stöðu sinni til Austur-Evrópurikja
og fátt eitt sagt fyrr en nú til að
andmæla þróun mála i Tékkósló-
vakiu siðan innrásin var gerð þar
1968.1 yfirlýsingunni segir einnig,
að tékkneskir leiðtogar hafi lofað
fulltrúa franska kommúnista-
flokksins þvi, að ekki kæmi til
fleiri pólitiskra réttarhalda.
RÁÐA KAUPMENN FERÐ-
UM STRÆTISVAGNA?
Bruni í
Keflavík
Klukkan rúmlega 6 i fyrradag
kviknaði i gömlu steinhúsi á Aðal-
götu 5 i Keflavik.
Slökkviliðið kom þegar á vett-
vang, og hafði ráðið niðurlögum
eldsins um klukkan hálf átta.
Talsvert tjón varð af sóti, reyk
og vatni og innanstokksmunir
skemmdust mikið og ónýttust.
Hvorki er kunnugt um eldsupp-
tök, né verðmætamat tjónsins enn
sem komið er.
Nokkrar umræður hafa orðið
um leiðir strætisvagnanna um
miðborgina og skýrir forstjóri
strætisvagnanna frá þvi i blaða-
viðtali, að verið sé að kanna hvort
hægt sé að veita strætisvögnum
forréttindi hvað akstur snertir á
nyrðri helming Laugavegs. Ti'f-
gangur breytinganna er sá að
veita strætisvögnum viss for-
réttindi i umferðinni til að greiða
fyrir ferðum þeirra. Umsóknir
SVR um þetta hafa verið sendar
umferðarnefnd Reykjavikur og
Kaupmannasamtökum. Nú er
spurt: Hvað kemur það Kaup-
mannasamtökunum við að áætlað
sé að greiða fyrir ferðum strætis-
vagnanna? Væri ekki eðlilegra að
senda slikt til Neytendasam-
takanna eða eru Kaupmanna-
Blaðinu tókst ekki að ná tali af
neinum ábyrgum aðila að heims-
meistaraeinviginu i skák, áður en
það fór i prentun i gær, svo ekki
tókst að fá upplýsingar um hvort
samningar hafa tekizt um kvik-
myndun einvigisins eða ekki.
samtökin einhver undirborgar-
stjórn sem ræður ákvörðunum
borgarstjórnarmeirihlutans, sem
eðlilega er háður styrkjum frá
kaupmönnum?
Blaðið spurði Friörik Ólafsson
stórmeistara að þvi hvort hann
vissi til að annar hvor keppandinn
hefði farið fram á frestun skákar-
innar á sunnudag, en Friðrik vissi
ekki til þess.
Frh. á bls. 15
20
mánudags
myndir
Háskólabíós
kynntar
í kvikmyndaþætti Þórhalls
Sigurðssonar er i dag sagt frá
næslu 20 mánudagsmyndum
Háskólabiós og birtar myndir
úr nokkrum þeirra. Myndin á
forsiðu er af Catherine
Dencuve i hlutverki sinu i
nýrri mynd Hafmeyjan úr
Missisippi eftir Francois
Truffaut, sem verður sýnd i
lláskólabió á mánudags-
sýningu.
Níunda skákin tefld í dag
í DAG 1
; Þjóðviljinn i dag er 16
siður og efni: fjölbreytt
*
Skrif ar Ragnar
Arnalds um skátta-
málin á 5 siðu
á 7 siðu
POPTIK — siða
Stefáns Valdimars.
*
á 6 síðu
er leiðari um
landhelgismálið og
þátturinn Stéttin og
starfið
á 4 síðu
Grein um Vietnam og
umsag.nir um
eyðingastriðið.
*
Opnan
Kvikmyndaþáttur
Þórhalls Sigurðssonar
um 20 aæstu mánu-
dagsmyndir Háskóla-
biós. ^4