Þjóðviljinn - 30.07.1972, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 30. júli 1972
©[pOcgDDdlQODm]
Hve
margar
mæður
á Ivan
Rebrof?
tslendingar eru sagðir hafa
mikið dálæti á Ivan þeim Rebrof
sem sérhæfir sig i rússneskum
söngvum og hefur meiri hljöð en
flestir menn aðrir. Getur hann
hoppað á milli kurrs i þunglynd-
um birni og kveinstafa deyjandi
fils eins og ekkert sé.
Flestir munu telja, að náungi
þessi sé rússneskrar ættar, enda
hefur hann sjálfur ýmsar sögur
á lofti um að móðir hans hafi
verið rússnesk og að i ættinni
hafi verið að minnsta kosti einn
stórfursti. Þetta mun þó allt
vera lygimál, eða svo segir faðir
Rebrofs, sem er maður alþýzk-
ur og heitir Paul Rippert. Ivan
Rebrof heitir nefnilega, réttu
nafni Hans Rippert: það hefur
vist áður komið fyrir aö striga-
bassar tækju sér rússneskt nafn
og það sama hefur komið fyrir
dansmeyjar.
Og móðir Rebrofs — eða sú
sem hann sjálfur viðurkennir
sem móður sina, kunni ekki orð i
rússnesku. Rebrof verður að
hafa i þjónustu sinni rússneska
útlagakonu sem leiðréttir fram-
burð hans. Hér við bætast nú
þau vandræði, að fleiri en ein
kona gera tilkall til að vera
móðir þessa vinsæla sirkustrúðs
i sönglistinni. Paul karlinn var
nefnilega framúrskarandi
kvensamur á ungum aldri og
eru ekki öll kurl komin til grafar
þeim efnum.
Ivan Itebrof heitir réttu nafni
Hans Itippert og er alþýzkur.
Rebrof kyrjar: þunglyndur
björn og helsærður fill.
Villimannlegustu
aðfarir síðan
Gyðingamorð
Hitlers leið . . .
— segir George McGovem um
lofthemað Nixons í Indókina
Fyrir skemmstu féllu tiu
sprengjur á sjúkrahúsið i
Thanh Hoa og lögðu það í rúst.
Tvisvar áður hafði sjúkrahús-
ið vcrið eyðilagt og byggt upp
aftur — árin 1968 og 1971.
Hér fer á eftir ivitnana
safn um loftárásir
Bandarikjamanna á
stiflugarða Norður-Viet-
nams, sem mjög hafa
verið ofarlega i frétta-
flutningi undanfarinna
vikna.
Vietnam er i þeim hluta heims
þar sem úrkoma getur orðiö m jög
mikil stundum 600mm á dag. Og i
Norður-Vietnam er mikið um ár
og skuröi. Þar verða oft flóð,og
meiri flóð en i flestum öðrum ám i
heiminum. óshólmar Rauðár eru
efnahagsleg, pólitisk og menn-
ingarleg miðstöð fyrir allt landið.
Svæðið er mjög þéttbýlt — i sum-
um héruðum eru 600 ibúar á
hverjum ferkm. Yfirborð árinnar
er miklu hærra en akranna og ás-
ar i kring. Sums staðar er hæðar-
munurinn 6—7 metrar. t staðar-
héruðunum verður yfirborð
sjávar 2—3 m hærra en akrarnir i
háflæði. Ef ekki kæmi til kerfi
stiflugarða væri norður
vietnamska sléttan á floðartim-
anum undir vatni, sem flæða
mundi yfir alla akra, þorp og
borgir, jafn i innsveitum sem úti
viö ströndina. Og ekki væri hægt
að rækta strandhéruðin á stiflu-
garöanna við sjóinn.
A regntimanum frá júni til okt-
óber eru margar miljónir manna,
sem búa á margra þúsund ferkm.
svæði, háðir stiflugarðakerfi,sem
er um 3000 km á lengd. Þvi hafa
öll spjöll sem unnin eru á þessu
kerfi, einkum i óshólmum Rauð-
ár, hinar skelfilegustu afleið-
ingar, sem ekki verða fyrir séðar.
Af sjálfu leiðir að stiflugarð-
arnir i Norður-Vietnam hafa
mjög mikla þýðingu fyrir fólkið i
landinu og að þeir hafa enga
hernaðarlega þýðingu eins og
Nixon hefur reynt að láta liggja
að (sbr. ræðu i Texas 30. april
s.l.)
Vinna Vietnama að stiflugerð
þessari hefur staðið i meira en
þúsund ár og siðan landið losnaði
undan frönsku valdi hefur kerfi
þetta veriö aukið og endurbætt.
En i tilraun sinni til að bjarga
stöðu sinni og leppstjórnarinnar i
Suður-Vietnam hefur Nixon skip-
að svo fyrir að flugvélar og her-
skip skuli ráðast á stifiugarðana.
Frá 10. apríl til 10. júni hefur
sprengjum verið varpað 68 sinn-
úm á stiflugarðana. 32 flóðgarðar
og 31 stifla hafa orðið fyrir
sprengjum af ýmsum stærðum og
gerðum. Auk þess hafa Banda-
rikjamenn drepið þá sem sendir
eru til að gera við garðana.
Enda þótt þetta leiði ekki til
flóða þegar i stað hafa þessar að-
gerðir háskasamlegustu afleið-
ingar. Að spilla görðunum nú,
áður en vatnið ris sem hæst,
veikir þá mjög. Nixon hefur oftar
en einu sinni haldið þvi fram, að
flugmenn hans hafi kastað
sprengjum á stiflurnar i misgán-
ingi — en það er lýgi tóm og
hræsni.
Tran I)ang Khoa verkfræðingur,
forstjóri Vatnsorkumálastofn-
unar Alþýöulýðveldisins Viet-
nams.
JEAN-CHRISTPHE ÖBEItG
sendihcrra Sviþjóðar i Hanoi:
Sjálfur hef ég séð fyrir þrem
vikum, sprengjugiga i stíflugörð-
um á óshólmasvæðinu við Rauðá.
Ef sprengjukast þetta eyðileggur
stiflukerfið mun það hafa hinar
alvarlegustu afleiðingar þegar
regntiminn stendur sem hæst um
mánaðamótin ágúst-september.
Það er gott að við vitum nú þegar
hver ber ábyrgðina á sliku stór-
slysi. Við verðum að gera allttilað
koma i veg fyrir þessa þróun. þvi
að miljónir mannslifa eru i hættu
og Norður-Vietnam verður að lik-
indum i fyrsta Sinn fyrir barðinu
á hungursneyð.
Ræða á þingi Sambands ungra
sósialdemókrata i Stokkhólmi 30.
júni.
JEAN TIIORAVAL fréttaritari
frönsku fréttastofunnar AFP:
Ég sá (24/6) stiflugarð i Nam
Dinh héraði sem var eyðilagður á
kflómeters löngum kafla. Stiflu-
garðarnir eru i raun og veru skot-
mörk flugvélanna, þeir hafa ekki
verið hæfðir i misgripum.
Le Monde 27/6.
ANTIIONY LEWIS — Internati-
onal Herald Tribune:
Enginn þarf að efast um hvað
skipulögð eyðilegging stiflugarð-
anna á þessum tima þýðir. Hún
réttlætir notkun ofnotaðs orðs:
Þjóðarmorð.
IHT 27/6
GEORGE MCGOVERN forseta-
efni Demókrata:
Loftárásir Nixons í Indókina
eru villimannlegustu aðgerðir
sem nokkurt land hefur staðið
fyrir siðan Hitler reyndi að út-
rýma Gyðingum. Auk þess er
fjöldamorð á saklausu fólki
smánarblettur á bandariskri
sögu.
Le Monde 2. júlí.
NEW STATESMAN, brezkt viku-
blað:
Þegar Bandarikjamönnum
tekst ekki að vinna striðið leggja
þeir allt i auðn og eru svo ósvifnir
Skólabörn í Norður-Vfetnam flýta sér í loftvarnarbyrgi.
drepa. Hann fæst nú við að búa til
rigningu og efna til flóða. Og hin
siðferðilega tvöfeldni Bandarikj-
anna er slik, að á meðan Hvita
húsið lýsir riki eins og Pennsylv-
aniu og Virginiu „stórslysa-
svæði” virðist enginn taka eftir
þvi, að Vietnam er um leið dæmt
til meðferðar sem er margfalt
verri en sú martröð sem hrjáð
getur bandariskan heimilisleys-
ingja.
N.S. 20. júni.
að kalla þetta frið. Nixon forseti
hefur allavega eina ástæðu til að
gera tilkall til frægðar: hann
hefur staðið fyrir takmarka-
lausari eyðileggingu en nokkur
annar maður i sögunni. Hr. Nixon
hefur ekki sýnt minnsta dæmi um
háttvisi. Jafnvel óljósar staðhæf-
ingar um að Bandarikjamenn
hafi aðeins áhuga á hernaðar-
mannvirkjum sem skotmörkum
eru horfnar. Risasprengjuflug-
vélarnar B-52 eyða landinu og öllu
sem á þvi er. En Mr. Nixon lætur
sér ekki nægja að brenna og